Morgunblaðið - 21.10.1969, Side 1
32 SÍÐUR
231. tbl. 56. árg.
MtlÐJTTDAGIJR 21. OKTÓBER 1969
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ný sókn til eflingar framtaki og atvinnulífi
þjóöarinnar á áttunda áratugnum
vinnulíf er ekki aðeins for-
sienda fullrar vinnu fyrir alla,
heildur og grundvöllur al-
mennra efnahagslegra fram-
Framhald á bls. 25
Hagnýting auðlinda lands-
ins í slcjóli vísinda og tækni
Stjórnmálayfirlýsing 18. Landsfundar Sjálfstœðisflokksins
ÁTJÁNDI Dandsfundur Sjálístæðisflokksins leggur áherzlu á eftirfarandi grundvallar-
atriði Sj álfstæðisistefnunnar:
1. að varðveita og tryggja sjálfstæði og frelsi Islands og standa vörð um tungu, bók-
tnenntir og annan menningararf Islendinga.
2. að treysta lýðræði og þingræði.
3. að vinna að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einst&klingsfrelsis og
athafnafrelsis, með hagsmuni alira stétta fyrir augum.
4. að beita nútíma þekkingu og tækni, svo að auðlindir landsins verði hagnýttar í þágu
þjóðarinnar.
5. að skapa öllum landsmönnum félagslegt öryggi.
Átjándi Landsfundur Sjálfstæðiisflokksins minnir á þau tímamót í framfarasókn Is-
lendinga, er urðu við valdatöku núverandi ríkisstjórnar undir forustu flokksins. Störf
stjórnarinnar hafa átt meginþátt í þeim alhliða framförum, sem orðið hafa um land
al’lt. Landsfundurinn fagnar sérsfaklega forustu flokksins í baráttu fyrir stóriðju á Is-
landi og eflingu atvinnuveganna almennt. Þar með hafa undirstöður þjóðfélaigsins ver-
ið styrktar, svo að kleift reyndist að stand ast hin einstæðu efnahagsáföll á síðustu ár
um. Við erfiðleikunum, sem af þeim stöfuðu, hefur verið brugðizt af raunsæi, enda virðist
erfiðasti hjallinn nú að baki í þeirri viðureign. Enn verður þó að hafa fulla gát á, svo
að ekki glatist það, sem áunnizt hefur.
Landsfundurinn telur, að
vegna áfalla undanfarinna
ára og þróunar aiþjóðlegra
viðskiptahátta, hafi skapazt
ný viðhorf í framfarasókn
þjóðarinnar. Því leggur
Landsfundurinn höfuðá-
herzlu á það, að fylgt verði
eftir þeim ráðstöfunum, sem
Heimsókn til Kreml:
NfJA STÉTT KYSSIR
VÖNDINN
dollara lán í „hörðum“ gjaldeyri,
sem Alexander Dubcek fyrrum
flokksleiðtogi, reyndi árangurs-
laust að fá.
Framhald á bls. 8
þegar hafa verið gerðar til
styrktar þjóðarbúskapnum,
með endurmati á öllum að-
stæðum, er miði að nýrri
skipulegri sókn til stórefling-
ar framtaki og atvinnulífi
þjóðarinnar.
Landsfundurinn lítur á
það sem höfuðverkefni Sjálf-
stæðiisflokksins á næstu miss
erum, að beita sér af alefli
fyrir slíkri sókn á vettvangi
löggjafar, opinberrar stjórn-
sýslu, fjármála, viðskipta-
mála, menntamála, byggða-
þróunar og atvinnumála. Þá
ber flokknum að stuðla að
því, að aðilar að vinnumark-
aðnum móti með fulltingi
ríkisvaldsins lamgtímastefnu í
meginþáttum kjara- og
verðlagsmála. Blómlegt at-
300
Biafra-
ferðir
Kaupm'ainmaihöfn, 20. okt.
— NTB.
Á AÐFARANÓTT sunnudagsi
Ienti flutningaflugvél frá i
Nordchurcliaid, hjálparsam- J
tökum kirkjunnar á NorSur-\
löndum, lilaðin matvælum á í
Uli-flugvelli í Biafra. Var það
fjögurþúsundasti flugvéla-
farmurinn, sem fluttur hefur
Framhald á bls. 14 1
Formaður Sjálfstæðisflokksins, dr. Bjarni Benediktsson, for*
sætisráðherra, og varaformaður flokksins, Jóhann Hafstein,
dómsmálaráðherra. Vigfús Sigurgeirsson tók myndina ,eftir að
þeir höfðu verið endurkjörnir ti) forystu Sjálfstæðisflokksins
af Landsfundi á sunnudaginn.
Husak, Svoboda hœlt á hvert reipi í
Moskvu, ekki minnzt á Cernik
Þakkarskjal fyrir innrásina vœntan-
lega undirritað
Moskva 20. okt. — NTB — AP.
Þrír helztu Ieiðtogar Tékkó-
slóvakíu, þeir Gustav Husak, að
alritari kommúnistaflokks lands-
ins, Oldrich Cemik, forsætisráð
herra og Ludvik Svoboda, for-
seti, komu til Moskvu í dag. Hófu
þeir viðræður við ráðamenn í
Kreml þegar eftir komu sína. A
Moskvuflugvelli vora allir
helztu ráðamenn Sovétríkjanna
mættir til að fagna sendinefnd-
inni frá Tékkóslóvakíu.
A0 því ©r Tais8-Æréittia©toifain‘
sagði, áttu þremenningarnir í
dag viðræður við Leonid Brezh
nev, aðalritara Kommúnista
flokks Sovétríkjanna, Nikolai
POdgorny, forseta, og Aleksei
Kosygin, forsætisráðherra. Mun
tékkneska sendinefndin, und-
ir forystu Husaks, verða í níu
daga í Sovétríkjunum. — Tass
sagði, að viðræðurnar í dag
hefðu farið fram af alúð og vin-
semd.
Tékkóslóvakíska sendinefnd-
in mun eiga margar mikilsverð-
ar viðræður um stjórnmál og
efnahagsmál við sovézka leið-
toga, auk þess sem hún mun
ferðast víða um Sovétríkin.
Austux-evrópskar heimildir
segja að heimsóknin muni ná há
punkti sínum með undirritun
skjals þar sem leiðtogar Tékkó-
slóvakíu leggi blessun sína yfir
innrás Vairsjárbandalagsríkj-
anna undir forystu Sovétríkj-
anna í fyrra. Fyrir það viðvik
munu Sovétmenn lofa að auka
efnahagsaðstoð við Tékkó-
slóvakíu, segja sömu heimildir.
Margir þeir, sem vel þekkja til
mála, efast þó um að Tékkósló-
vakía muni fá það 500 milljón
Bjarni Benediktsson endurkjör-
inn formaður Sjálfstæðisfiokksins
Jóhann Hafstein endurkjörinn vara-
formaður — Fjölgað í miðstjórn flokksins
og kjörreglum hennar breytt
KOSNINGAR fóru fram á
Landsfundi Sjálfstæðisflokks
ins eftir hádegi á sunnudag-
inn. Fyrst var gengið til for-
mannskjörs. Dr. Bjarni Bene
diktsson, forsætisráðherra var
endurkjörinn formaður Sjálf-
stæðisflokksins. Hann hlaut
463 atkvæði. Geir Hallgríms-
son, horgarstjóri, hlaut 14
atkv. Jóhann Hafstein, dóms
málaráðherra, hlaut 5 atkv.
og Magnús Jónsson, fjármála
ráðherra, hlaut 4 atkv., þá
hlutu fjórir menn eitt at-
kvæði hver. Auðir seðlar
voru 39 og ógildir 3.
Við kjör varaformanns Sjálf-
stæðisflökksins hlaut Jóhann
Hafstein, dómsmálaráðherra,
flest atkvæði, 314. Geir Hall-
grímsson hlaut 130 atkv., Magn-
ús Jónsson hlau-t 33 atkv. og
Ingólfur Jónsson 17 atkv.
Landsfundurinn ákvað að
breyta fjölda miðstjórnarmanna
Sjálfs-tæðisflökksins. Áður kaus
Landsfundur 7 menn í máðstjórn,
samkvæmt hinum nýju reglum
kýs Landsfuindurinn 8 menn,
sem ekki eru úr hópi þingmanna,
en þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins kýs nú 5 menn úr sín-
um hópi í miðstjórnina. Sjálf-
kjörnir í máðstjórn eru nú sem
fyrr formaður og varaformaður
fllokksinis, formiaðuir landssam-
bands Sjálfstæðiskvenna, for-
maður Verkalýðsráðs Sjálfstæð-
isflokksins og formaður Sam-
bands ungra Sjálfstæðismanna.
Framliald á bls. 2
e
«
*■