Morgunblaðið - 29.04.1969, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.04.1969, Blaðsíða 2
 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1969 Forsætisráðherra Norður-írlands segir af sér embætti sínu O'Neill vill veita nýjum leiÖtoga tœki- fœri til að lœgja öldurnar í landinu TERENCE O’Neill, forsætis- ráðherra N-írlands, sagði í dag af sér embætti, að því er upplýsingaþjónusta stjórnar- innar þar tilkynnti. O’Neill hefur verið forsætisráðherra N-írlands í sjö ár. O’NeilI sagði í dag, að hann segði af sér embætti „í þágu umbóta“ Hvarf O’Neill úr embætti for- sætisráðherra siglir í kjölfar mikils stjórnmálalegs óróatíma- bils í N-írlandi, sem á undan- förnum dögum hefur náð há- marki með víðtækum götuóeirð- um og skemmdarverkum í sex sýslum N-írlands. Þeir, sem deila, eru kaþólskuT minnihluti landsmanna, og mót- mælendur, sem eru í algjörum meirihluta, og hefur kaþólskum verið mismunað á ýmsum svið- um. Þannið hafa t. d. mótmæl- endur snúizt öndverðir gegn því, að kosningalöggjöf landsins verði breytt á þann veg, að hver maður hafi eitt atkvæði, en í þestsum efnum fylgdi O’Neill stefnu hægfara umbóta. Mótmæl endur hafa hins vegar ekki vilj- að una þessu. Sl. laugardag voru 550 manna brezkt herlið sent til N-írlands til stuðnings liði þvi, sem þar var þegar fyrir. Brezku her- mennirnir gæta mannvirkja og opinberra stofnana, sem hafa verið skotspænir óeirðas’eggja að undanförnu, en þeir hafa t. d. eyðilagt vatnsleiðsluna til Bel- fast. Um helgina gerðist það, að kaþólskir biskupar og biskuipar mótmælenda fóru um þau hér- uð landsins, þar sem ókyrrðin hefur verið hvað mest, og reyndu að sætta menn. Ekki er gott að segja til um hvað ger- Sóttdauðar ær á Ingólfshvoli. (Ljósm.: ísak) Bólusett sauðffé hrynur niður FJÓRÐUNGUR 870 f jár hefur nú drepizt hjá Kjartani bónda'Hann essyni á Ingólfshvoli í Ölfusi og « er féð enn að drepast. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. hefur afl að sér er meira en helmingur fjárins sjúkur, 10 drápust á sunnu dag og virðist því sóttin í rén- um, því að er verst gengdi dráp ust 30 ær á sólarhring. Þó er augsýnilegt að það sem enn lif- ir lætur lömbum og verður aum ingjar að einhverju leyti. Kjéirtan hefur flokkað féð eft- ir því sem unnt hefur verið. Hefur hann haldið sjúka fénu sér, en oft og tíðum er erfitt að gera sér grein fyrir því, hvort kind sé sjúk eða ekki, því að kindur, sem sýnast alheilbrigð- ar taka kannski allt í einu upp á því að drepast. Yfirleitt lýsir jp, sóttin sér þó svo að miklar bólg ur myndast í kviðarholi og virð ast þær eidheitar. Bólgnar kvið- urinn einkum við ganglimina og eiga ærnar því erfitt um gang. Kjartan Hannesson bólusetti allan fjámstofn siran á föstudag, laugardag og sunnudag fyrir viku og skömmu síðar fór að bera á þessari pest. 10 ær voru bornar og bólusetti hann þær ekki, þar eð bóluefni þetta er til þess að verja fóstrið gegn lambasjúkdóm um. Um 20 ára skeið hefur Kjart an bólusett með þessu bóluefni og hefur aldrei kind orðið meint af fyrr en nú. Dauðu kindurraar hafa verið fluttar til tilraíuraastöðvar lamd- búnaðarins áKeldum til rannsókn ar og er uranið að rannsókn þessa máls þar. Hefur tilrauraastöðin kallað inn allt bókiefni af lögun nr. 29/69 en talið er að einhver mistök hafi orðið í fraimleiðski þess. eftir að O’Neill hafði tekizt að fá samþykkta breytingu á kosn ingalöggjöfinni, sem gerir ráð fyrir því, að sérhver maður hafi eitt atkvæði, en hið gamla kerfi grundvallaðist á eignum manna, og voru kaþólskir menn mjög afskiptir í kosningum vegna þessa. O’Neill sagði sjélfur í dag um afsögn sína, að hann vildi með henni veita nýjuim leiðtoga tæki flæri til þesis að koma í veg fyr- ir persónulega óvild manna á milli, og koma yfirleitt á sætt- um í landinu. O’Neill hefði getað rofið þing og látið efna til nýrra kosninga, en með því hefði hann stofnað eigin flokki — Unionflokknum — í hættu. O’Neill tilkynnti brezku stjórn inni um ákvörðun sína með milligöngu James Callaghan, innanríkisráðherra, sem fer með málefni N-írlandls. Nýr forsætisréðherra N-ír- lands mun verða að taka til greina algjöran stuðning brezku stjórnarinnar við hið nýja kosn- ingakerfi, sem gerir ráð fyrir jöfnum atkvæðisrétti, burt séð frá eignum manna. Ný ríkis- stjórn, setn fylgdi stefnu, er stríddi gegn stefnu bezku stjórn arinnar, gæti íeitt landið til öng- þveitis og jafnvel algjörrar borg arastyrjaldar milli mótmælenda og kaþólskra rraanna. Terence O’Neill. ast kann í N-írlandi á næstu dögum, þar eð leynilegur hópur manna, sem nefnir sig „Bylting- arher þjóðarinnar" hefur hótað að fremja fleiri skemmdarverk á borð við eyðileggingu vatns- leiðs’lunar til Belfast. O’Neill sjálfur er mótmiæl- andatrúar, en hefur tekið þá stefnu að koma smátt og smátt fcil móts við kröfur minnihluta kaþólskra um jafnrétti í N-ír- landi. O’N'eill hefur verið talinn „hógvær mótmælandi", og hann gerir sér grein fyrir því, að ef einhver hinna áköfu og öflga- fullu mótmælendatrúarmanna yrði forsætisráðherra í N-ír- landi, mundi landið standa á barmi borgarastyrjaldar. Mundi það ugglaust leiða til þesis, að „vopnahlé" það, sem kaþólskir hafa komið á í bæjum N-írlands yrðu að engu, en það komst á Kom færandi hendi FÖSTUDAGSMORGUNINN 25. apríl, fengu læknar Fæðinga- deildar Landsspítalans óvænta og ánægjulega heimsókn, en það voru stjórnarkonur Kvenfélags Hvítabandsdns, frú Jóna Erlends dóttir formaður, frú Oddfríður Jóhannsdóttir, gjaldkeri og frú Arndís Þórðardóttir, ritari. Konurnar afhentu læknum deildarinnar kr. 100.000.00 — eitt hundrað þúsund 00/100 — að gjöf frá félaginu og skal þessu fé ráðstafað til byggingar Fæðinga- og kvensjúkdómadeild ar Landsspítalans. Er það niú að verða degin- uim ljósara, að mikill áhugi ríkir meðal kvenna um framvindu þessa mikilvæga málefnis og að vanda láta konurnar ekki sitja við orðin tóm. Þökk skulu þessar konur hafa fyrir sitt höfðinglega framlag. (Fréttatilkynning). Féll fram af hús- þaki og beið bana TVITUGUR maður beið bana, þegar hann féll fram af húsþaki um tíuleytið í fyrrakvöld. Nokkr ir kunningjar mannsins voru nærstaddir en þeim tókst ekki að forða slysinu. Maðurinn hafði boðið kunn- ingjafólki f.ínu upp í herbergi sitt, sem er kvistherbargi í fjög- urra hæða húsi í Reykjavík. Fólk ið sat þarna í mestu makindum og spjallaði saman, þegar hús- ráðandinn stóð skyndilega upp; gekk út um gluggann og út á þakið, þar sem hann mifísti fót- anna og féll fram af. Maðurinn féll niður á stein- steypta gangstétt. Hann var flutt ur í Slysavarðstofuna en reynd- ist látinn, þegar þangað kom. Fæðuöilun rjúpunnur HIÐ ísl. néttúrufræðifélag held- ur fræðslusamkomu í Norræna húsinu í kvöld kl. 20,30. Þar flyt ur Arnþór Garðarsson fuglafræð ingur erindi um fæðuöflun rjúp- unnar. Ainúm vegu- bréfsúritunur til Rúmeníu HINN 1. þ. m. var geragið frá samkomulagi við Rúmeníu um gagnkvæmt afnám vegabréfs- áritana. Þurfa ríkisborgarar landanna ekki vegabréfsáritun vegna ferða til íslands og Rúm- eníu miðað við allt að þriggja mánaða dvöl. Samkomulag þetta kemur til framkvæmda 1. maí n. k. og gildÍT um óákveðinn tíma. Úrn hefur vetursetu í Meöallandi — Hefur ekki sést þar í 9 ár, en þá drapst síðasti örninn á eifri Árshátíð Nemendasam- bands Verzlunarskólans haldin annað kvöld, en á morgun eru skólaslit verzlunardeildar ÁRSIIÁTÍÐ Nemendasambands Verzlunarskóla íslands verður thaldin að Hótel Sögu annað kvöld, 30. apríl. Það er árlegur viðburður að verzlunardeild Verzlunarskólans sé slitið þenn- an dag og brautskráðir nemend- ur eru gestir eldri nemenda sem jafnan fjölmenna á árshátíðina. Að venju murau þeir áirgangar er afmæli fagna verða fjölmenn- astir og margir nemendahópar færa skólanum gjafir á þessum tímamótum, um leið og minnzt er dvalarinnar í skólanum og gömul kynni rifjuð upp. Þorvaldur Þorsteinsson, for- maður Nemendasambandsins, mun stjórna hófinu annað kvöld, en þar verða mörg ávörp flutt og skemmtiatriði eru á dagskrá. Aðgöragumiðar að hófinu eru afhentir á skrifstofu Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur í Austörstraéti 17. — Bændur í Meðallandi taka honum bara vel. Við kunnum ágætlega við þenn- an nýja gest og hann virðist una sér vel — sagði Vilhjálm- ur Eyjólfsson frá Hnausum í Meðallandi, er við ræddum við hann í gær um öm, sem tekið hefur vetursetu þar austur frá, þrátt fyrir maka- Iej'si og einsetu. — Það eru nú um 9 ár síð- an örn, sem verið hafði lengi hjá okkur, drapst og síðan hefur ekki örn sést í Meðal- landinu fyrr en nú. Talið er að gamli örninn hafi drepizt af eitri. — Þes a arnar varð fyrst vart í haust hjá Botnum og hefur hann haldið sig með- fram Eldvatninu í vetur, eink um við Steinsmýri. Þar eru stöðuvötn og mikill fiskur og þar hélt hann sig í gaddveðr- inu í vetur. Var hann þá í hólma þar í sambýli við álft- ir og virtist fara vel á með þeim. Hins vegar voru end- urnar ekki einis hrifnar af þessum nýja gesti og krummi sem oft hefur verið að snigl- ast í kringum örninn, læðist að honum og togar L stélið á honum. — Örninn heldur sig afsið- is og virðiM; una sér vel. Menn telja að hér sé um rosk inn fugl að ræða, þar eð hann er fremur stór. Gamli örninn, sem drapst fyrir 9 áirum, hafði þann hátt á að hann hafði hér vetursetu — birtist hvert haust, en hvarf á vorin, sagði Vilhjálmur að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.