Morgunblaðið - 18.07.1969, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1969
1-44-44
HverfisRÖtu 103.
Simi eftir lokun 31160.
MAGMÚSAR
>kiph»iti21 simar21190
eftir lokun tÍmi 40381
BÍLAIEIGANFALURhf
carrental service ©
22*0*22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
bilaleujan
AKBllA UT
car rental service
Smurstöð
okkar er sérhœtð
VOLKSWAGEN
og
LAND-ROVER
Smurstöð
Opið til kl. 19.oo
nema föstudaga
til kl. 21.oo
Laugard. kl. 8-12
Sími 10585 og 21240
HEKLA hf
Laugavegi 170—172
0 Sorgarsaga
úr landsprófi
Rv. 12.7 1969
Góði Velvakandi!
Ég vona að þú komir þessu
sem fyrst í dálkana þína,
0 Hin andlegu
skemmdarverk.
Nú að undanfömu hafa orðið
venju fremur miklar umræður um
skólamálin. Þar sem ég tel mig
hafa orðið fyrir nokkurri reynslu
er rekja má til þess hættulega
ástands sem nú er að finna, víða
í fræðslukerfi okkar, vildi ég
með þessum linum mega bregða
upp mynd af raunverulegum at-
burðum sem hafa gjörzt nú á síð-
asta vori. Ég veit að hér er
ekki um neitt óþekkt tilfelli að
ræða, heldur aðeins eitt af mörg-
um; þar sem e.t.v. kunna á hverju
ári að vera eyðilagðir eða and-
lega skaðaðir stórir hópar ungl-
inga. Spumingin er: Hver ber
ábyrgðina?
Ég er ein þeina mörgu mæðra,
sem á 15 ára dreng, er fór í
landspróf í vor. Var það sam-
kvæmt ákveðnum vilja drengsins
sjálfs, og í samræmi við ein-
dregna hvatningu viðkomandi
skólastjóra og kennara, að þessi
ákvörðun var tekin, og að piltur-
inn færi í landsprófsbekk síðastl.
haust. Hann hafði líka alltaf stað
ið sig mjög vel i skólanum, og
próf hans sýndu árangur langt
fyrir ofan meðallag, einnig miðs-
vetrarpróf hans í landsprófsdeild
í vetur, enda drengurinn mjög
samvizkusamur í öllu sem hann
tekur sér fyrir hendur.
Það óvænta gerist samt, að
hann fellur á landsprófinu. Sjálf
hafði ég ekki gjört mér neina
grein fyrir í upphafi hvaða hætta
hér væri á ferðinni. Það var ekki
fyrr en drengurinn kom heim
með prófeinkunnina sína, þá sýni-
lega búinn að gráta öllum sínum
tárum, en það veit ég að hann
hefur ekki gjört frá því hann var
lítill. Hann sagðist aldrei fara 1
skóla framar, því auðsýnt væri að
hann væri nú dæmdur einn af
þeim lélegustu í bekknum. Sjálf
er ég búinn að reyna allar hugs-
aníegar leiðir til að hughreysta
hann, en minnimáttarkenndin virð
ist hafa með öllu yfirbugað hann.
Ég benti honum á að þar sem svo
- Hjprhr
Fondusett nýkomin
Jóhanncs Norðfjörð
I<augavegi 5. Sími 12090.
Hverfisgötu 49. Sími 13313.
.Höfurri'á BoSstólumog skiputeggjum einstqklingsferSir urri gílari heim. Reynið
Telex ferðaþiónustu okkar. örugg ferðaþjónusta: Áldrei dýrari en oft.ódýrari
en annars staðar.'
ferðirnar sem fólkið velnr
Geirungsagir
nýkomnar
Verzlunin Brynja
Laugavegi 29 — Sími 24320.
fáum stigum hefði munað að
að hann næði prófinu gæti hann
tekið það aftur í haust, en við
það er ekki komandi.
Þessi drengur forðast nú alla
sína fyrri félaga, og gengur út,
þegar ættingjar og vinir koma
inn á heimilið. Hann hefur unn-
ið á sumrin hjá sama fyrirtæki
frá því hann var 12 ára. í gær
hringdi atvinnurekandinn til mín
og tjáði mér að hann gæti ekki
haft son minn áfram, ef hann
breyttist ekki til hins betra, og
innti mig eftir hvað hefði komið
fyrir, hann þekkti hann ekki fyr-
ir þann sama og áður, sér virtist
hann nú sinnulaus um allt.
Þannig er nú þessi saga, og að
ég tel með öllu umbúðalaus. Sjálf
er ég ekkja með 2 tiltölulega ung
börn, sem ég verð að sjá fyrir
auk þessa drengs, sem ég hafði
bundið miklar vonir við, en sem
þarf nú sennilega að meðhöndla
sem sjúkling. Ég er nú næsta ráð
þrota yfir því sem skeð hefur, og
ég spyr að lokum aftur: Hver
ber ábyrgðina?
Með beztu fyrirfram þökk fyr-
ir birtinguna.
Móðir.
0 Móti hundum sem
heimilislæknum
Elskulegi Velvakandi!
Bjargaðu nú blessuðu hundkvik-
indinu frá „vinum“, sínum og
vertu nú einu sinni röskur.
Það er glöggt að það er uppi
hópur manna i landinu, sem hefur
ánægju af því að kvelja dýr, sér-
staklega hunda, sér og börnum
sínum til yndisauka. Það lokar
þessar skepnur, sem þrá náttúr-
una, inni í stofum, leiða þær um
í ólum, tjóðra þær í görðum —
allt fyrir sjálft sig og blessuð
börnin — hvað er eitt hundslíf í
kvöl og eymd. ef barnið mitt nær
að brosa — eða ég sjálfur að
gleðjast — hundurinn er bezta
uppeldistækið sálfræðingurinn og
heimilislæknirinn Þegar hundur-
inn hefur lagt undir sig borg-
ina — verða hér engir vandræða
unglingar — engin þörf fyrir geð
veikrahæli — enginn drykkjuskap
ur — ríki hundsins er þá runn-
ið upp — börn — hundar og full
orðnir gelta í sameiningu —
Af skrifum hundahaldaranna og
„vinanna“, undanfarið virðist sem
hundurixm sé sleipari uppalandi
en nemendur hans gera sér ljóst,
„Vinirnir" eru farnir að urra og
gelta — og bíta.
Það eru lengi eins og kunnugt
er búin að standa slagsmál við
húsdýrahaldara í Reykjavík —
hunda — hesta — og fjáreigend-
ur — það er eins og fólkið vilji
ekki með nokkiu móti skilja, að
húsdýr eiga ekki heima í bæjum
eða borgum — Það fólk, sem
flytzt í borgir, verður að sætta
sig við að geta ekki flutt með sér
fjallið, skóginn, lækinn, túnið, eða
húsdýrin. Borg er staður, sem
fólk hefur safnazt saman vegna at
vinnu sinnar verzlunar og við-
skipta- og lögmál borgarlífsins eru
allt önnur en núttúrunnar og það
verður aldrei meðlagi hægt að sam
ræma þetta tvennt fólki til ánægju
— og á ekki að gera það — miklu
fremur væri ástæða til að draga
möikin miklu skarpari en nú er
og það er reyndar stefnan hjá
hinum betri mönnum — enga
sveitamennsku í borgum enga
borgarmennsku í sveitum — þá
geta þessir aðilar heimsótt hverj-
ir aðra sér til ánægju í stað þess
sem nú er — að borgarinn kvel-
ur húsdýr í stofum sínum — og
sveitamaðurinn yfirgnæfir lækj-
arniðinn með bítlamúsíkk —
Komdu því nú á framfæri við
Dýraverndunarfélagið, ef það er
enn starfandi í landinu — síðast
las ég um það í ævisögu Tryggva
Gunnarssonar að skjóta umsvifa-
laust alla „hundavini" — og koma
hundunum upp í sveit — svo að
þeir geti jafnað sig —
Sálarlíf hundavinanna og yfir-
leitt allra, sem vilja ala upp
skepnur sem leikföng — er svo
geigvænleg og óhugnanleg forar-
vilpa sjálfselsku og sjálfsfullnæg-
ingar að mér finnst þetta væn-
legri aðferð til árangurs en sú
sem tíðkast hefur — Sem sagt:
— Hundurinn lifi — Hundavinur
inn deyi —
Einn sem vill banna „hunda-
vini" i Kópavogi.
Verkstjóri
Vantar verkstjóra í frystihús við Faxaflóa
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins merktar
„1969 — 166" fyrir 23. júlí.
KATHREIN-loftnetskerfi
fyrir sambýlishús. — Allar nánari upplýsingar gefnar hjá
umboðinu.
GEORG AMUNDASON & CO„
símar 81180 og 35277.
Ný sérhæð í Vesturborginni
Til sölu er 150 ferm. 1. hæð í þríbýlishúsi á einum bezta stað
í Vesturborginni. Selst i fokheldu ástandi, með uppsteyptum
bilskúr Glæsileg eign. Teikningar á skrifstofunni.
MllðBOia
FASTEIGNASALA — SKIPASALA
TÚNGATA 5, SÍMI 19977.