Morgunblaðið - 19.03.1969, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.03.1969, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1969 Guðlaugur Císlason, alþingismaður: MINKAELDIIVESTMANNAEYJUM Frumvarp okkar Péturs Sig- urðssonar um að Alþingi breytti lögunum uim loðdýrarækt og leyfði minkaeldi í Vestmanna- eyjum, hefur á ný vakið upp umræður um þetta efni. Er þetta eðlilegt. Andstæðingar minka- eldis hafa fært fram sín rök gegn málinu. En þó að ég geti eklki á þau fallizt, og telji sum þeirra hreinar öfgar, er út af fyrir sig ekkert við því að segja. Ég dreg á engan hátt í efa, að þetta sé einlæg meining þeirra byggð á þeirri skoðun, að minka eldi geti orðið náttúru landsins, fugla- og dýralífi, hættulegra hér en annars staðar, þar sem minkarækt og minkaeldi er orð- in þróuð iðngrein og verulegur atvinnuvegur til öflunar erlends gjaldeyris. En það sem mér þykir verra er að ég hefi orðið var veru- legs misskilnings hjá einstökum aðilum, sem annars eru áhuga- menn um minkarækt, til málsins, eins og það liggur fyrir Alþingi nú. Málið er borið fram á Alþingi f því formi, sem það er, af þeirri ástæðu, að flutningsmenn frv. töldu, að komið hefði í ljós á síð- asta þingi, að ekki væri þing- meirihluti fyrir hendi, sem vildi leyfa minnkaeldi almennt, en hugsanlegt væri, að frv., eins og það liggur fyrir nú, yrði sam þykkt, þar sem það snertir Vest mannaeyinga eina, og myndi því ekki valda neinum öðrum óþæg- indum, þó eitthvað væri hæft í þeim rökum sem andstæðingar minkaeldis hafa fært fram og er auk þess borið fram samkvæmt einróma ósk ráðamanna byggð- arlagsins. Ég tel rétt að ræða nánar þann misski'lning, sem ég hefi minnzt á að komið hafi fram við málið, en hann er þessi helztur: Að ekki sé eðlilegt að leyfa minkaeldi í Eyjum, þar sem villi minkur sé þar ekki fyrir. Að veðurfar sé þar ekki ákjósan- legt í þessu sambandi og að flugumferð yfir Eyjum geti frek ar valdið tjóni þar, en annars staðar. ENGINN VILLIMNKUR Varðandi fyrsta atriðið, að vegna þess að ekki sé villimink ur í eyjum sé óeðlilegt að minka eldi verði leyft þar, og vil ég segja það, að mér finnst þessi kenning svo furðuleg og ósann- gjörn, að engu tali tekur. Hér á árunum, meðan minkarækt var leyfð, voru a.m.k. fjögur minka- bú í Eyjum. Þrátt fyrir þetta er það staðreynd, að villi- minkur hefur aldrei sézt þar. Annað tveggja er, að þess hefur verið betur gætt þar en annars staðar, að dýrin slyppu ekki úr búrunum, eða að villiminkur hreinlega þrífst ekki á þessum stað, af hvaða ástæðum, sem það kann að.vera. Ekkert getur verið þar á milli. En hcirðir kostir hlytu það að teljast ef þessi tvö atriði ættu að standa í veginum fyrir minka eldi þar. Og ef það ætti endi- lega að verða skilyrði fyrir leyfi til minkaeldis, að villiminkur væri þar fyrir hendi, er ég sann færður um, að Vestmannaeying- um yrði lítil skotaskuld úr því að skapa þau skilyrði, þannig, að einhver okkar ágætu frétta- manna sjónvarpsins gætu á sjón varpsskerminum, sýnt steindauð an villimink með sannorðri frá- sögn af því, að hann hefði hvorki verið drepinn í Austurstræti í Reykjavík eða upp í Borgarfirði heldur úti í Vestmannaeyjum. Þetta er að sjálfsögðu sagt í gamni frekar en að því fylgi al vara, og þó, ef málið strandar á því einu. VEÐURFAR 1 EYJUM Annað atriði, sem ég minntist á, og fram kemur í grein Her- manns Bridde í Morgunblað- inu s.l. laugardag, er að hörð veðrátta mundi orsaka að minka eldi yrði erfiðara i Eyjum, en annars staðar. Ég skal viðurkenna að mig brestur sérþekkingu til að dæma um þetta atriði. His vegar hefi ég reynt að leita mér upþlýsinga um, hvort minkaskinn frá Vestmannaeyjum hafi á sín- um tíma verið talin nokkuð verri vara, en annars staðar frá á land inu. Ég hefi ekki getað fengið það staðfest hvað þá, að nokk- ur rök liggi að því, að hörð veður eða mikil úrkoma hefðu gefið neitt slíkt til kynna. Um þetta er að mínum dómi erfitt að staðhæfa nokkuð þar sem vitað er að á þeim tíma fór eng Jn sérstök athugun fram á þessu, hvorki þar né annars staðar. í áðurnefndri grein Hermanns Bridde þar sem hann ræðir af stöðu náttúruverndarmanna, og vitnar til þess, að þeir hafi mælt Guðlaugur Gíslason með. minkaeldi í Eyjum, segir á einum stað oðrétt. „En með því að mæla með minkaeldi í Vestmannaeyjum er þessi skoðun fyrir borð borin, því að hvergi á íslandi síðustu árin hafa átt sér stað jafnmiklar náttúruhamfarir og einmitt á svæðinu krignum Eyjar.“ Hér mun átt við Surtseyjargosið 1963. Nú skal ég ekkert dæma um hvort þetta er rétt haft eftir náttúruverndarmönnum. Ég dreg þetta aðeins fram til að sýna, að það er ekki sagt alveg út í bláinn, þótt því sé haldið fram, að minkurinn geti ruglað dóm- greind manna, ef það á að ráða staðsetningu minkabúa, hvað mik il hætta kann að vera á eld- gosum á einum stað frekar en öðrum. Og hvað þá um fram- kvæmdirnar í Straumsvík og at huganirnar um stórfelldan efna- iðnað byggðan á gufuorku á Reykjanesi, þessum gamla eldgíg stað, þar sem enn kraiumar undir, ef Surtseyjargosið á að vera rök fyrir því, að ekki sé réttlætan- legt vegna hugsanlegra náttúru hamfara, að hafa minkaeldi í Eyj um. Það sem segir í umræddri grein að samkvæmt niðurstöðum Veðurstofunnar sé stormasamara í Eyjum en víða annars staðar á landinu og að þar rigni mikið, þá er það rétt. Á það ber þó að líta í þessu sambandi, að vindimælingar eiiga sér stað á Stórhöfða, eins og kunnugt er, í 125 metra hæð. Veður er þar af eðlilegum ástæðum í sumum áttum mun harðara en í námunda við kaupstaðinn og víða annars staðar á Heimaey. Er þetta af ýmsum talið til óhagræðis fyrir minkaeldi þar. En eins og ég hefi áður sagt er erfitt um þetta að dæma, þar sem engar raunhæfar Sthuganir hafa varið fram á þessu atriði. í mjög fróðlegri og ýtarlegri skýrslu Árna G. Eýlands, sem hann samdi fyrir Landbúnaðar- ráðuneytið fyrir nokkru, um loð dýrarækt og minkaeldi í Noregi kemur fram, að minkaeldí er þar í landi allt sunnan frá Oslófirði og til norður-Noregs. Ég er að vísu ekki kunnugur í Norður- Noregi, en hver efast um, að veð ur geti orði all hörð þar um slóðir og að vindar blási þar oft ekki síður en í Eyjum, og þó er talið af kunnugum, að beztu minkaskinn Norðmanna komi ein mitt frá þessum landshluta. Og hvað mikla úrkomu snertir er hún ábyggilega fyrir hendi sum staðar í því landi, ekki síður en í Eyjum eða annars staðar hér- lendis. Eða hvernig er með Berg en og svæðið þar í kring. Ég hefi alltaf heyrt um það talað sem mikið úrkomusvæði og sú er reynsla mín í þau skipti, sem ég hefi þangað komið, og er þó mikil minkarækt á svæðinu kring um þessa borg. Og hvað um Fær eyjar. Er það ekki bæði storma- samt og tiltölulega mikil úrkoma? Þó fer minkaeldi þar mjög ört vaxandi, og er að verða að um- talsverðri atvinnugrein. FLUGUMFERÐ Þá kem ég að síðasta atrið- inu, sem ég minntist á í upp- hafi greinarihnar en það er í sambandi við flugumferð þar sem minkaeldi á sér stað. í áður nefndri grein Hermanns Bridde s.l. laugardag segir orð- rétt: „Aðeins eitt orð nægir til að kippa stoðunum undan nafn- inu tilraunabú í minkarækt í Vest mannaeyjum, en það er orðið flugvöllur." Ég ful'lyrði að þetta er sagt alveg út í bláinn og byggt á hreinni vanþekkingu á aðstæð- um í Eyjum, borið saman við aðra staði, og mun ég koma að því síðar. Telur greinarhöf-undur, að minkaeldi geti stafað hætta af ,/hátíðnilhljóðu'm“ flugvélaimjótora. Um þetta skal ég ekkert dæma. En þá hlýtur að vakna sú spurning, hvar minkabú verði yfirleitt sett niður hér á landi, þar sem flugvélar fljúga ekki yfir. Fróður maður um þessi mál hefur tjáð mér, að talið sé að um truflun geti verið að ræða, ef flogið sé nær minkabúi en 400 metra. En hvað þá um allt Reykjanesið og Reykjavíkursvæð ið. Hvergi á landinu mun vera meiri fluiguimferð en einmitt á þessum svæðum. Ég hefi í gegn um árin lent og farið frá Reykjavíkurflugvelli, ekki í tuga skipti heldur hundraða, og mér hefur sýnst, að flugvélar nálg- ist völlinn bókstaflega úr öll- um áttum og eru þá oft farn- ar að lækka flugið verulega, ef bjart er, þar sem fjöll eru hér hvergi nærri flugbrautinni. Á Kerflaivíkurflugvelli þekki ég ekki eins aðstæður, en maður hlýtur að veita því athygli, að minni og stærri flugvélar fljúga yfir þessi svæði þvers og kruss þegar bjart veður er. Og hvern ig er það með hina ýmsu þröngu firði, ,td. á Vestfjörðum. Ég sé ekki betur en að vélar fljúgi þar lágt bæði út og inn firðina og beygi inni í fjarðarbotnum, þar sem svo hagar til. Ef úti- lokunarkenning fær staðist um einn stað eða annan af þess- um ástæðum, skal ég viðurkenna að málið er flóknara en ég hafði gert mér grein fyrir. En ég held þó, að svo sé ekki. Að minnsta kosti komast Danir ein- hvern veginn fram úr þessu og Norðmenn einnig, þar sem minka og loðdýrabú munu vera svo þúsundum skiptir. Um sérstöðu Vestmannaeyja í sambandi við flugumverð er það að segja, að aðstæður eru þann- ig, að flugbrautin er girt fjalla belti frá norð-vestri og austur um, þó með skarði á milli fjalla við norðurenda þverbrautar. Norðaustan við brautina og í námunda við hana er Helgafell og Sæfell sunnan við hana. Þetta orsakar það, að ekki er flogið inn á brautirnar eða að þeim nema bjart veður sé og þá alltaf í beina stefnu að brautarendun- um áður en komið er yfir land. Og þó að Heimaey sé ekki stór, er flatarmál hennar þó um 16 ferkílómetrar. Og einmitt vegna þeirra sérstöðu aðstæðna, sem eru við aðflug á flugbrautirnar þar, er hægt að benda á þó nokkra staði á Heimaey, sem hægt væri að setja niður minka- bú, sem lítil eða engin hætta væri á, að flogið væri yfir í þeirri hæð, sem ég hefi minnst á. Og væri aðeins um eitt bú að ræða væri hægt að staðsetja það þann ig, að fullt öryggi væri fyrir að flugvél færi þar ekki yfir nema um hreint slys hjá flug- manni væri að ræða. En með slíku er ekki hægt að reikna við staðsetningu loðdýrabúa. Kenningin um að ekki megi setja upp tilraunabú í Eyjum af þess- um ástæðum er því hrein fjar- stæða og utan við allan raunveru leika. Um minkaeldismálið í heild er það að segja, að nefnd sú, sem skipuð var til að athuga málið í samræmi við samþykkt síðasta Alþingis mun hafa skilað áliti og heyrzt hefur, að von sé inn Framhald á bls. 17 2ja ibúða hús á góðum stað í Kópavogi. 5 herb. íbúð, sem er 130 ferm. ásamt bílskúr og 2ja herb. íbúð, sem er 67 fm. Allt á einni hæð. Ræktuð lóð. Snyrtileg eign. Málflutnings & Ifasteignastofai lAgnar Gústafsson, hrl.l fk Austurstræii 14 Jj a Símar 22870 —- 21750. JH H Utan skrifstofutíma: bÍMm m 35455 — 41028. JmSÍ 1-66-37 3ja herb. íbúð á 2. hæð í stein- húsi við Þórsgötu. Góðar inn- réttingar. Ibúðin teppalögð. Gtborgun 250 þús. 2ja herb. íbúð á 2. hæð við Háaleitisbraut. FASTIEIGNASAL AM HÚS&EIGNIR BANKASTRÆTI4 Símar 16637 og 18828. Heimas. 40863 og 40396. FASTEIGNAVAL TmJT í:=L v ■11 UII I r rM"l jiu To'olílll 11. á Skólavörðusctíg 3 A, 2. hæð. Símar 22911 og 19255. Til söfu m.a. 2ja herb. nýleg íbúðarhæð við Hraunbæ. 3ja herb. nýleg íbúðarhæð og 1 herbergi í kjallara við Hraunbæ. 3ja—4ra herb. íbúðarhæð við Langholtsveg, hagkv. verð. Sérhœð Um 150 ferm. efri hæð, sér, við vesturhluta borgarinnar ásamt bílskúr. Mikið pláss fylgir i kjallara. Jón Arason hdl. Sölumaður fasteigna Torfi Asgeirsson. Suðurlandsbraut 10. Snitt-tappar og bakkar. Alls konar rafmagns- og handverkfæri. VMD. POULSEN HF. Klapparst. 29 - Suðurlandsbr. 10. Sími 38520 - 13024. Hefi til sölu m.a. 3pa herb. íbúð í timburhúsi við Laugaveginn, um 70 ferm., útb. 200 þús. kr., nýstandsett. 3ja herb. ibúðir í risi við Drápu- hlíð, Ránargötu, Hraunteig og Álfhólsveg. Stærðir 65—80 ferm., útb. 250—400 þús. kr. 4ra herb. íbúð í þríbýlishúsi við Sundlaugarveg, góður bílskúr fylgir. 4ra herb. íbúð á 2. hæð við Laufásveginn, um 130 ferm. Fokhelt raðhús við Helluland, 156 ferm., ein hæð. HÚESEIGN VIÐ MIÐBÆINN: til sölu er stórt timburhús við Mið- bæinn. Húsið er 3 hæðir og hentugt bæði til ibúðar og fyrir atvinnurekstur. HEFI KAUPANDA AÐ EINBÝL- ISHÚSI fjársíerkur kaupandi hef- ur beðið skrifstofuna að aug- lýsa sérstaklega eftir einbýlis- húsi í Reykjavík, þarf ekki að vera nýtt. Baldvin Jónsson hrl. Kirkjutorgi 6, símar 15545 og 14965. Kvöldsimi 20023. 16870 2ja herb. 70 ferm. íbúð á 1. hæð við Laugarnesveg. Suðursvalir. Vélaþvottah. 3ja herb. 80 ferm. íbúð á 3. hæð við Álfheima. Suð- ursvalir. 3ja herb. 100 ferm. enda- íbúð á 2. hæð við Eski- hlíð. Herbergi í risi og annað í kjallara fylgja. 3ja herb. jarðhæð við Tómasarhaga. Sérhiti. 4ra herb. endaíbúð á 1. hæð við Álftamýri. Vönd- uð íbúð. Góður bílskúr. 4ra herb. íbúð á 4. hæð við Kleppsveg. Suðursval- ir. Hóflegt verð. 4ra—5 herb. endaíbúð á 7. hæð við Kleppsveg. — Vönduð íbúð. 5 herb. íbúð á 3. hæð (efstu) við Hraunbæ. Herb. í kjallara fylgir. Vönduð íbúð. Parhús við Melabraut, Seltj.nesi. 4 svefnherbergi Verð 1100 þús. FASTEIGNA- PJÓNUSTAN IAusturstræli 17 (Silli S Vaidi) Rngnar Támasson hdi. slmi 24645 sölumaður fasteigna: Stefðn J. Hichter sími 16870 kvöldslmi 30587

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.