Morgunblaðið - 19.03.1969, Side 13

Morgunblaðið - 19.03.1969, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1969 13 EN BANDARIKIN? I DAG, 19. marz, eru liðin 25 ár frá því formlegt stjórnmála- samband var tekið upp milli íslands og Sovétríkjanna. Þann dag afhenti fyrsti sendiherra Rússa hér á landi, Krassilni- kov, Sveini Björnssyni ríkis- stjóra, trúnaðarbréf sitt. Fyrsti sendiherra íslands í Moskvu var Pétur Benediktsson og af- henti hann Kalinin, forseta for sætisráðs Sovétríkjanna embætt isskilríki sín í maíbyrjun. í tilefni þessara tímamóta í stjórnmálasamskiptum íslend- inga og Rússa birtir Morgun- blaðið í dag fréttirnar, sem blaðið birti á sínum tíma um sendiherraskiptin, svo og við tal við Pétur Benediktsson, al- þingismann og bankastjóra, um aðdragandann að skipun hans í embætti sendiherra í Moskvu og um ferð hans þangað á styrjaldarárunum. □ □ Þriðjudaginn 21. marz 1944 birti Morgunblaðið þessa frétt ábaksíðu: „RÚSSNESKI SENDIHERR- ANN AFHENDIR SKILRÍKI Frá utanríkisráðuneytinu hef- ur blaðinu borist eftirfarandi: SUNNUDAGINN 19. mars kl. 13 fór fram á ríkisstjórasetr- inu á Bessastöðum móttaka hins nýkomna sendiherra Sovjetríkj anna Alexei Nikolaevich Krass- ilnikov. Viðstaddur var utan- ríkisráðherra Viilhjálmur Þór. Sendiherrann afhenti ríkis- stjóra umboðsskjal sitt frá Æðsta ráði Sovjetríkjanna, undirskrifað af Kalinin, for- seta ráðsins og Molotov utan- ríkirsáðherra. Flutti sendiherr- ann stutt ávarp, sem ríkisstjóri svaraði með stuttri ræðu. Að lokinni móttökuathöfn inni sátu sendiherrann og kona hans hádegisverðarboð hjá rík isstjórahjónunum ásamt starfs- mönnuim Sovjet-sendiráðsins, þeim Egerov sendiráðsritara og Gusev ráðunauti og konum þeirra. Ennfremur sat utanríkisráð- herra og kona hans boðið á- samt nokkrum embættismönn- um.“ Miðvikudaginn 10. maí 1944 birti Morgunblaðið svo eftir- farandi klausu á forsíðu: „PJETUR BENEDIKTSSON AFHENDIR SKILRÍK SÍN Þýska útvarpið hafði þá fregn að færa í gærkvöldi, að Pjetur Benediktsson, hinn ný- skipaði sendiherra íslendinga í Moskva, hefði í fyrradag geng- ið á fund Molotovs, utanríkis- ráðherra Rússa, og afhent hon- um embaéttisskilríki sín.“ □ □ MÁLALEITAN MAISKYS Þegar stjórnmálasamband var tekið upp við Sovétríkin áirið 1944 var Pétur Benedikts- son sendiherra fslands í Lond- on hinn fyrsti, sem gegndi því embætti. Fyrsta spurningin, sem Morgunb'laðið lagði fyrir Pétur í viðtalinu um þessa at- burði, var um aðdragandann að því að stjórnmálasamband var tekið upp á millli landanna. Pétur sagði: — Aðdragandinn var sá, að Maisky, sem þá var sendiherra Sovétríkjanna í London, bar þá ósk fram við íslenzku sendisveit ina þar, að skipzt yrði á sendi- herrum. Hann kvað Sovétríkin hafa áhuga á að stofna sendi- ráð í Reykjavík, en sagðist á hinn bóginn skilja, að fslend- • ingum þætti, eins og þá stóð Ilœtt við Pétur Benediktsson í tilefni 25 ára afmœlis stjórn málasambands íslands og Sovétríkjanna Pétur Benediktsson afhendir Kal inin trúnaðarbréf sitt í Moskvu í maí 1944. Dekanosov fyrir miðju. á, kannski nokkuð d ýrt að stofna sérstakt sendiráð í So- vétríkjunum og kvað stjórn sína tilbúna til að sættast á að t.d. sendiherrann í London gegndi jafnframt sendiherra- störfum í Sovétríkjunum. — Gaf Maisky ástæðu fyrir þessari ósk stjórnar sinnar? — Ég man ekki með vissu, hvort Maisky gaf sérstaka á- stæðu, en hún var á allra vitorði. Það var ekki svo mjög áhugi á málefnum íslands, sem stjórnin í Sovétríkjunum bar fyrir brjósti heldur sú nauðsyn, sem hún taldi vera á því að fylgj ast með hvað hinir ágætu vin- ir og bandamenn hennar, Bret- ar og þó fyrst og fremst Banda ríkjamenn, aðhefðust hér á hjara veraldar. Rússar höfðu þegar sent hing að fulltrúa sem átti að fylgj- ast með skipaferðum, þar á með al sérstaklega skipalestum til Molotov Murmansk, sem á þessu tíma- bili voru einatt látnar safnast í Hvalfirði. — Hver voru viðbrögð ís- lenzku ríkisstjórnarinnar við ósk Rússa? — Mér virtust þau í fyrstu frekar neikvæð eða lítill áhugi á að koma þessu stjórnmálasam bandi í kring. En eftir nokkur bréfaskipti um málið breyttist sú afstaða. Þá taldi utanríkis- ráðherrann ekki einungis rétt að verða við tilmælum Rússa um að þeir mættu stofna sendi- ráð hér heldur yrði jafn- framt að endurgjalda líku líkt og stofna sérstakt íslenzkt sendiráð í Moskvu. Ég varð síðar þess heiðurs aðnjótandi að vera skipaður fyrsti sendiherra íslands þar. — Hve lengi höfðuð þér verið í utanríkisþjónustunni? Josef Stalin — Ég var einn af nokkrum fslendingum, sem um árabil höfðu starfað í danska utanrík- isráðuneytinu og rétt eftir að ó friðurinn hófst í september 1939 varð ég sendiráðsritari við danska sendiráðið í Lond- on. Snemma árs 1940 varð ég íslenzkur viðskiptafulltrúi þar og hætti þá störfum hjá Dönum eftir tæplega 10 ára vist. Strax eftir innrás Þjóðverja í Danmörku og samþykkt Al- þingis um að Íslendingar tækj- ust sjálfir á hendur meðferð utanríkismála sinna var ég skipaður sendifulltrúi í Lond- on og síðar sendiherra þar. Eddy Gilmore Jafnframt var ég sendiherra íslands gagnvart norsku útlaga stjórninni, sem hafði þá aðsetur í London. AFSTAÐA HÁKONAR NOREGSKONUNGS TIL SJÁLFSTÆÐISBARÁTTU ÍSLENDNGA — Þér hafið þá hitt Hákon Noregskonung? — Já, margsinnis. Auk þess að ganga fyrir hann í opinber- um erindum sá ég konung oft í Norska klúbbnum. Hann var vanur að borða þar sáltkjöt og baunir á fimmtudögum með rík isstjórninni. Mér er nær að halda að ég hafi verið eini út- lendingurinn, sem mátti koma í klúbbinn þá daga. Þegar ég notaði mér þessi for réttindi brást það aldrei, að kon ungur gerði mér boð að koma og fá kaffi og konjak við borð- ið hjá honum. Hann var ein- Averell Harriman staklega vinsamlegur maður í allri framgöngu og sérstaklega er mér það minnisstætt frá kveðjuheimsókn minni til hans áður en ég hélt austur, að hann gekk úr götu sinni til að koma því að, hve auðvelt hann ætti með að skilja afstöðu ís- lendinga í sjálfstæðismálunum og var það þeim mun skemmti- legra þegar haft er í huga, að það var eldri bróðir hans, sem átti að láta af konungdómi á Islandi. VIÐSKIPTAFULLTRÚI ! HÚSAKYNNUM F ATÆKR AFULLTRÚ A — Hvernig tóku Bretar því, að sérstakur viðskiptafulltrúi fyrir ísland væri skipaður í London? — Þessi staða var stofnuð samkvæmt viðskiptasamningi, sem brezka stjórnin gerði við íslenzka sendinefnd í desember 1939. Til þess að komast hjá því, að af þessu spynnust diplo matisk vandamál gagnvart dönsku ríkisstjórninni, var notuð klassísk brezk aðferð, sem einn ig er kennd við vissa dýrateg- und, sem er það að ganga í kring um heitt soð. Ríkisstjórnir beggja landa komu upp því sem kallað er á ensku Joint Standing Comm- ittee sem útleggst sameiginleg fastanefnd, og það var þessi nefnd, sem hafði fulltrúa í hvoru landi fyrir sig. Bretarn- ir áttu að sjá okkur fyrir hús- næði og var mér og aðstoðar- manni mínum, Hilmari Foss, ho'lað niður í húsakynnum þar sem fátækrafulltrúar Lundúna- borgar höfðu áður ráðið ríkj- um. Fór töluverður hluti af tíma okkar, einkum þó Hilmars, í að hlusta á raunasögu fólks, sem ekki gat áttað sig á að við vorum lítilsmegnugir um styrk- veitingar, þótt við erfðum sím- ann frá fyrirrennurum okkar. TALDI SENDIFÖRINA TIL MOSKVU ÓÞARFA — Voruð þér hrifinn af hinni nýju forfrömun að verða sendi- herra í Moskvu? — Ég held nú að þeir, sem enn lifa af þáverandi ráðherr- um, muni vera sammála um það, að ekki hafi ég sýnt þeim sér- stakt þakklæti fyrir upphefð- ina. Ég held, að ég sé ekki að ljóstra upp neihum ríkis- leyndarmálum, þótt ég segi frá því nú, að ég taldi sendiför mína þangað eins og þá stóðu sakir, gersamlega óþarfa og miklu nær hefði verið að fall- ast á tillögu Rússa, að sendi- herrarnir í London gegndu í bili þeim litlu sendiráðsstörfum, sem þá gat verið um að ræða. Það hefði líka verið algerlega þykkjulaust af minni hálfu, þótt einhver annar hefði fengið að fara til Moskvu. — Var auðvelt að komast frá London til Moskvu á þessum tíma? — Sé það satt sem stærð- fræðingarnir segja, að beina línan sé stytzt milli tveggja punkta þá hlýtur eitthvað fleira að hafa komið til, því að ég lagði langa lykkju á leið mína. Fyrst flaug ég frá ein- hverjum flugvelli í Cornwall til Casablanca í Marokko. Þaðan til Kairó, dvaldist þar í 10 daga eða hálfan mánuð, unz ég fór til Teheraiji og var næsta feginn að sleppa undan veggja- lúsinni, þótt ihargt annað væri fróðlegt og skemmtilegt í því fornfræga landi, eins og t.d. grafhýsin, þar sem hinir hei- lögu tarfar hvíla í marmara- kistum. Eftir nókkra bið í Teheran komst ég svo í rússneskri flug- vél á leiðarenda. Allt ferða- lagið tók 2—3 vikur. — Sáuð þér ekki eitthvað skemmtilegt á leiðinni? — Það hef ég sjálfsagt gert, en tvennt er mér minnisstæð- ast. Annað er tannlæknirinn, sem sat flötum beinum á torgi í gamla bænum í Casablanca og hafði fullan ask af tómum tönnum við hlið sér, svo að væntanlegir viðskiptavinir gætu séð, að hann væri enginn byrjandi í faginu. Hitt var vatnsleiðsla í Teheran, sem í flestum bæjarh'lutum var ofan- jarðar og veitt var hreinu vatni Framhald á bls. 15

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.