Morgunblaðið - 19.03.1969, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1969
HOW DID THAT
GEM OF INFORMA-
TION ESCAPE THE
HEADUNES-MISS
*TWO yEARS AGO, DURING A
STORM AT SEA.MY FATHER
FELL/ HE STRUCK HIS HEAD
AGAINST THE DESK // THAT
WAS THE END....//»
ÁJtbÍMinf
Sextug í dag:
Elísabet Narfadóttir
Leiksmiðjufólk á æfingu.
„FRISKIR KALLAR
— nýtt verkefni Leiksmiðjunnar
LEIKSMIÐJAN frumsýnir nýjan
sjónleik; „Frískir kallar“, í Lind-
arbæ á fimmtudagskvöld.
Sjónleik þennan hefur Leik-
smiðjufólk sjálft tekið saman
og sagði Eyvindur Erlendsson,
„meistari s>miðj unnar“, á fundi
með fréttamönnum í gær, að
reynt hefði verið að beizla ís-
lenzkar leikhefðir, eins og þær
birtast í daglgu fari fólksiras; í
leik þess og sTarfi. listuan og
siðvenjum.
Leiksmiðjufólkið leitaði víða
fanga; fyrst og fremst í kvæði —
þjóðvísur, barnagælur og hús-
gan.ga — en einnig var ýmsum
lygisögum gefinn gaumur. Meg-
inþráðurinn er sóttur í 18. aldar
kvæðið „Skipafregn", sem eign-
að er Árna Böðvarssryni, en þar
utan um var svo annað efni
smíðað. — Jðn Ásgeirsson hefur
samið og tekið saman tónlist við
sjónleik þennan. — Sagði Ey-
vindur, að í stuttu máli mætti
segja, að meginefni sjónileiksáns
væri: söngvar, dansar, eftirherm-
ur og töfrabrögð en ýmislegt
óvænt að aukL Sagði Eyvindur,
að þennan gjónleik mætti kalla
„sveinsstykki“ Leiksmiðjunnar
en í henni eru nú átta leikarar
auk Eyvindar.
Við æfingar nú var tekinn upp
sú nýtoreytni að hafa samstarf
við ungt fólk; menntas'kóla- og
Kennaraskólanemia, sem mættu
á æfingar og létu í ljós skoðanir
sínar á því. sem Leiksmiðjufólk
var að gera. Sagði Eyvindur, að
þessi samvinna hefði tvímæla-
laust gefið góða raun.
- MINNING
Framhald af bls. 14
þar. Er ég kvaddi hann við skips
hlið er hann fór í sína hinztu
ferð, gat mér ekki dottið í hug,
að þetta væri í síðasta skipti sem
ég fengi að sjá þennan glaða og
fríska pilt.
Það er alltaf hryggilegt þegar
ungir og frískir piltar á bezta
aldri eru svona skyndilega
kvaddir burt. En enginn veit
sína ævina fyrr en öll er.
Sissi var mjög góður félagi,
alltaf léttlyndur og kátur, og
söknum við félagar hans hans
mjög mikið. Si-si var starfandi
dómari í handknatfcleik, og miss-
ir H.K.D.R. þar góðan félaga.
í dag, er við kveðjum hann í
hinzta sinn, vil ég votta fjöl-
skyldu, systkinum og öllum
vandamönnum hans, mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Vertu sæl Sissi minn og þakka
þér kærlega fyrir okkar góðu
kynni og vináttu. Bleísuð sé
minning þín.
Þinn vinur,
Daníel Benjamínsson.
SEXTUG er í dag, 19. marz,
Elísabet Narfadóttir, Móabarði
22, Hafnarfirði.
Ekiki var fjölbreytninnj fyrir
að fara á nöfnum húsa og bæja
í Firðinum á fyrsta tug aldar-
innar. Hóll, Klettur og Bali voru
einna algengustu heitin, væru
híbýlin ekki kennd við húsbónd-
ann. Elís'abet er fædd og uppalin
á Bala, yngst af allstórum
syst'kinahópi. Ekki mun alltaf
hafa verið úr miklu að spila, en
margir voru þeir iðjumennirnir
í Hafnarfirð í þá daga og ekki
taldi Narfi á Bala eftir sér
hverskyns þjónustu við heimili
sitt, á milli þess sem vakað var
og aldan stigin úti á Sviði og
annars staðar þar sem „þess
gula“ var von.
Elísabet hefur í ríkum mæli
erft iðjusemi föður sínis og fé-
lagslyndi móður sinnar. Að fyrr-
nefnda eiginileikanum má þó
e.t.v. segja að ekki hafi alltaf
notast sem skyldi. En um það
er ekki við neinn mannlegan
mátt að sakast, heldur það, að
heilsan hefur ekki ætð verið eins
og á yrði kosið.
Ekki hindraði þetta þó „Betu
á Bala“ í hinni beztú umönnun
um foreldra sína, þegar kraftar
þeirra þrutu, eftir lanigan ævi-
dag.
Félagsmálatilhneigingar Elísa-
betar hefur stúkan Morgun-
stjarnan notið um fjölda ára.
Lætur hún sig engu skipta þótt
starfsemi góðtemplara megi
muna sinn fífil fegri og sé skot-
spónn háðs og andúðar margra
nú. Einnig starfar Elísabet í
Kvæðamannafélagi Hafnarfjarð-
ar. Mun rnaður hennar, Pétur
Óskarsson, ekki hafa letjandi
áhrif á sinn helming í þessu
efni, enda rennur honum breið-
firzkt hagyrðingablóð í æðum,
auk einkenna Auðunsættarinnar
hafnfirzku. Á heimili þeirra
hjóna eru ijóðabækurnar ekki
eingöngu til skrauts í skápum,
iheldur til flettimgar, flutnings og
ánægjuauka.
Við þökkum Elísabetu kynnin
og óskum að heilsu- og gæfudis-
in verði henni veitular um langa
framtíð. M. J.
Þjóðmálafundur
á Akureyri
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri halda
ALMENNAN ÞJÓÐMÁLAFUND
í Sjálfstæðisliúsinu laugardaginn 22. marz
kl. 14.00.
Framsöguræðu flytur
MAGNÚS JÓNSSON fjálmálaráðherra.
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri.
Listaverkið,,
Heystakkur“.
r
Samsýning SUM
FÉLAGAR í SÚM opna samsýn-
ingu í kvöld klukkan 20 í sýn-
ingarsal sínum að Vatnsstg 3.
11 félagsmenn taka þátt í sýn-
ingunni, og tveir gestir, það eru
Dieter Rot og Magnús Pálssan.
Rúmlega 40 verk verða til sýn-
is þar, frá kl. 16—22 daglega, en
sýningin er opin til 10. apríl.
Auk gestanna sýna þarna:
Róska, Jónina Guðnadóttir, Arn-
ar Herbertsson, Finnbogi Guð-
mundsson, Haukur Sturluson,
Jón Gunnar Árnason, Kristján
Guðmundsson, Magnús Tómasson
og Sigurður Guðmundsson.
HÆTTA Á NÆSTA LEITI —eftir John Saunders og Alden McWilliams
BECAU5E,
■MR.RAVEN,
My BROTHER
FOUND IT VERV
PROPITABLK.
TO DECEIVB „
THE WORLD«
Það er alveg satt herrar mínir, Axtel
Athos, ríkasti maður í heimi, er ekk-
ert nema sögusögn. (2. mynd) t óveðri
fyrir tveim árum skrikaði honum fót-
ur. Höfuð hans lenti á þessu skrifborði,
það voru endalokin. (3. mynd). Hvern-
ig stóð á því að ekki var skýrt frá því
í fréttum ungfrú Athos? Vegna þess,
herra Raven, að bróður mínum fannst
hagkvæmara að leika á heiminn.
Sýningunni er ætlað að sýna
þverskurð af því, sem félags-
menn eru að gera, og hverju
megi búast við. Er það ætlun
þeirra með þessari sýningu að
leyfa almenningi hlutdeild í list
samtím.ans, og vonast til að hún
verði umræðuefni um stöðu ís-
lenzkrar myndlistar í dag.
Fyrst lá starfsemi félagsins
mikið niðri, vegn þess að með-
limir voru margir erlendis við
nám, en tóku samt þátt í sam-
sýnnigu erlendis og heima s. s.
útisýningu á Skólavörðuholti og
fleiri sýningum.
í vetur hafa þeir félagar skipu-
lagt sýningar á smáverkum í
Mokka (2 félagar hafa sýnt þar),
og átt verk á Ungdomsbienniale
Norðurlanda og Helsingfors. —
Flestir félaganna hafa haldið
einkasýningar hér heima.
í húsakynnum félaganna er
ætlunin að halda sýningar á er-
lendri samtímalist, og munu
menn fengnir til að halda fyrir-
lesrtra um list. Einnig er ætlunin
að hafa til sölu á staðnum ís-
lenzkar og erlendar sýningar-
skrár, plaköt, bækur um mynd-
list og skáldverk framúrstefnu-
manna. Félagsmenn munu sjálfir
standia straum af kostnaði, og
einnig hefur verið stofnað styrkt
armenna kerfi og greiðir hver
meðlimur kr. 1000 á ári.
í ráðí er að halda listahátíð í
hauist, en þangað til er saluirinn
upptekinu.