Morgunblaðið - 06.06.1969, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 06.06.1969, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 196» 17 Blaðamaður Morgunblaðsins, Björn Thors, skrifar trá Biafra: Orlu, Biafra, 24. maí. Það var lítll tími til að skrifta í gær, föstudag, því við vorum á stöðugri ferð um On- itdha, Orlu og Owerri hénuð, bróðir Ignatius og ég. Heim- sóttum við fjölda sjúkrahúsa og matgjafastöðva, ræddum við presta og aðra, sem annast út- hlutun matvælanna til svelt- andi landsbúa á milli þess sem við fylgdumst með sprengjuár- ásum flugvéla Nígeríu. Var ó- venju mikið um að vera á síð- astnefnda vettvanginum, meira en verið hefur und- anfarna daga. Var bersýnilegt að nú voru Nígeríuimenm reið- ir, og frétti ég síðar að þeir hefðu ástæðu tiL Árla morguns í gær, föstu- dag, komum við bróðir Ignatius til aðalstöðva Caritas í Ihioma, um 10 kim fyrir vestain Orlu. Var okkur sagt við komuna þang- að að flugvélar frá Biafra hefðu gert loftárás á flugvöllinn í Port Harcourt og eyðilagt þar sprengjuflugvélina, sem undan farnar nætur hefur sveimað yfir Uli-flugvelli og tafið mat- vælasendingarnar frá Sao Tomé Fernando Po og Cotonou. Voru þetta merkilegar fréttir, því ekki var vitað til þess að flug- her Biafra væri til. Fyrstu fréttir hermdu að það væru sæmgkar SAAB-þotur — sem gert hefðu árásina á Port Harcourt, því engum datt í hug að unnt væri að beita öðru en þotum gegn vörmum Nígeríu. Fylgdi það sögunni að það væri sænski baróninn von Rosén, sem hefði útvegað vélarnar og einnig flugmennina. Afsannað- ist þessi kenning þó fljótlega og í ljós kom að flugvélarnar voru litlar æfinigavélar af Harvard-gerð, eins hreyfils vél ar, hægfleygar og til lítilla stór ræða ætlaðar. Eru vélar þessar gott dæmi um styrjaldarrekst- urinn hér í Biafra. Biaflraher lætur sér næigja það sem aðhon um er rétt og nýtir það út í yztu æsar. Að senda litlar eins hreyfils, hæggengar flugvélar til loftárása á Port Harcourt flugvöll þætti fífldirfska, ef ein hverjir aðrir ættu hlut að máli. En Biafrabúar verða að beita því, sem til er. Þegar styrjöldin hófst var sagt að heildar vopna birgðir Biafra væru 140 rifflar af ýmsum gerðum.Bjuggust því herstjórar Nígeríu við því að geta bugað Biafra á tveimur dögum. Styrjöldin hefur nú stað ið í tvö ár og eran berjast Biafra búar hugrakkir gegn ofurefl- inu. Gestgjafi minn, bróðir Igna- tius, og ég lögðum snemma af stað í morgun, og var ferðinni fyrst hei'tið til Ihiala, rétt norð an við Uli-flugvöll. Þótt við værum á þjóðveginum rétt við flugvöllinm vissum við það ekki fyrr en við komiuina til Ihiala að IllyuShin sprenigjuþota frá Nígeríu hefði gert loftárásir á Uli-flugvöll og á Uga-fliuigvöll, sem er hér skammt norður und an. Heyrðum við ekki sprengju drumxrnar fyrir vélarskrölti bílsins. Meðan við fengum okkur te sopa í trúboðsstöðimni í Ihiala kom þotan aftur. í þetta skipti fór það ekki framhjá okkur hvað um var að vera. Þotan var hátt á lofti og lét sprengj- um rigraa yfir flugvellina tvo til Skiptis. Flaaig þotan fraim og til baika, og fór beint yfir dkk- ur í báðum ferðum. Allt í kring um okkur glumdi í loftvarnar- byssum, og sáum við hvar sprengikúlDurnar sprungu hátt á lofti, en jafnan langt frá árás arvélininii. Það er víst enginn barnaleikur að hitta nærri hljóð fráa þotu með áratuga göml- um loftvamarbyssum. Sýndist mér þetta óþarfa sóun á dýr- mætum skotfærum, en sumir landsbúar, sem ég ræddi við á LENGI Á ALLA ÞESSA EYMD eftir, voru mjög ánæ'gðir. Þótti þeim fróun í því að sjá sprengi kúlurnar frá loftvarnarbyssun um springa á víð og dreif um himininn. Á leiðinni heim til hádegis- verðar mættum við enn spreragjuþotunni. Meðfram þjóð veginum eru víða loftvarnar- byssur, og glumdu skot þeirra í eyrum okkar meðan við vor- uim á leiðinini. Var hávaðrrm gífluirlegur, og stiundum höst- ist bíllinn okkar þegar skotið var. (Þrátt fyrir allan haimaganig- inn komumst við óhultir á leið arenda.Snæddum við hádegis- verð hjá föður McMamus í Orlu, en hann er sóknarprestur Leirv-eggimir einir stóðu uppi. Það er siður í hitabeltinu að fá sér „siesta“ eða blurnd eftir hádegisverðinn og sofa af sér mesta hitann. Ég hef þó lítið getað gert af því, og jafnan ver ið á ferðinini eins mikið og unnt hefur verið meðan dagsbirtu nýtur. Svo var eimniig þennan dag, og strax að snæðingi lokn um héldum við bróðir Ignatius af stað áleiðis til Mbieri rétt norðan við Óweri. Er þar mat- gjafastaður og sjúkrahús, sem við ætluðum að heimsækja. Fengum við lánaðan bílstjóra, sem er nákunnur vegleysunum þarna, því Mbieri er afskekkt ur bær þótt þar hafi búið nokk ur þúsumd manns. Moldarvegir liggja til bæjarins gegnum þétt an skóginn, og eru þeir ekki fyrir óvana að rata. Bílstjór- inn, sem við fengum, er frá smá þorpi í grennd við Mbieri, og þekkti skógarslóðirnar gjörla. Við yfirgáfum malbikaðan þjóðveginn um miðja vegu milli Orlu og Owerri og þræddum eftir það þröraga moldarvegiraa, sem eru varla meira en bíl- breidd, með hávaxinn gróður á báðar hliðar irani í skógin- um var hvert þorpið á fætur öðru, þótt lítið bæri á þeim, og mikill fjöldi gangandi skógar- búa alls staðar. Ólk bílstjórimn samt greitt, en notaði flautuna óspart. Vegfarendur viku fús- lega, stóðu úti í runnuraum og veifuðu til okkar um leið og við fórum hjá. Fyrsti viðkomustaður okkar var sjúkrahús, sem innfæddar niumraar stjórna, yfirfullt eiras og öll sjúkrahús hér í landi. Var okkur vel fagnað, ekki sízt mér, manninxun frá skreiðarlandinu í norðri. Allir kepptust um að þakka matargjafirnar frá fs- landi og bjóða mig velkominn til Biafra. í bairraadeildinini voru allt að fjórir sjúklingar saman í rúmi, og flest börnin voru þarna vegna alvarlegs skorts á eggja hvítueflni, Kwadhikoraor sjúlk- dómiuriran, sem því fylgir, leyn- ir sér eklki. Bönnin eru að sjálflsögðu grindhonuð, en önirauir sjúkdómiseim- kenni eru þau að húðin lýsist og verður flekkótt og mött, og hárið eiras og gránar. Sum barn anna eru með útþembda vömb af vökva þótt aðrir hlutar lík- amans séu holdlausir. í einu rúminu lá lítil stúlka, á að gizka 5—6 ára, og var að hugga lítinn bróður sinn, sem var að dauða kominn af hungri. Hélt stúlkan utan um þessa holdlitlu beinagrind, klappaði herani og vaggaði af mikilli um hyggju. Ekki stökk stúlbunni bros, þegar bróðir Ignatius bar börnunum kexkökur, og hún leit vart við mér, þegar ég reyndi að ná mynd af henni með bróður sinn í fanginu þarna í myrkrinu. Börn þessi voru eimistæðiragar því foreldrar þeirra hö'fðu verið drepnir þeg- ar Nígeríuher flýði frá Mbieri fyrir tæpum mámuði. Sagði hjúkrunarkonan mér að börnin hafi bæði verið dauðvoraa, þeg- ar komið var með þau í sjúkra- húsið, en nú virtist sem unnt yrði að bjarga lífi stúlkunnar. Ekki bjóst hún við að dreng- urinn lifði lengi, svo langt var hann leiddur. í öðru rúmi þarna rétt hjá hitti ég fyrsta kwashiokor-sjúk lingiran, sem ég hef séð brosa, og sá var nú ekki spar á bros- in sín. Þetta var um 6—7 ára strákur, og þótti honum fynd- ið að sjá þessa ókunnu gesti. Hann beirati á okkur til skiptis og brosti út að eyrum. Og sá var nú kátur, þegar hann sá kexið frá bróður Ignatius. Það er ömurlegt að garaga svoraa rúm frá rúmi og horfa á öll þessi börn. sem lítið er eftir af annað en beinagrindin. Þau liggja flest hreyfingarlaus í rúmum sínum — enda kraft- ar þrotnir — og stara stórum og skynlausum augum, að því er virðist. Furðulegt er að heyra að flest þessara barna skuli eiga eftir að ná fullri heilsu, en það staðhæfa lækn- ar, svo framarlega sem urarat verður að sjá þeim áfram fyrir mat. Eins og ég hef áður sagt hef ur mjög dregið úr hungurdauð anum hér í Biafra, því komið hefur verið upp fjölda matgjafa staða þar sem börn fá eina mál- tíð annan hvern dag. Hvern þessara staða sækja um 5—10 þúsund börn að staðaldri, og hafa matgjafarnir gjörbreytt á- standinu. Minna er hugsað um fullorðna, og frekar ætlazt til að þeir geti bjargað sér sjálfir. Hafa líknarstofnanir haft for- göngu um útvegun fræs, og út um allt land má sjá nýræktaðar spildur inni í skóginum með Framhald á bls. 15 kaþólskra og hefur verið hér um margra ára skeið. Bauð faðir McManus upp á bjór með matnum, og kom bjórinn beint úr ísskápnum. Er bjór fágæt munaðarvara hér um slóðir, en kærkominn drykkur eftir ann- ir morgunsins. Litla stúlkan með dauðvona bróður sinn. Þetta eru einstæð- ingar, því foreldrar þeirra höfðu verið drepnir Stanzað á leið um frumskóginn. EG GET NELZÍ EKKI HORFT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.