Morgunblaðið - 12.10.1969, Page 13

Morgunblaðið - 12.10.1969, Page 13
MORG'UNBLAÐIÐ, SUUNUDAGIJR 12. OKTÖBER 1060 13 . Sigfús Haukur Andrésson, skjalavörður: Falskenningin um fyrirhuga&an þjóiarflutning til Jótlandsheiða og staða íslenzkrar sagnfræði GAMLAR MISSAGNIR LÍFSEIGAR í Reykjavíkurbréfi Morgun- blaðsins, sunnudaginin 28. sept- ember, er fjallað um hina nýju Reykjavikurbók Hleimskringlu og sitthvað í inngangi hennar gagnrýnt. Eina augljósa missögn bókar- innar langar mig til að gera hér að frekara umtalsefni og víkja út frá því örlítið að stöðu ís- lenzkrar sagnfræði, þó að þessi bók verði að vísu ekki beinlín- is talin til sagnfræðirita. Þetta er gamla sagan um það, að dömsk stjórnvöld hafi hugleitt að flytja alla Islendinga suður á Jótlandsheiðar eftir áföll móðuharðindanna, en hún hefir til skamms tíma verið talin til fullgildra sanninda í kennslu- bókum í íslandssögu, og enn er sífellt klifað á henni í ræðu og riti. Eins og vakin er athygli á i Reykjavíkurbréfi, afsannaði Þorkell Jóhannesson reýndar þessa sögu í Andvaragrein árið 1945, og sú grein hefir síðan ver ið endurprentuð í ritgerðasafni hans, „Lýðir og landshagir“, auk þess sem aðalatriði hennar eru rakin í Sögu fslendinga, VII. bindi. Ætti því öllum þeim, sem láta sig íslenzka sögu ein- hverju skipta, að vera vorkunn arlaust að vita hið rétta í þessu efni. HÖFUNDITR ÞJÓÐARFLUTN- INGSSÖGUNNAR OG TILDRÖG HENNAR Ég skal nú leitast við að gera í stuttu máli grein fyrir því, hvemig þessi þjóðarflutnings saga er til orðin. Tel ég mig hafa allsæmilega aðstöðu til þess, þar eð það hefir orðið hlut skipti mifct nú um alllangt skeið að rannsaka skjalasöfn danskra stjómardeilda og annarra aðila, sem fjölluðu um íslenzk málefni á því timabili, er hér um ræðir, auk prentaðra heimilda. Þess er þá fyrst að geta, að saga þessi byggist á örstuttum frásögnum þriggja samtiðar- manna, Hannesar Finssonar biskups, Magnúsarr Stephensens dómsstjóra og Jóns Espólíns sýslumanns. Enginn þeirra virð- ist hafa stuðzt við nein skjalleg gögn, heldur aðallega við hvik- sögur, eins og náinar verður drepið á síðar. Hannes segir í bók sinni, „Um mannfæfklkun af hallæmm á íslandi", sem kom út árið 1796 (bls. 177—78), að árið 1784 hafi það komið „fyrir alvöru í tal að sækja allt fólk úr landinu til Danmerkur, og gjöra þar af því nýbýlinga“. Hann nefnir þó ekki nánar, hvar átti að setja það niður. Magnús Stephensen tekur siðan í sama streng i bók sinni „Island í det attende arhundrede" (bls. 428 —29), og sömuleiðis Jón Espó- lín í Árbókum sínum (xl, bls. 43). Jón Sigurðsson hefir svo að öllum likindum stuðzt við bók Hannesar árið 1840, er hann skrif aði innganginn að „Fréttum frá fulltrúaþinginu í Hróarskeldu", en þar segir hann, að árin 1784— 85 hafi verið ráðgert að flytja allt fólk af landinu og fá því bústaði á „Lyngheiði á Jótlandi". Þessi saga var í rauninni allgott vopn í sjálfstæðisbaráttunni, og aðrir notuðu hana þannig á eft- ir Jóni. Vera má, að hann hafi trúað henni um þetta leyti, en á hinai bóginn er mjög vafasamt, að hann hafi gert það til langframa svo mjög sem hann helgaði sig rannsóknum skjala, er vörðuðu sögu fslands. Sá raunverulegi fótur er fyrir þjóðarflutningssögunni, að árið 1784 kom fram tillaga um það, að flakkarar og eitthvað af bjarg þrota fólki yrðu flutt af landi burt til Danmerkur. Getur Þor- kell Jóhannesson þess til, að Þannig er þá sannleikur máls- ins í aðalatriðum, og Jótlands- heiða sést hvergi getið í neinu skjali, enda hefði fæst af því fólki, seim raunverulega var um að ræða, verið sérlega heppileg- ir landnemar á þeim slóðum. Þjóð flutningssagan á því aðallega rætur sínar að rekja til hvik- sagna og ef til vill einnig ýmiss konar misskilnings, sem ekki er tóm til að velta vöngum yfir að þessu sinni. Vera má líka, að þeim góðu mönnum, sem upphaf lega færðu söguna í letur, hafi ekki þótt það verra, að bægt var að leggja hana út dönskum ráðamönnum til hnjóðs. BROTTFLUTNINGURINN ANDSTÆDUR STEFNU DÖNSKU STJÓRNARINNAR En það eru ekki einungis skjal leg gögn, sem mæla á móti því, að danskir ráðamenn hafi nokkru sinni látið sér detta í hug að tæma ísland að fólki. Flest annað mælir einnig gegn því. Við þeirra tíma tækni hefði t.d. verið algerlega óframkvæm- anlegt að flytja um 40 þúsund manns héðan á tiltölulega skömm um tíma til Danmerkur, koma þar þegar upp einhverjum húsa- kosti handa öllu þessu fólki og skapa því að öðru leyti aðstöðu til að draga þar fram lífið. Hefðu samt sem áður verið uppi ráðagerðir um slíka stórkostlega mannflutninga, hlytu að finnast einhverjar áætlanir eða drög að áætlunum um þá í skjalasöfnum dönsku stjórnardeildanna, og á þetta væri þá örugglega minnzt í ýmsum öðrum skjölum. Loks skal á það bent, að með þvi að tæma landið af fólki, hefðu Dan ir i rauninni gefið það upp á bátinn handa hverjum, sem hafa vildi. En það var svo sannar- lega ekki stefna dönsku stjórnar inmiar að sleppa þannig neinu af löndum Danaveldis, enda líka í algertri andstöðu við ríkj- andi skoðanir þeirra tíma. Gott dæmi um hina raunverulegu stefnu í þessum málum er líka nærtækt. Vorið 1783 myndaðist dálitil eyja af eldgosi suðvestur af Reykjanesi. Danska stjórnin gerði óðar ráðstafanir til að lýsa hana eign konungs, en reyndar hvarf eyja þessi brátt aftur. V'STNDALEG SAGNFRÆÐI Á ETFITT UPPDRÁTTAR Á fSLANDI Öll rök hníga þannig í eina og sömu átt, nefnilega að dæma þjóðarflutniingssöguna dauða og ómerka. En það verður að telj- ast sagnvísindum okkar til held ur lítils sóma, að hálf önnur öld skyldi líða frá því slík fjar- stæða birtist fyrst á pnenti þar til íslenzkur sagnfræðingur tók sér loks fyrir hendur að afsanna- hana. Hlýtur þetta að vekja ó- þægilegar grunsemdir um það, að margt fleira vafasamt hafi slæðzt inn í íslenzk sagnfræði- rit, sem fuH þörf væri á að færa til betri vegar. Sannleikurinn er líka sá, að þar er víðar pott- ur brotinn, þótt ýmislegt hafi að visu verið vel gert. Missagnir, sem á annað borð komast á prent, verða býsna líf- seigar þaðan í frá, eins og þjóð- arflutningssagam ber ljósastan vott um, þar eð henni er emn óspart hampað, þótt aldarfjórð- ungur sé liðinn síðan hún var afsönnuð. Ég tel mjög miður far- ið, að hún skuli enn skjóta upp kollinum í inngangi fyrmefndra? Reykjavíkurbókar, sem mun að öllum líkindum verða mjög mik- ið lesin, bæði hér og erlendis. Það skiptir nefnilegá miklu, að farið sé rétt með sögulegar stað- reyndir í slíkum bókum. Hitt er svo auðvitað rétt, sem Páll Lín- dal segir í grein sinni, „Reykja- víkurbók og Reykjavíkurbréf", í Morgunblaðinu 4. þ.m., að ekki Framhald á bls. 8 Sigfús Hauknr Andrésson. H-ans Levetzow, sem varð stift- amtmaður á íslandi ári síðar hafi verið upphafsmaður þessar- ar tillögu, þar eð hann var eini maðurinn, sem mælti ákveðið með henni af þeim, sem rentu- kammerið bar hana undir. Eng- ar skjallegar sannanir eru þó fyrir því, en hins vegar bera skjöl rentukammersins það með sér, að Jón Sveimsson, sýslumað ur í Suður-Múlasýslu, lagði til í bréfi til kammersins 10. júní 1784, að vinnufærir flakkar- ar yrðu fluttir brott úr sýslu hans, annaðlhvort til annarna héraða landsins eða til Dan- merkur. Virðist hann því hafa verið upphafsmaður brottflutn- ingstillögunnar. VIÐBRÖGÐ RENTUKAMMERS OG LANDSNEFNDAR Viðbrögð rentukammersins voru í stuttu máli þau, að 15. janúar 1785 leitaði það álits framkvæmdarstjómar hinnar konunglegu oinokunarverzlunar og flotamálaráðuneytisins um til kostnað við að flytja 500 manns frá íslandi til Danmerkur. Sama dag óskaði kammerið ennfremur tillagna Levetzows, sem þá var enn i Kaupmannahöfn, um und- irbúning þessara flutninga, á fs- landi, ef af þeim yrði, en tók um leið fram, að ekki kæmi til mála að flytja aðra úr landi en fólk, sem væri þar til byrði, svo sem flakkara, gamalmenni, las- burða fólk og munaðarlaus böm. Það væri of langt mál og er raunar þarflaust í þessu sam- bandi að rekja hér svör fyrr- niefnxíra aðdilla. NætgHegt er að geta þess, að málið var einnig lagt fyrir landsnefndina síðari, sem var skipuð um þessar mundir til að athuga hag þjóðarinnar og gera víðtækar umbótatillögur. Komst nefndin brátt að þeirri nið urstöðu, að miklu ódýrara væri að leggja þurfandi fólki til ein- hverja hjálp frá Danmörku heldur en flytja það þangað til framfærslu, þar eð framfærslu- kostnaður væri langtum hærri þar en á íslandi. Vinnufærum flökkurum myndi og brátt fækka í landinu, er skánaði í ári, einkum ef aðhald yfirvalda yrði aukið. Þar með voru hug- leiðingamar um brottflutning fólks úr landinu lagðar á hill- una. // "vN 1 leiniilistrvööinjj* sem svarar kröfum tímans l © Skiimólor fyrir heimilistryggingor hofa verið endurskoðaðir og bætt inn nokkrum nýjum otriðum og tryggingum, jofnfromt hofa tryggingoupphæðir fyrir óbyrgðar- og örorkutryggingor verið hækkoðor. Storfsmenn félagsins eru óvollt reiðubúnir til þess oð veita yður oðstoð í tryggingamólum yðor. Aðeins eitt símtol og þér eruð tryggður. ALMENNAR TRYGGINGAR" PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SÍMI 17700

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.