Morgunblaðið - 25.06.1969, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1939
€
>
>
MAGIMÚSAR
i<IPHPlIl 21 SIMAR 21190
rtifir loVwn »Imí 40381
22*0*22*
RAUDflRARSTÍG 31
\^S>,iM' I-44-44
Uyérfisfötu 103.
Simi eftir lokun 31100.
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Simi 14970
GUSTAF A. SVEIIMSSON
hæstarétta rl ögmaður
laufásvegi 8. — Simi 11171.
Jón Fiiuisson
hæstaréttarlögmaSur
Sölvhólsgotu 4, 3. hæð
(Sambandshúsið).
Málflutningur - lögfræðistörf.
Símar 23338 og 12343.
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar.
púströr og fleiri varahlutir
í margar gerðir bifreiða.
Bítavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. - Sími 24180.
Vinna - læra - sumarfrí
Au-Pair stúlkur óskast til Lond-
on. 17 ára og eldri. Uppl. í síma
19669.
AU-PAIR umboðið,
Ránargötu 12.
FÉLAGSLÍF
Farfuglar — ferðrmenn
Ferð um næstu helgi í Borgar-
fjörð og Surtshelfí. Sumarleyfis-
ferð (vikudvöl) í Þórsmörk
hefst 12. júlí. Farmiðar setdir í
skrifstofunni Laufásveg 41, kl.
3—7 daglega, sími 24950.
Farfuglar.
@ Ekki aðeins hvað
maður fær borgað,
heldur einnig hvað
þarf að borga
í dag svarar S, H. Haraldi GuS-
bergssyni:
Kæri Velvakandi!
Aðeins lítið svar til Haralds
Gaðbergssonar vegna kaups og
verðlags í Svíþjóð og á íslandi.
Fyrst vil ég þakka Haraldi lof-
samleg ummæli hans um utreikn
inga mína, en líklega eru ummæli
hans jákvæð bæði fyrir Hagstof
una og mig, þar sem ég er bara
húsmóðir og hef komizt að mín-
um niðurstöðum með að kaupa í
mat og „halda hús“ i 25 ár
(reyndar í þremur löndum), en
Hagstofan byggir sínar niðurstöð
ur á tölum eingöngu og samt má
ekki á milli sjá.
Ekki vil ég viðurkenna, að ég
hafi „gleymt" neinni nákvæmni,
þegar að kaupinu kom. Ástæðan
fyrir bréfi minu til Velvakanda
var, að ákveðið tímakaup, 15 kr.
sænskar, var tilgreint í einni iðn-
grein í ákveðnu landi og ég gaf
aðeins upplýsingar um verð á ýms
um vörum og kostnaði í sama
laadi, svo hver og einn gæti dreg
ið sínar eigin ályktanir. Kaup og
kjör verkamanna nefndi ég í
hvorugu landinu, en aftur á móti,
hvað ég hefði borgað iðnaðar-
mönnum í umræddri iðngrein hér
heima á uppmælingartaxta og um
reiknaði það í tímakaup af þess
ari einstöku reiknings-ná-
kvæmni minni, sem Haraldur er
svo hrifinn af.
Nú vil ég halda mig við iðn-
greinina, sem í upphafi var til
umræðu (læt Haraldi hinar eftir,
ef hann vill) og aflaði mér þeirra
upplýsinga, að tímakaup tré
smiða væri kr. 80.-, en yfirleitt
sé unnið eftir uppmælingartaxta
og þá ekki fyrir minna en kr.
100.-- 150,- á tímann, svo ég ætla
að fara varlega og áætla kr. 100,-
á tímann. Um mjólkina, ýsuna
og súpukjötið er það að segja, að
heldur litið er að marka heildar
útkomu, sem byggð er á svo litlu
broti allra útgjalda eins heimilis,
en ekki þykir mér Haraldur
heppinn að nefna ýsuna, því sá,
sem hefur kr. 100.- í tímakaup
á tslandi fær þá fyrir það 5 kg.
af ýsu, en sá, sem hefur kr. 15,- í
timakaup í Sviþjóð, fær aðeihs
2 kg. af ýsu ef mér er ekki farið
að förlast því meira í reiknings
listinnL Auk þess er ný ýsa svo
léleg vara í Svíþjóð, að hún er
engan veginn sambærileg við okk-
ar nýja fisk, allt annar gæðaflokk
ur. Súpukjöt er því miður ekki á
listanum mínum, enda sennilega
2ja herb. ibúðir óskost
Höfum fjársterka kaupendur að 2ja herb. íbúðum víðsvegar
um bæinn.
FASTEIGNASALAN,
Óðtnsgötu 4, sími 15605.
Síldarskipstjórar —
útgerðarmenn
Snurpið með SIMFISK
FRAMLEIÐANDI:
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
Suðurlandsbraut 12 — Sími 37960.
ekki mikið á boðstólum í Svíþjóð
en af engu kjöti þar er hægt
að fá heilt kíló fyrir tímakaup-
ið, en segja má, að heilt súpu-
kjötskilö fáist fyrir 100.- kr. Af
mjólk fengi sá íslenzki 81 en sá
sænski reyndar 14 1 fyrir tíma-
kaupið sitt, en mundi sennilega
kaupa undanrennu, því einhvers
staðar verður hann að spara til
þess að geta keypt ýsuna, greitt
húsaleiguna svo ég nefni nú ekki
skatta, sem eru 30 prs. af laun-
unum. Ajn.k. er auðséð, að þó að
sá íslenzki fái 1,7 sinnum minni
mjólk en sá sænski, þá fær sá
sænski 2,5 sinnum minni ýsu en sá
íslenzki. Þrátt fýrir þetta neyta
íslendingar meiri mjólkur á
mann en nokkur önnur þjóð und-
ir sólinni og miklu meira en
læknar telja hollt. Annars er
svona sparðatíningur, sem tek-
inn er út úr öllu samhengi, tóm
vitleysa og ekki eyðandi orðum
að sliku.
Hér með læt ég útrætt. um þessi
verðlags- og kaupgjaldsmál frá
minni hálfu. Bréf mitt var ein-
göngu ætlað fólki til fróðleiks
um þá hlið málsins, hvað þyrfti
að borga, en ekki bara til að
vekja deilur, nóg mun vera af
þeim samt i okkar þjóðfélagi,
þvi miður. S. H.
0 Illt er þeirra ranglæti
Borgari skrifar:
Velvakandi!
Greinar um islenzk flugmál
sem birzt hafa í Morgunblaðinu
undanfarið hafa vakið mikla at-
hygli almennings.
Sú gróska, sem verið hefur í
íslenzkum flugmálum hefur verið
einkar ánægjuleg, en nú virðist
heldur harðna 1 dalnum vegna
óbilgimi frænda okkar á Norð-
urlöndum og Þjóðverja. Með
miklum þrýstingi og svikum virð-
ist SAS hafa svínbeygt Flugfé-
lag íslands, og Loftleiðir hafa orð
ið að sæta afarkostum. Er það ein
læg von íslendinga, að stjórnmála
menn og almenningur í Dan-
mörku skerist í leikinn. Loftleið-
ir hafa unnið merkilegt braut-
ryðjendastarf á flugleiðinni
Bandaríkin — Evrópa fyrir til-
stilli mikillar velvildar Banda-
ríkjamanna.
Það má einnig furðulegt heita
að Loftleiðum sé bannað að aug-
lýsa i Þýzkalandi, jafn góðir við
skiptamenn og við höfum verið
Þjóðverjum og má þar benda á
bílana og aðrar þýzkar vörur, sem
við höfum flutt inn.
Það má eiginlega furðulegt
heita að okkur skuli vera bannað,
að lenda flugvélum á öllu meg-
inlandinu, nema með miklum tak
mörkunum, að undanskildu litla
landinu Luxemburg, og má segja
að illt er þeirra ranglæti, en
verra þeirra réttlæfi. Borgari.
0 Hvað átti maður að
halda?
Baster skrifar:
Sl. föstudagsmorgun þ. 20. júní
1969 opnaði ég útvarpstæki
mitt, eins og ég geri ráð fyíir
að flestir íslendingar hafi gert,
með talsverðri eftirvæntingu, til
þess að heyra nýjustu frétt-
ir. Kvöldið áður var bú-
ið að segja frá stórfréttum af á-
tökum um launamál flugmanna.
Raunverulega rikti í landinu
uppreisnarástand, sem óþarft er
að greina frekar en óhætt að
segja að hugaræsingur værinokk
uð almennur við slíkt ástand.
Sjónvarpið er ekki á fimmtudög
um, svo fregnirnar voru ekki fyr-
irferðamiklar. Ég varð því fyrir
freklegum vonbrigðum, þegar
ekkert var minnzt á þetta mál í
morgunfréttum útvarpsins. Hvað
átti maður að halda. Voru menn-
imir múlbundnir? Sami rauð-
grauturinn og sætsúpan frá
Rodesiu, Vietnam og Biafra. En
þetta er ekki í fyrsta skipti, sem
leitað er langt yfir skammt með
fréttaefnið. Höfðu útvarpsmenn
fengið einhvern snert af krank-
leikafaraldri flugliða, eða
kannski er það einhver þrálát-
ari kvilli.
Baster.
0 Þjóðin var einhuga í
sambandsmálinu
H. G. segir m.a. á þessa leið í
bréfi:
Á aldarfjórðungsafmæU lýð-
veldisins spurði MbL nokkra
menn hvað þeim væri minnisstæð
ast frá lýðveldisdeginum 1944.
Ég held, að ýmsum verði minnis-
stæðast svar hr. rektors EinarS
Magnússonar. „Samvizkubiti
þjóðarinnar létti“ svarar rektor-
inn, en hefur hann rannsakað
hjörtu og nýru íslendinga í lýð-
veldismáiinu?
Þjóðaratkvæðagreiðslan vorið
1944 sýndi, að þjóðín var ein-
huga í sambandsmólinu, minnug
þess „Því fátt er frá Dönum, sem
gæfan oss gaf, — og glöggt er
það enn, hva# þeir vilja.“ (SAS.
handritamálsókn).
Líklegt er, að tslendingar hafi
fagnað skeyti Danakóngs hans
vegna fyrst og fremst, en ekki
vegna þess að þeir hafi haft
nokkurt samvizkubit. Til þess
var ekki ástæða.
Það verður að virða við rekt-
orinn, að hann er hreinskilinn
maður. Þeir sem vildu afsala um
sinn rétti íslendinga, hafa til
þessa lítt flíkað þeirri afstöðu
sínni.
H. G.
Vaktmaður
óskast í nýbyggingu í Austurbænum.
Upplýsingar í síma 13428 kl. 2—4.
Hafnarfjörður — Hafnarfjörður
PERMANENT
litanir, lagningar, lokkalýsingar, klippingar og öll önnur þjón
usta sem hárgreðslustofa getur veitt.
Hárgreiðslustofan Lokkur
Suðurgötu 21, sími 51388.