Morgunblaðið - 25.06.1969, Qupperneq 13
, MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 19.69
13
ISLAND OG FERDAMENNIRNIR
Nokkur sumarorð til opinberrar ásteytingar
íslamd þarf á erlendum gjald
eyri að halda, ef mér skjátlast
ekki. ísland úthýsir erlendum
gjaldeyri. Ekki af ráðnum hug.
Ekki samkvæmt áætlun. Ómeð
vitað. Stefnulaust.
Þeir, sem búast við að
finea fru-mleg sjónanmið í þeas-
ari grein, ættu að láta staðar
numið hér og opna fyrir Harð-
jaxlinn. Þeir, sem þegar hafa
fengið vakinn í brjósti sér feg-
insamlegan grun um dýrleg
veiðilönd — gruninn um að út-
lendingurinn eigi eftir að rata
í ógöngur með málefni, sem
kemur honum ekki við þeir
ættu að halda áfram að lesa.
Ég get fullvissað þá um, að
þeir verða ekki vonsviknir.
Ég hef verið beðinn um að
semja þessa grein.
Ég andmæli hér með eindreg
ið stefnuleysi fslendinga gagn-
vart einni vænlegustu og ör-
uggustu tekjulind sinni: ferða-
mönnum. Ég geri það ek'ki til
að skaptrauna neimum, en það
mundi gleðja mig, ef skapraun-
in yrði svo þung, að hún vekti
löngun til að velta því fyrir
sér, hvort eitthvað af því, sem
ég segi, kynni að búa yfir
sannleikskorni.
Staðreyndin er þessi: Ég veit,
að ég einn get útvegað íslandi
sumargesti svo hundruðum
skiptir. Ég geri það ekki. Hvers
vegna? Vegna þess að ísland
getur ekki tekið á móti þeim.
Ég endurtek: ísland, hið gamla
heimkyrini gestrisninnar (af
henni gorta menn að minnsta
kosti), getur ekki tekið á móti
gestum, sem mundu færa því
miklar tekjur, á þeim tímum
árs, sem þeir vilja helzt koma.
Sem sé á sumrin.
Við skulum fyrst afgreiða þá,
sem segja: Við viljum ekki
ferðamenn á ættjörðinnd. Það
er heiðarleg og fróm afstaða,
þangað til maður spyr þá,
hvaða tillögur þeir hafi um
arðvænlegar ráðstafanir í stað
þess erlenda gjaldeyris í mörg-
um milljónum króna, sem menn
sitja nú og horfa upp á opnum
augum (eða svo er sagt) og
með hendurnar í skauti sér, að
íslenzka þjóðin fer á mis við.
Þeir geta ekki svarað.
— Peningar eru ekki allt,
stynja þeir gjarnan upp um síð-
ir.
Það er reyndar alveg satt.
Samt eru peningar harla mik-
ið, einkanlega fyrir þá, sem
eiga þá ekki. Þegar menn hafa
búið á íslandi um skeið, fer
ekki hjá því að þeir fái á til-
finninguna, að hér séu pening-
ar í töluverðum hávegum hafð-
ir eins og allsstaðar. Og það
ætti ekki að koma neinum á
óvart.
— Við viljum ekki spiila eðli-
legri gestrisni okkar með því
að hafa hana að féþúfu, segja
sumir.
Mín spurning er: Hvaða gest
risni? Augljóslega íslenzka
gestrisniin, það er eflaust hún,
sem höfð er í huga, megið þið
bölva ykkur upp á. En ég held
því auðmjúklega fram, og skal
hvenær sem er styðja þá stað-
hæfingu mörgum áþreifanlegum
dæmum, að í Stór-Reykjavík
er ekki að fin.na meiri gest-
risni nú en í Stokkhólmi, Kaup
mannahöfn eða Osló, og gildir
þá einu hvort rætt er um eðli-
lega eða óeðlilega gestrisni. Ég
held hún sé fremur minnii ein
meiri. Og' hún er mjög miklh
minni an. íi Bandaríiejunum, sem
við aliir skömmumt Aðeins með
þessui mótd og engu öðim haf-
ur þéttbýlisþróunin náð svo
langt sem raun ber vitni. Þær
leifar af eðlilegri gestrisni, sem
enn ec til í íslenzku þéttbýli,
geta menn rólegir haft að fé-
þúfu. Á þeim verður enginn
ríkur.
Gaman væri líka að fá tillög-
ur frá þessum andófsmönnum
ferðamála um það, hvað hin
ágætu og velreknu flugfélög,
Loftleiðir og Flugfélag íslands,
og hótelin í Reykjavík ættu að
taka sér fyrir hendur í stað-
inn fyrir þá ágætu viðleitni að
fá fleiri ferðamenn og útlend-
inga til að koma til íslands. Á
að láta þessi flugfélög og þessi
hótel lognast út af? Þessir and
ófsmenn ferðarhála eru ekki
bara skýjaglópar, þeir eru lífs
flóttamenn, sem er miklu verra.
— Tunga og menning íslend-
inga þola ekki hinn mikla ferða
mannastraum, segja menn í
fullri alvöru.
Ég segi: Séu íslenzk menn-
irug og íslenzk tunga svo við-
kvæmar og veikburða jurtir,
að þær þoli ekki ofurlitla snert
ingu, þá væru íslenzk tunga og
menning fyrir löragu kommar í
gröfina og rekunum hefði ver-
ið kastað á þær með íslenzkri
floshattaviðhöfn. Hafi menn
enga trú á því, sem þeir eiga,
þá er það harlia lítils virði.
Og vilja þessir andófsmenn
ferðamála, að farið sé með ís-
lenzka ferðamenn erlendis eftir
sömu vafasömu reglum og fylgt
er á íslandi nú? Eða á þessi
farmann.aþjóð e.t.v. ekki að
fá að ferðast meira?
Hvernig væri nú að líta í
staðinn raunsæjum augum á
hlutina og sameina alla þjóð-
ima um að gera áætlanir um
og hafa stjórn á þróun, sem
er hvort eð er óumflýjanleg?
Fyrst verður að sjá útlend-
ingunum fyrir þaki yfir höf-
uðið. íslendingar hafa löngum
sýnt að þetta geta þeir — með
prýðilegum hótelum, sem til
eru. Betri þjónustu fá menn yf
irleitt ekki annars staðar, og
þar kynnist maður eðlilegri
gestrisni, sem sönn ánægja er
að borga fyrir. Ef maður bara
kemst inn.
Hið mikla gistihúsavandamál
Reykvíkiniga er nú og verður
enn um sinn: Alltof lítið hótel-
rými um ferðamannatímann
(sem er alltof stuttur). Of mik
ið hótelrými — of mikill tóma-
gangur — meirihluta árs.
Hvernig má bæta úr því?
Fyrst verður að komast að
samkomulagi — samkomulagi
um að líta á sjálfan sig og sam-
landa sína sem eina þjóð. Ég
hef hvergi komizt í tæri við
svo riiairgar „þjóðir“, svo marg-
ar „eyjar“ sem á íslandi. Endr-
um og eins freistast maður til
að halda, að ísland sé land-
svæði byggt 201.000 ríkjum, þar
sem hvert einstakt ríki togar í
sína átt og gætir þess vand-
lega að ekkert hinna ríkjanna
200.999 togi sömu átt. Ekki
er hægt að vænta þess, að á
hverju ári komi upp handrita-
mál eða þorskastríð, sem sam-
einí íslenzku þjóðernisbrotin í
eina þjóð. Nú hlýtur því
þroskastigi brátt að verða náð,
að menn geti sameinazt um
jafn smávægilegt verkefni eins
og áhugann á að kynna
útlendingum ísland gegn
greiðslu.
Réykjavík er og verður inn-
rásarhöfn ferðamannastraums-
ing, hvort sem mönnum líkar
betur eða verr. Hvers vegna
þá ekki að taka afleiðimguniuim
af því? Hafa ekki ferðamaniraa-
bærinn Reykjavík og skóla-
bærinn Reykjavík neina sam-
eiginlega hágsmuni? Jú. Eitt
hótelanna, sem nú eru fyrir
hendi, mætti stækka - til mik-
illa muna — og síðan gera við-
byggingarnar að stúdentagörð-
um og heimavistum fyrir hjón
og einhleypinga að vetrinum,
eins og t.d. Studentbyen á
Sognd í Osló, sem á hverju
sumri er stærsta hótel Norð-
ur-Evrópu (með um 1000 rúm-
um), en ódýr stúdentagarður á
haustin, veturna og vorin.
Einnig væri hægt að reisa nýtt
hótel eftir sömu reglu: stúd-
entagarður á veturna, ferða-
mannahótel á sumrin. Nýtt hó-
tel ég mumdi hafa þaran kost, að
ekki þyrfti að eiga samvinnu
við aðra aðilja um reksturinn.
Þá væri smámsaman hægt að
rífa þá tvo stúdentagarða sem
nú eru í Reykjavik, og mundi
það verða höfuðborginini mik-
ill fagurfræðilegur ávinningur.
Þeir minna mig á hermanna-
skála Hitlers í Rendsburg, þar
sem ég var á sínum tíma hýst-
ur, nema hvað þar voru gerð-
ar miklu meiri kröfur.
Heyrzt hafa andmæli gegn
slíkri áætlun, sem ég veit
reyndar að hefur verið „til at-
hugunar“ um nokkurt skeið —
ekki er til nokkur svo snjöll
hugmynd að hún veki ekki við
bárur. Heyrzt hefur, þegar
bent er á að ekki sé til neitt
örvandi stúdentaumhverfi í
Reykjavík, að það sé ekki nema
gott og eigi svo að vera. f því
sambandi er bent til Uppsala,
þar sem reynt er að fá stúd-
enta tekna inn á einkaheimili.
Nújá, hér er ég á öðru máli.
Sé nokkuð, sem ísland þarfn-
ast nú, þá er það ósvikið stú-
dentaumihverfi gagnetætt því
skonsuhelvíti einmanaleikans,
sem til dæmis er algengt í Upp
sölum. Qg svo hefur ísland enn
þá, reyndar án nokkurrar hlið-
stæðu, þá yfirburði yfir önnur
Norðurlönd að það á heimsimet
í sumarleyfum, þar til það bæt-
ir ráð sitt. Enda þótt það sé
tímaspursmál, hvenær leggja
verði þennan hálfvitahátt fyrir
róða • til að halda í við menn-
ingarþjóðfélög nútímans, þá er
hér um að ræða yfirburði að
því er snertir áætlanirnar um
ferðamanraahótel — stúdenta-
garða, meðan firran er látin
óáreitt.
Þangað til hafizt verður
handa um að reisa ferðamanna-
hótel-stúdentagarð, verður að
koma á laggirnar virkri ferða-
miðlunarskrifstofu, sem skrái
og hafi eftirlit með öllum einka
heimilum sem taka vilja við
ferðamönnum yfir sumarmánuð
ina. Ég geri ráð fyrir að vel-
skipulagt starf á þessum vett-
vangi mundi sjá nokkur hundr-
uð ferðamönnum fyrir húsa-
skjóli á hverri nóttu.
Þar með er ekkert sagt um
hið langa tómagangsskeið frá
september fram í maí. Einnig
þá getur ísland laðað til sín
ferðamenn. Annars vegar má
með skipulögðu starfi gera
Reykjavíik að norrænni — já
evrópskri og alþjóðlegri ráð-
stefnuborg, að því tilskildu
meðal annars að til sé hentugt
húsnæði. Hins vegar ber að
breyta ferðamannaáróðrinum
með markvissum hætti í því
skyni að laða hingað vaxandi
fjölda efnamanna, sem vilja
kyranast einhveirju sem er
öðruvísi.
Til Vestur-Noregs og Norð-
ur-Noregs leggur nú leið sína
vaxandi fjöldi haust-ferða-
manna auk þeirra þúsunda sum
ar- og vetraríþróttamanna, sem
við tökum á móti án þess að
bíða umtalsvert tjón á svo-
nefndri þjóðarsál okkar. Þetta
fólk vill fá storma. Storma og
illvirðri. Helzt ofviðri. Á hafi
úti. Fari það á mis við slík
veður, fer það heim óánægt og
skrifar Ijót kvörtunarbréf til
Bergenska gufuskipafélagsins.
Segið frá því hvað ísland
er og ekki á sér hliðstæðú í
nokkru öðru landi heims. Það
er meira en nóg ti>l að hrífa og
laða hingað þúsundir nýrra
ferðamanna — með peninga
(forlátið).
Það er líka til önnur mann-
gerð svo skiptir hundruðum
þúsunda: „farfuigliran“. Hún og
haran hafa þörf fyrir sæluhús
Ivar Eskeland.
eða farfuglaheimili með hæfi-
legu dagleiðar millibili, þar
sem sé sjálfsafgreiðsla eða ó-
brotin þjórausta, og þau þurfa
að vera um allt land. Ekki ljót
ir bárujárnskofar, heldur fal-
legir lágreistir skálar, sem
falla inn í landslagið. Reisið
líka vegakrár, hvort tveggja. í
Árbæjarstíl, þar sem ekki er
einungis selt kóka-kóla og
priraspóló-kex.
En umfram allt er þörf á
vegum.
f mörgum af þeim hundruð-
um greina, sem ég hef skrifað
um ísland í erlend blöð (ég hef
sennilega skrifað meira en
nokkur annar núlifandi útlend
ingur, og í ákaflega hástemmd-
um lofgerðartóni: ísland á vís-
an geysimikinn sjóð velvildar
til dæmis í heimalandi mínu,
kannski helzt vegna skrifa
Halldórs Laxness, sem íslend-
ingar yfirleitt verðskulda ekki,
vegna þess að þeir gera aldrei
neitt til að næra og rækta þessa
velvild), í mörgum af þessum
greiraum, sem ég er löngu hætt-
ur að skrifa af því þær voru
ósannar, hef ég lagt áherzlu á
hvílíkt afrek það sé, að íslend-
ingar skuli þrátt fyrir allt eiga
þá vegi, sem í landi þeirra
Framhald á bls. 21
Hér kemur auglýsing
frá Klœðningu
Spred-málning, utanhús og innan.
Fjölbreytt litaúrval.
Willis Jeep 1964 *67 óskost
AÐEINS GÓÐUR BlLL KEMUR TIL GREINA.
STAÐGREIÐSLA.
UPPLÝSINGAR I SlMA 35D47 EFTIR KL. 20.00.
Vinningor í Getrounum
1 4. leikviku (leikr 14. — 19. júní) komu fram tveir seðlar
með 10 réttum:
nr. 9847 — vinningsupphæð kr. 127.400,00.
nr. 11673 — vinningsupphæð kr. 127.400,00.
Kærufrestur er til 11. júlí. Vinningsupphæðir geta lækkað,
ef kærur reynast á rökum reistar en vinnngar fyrir 4. leikviku
verða greiddir út 12. iúlí.
GETRAUNIR, iþróttamiðstöðinni Reykjavík.
Ul ÚTBOÐ f||
Tilboð óskast í byggingu dælustöðvar fyrir Hitaveitu Reykja-
víkur í Breiðholtshverfi.
Tilboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri frá og með föstu-
deginum 27. júlí n.k , gegn 3.000.— króna skilatryggingu.
filboðin verða opnuð á ssma stað, mánudaginn 7. júlí n.k.,
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Reykjavík — Sími 22485.