Morgunblaðið - 19.03.1969, Side 14

Morgunblaðið - 19.03.1969, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1960 Helgi Kristjánsson — Minning ÉG sem þessar línur rita, vil með þeim þakka mági mínum og kærum vini samverustund- irnar, sem þó voru alltof skamm- ar. Þegar slíkir atburðir gerast, er gó'ðir vinir og félagar hverfa, hníga niður á miðju manndóms- skeiði setur mann hljóðan. Helgi Kristjánsson varð bráð- kvaddur aðeins 43 ára gamall, harmaður af öllum er honum kynntust, því hann var mikill vinur vina sinna. Hann var fæddur 2. nóvem- ber 1925, sonur hjónanna Stein- unnar Jónsdóttur og Kristjáns bónda Skúlasonar að Naustum í Eyrarsveit. Hann var næst yngstur af 9 systkinum. Þá var eins og nú stunduð sjósókn við Breiðafjörð. Kristján Skúlason hafði því jafnframt búi sínu, hafið sjósókn á opnum bát. En Kristjáns naut ekki lengi við, hann anda'ðist um vor- ið 1933. Þá var Helgi aðeins átta ára. Það voru því eldri bræður hans er tóku við búinu með móður sinni og strax er yngri bræð- urnir komust á legg kynntust t Eiginmaður minn, fósturfaðir og afi þeir fljótt sjónum, hættum hans og hrikaleik en líka tign hans og fegurð. Hugur Helga stóð því snemma til sjómennsku er efldu þrek hans og vilja, mótuðu sterka en þó milda skapgerð, því dreng- lyndi hans og prúðmennska voru ríkir persónulegir eiginleikar i fari hans, er skópu honum vin- sældir starfsfélaga sinna, hvort heldur hann var í landi eða á sjó. Eftir nokkra ára sjómennsku gerðist Helgi starfsma’ður hjá Flugfélagi íslands, réðist hann þangað 8. júní 1950. Þar eins og annars staðar varð Helgi brátt hugljúfur hverjum er hann um- gekkst, svo áreiðanlegur og traustur maður var hann talinn og gott að fela honum verk að vinna. Síðustu tvö árin var hann vökumaður flugfélagsins og ég held mér sé óhætt að segja að hann hafi lagt jafn mikla alúð við það starf eins og allt er hon- um var fali'ð að gera. Það er mikil eftirsjá er slíkir menn kveðja svo skyndilega og óvænt í fullu starfsþreki á bezta aldri, og erfitt að sætta sig við það. En það er svo margt, sem okkur er hulið og við fáum alls ekki skilið. Falleg og yndisleg fannst mér umhyggja Helga fyrir aldraðri móður sinni, fyrir velferð henn- ar og líðan. Það sýndi bezt hve góðan dreng hann hafði að geyma. Er við nú kveðjum Helga hinztu kveðju, viljum við þakka honum allar þær stundir er við höfum átt með honum. Þakka hlýhug og vináttu, er hann með elskulegu viðmóti sýndi okkur frá fyrstu tíð. Blessuð sé minn- ing hans. Þorsteinn Halldórsson. F. 2. nóv. 1925. D. 9. marz 1969. ÞAÐ var sorgarfregn, sem mér barst 9. þ.m. að frændi minn og vinur Helgi Kristjánsson væri látinn. Það var svo stutt síðan ^ð vfð hittumst og ræddum saman og kom mér þá ekki til hugar að þetta yrði síðasti fund- ur okkar. Hann sem alltaf var svo hress og kátur. En enginn veit ævi sína fyr en öll er og kallið kemur þegar minnst var- ir. Helgi var Snæfellingur, fædd ur 2. nóv. 1925 að Naustum í Eyrarsveit, sonur hjónanna Steinunnar Jónsdóttur og Kristj- Jóhannes Eiriksson, vélsmiðameistarl, Hjarðarhaga 56, lézt aðfaranótt 18. marz. Clara Nielsen Harry Jóhannesson Kornelía Ingólfsdóttir Kristján Bernhard og barnabörn. t Eiginmaður minn Baldur Tryggvason framkvæmdastjóri, verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni fimmtudaginn 20. marz kl. 13.30 e.h. Björg Ágústsdóttir. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför mó'ður minnar og tengdamóður, ömmu og langömmu okkar Rannveigar Halldórsdóttur Bjarnfríður Guðjónsdóttir Sigþór Guðjónsson bamabörn og barnabarna- börn. t Eiginmaður minn, faðir okk- ar og bróðir Erlendur R. Helgason vélstjóri, Hringbraut 39 verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 20. marz kl. 1.30 síðd. Blóm vin- samlega afbeðin. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðrúnar Magnúsdóttur, Grensásvegi 47, Álfur Árason, böm, tengdabörn, barna- böm og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir fyrir auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför Kristrúnar Finnsdóttur frá Djúpavogi. Sigurbjörg Lúðvíksdóttir Ágúst Lúðvíksson og aðrir aðstandendur. Lára Kristinsdóttir Gunnar Erlendsson Guðmundur Erlendsson Elísabet Helgadóttir. t Hjartkæra mó'ðir okkar Lára Jóhannesdóttir Merkigerði 12, Akranesi, sem andaðist 13. marz verð- ur jarðsett frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. marz kl. 14.00 e.h. Kveðjuathöfn fer fram frá Akraneskirkju fimmtu- daginn 20. marz og hefst kl. 2,00 síðdegis. Blóm vinsam- legast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Sjúkrahús Akraness. Börnin. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vin- áttu við andlát og jarðarför Sigrúnar Kjartansdóttur Slitvindastöðum, Staðarsveit. Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunarkvenna, starfs- stúlkna og herbergisfélaga hennar á Sjúkrahúsi Akra- ness og til allra þeirra sem heimsóttu hana í hinni erf- iðu sjúkdómslegu. Ennfrem- ur vil ég færa sérstakar þakk ir til framkvæmdastjóra Valdimars Indriðasonar og verkstjóra Björns Jónssonar og til fjölskyldu Simfonu Elenar Þórarinsdóttur, Króka túni 11, Akranesi, sem veitti mér ómetanlegan stuðning. Bið ég góðan Guð að styrkja ykkur öll. Guðbjartur Kristján Jakobsson Júlíus Kristjánsson. t Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðar- för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa Jónasar Páls Árnasonar Vatnsstíg 9. Franziska Sigurjónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Hjartanlega þökkum við öll- um þeim sem sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og útför eiginmanns míns Sæmundar Kristjánssonar frá Hjalteyri. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Þorgerður Konráðsdóttir. áns Skúlasonar, sem þar bjuggu. Föður sinn missti hann er hann var ungur drengur og gæti ég trúað að oft hafi verið erfitt fyrir Steinunni að hugsa um öll bömin sín, en Helgi var næst yngstur af níu systkinum. Snemma fór hann til sjós, fyrst á opnum bátum en síðar á mót- orbátum á síldveiðar og vetrar- vertíðum. Eftir að Helgi flutt- ist hingað til Reykjavíkur ré’ð- ist hann til Flugfélags Islands þann 8. júní 1950 og var hann lengst af hlaðmaður og síðustu árin sem næturvaktmaður. Helgi var mikill hagleiksmaður, það má segja að allt hafi leikið í höndum hans og var hann ætíð boðinn og búinn að hjálpa vinum og vandamönnum hve- nær sem var. Bróðir minn, sem er fjarstaddur, biður mig fyrir hinztu kveðju til þín og þakka þér allar samverustundirnar. Að lokum þökkum vi'ð hjónin þér fyrir alla velvild og hlýju og biðjurp Guð að blessa þig og styrkja ástvini þina. Halldór Ben. Þorsteinsson. Ingunn Sigríður Sigurðardóttir Fædd 28. maí 1937. Dáin 19. febrúar 1969. Ingunn var fædd að Ánaaust- um við Mýrargötu 28. maí 1937 og var því tæpra 32 ára er hún lézt eftir stutta legu á Landa- kotsspítala. Þegar við kveðjum Diddu, en það kölluðum við hana sem þekktum hana frá bernsku, þá er okkur efst í huga hve glaðlynd hún var, og við minnumst margra ánægjustunda í hennar návist. Hún hafði svo einstakt lag á að koma öllum í gott skap og láta fólki líða vel í kringum sig. Við eigum bágt með að trúa, að hún sé horfin, hún, sem átti svo margt eftir lífið var næstum að byrja, en minningin um hana mun aldrei gleymast, hún kenndi okkur svo margt með sínu stutta lífi hér á jörð, sem við viljum muna. Við sendum eiginmanni henn- ar, dætrunum tveimur og synin- um, sem enn er óskírður, okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum að góður Guð styrki ykk- ur og styðji. Vinkonur. Sigfús Sigurgeirsson 4. 4/1. 1940. — D. 4/3. 1969. FÁEIN KVEÐJUORÐ FRÁ VINI. Sjaldan hefur mér brugðið eins og við þá frétt, að vinur minn, Sigfús Sigurgeirsson, eða Sissi, eins og hann var jafnan kallaður, hefði látizt af slysför- Þakka öllum þeim mörgu, konum og körlum, sem ám- uðu mér heilla með ýmsum hætti á 60 ára afmæli mínu 11. marz sl. Hans Júlíus Þórðarson Ákranesi. um úti í Þýzkalandi um borð í togaranum Agli Skallagrímssyni 4. þ.m., en hann var skipverji Framhald á bls. 16 Kærar þakkir fyrir auð- sýndan hlýhug og velvild á sjötíu ára afmæli mínu þann 12. marz síðastl. Guð blessi ykkur öll. Sigurður J. Guðmundsson. Hjartans þakklæti til allra vina og vandamanna fjær og nær sem glöddu okkur með heimsóknum, gjöfum og skeytum og hlýjum orðum á gullbrú'ðkaupsdegi okkar 30. júní 1968, og hjartans þakkir til allra, sem hjálpuðu okk- ur svo mikið í tilefni dags- ins og gjörðu okkur daginn ógleymanlegan. Við óskum ykkur allrar Guðs blessunar. Lifið heil. Ólafía Sveinsdóttir og Jón R. Jóhannesson Syðri-Kárastöðum V.-Hún. Minningarathöfn um þá, sem fórust með mb. Dagnýju 7. þ.m. verður haldin í Langholtskirkju fimmtudaginn 20. marz kl. 13,30 og í Stykkis- hólmi laugardaginn 22. þ.m. kl. 14.00. Þeir sem vildu minnast hinna látnu vinsamlegast láti Slysa- varnafélagið njóta þess. Fyrir hönd vandamanna SVERRIR KRISTJANSSON.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.