Morgunblaðið - 18.07.1969, Qupperneq 7
MORGUN3LAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1969
7
ÍSLANDSKAPPATAL
Gliman hefur ævinlegra veri®
talin þjóðariþrótt íslendinga, og
það þótti öldum saman hverj-
um manni til gildis og álits-
auka að kunna að glíma fagur-
lega, kunna hin margvislcgustu
brögð, boiast hvorki né niða nið
ur andstæðinginn af kröftum ein
um saman, heldur skyldi saman
fara leikni, mýkt og fjaðurmögn
un.
Og um aldir hafa hérlendis
verið háðar bæði einsíaklings-
giimur og bændaglimur, þegar
saman glimdu heiiir flokkar,
jafnvel heilir hreppar. Alloft hef
ur gliman verið i öldudal, en
Grettlsbeltið.
Hallgrimur Benedikísson. glimu
kappi, mcð vcrðlaunagrip, sem
hann fékk fyrir islenzka glimu
á Olympíuleikjunum.
jafnoft hefur hún hafizt á loft
og öll þjóðin eignað sér hlut-
dcild i henni, og með tilkomu
sjónvarpsins, hefur hún enn á
ný orðið stolt alira.
Nýlega barst okkur í hend-
ut-nar allnýstárleg bók, sem nefn
ist íslandskappatal. Það er 55
síðna bók um alla þá, sem unn-
ið hafa til Grettisbeltisins og
unnið hafa Íslandsglímuna. Þar
er einnig getið Helga Hjörvars
og Hallgríms Benediktssonar.
Höfundur að öllum vísunum er
hinn kunni glímukappi Lárus
Salómónsson, en hann er fyrir
utan störf sín. sem lögreglumað
ur um langt árabil, og sem
frækinn glímukappi, þekktur fyr
ir það að veta gott skáld og
hagyrðingur. Bókin er gefin út
í fáum eintökum, fæst hj á höf-
undi og útgefendum, þeim Erni
og örlygi, og í nokkrum stærstu
bókaverzlunum í miðborginni.
Kjartan Bergmann segir svo í
formála að þessari einstæðu bók:
„Til Íslandsgiímunnar og
Grettisbeltisins var stofnað af
Glímufélaginu Gretti á Akur-
eyri 1906, en formaður Grettis
var Friðrik Möller, póstmeistari
á Akureyri. Grettisbeltið er
forkunnarfagur gripur, silfurbú
inn. Á beltispörunum að fram-
anverðu er hringlaga skjöldur
með upphleyptri mynd, sem á
að sýna Gretti, en umhverfis
hana er grafið með höfðaletri:
„Glímuverðlaun íslands — Grett
ir.“ Sjálft beltið er skarað silf-
urskjöldum, því að eftir hverja
Íslandsglímu er bætt við einum
silfurskildi, sem á er letrað nafn
glímukappans. og hvenær keppn
in hafi farið fram.
Mótið að Grettisbeltinu gerði
Stefán Eiríksson myndskeri í
Reykjavík, en Erlendur Magn-
ússon, gullsmiður í Reykjavík
gekk að öðiu leyti frá smíði
þess.
Íslandsglíman hefir ætíð þótt
einhver sögulegasti viðburður
íþróttanna, þvi að í meðvitund
þjóðarinnar stendur glíman á
svo gömlum merg, að það hef-
ur jafnvel verið sagt, að hún
væri okkur íslendingum í blóð
borin. — Fyrsta Íslandsglíman
fór fram á Akureyri 21, ágúst
1906 og vann þá Ólafur V. Da-
víðsson Grettisbeltið og þar með
sæmdarheitið: „Glímukappi ís-
lands.“
íslandskappatal er þjóðleg
Lárns Salómonsson
höfundur bókarinnar.
bók, og freistandi er að tilfæra
svo sem eina drápu Lárusar, og
til þess að gera ekki upp á
milli Grettisbeltishafa, tek ég
þann kostinn að birta visur Lár
usar um Hallgrím Benediktsson
Hallgrímur vann aldrei íslands-
beltið, en Lárus segir svo í bók-
inni:
„Ég veit að margur, sem les
þetta íslandskappatal, mun
spyrja, hvers vegna nafn hins
fræga og mikla glímukappa, Hall
gríms Benediktssonar sé ekki
meðal þeirra, því að glímu-
frægð Hallgríms er það mikil,
að hann hefur öðlazt sæti á
fremsta bekk glímusögunnar. Ég
tel því rétt að gefa hér upplýs-
ingar og svar. íslandskappatal
er einungis mn þá, sem unnið
hafa Íslandsglímu og borið ís-
landsbeltið Hallgrímur vann
margar kapnglímur, svo sem
konungsglíman á Þingvelli
1907, og tvær skjaldarglímur Ár
manns og kappglímu milli ts-
lendinga í sambandi við Olym-
piuleikana í Stokkhólmi 1912,
en í þessum glímum var ekki
keppt um íslandsbeltið.
En vegna sigurs Hallg'ríms í
Konungsglímunni og fleiriglím
um, var hann hinn ókrýndi ís-
landskappi, og sæmir því að
nafh hans sé í þessari bók.“
Og kemur þá svo vísudrápa
Lárusar um glímukappann, Hall
grím Benediktsson. sem lengi
var forseti bæjarstjórnar Reykja
víkur. Hann er jafnframt faðir
núverandi borgarstjóra.
„Hann tók vel krók og krækju
klofbragðið líka snjallt,
beitti oft bragðaleikni,
byltu svo mörgum galt.
Hægur með fima festu
fast móti gagnsókn tók:
fljótur með brögðin beztu
byltunnar hi aða jók.
Hallgi íms skal heiður meta,
hetju og sómamanns.
Orðsstírs hans ailir geta“
Æ gleymist nafnið hans.
Þannig má í þessu íslands-
kappatali Lárusar Salómonsson,
ar finna dýrar perlur, og hafi
hann þökk fyrir bókina, ítem
útgeefndur fyrir sitt framlag.
Sjálfsagt fer mörgum sem mér
að segja: Skelfing er gaman að
vera íslendingur þá daga, sem
slíkt kver kemur út. — Fr. S.
Er kominn heim.
Séra Árelíus Nielsson.
Kvæðamannafélagið Iðunn
fer sína árlegu sumarferð
26. júlí til Hveravalla. Lagt verður
af stað kl. 8.30 að morgni frá torg-
inu við Hallgrímskirkju. Ekið um
Selfoss og Hreppa. Sýndui' verður
fæðingarstaður Fjalla-Eyvindar og
dvalarstaður hans í bernsku. öll
leiðin kynnt. Meðal leiðsögumanna
verður Helgi bóndi á Hrafnkels-
stöðum. Gist verður að Hveravöll-
um. Uppl. í símum 34240, 30112 og
42544
Hliðarstúlkur
Munið fundinn í dag kl. 6 að
Amtmannsstig 2 B.
Vinningar i skyndihappdrælti
iþróttafélagsins Þórs á Akureyri
Eftirtalin númer hluíu vinning:
1001 (Ferð til Mallorca), 108 (Flug-
ferð báðar leiðir, Akureyri Reykja
vík), 2119 (sama) 2263 (sama), 1311
(Flugferð Akureyri Reykjavík)
Vinninganna má vitja til Haralds
Helgasonar, Kaupfélagi verka-
manna, Akureyri.
Óháði söfnuðurinn
Sumarferðalag Óháða safnaðar-
ins verður síðari hluta ágústmán-
aðar. Nánar auglýst síðar um fyr-
irkomulag fararinnar.
Bræðrafélag Dómkirkjunnar
efnir til hinnar árlegu sumar-
ferðar sinnar sunnudag, 20. júlí.
Farið verður um Reykjanes og kom
ið við á ýmsum stöðum, svo
sem Reykjanesvita og Stranda-
kirkju. Leiðsögumaður verður með
í ferðinni. Farið verður frá Dóm-
kirkjunni kl. 9 árdegis. Takið með
ykkur gestL Upplýsingar hjá kirkju
verði Dómkirkjunnar i síma 12113
Kvennadeild Slysavarnafélagsins
I Rcykjavík
biður þær félagskonur, sem hafa
pantað miða í ferðalagið 21. júlí
að vitja þeirra í Skóskemmunni,
Bankastræti, miðvikudaginn 16. júlí
frá 3—6
Konur á Selt jarnarncsi
Uppl. um orlofsdvöl í Gufudal sem
stendur til 20.8. fást hjá Unni Ól-
afsdóttur, sími 14528.
Bókabíllinn
Viðkomustaðir bókabílsins
verða þessa viku sem hér seg-
ir:
Föstudagur 18. júli
Laugalækur — Hrísateigur kl.
2—3 Kjörbúð Laugaráss við
Norðurbrún kl. 4—5 Dalbraut —
Kleppsvegur kl. 5.30—7.
Húsmæður i Gullbringu, Kjósar-
sýslu og Keflavik. Orlofsdvöl í
Gufudal ölfusi fyrir konur, er ekki
hafa börn með sér, hefst 23. júlí.
Allar upplýsingar hjá orlofsnefnd-
arkonum.
Vinsamlegast sækið um dvalar-
tíma sem fyrst.
Húnvetningaielagið i Reykjavlk
gengst fyrir Hveravaliamóti hinn
19. júli. Farið verður fi'á Umferðar
miðstöðinni þann 18. kl. 9 árdegis
og komið aftur hinn 20. Farseðlar
afhentir á skrifstofu félagsins, Lauf
ásveg 25, Þingholtsstrætismegin,
þriðjudagskvöld 15, kl. 8—10, sími
12259 Nánari uppl. í s. 33268
Leiðbciningastöð húsmæðra
verður lokuð um óákveðinn
tíma vegna s’imarleyfa. Skrifstofa
Kvcnfélagasumbands íslands er op
in áfram ?lla virka daga nema
laugardaga ki. 3—5, sími 12335.
Háteigskirkja
Daglegar kvöldbænir eru í kirkj-
unni kl. 18.30. Séra Arngrímur
Jónsson.
VAUXHALL VICTOR '68 Hti'H 6 m. bffl, ekmn 8 þ. km. Mjög hentugur sem leigubílt, einnig einkabílJl. Aðal Bílasalan, Skúlagötu 40. STEYPUSTYRKTARJARN 8 og 19 mm, um 10 tonn af hvorri stærð, mjög ódýrt (á gam-la verðiou). Uppl. í sima 16325.
STAURABELTI fyrir raflínu og síma til afgr. nú þegar (öryggiseftirtit). — Stefán Pálsson, söðlasmiður, Faxatúni 9, Garðahreppi, sími 51559. TIL LEIGU 4ra herb. íbúð i háhýsi við Sólheima. Uppl. í síma 13243.
ÓDÝRT Til sölu bamavagnar, barna- kerrur, þvottav. Tökum í um- boðss., stálvaska, heimHist., ungl. reiðhj. o. fl. Sendum út á land. Vagnasalan, Skólav.- st. 46, sími 17175. BÍLL — SKULDABRÉF Simca Artene '62 sel'st fyrir 3ja til 5 ára fasteignabréf. — BÍNmn er sérstaklega góður. Aðal Bilasalan. Skúlagötu 40.
Söngkennarar
Söngkennara vantar að Barnaskóla Vestmannaeyja.
Upplýsingar gefur skólastjórinn Reynir Guðsteinsson
í síma 2335 Vestmannaeyjum.
Bamaskóli Vestmannaeyja.
MAURASÝRA
til votheysgerðar
í 35 kg plastbrúsum. Verð hagstætt.
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Sími 1 11 25.
BAKARÍ
Hef verið beðinn um að annast um sölu á
bakaríi í stóru nýju hverfi í austurhluta
borgarinnar. Bakaríið er útbúið nýjum vél-
um og taekjum. Vaxandi sölustaður.
Ragnar Tómasson. hdl.,
Austurstræti 17 3. hæð.
er gœðavara