Morgunblaðið - 12.10.1969, Page 17

Morgunblaðið - 12.10.1969, Page 17
MORGU3SPBLAÐIÐ, SUNN-UDAGUR 12. OKTÓBER 196® 17 Skúli Guðmunds- son látinn Skúli Guðmundsson var skarp greindur maður, óvtenju var- færinn að eðli, vandvirkur og vildi kynna sér til hlítar þau málefni er hann fjallaði um. Hann var vel hagmæltur, hnitt- inin í orðum og nokkuð hæðinn í framisetningu. Af þessum sölkium var SkúM drjúgur málafylgju- maður og andstæðingum sínum oft þungur í skauti. A seinni ár- uim vair SkúM tvímælalaust hinn íhaldssamasti allra þingmanna. En það viðhorf mótaðist af aug- ljósri sannfæringu, sem menn hlutu að virða, þótt þeir væru hornum ósammála Skúla Guð- mundssonar verður því saknað úr þingsölum, ekki síður af and- stæðingum en meðhaldsmönnum. ísland réttarríki? Hlutlausum mönnum blandast ekki hugur um, að íslendingar hafa sjaldan eða aldrei unnið Frá þingsetningu. Aldursforseti í forsetastóli. — Ljósm. Öl.K.M. t REYKJAVÍKURBRÉF meiri stjórnmálasigur en með samningnum við Breta á árinu 1961 um lausn landhelgisdeilunn ar. Með þessum samningi féllust Bretar á, að mun stænri haf- svæði kæmust undir íslenzka fiskveiðilögsögu, en af íslands hálfu hafði verið gerð knafa til á árinu 1958. Þá var einnig tryggt að hugsanlegar deilur um nýja útfærslu fiskveiðilögsög- unnar skyldu ekki útkljáður með valdi hins máttarmeiri heldur af alþjóðadómstólnum í Haag. Margar ástæður voru til þess, að Bretar létu svo undan síga sem í þessari samningsgerð lýsti sér. Þegar æðstu valdamenn þeirra fengust til að sinna mál- inu, öðluðust þeir á því allt ann an og íslendingum miklu hag- feldari skilning en áður. Þar hafði samtal Macmillans og Ól- afs Thors á Keflavikurflugvelli úrslitaáhrif svo og viðræður Guðmundar í. Guðmundssonar við brezka utanríkisráðherrann. Að athuguðu máli vildu Bretar ekki eiga í útistöðum við vin- Samlega smáþjóð, sem einungis var að verja lífshagsmuni sína. Ólafur Jóhannesson, núverandj formaður Framsóknarflokksins, lýsti því glögglega á Alþingi haustið 1960, hvílíkur veikleiki það væri fyrir málstað Islend- inga, ef þeir vildu ekki unia al- þjóðadómi. Eftir samningsgerð- ina 1961 hvarf Ólafur raunar frá sinni fyrri skýru afstöðu, en það firáhvarf breytti engu um efni málsins. Spumingin var eft ir sem áður sú, hvort ísland ætti að koma fram sem réttarríki í samræmi við fyrri skuldbinding ar, eða að treysta á mátt sinn og megim gegn einu af stórveld- um heirns. Tekur út yfir Mótmæli Framsóknar gegn samningnum 1961 mátti skýra og e.t.v. afsaka með gremju yfir, að öðrum haifði tekizt að leysa þann vanda, sem forystumönn- um Framsóknar svo hrapalega mistókst að gera sumarið 1958. En út yfir tekur þegar Tíminn nú, t.d. hinn 24. sept s.l., talar um, að núverandi ríkisstjóm hafi „afhent Bretum taumhald á sjálfsákvörðunarrétti okkar í landhelgismálinu" og segir reynsluna hafa dæmt samnings- gerðina 1961 „mesta ósigur, sem þjóðin hefur beðið í málinu". Með sUkum skrifum reyna Fram sóknarmenn að setja íslendinga á bekk með ofbeldisþjóðum, sem vilja að engu bafa liög og rétt. Þvílíkt athæfi er þeim mun for- dæmanlegra sem engin þjóð hef ur yfir að ráða minna afU til að knýja fram óskir síniair. Hér hverfa Framsóknarmenn og frá Laugardagur 11. okt. fyrri skoðunum sínum á því, hvernig ísilendiingair ættu að afla sér fiskveiðilöigsögu yfir öllu landgrunninu. f samhljóða ákvöirðun Alþingis frá 1959, var einmitt lýst yfir því, að þetta skyldi gert með öflun viðurkenn ingar annarra á rétti íslands. Þeirri aðferð hefur síðan verið fylgt, og þó að hægt sækist, eins og fyrir fram var vitað, þá miðar samt í rétta átt. Réttar- staða landgrunnsins er nú til athugunar á alþjóðavettvangi og hafa íslendingar ekkert tæki- færi látið ónotað til að koma sjónarmiðum sínum að. Auðvit- að með þeim hætti, sem bezt hentar hverju sinni til að þoka viðuirkennimgu á sjónarmiðuim okkar áleiðis. Miðar áleiðis Emil Jónsson, utanríkisráð herra, hefur nú i haust fyrst á þingi Sameinuðu þjóðanna og síðar í Evirópuráðinu flutt mál okkar af skörungsskap og hóf- semi. Anangur þeirrar aðferðar lýsti sér glögglega í ummælum brezka þingmannsins, Mr. John sons í Evrópuráðinu. Mr. John- son er atkvæðamikill maður í þeim málum í heimalandi sínu. Hann er forystumaður sjómanna í Hull og þingmaður frá þeim bæ, en þar hefur hingað til gætt einna mestrar andstöðu gegn málstað okkar. Þess vegna voru séirstaklega athyglisverð upp- hafsorð ræðu hans: „Sem for- maður undirnefndarinnar, sem fjallar um fiskveiðar, vil ég þakfca ráðherranum frá íslandi fyrir hans vel grunduðu (thougthful) ræðu“. Síðar í ræðu sinni sagði Mr. Johnson: „Ráðherrann nefndi fæðumagn- ið í úthafinu fyrir ströndum okkar. Ég tilheyri þjóð, sem á stóran úthafsflota. Við eigum 150 skip, sem eru 80 metralöng. Ráðherranm vill áskilja íslenzk um fiskimönnum veiðirétt í haf- inu umhverfis land hans. Ég áfell ist hann ekki. 9ó prs. af tekjum þjóðarinnar koma frá fiskveið- um. Við verðum að fallast á þetta (accept this) vegna fs- lands og margra annarira þjóða, sem eru minni en við sjálifir — minni en Bretlamd, minni en Vestur Þýzkaland og Sovétsam- veldið, sem sinna öðrum störfum og eiga aðrar auðlindir." Þá lýsti Mr. Johnson að hann vildi sækja sjávaraflann, sem stöðugt yrði meiri þörf á til suður Atl- antshafs og Indlandshafs. Af öðr um orðum Mr. Johnsons kom fram, að hanin hafði mjög í huga hættumar af því að sækja hing- að norður á bóginn, og taldi brýna nauðsyn á að búa betur að brezkum sjómönnum en hing- að til hefur verið gert. í huga hans velkjast auðsjáanlega margar ólíkar ástæður. En Ijóst er, að ef málið hefði verið tekið upp af fslendinga hálfu með hót- unum um ólögmæta valdbeit- inigu og yfirlýsingu um að al- þjóðalög yrðu að engu höfð, þá hefðu undiirtektir þessa brezka ráðamanns orðið allt aðrar. Nú fer því fjarri að ummæli, jafnvel slíks áhrifamanns eins, leysi mál- ið. Eftir er löng og tvísýn við- ureign. En enginn efi er á, að rétt er stefnt og rétt hefur hing- að til verið að farið. Farsæll stjórnarferill Tage Erlander er um þessar mundir að láta af störfum eftir 23 ára látlausa stjórnarforystu í og roskinn stjórnmálamann, Svíþjóð. Þegar Erlander tók við forystu flokks síns og þar með forsætisráðherraembættinu, var hann lítt þekktur en valinn í harðri samkeppni við reyndan Gustav Möller, er getið hafði sér gott orð fyrir forystu um enduirbætur á félagsmálalöggjöf Svía. Erlander var' þá að vísu orðinn ráðherra en tiltölulega nýlega og gengdi enn embætti án stjórnardeildar. Hann hafði orð á sér fyrir að hafa verið einskonar „eilífðarstúdent“ á æskuárum. Jafnvel löngu síðar var honum fundið til foráttu, að á honum væri of mikill stúden'ta blær, sem m.a. hefði lýst sér í því, að hann einhvern tíma í sam kvæmi hefði stigið upp á stól og sungið þar hástöfum. Þá varð hann og fyrir því, að af honum voru birtar myndir stuttklædd um, og var í sumar einhver þeirra tekin upp að nýju af því tilefni, að eitthverf norskt blað hafði birt mynd af Borten, for- sætisráðherra Noregs, þar sem hann virtist vera á nærbuxun- um. Kotungshátturinn, sem lýsir sér í því að hafa slíkar „ávirð- ingar“ •— ef ávirðingar skyldi kalla — á lofti, reyndist þó hvorugum, Erlander né Borten til tjóns. Báðir njóta viðurkenn- ingar sem ágætir stjómendur, Borten raunar umdeildari enn þar sem hann stendur í miðri baráttu, en Erlander nú viður- kennduir af öllum. ESitt helzta andstöðublað Erlanders gat þess fyrir skömmu, að ekki væri um það að villast, að hin síðustu 23 ár hefði verið einn mesti fram- faratíimii í allri Svíþjóðarsögu, og væri það mjög að verðleikum að kenna það tímabil við Erlander. „Kúnni ekki slátrað“ Þetta viðurkenmdi blaðið, þó að það væri ósammála Erland- er að meginstefnu. Þá var einn- ig vakin athygM á því, að þótt annað kynni að virðast eftir á, þá færi því fjarri, að Erlander og flokkur hans hafi verið á sam felldri sigurgöngu allt þetta tímabil. Flokkurinn hafi þvert á móti lengst af verið í minni- hluta, bæði á þingi og á meðal kjósenda. Erlander hafi oft orð- ið að semja við andstæðinga sína til að halda velli, og kom- ið hafi fyrir að flokkur hans hafi goldið afbroð í kosningum. Svo var t.d. í sveitarstjórnar- kosningum haustið 1966. Þá hafði Erlander haft í huga að draga sig í hlé frá forystunni en hætti við það vegna þess, að hann vildi ekki láta líta svo út sem hanin væri að yfirgefa sökkvandi skip. Raunin varð og sú, að tveimur árum síðar vann flokkur hans einn sinn frægasta sigur, og hefur nú hreinan meirihluta á þingi. Þannig er ei lífur öldugangur í stjórnmálum lýðfrjálsra landa. Eðlilegt er, að menn um þessar mundir velti því fyrir sér hvað það sé, sem mestu hefur ráðið um að stefna Erland- ers 'hefur reynzt honum sjálfum, flokki hans og þjóðinni allri svo heilladrjúg sem raun ber vitni. Et.v. hefur Halldór Laxness lýst þessu einna bezt í Skáldatíma sínum, þegar hann segir: „í löndum eina og til dæmis Svíþjóð hefur „kapitalismi" um langt skeið verið arðnýttur af sósíalistastjórninni til eflingar almennri velgengni í landinu: kúnni er ekki slátrað í soðið held ur haldið mátulega feitri svo hún mjólki.“ Frábærlega vel gefinn Nú reynir á hvort eftirmaður Erlanders hefur þennan sama skilning. Allir viðurkenna, að Olof Palme sé frábærlega vel gefinn maður. En hann er sagð- ur harður í horn að taka og óvæginn. Þó að hann væri kos- inn einum rómi sem formaður flokksins, þá er vitað, að styrk sinn sækir hann einkum til hi'nn-a róttækari vimsitri afla, sem krefjast mun meiri ríkisafskipta og þjóðnýtingairbrölts en Ér- lander hefur viljað fallast á. Sumir segja, að róttækni Palm- es slkýrist að ndkkru af því, að hanin hafi viljað veiða kjósend- ur frá kommúnistum og öðrum á hinum yzta vinstri kanti. Frá- leitt sé hins vegar að hann láti það fólk ráða stefnunni, enda sé hann mun hógværari hina síð- ari mánuði, efltir að formanns- kjör hans var tryggt. Þá er kom ið á daginn, að hann vill nú síð- ur en svo láta telja sig sérstak- an fjandmann Bandaríkjanna, eins og ýmsir hafa himgað til haldið. Þvert á móti er nú kappkostað að sýna fram á, að Palme þekki Bandaríkiin flest- um Svíum betur, og skoðanir hans séu, þegar að er gáð, mjög í samræmi við það, sem hinir róttækari Bandaríkjamenn sjálf ir haldi fnarn. Enda hafi Palme ekki siður mótmælt valdbeitingu Sovétmanna í Austur-Evrópu en Víetnamferli Bandaríkjamanna. Og þarf raunar býsna mikla blindu á staðreyndir til að jafna saman innrás Sovétmanna í Tékkóslóvakíu og aðstoð Banda ríkjamanna við þá, sem verjast vilja innrás Norður-Vietnama 1 Suður-Vietnam, hvernig sem menn meta þau mál að öðru leyti. Reynslan ein fær úr þvi skorið, hvað í huga Palmes raum verulega býr, en víst er að hing- að til hafa andstæðingar hans í Svíþjóð sagt, að Verkamanna- flokkurinn gæti vart kosið ann- an, sem líklegri væri til að afla andsflæðingunum fylgis en hann. Hvað sem um það er, þá er Olof Palme einn þeirra, sem menn skiptast mjög í flokka um, eru ýmist eindregnir með honum eða eindregnir á móti. Litlu verður Vöggur feginn Páll Líndal, borgarlögmaður, skrifaði fyrir skemmstu snagg- aralega grein hér í blaðið til andmæla ummælum Reykjavík- urbréfls um ritsmíð Björns Th. Björnssonar í bókinni „Reykja- vík“. Skrif Páls hefur vakið mikinn fögnuð í herbúðum Tím- ans, og birtir Þ.Þ. drjúgan hluta þess í blaði sínu, hinn 7. okt. og klikkir út með þessum orðum: „í framhaldi af þessu, rekur Páll Líndal svo aðfinnslur bréf- ritarans og sýnir hversu fáránleg flestar þeirra eru. Þiað er langt síðan greinarhöfluindur heflur fleng ið jafn rækilega og maldiega hiirt ingu og bréfritari Mbl. hjá Páli Líndal." Greinilegt er að Páll Líndal hefur unnið góðverk með því að gleðja Þ.Þ., sem ekki virðist njóta nvikillar ánægju um þess- ar mundir. Verra er að grein Páls virðist spretta af sárindum þess mæta manns yfir, að bent skuli hafa verið á veilur í bók, sem hann hafði tekið að sér að lesa yfir. En hroðvirkni og rang færslur verða ekki afsakaðar né réttlættar með því að gegn mað- ur hafi látið þegjandi fram hjá sér fara. Ef athugasemdir Páls Líndals eru bornar saman við aðfinninigar Reykjavíkurbréfs sézt, að þær aðfinningar standa óhaggaðar eftir sem áður. Um sumt af því, sem að var fundið, var berum orðum framtekið og áherzla á það lögð, að þar væri um álitamál að ræða. Það, sem að var fundið, var, að óvissum getgátum var slegið föstum sem óhagganlegum staðreyndum. Slíkt er ekki heimilt, jafnvel þó að í stuttri yfirlitsgrein sé gert. Sagnfræðingar verða að halda sér við staðreyndir og greina á milli þeirra og getgátna. Þar um breytir enigu, þó að einhverjir aðriir séu frumhöfundar þessara getgátna, en s>á, er síðar telur þær upp sem öruggar staðreynd ir. Því miður er margt fleira vaflasamt við ritsmíð Björns Th. Björnssonar en í Reykjavíkur- bréfi var talið. Verra er, að sannanlega rangt er farið með sumar þýðingarmiklar stað- reyndir. Enn verra þó, að frá- sögnin öll mótast af röngum söguskilningi, annarsvegar úr- eltum marxisma og hinsvegair missögnum af skaðsemi Dana- stjórnar á fslandi. Þetta eru óneit anlega lýti á fallegri og skemmti legri bók, svo mikil lýti, að um þau má ekki þegja. En enginn skyldi halda það einbera tilvilj- un, að það fær Þ. Þ. Tímans sér- stakrar gleði, að því skuli hald- ið fram af mætum manni, að því- lík bókarlýti skipti emgu máM. Þarna er um það að ræða, hvort þola eigi í sagnfræði samsikonar subbusikap um meðferð stað- reynda, sem um of er tíðkaður í íslenákri blaðamennsíku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.