Morgunblaðið - 21.10.1969, Side 20

Morgunblaðið - 21.10.1969, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 196» - FJÁRLAGARÆÐA Framhald af bls. 19 eð þróun Háskólans hefirr ekld orðið í samræmi við þá áætlun. Hefur raunar áætluninni nú þeg ar verið breytt varðandi lækna deiidina, en þar hefur ríkis- stjórnin fallizt á nýja og að því er virðist mjög vönd<uglega unna áætlun læknadeildar um endurskipulagningu læknisfræði námsins. Mun sú endurskipu- lagning að vísu ekki á næsta árin hafa í för með sér nema tæplega einnar millj. kr. kostnaðarauka, en mun smám saman á sex árum valda kostnaðarauka er nemur rúmum 5 millj. kr. Þá hef- ur þurft einnig að efla hina nýju náttúrufræðideild vegna auikinnar aðsóknar að þeirri deild og í athugun hefur verið að taka nú þegar í vetur upp kennslu í þjóðfélagsfræðum og stjórnsýslu við núverandi deild ir Háskólans. Það er ljóst, að á næstu árum verðúr stórlega að auka bæði húsrými Háskólans og kennslukrafta og taka upp nýjar kennslugreinar þar eð gert er ráð fyrir, að á næstu fimm áruim tvöfaldist tala há- skólastúdenta og verði 1975 um 2.500, en nái hámarki árið 1980 og verði þá orðin 4.500. Gefur auga leið, hversu stórfelldra ráð stafana og fjárútláta er þörf til þess að mæta þessum vanda. Aft ur á móti hefir sú nemendaaukn- ingarbylgja, sem í nánustu fram tíð gengur yfir menntaskóla og háskóla náð hámarki nú á skyldunámsaldrinum og nem- endafjölgun vegna aukinnar námsþátttöku árganga sem næst náð hámarki eiranig. Haustið 1971 fjölgar 7—14 ára bömum aðeins um 300, hauistið 1972 um 100 og síðan fækkar börnum á þessum aldri frá og með 1975 og má reikna með um það bil 600 barna fækkun árlega til 1980. Bygging barnaskóla ætti því ekki að vera vandámál næsta áratuginn. Ámagarður verður tekinn til notkunar við Háskól- ann í haust og bætist þá við verulegt nýtt húsrými. Endanleg ar ákvarðanir hafa að öðm leyti ekki verið teknar um byggingar Hásfkólans næstu árin og verður væntamlega sett á laggimar ráð gefandi nefnd um timasetningu og röðun þessara framíkvæmda. Er ljóst, að Happdrætti Háskól- ans megnar ekki lengur að standa undir kostnaði við bygg- ingar háskólans og því verða að koma til bein ríkisframlög. Fjár veitingar í þessu skyni hafa þó ekki verið teknar í fjárlaga- frumvarp fyrir árið 1970, enda lágu tillögur háskólanefndar ekki fyrir, þegar géngið var firá fjárlagafrumvarpinu, en hins vegar er gert ráð fyrir því í drögum þeim að framkvæmdaá- ætlun ársins 1970, sem fylgja fjárlagafrumvarpinu, að aflað verði 30 millj. kr. á árinu til bygginga í þágu Háskólans. Raftœknideild við Tœkniskólann Þá hefur ríkisstjórnin sam- þykkt að stofna nýja deild við Tækniskólann, raftæknideild, og vafalaust má gera ráð fyrir, bæði aukningu og endurskipu- lagningu á ýmsum greinum tæknináms. Framlög tii iðnskóla og héraðsskóla hækka nokkuð og framlag til Lánasjóðs ís- lenzkra námsmanna hækkar um 11,7 millj. kr. og er þá miðað við námsmannfjölgun og kostn- aðraauka samkvæmt verðlags- hækkunum, auk áframhalds á þeirri aukningu lána, sem byrj- að var á á yfirstandandi ári. Skólakostnaðarlögin Til framkvæmda kom á þessu ári sú stöðlun skólahúsnæðis, sem nýju skólakostnaðarlögin ■gera ráð fyrir og jákvæðast verður að telja í þeim lögum. Kom í ljós við athugun, að skóla byggingar víðs vegar um land hafa reynzt mjög mismunandi dýrar. Hefur verið reynt að meta þau mál raunhæft og hygg ég, að eðlileg kostnaðartala á cubic-metra hafi verið ákveð- in, því að sannanlega hefur reynzt auðið að byggja gott skólahúsnæði innan þeirra kostnaðarmarka, en hins vegar verða sum sveitarfélög annað hvort að greiða haerri kostnað- arhluta sjálf eða þá að leggja sig fram um að byggja ódýrar skólahúsnæði. Og að því marki var einmitt stefnt með nefndu lagaákvæði. Aftur á móti hafa fleiri vandkvæði komið í ljós í sambandi við reksturskostnaðar ákvæði skólakostnaðarlaganna. Reynt hefur verið að fylgja þeirri meginreglu, að þótt ýms- um kostmaðarliðum sé nú skipt með öðrum hætti milli ríkis og sveitarfélaga en áður, þá verði heildarkostnaðarhlutdeild hvors aðila svipuð og samkvæmt hin- um eldri lögum. Hafa þó sveitar- félögin saimkvaamt nýju löguin- um tvímælalaust fengið ýmis hlunnindi og meðal annars er það þeim mikils virði að fá nú skólakostnaðarhlutdeild ríkis- sjóðs greidda mun hraðar en áð- ur var. Löggœzla efld á Keflavíkurflugvelli Utanríkisráðuneytið og kostn- aður við utanríkisþjónustu hækkar samtals um 8,9 millj. nettó, og er þar um eðlilegar hækkanir að ræða. Fjölgað hef- ur um 2 starfsmenn í ráðuneyt- inu vegna samkomulags fjár málaráðuneytisins og utanríkis- ráðuneytisins um starfsmanna- fjölda sendiráðanna. Þá hef- ur einnig reynzt óumflýjanlegt að fallast á að bæta við 3 lÖg- regluþjónum á Keflavíkurflug- velli í stað þess að þar hefur oft verið rætt um möguleika til spamaðar. Með þessu er ekki sagt, að sá möguleiki sé ekki til staðar með allvíðtækri endur- skipulagningu löggæzlunnar á fluigveilinum og nærliggjandi byggðarlögum, en það mál er nú einmitt til athugunar hjá undir- nefnd fjárveitinganefndar og hagsýslustofnuninni, en þessi fjölgun löggæzlumanna nú í sumar var óumflýjanleg vegna óhæfilegrar ásóknar íslendinga að vissum skemmtistöðum á flug vallarsvæðinu, sem fullkunnugt er af blaðaskrifum. Engin til- laga er gerð í fjárlagafrumvarp inu firemur en í fjárlögum yfir- standandi árs um endurskipu- lagningu sendiráða eða fækkun þeirra. Er orsökin sú sama og ég tilgreindi við framlagningu síðustu fjárlaga, að sérstök nefnd, skipuð fulltrúum allra þingflokka hefur haft það mál til athugunar, og hefir nefnd þessi nú endanlega lokið störf- um og skilað frumvarpi um ut- anríkisþjónustuna, sem lagt hef- ir verið fyrir Alþingi. Þar er að vísu ekki að finna ákveðnar til- lögur um tölu eða staðsetningu sendiráða, en ég vona að ein- hver vísbending komi fram um það efni undir meðferð málsins. 30 milljóna hœkkun á útflutningsbótum landbúnaðarins Fullnægt er á þesisu ári fyrir- mælum laga um framlög til fram leiðnisjóðs landbúnaðarins, 10 millj. kr., og framlag vegina sér- stakrar aðstoðar við ræktun, 5 millj. kr, Falla því þessi framlög n,ið*uir úr fj'áirlaigafnuimvarpiiniu nú. Hins vegar er um að ræða veru legar hækkanir á öðrum fram- lögum til landbúnaðarins og veg ur þar mest 30 millj. kr. hækkiun é útflutrringsuppbótum, miðað við núgildandi verðlag landbúnaðar afurða, og jafnframt hefur ekki þótt varlegt annað en gera ráð fyrir 8 millj. kr. hækkuin á jarð- ræktartr.amlögium, miðað við þær geysimiklu jarðræfctarfram- kvæmdir, sem urðu á næst íiðnu ári og leitt hafa til mikilla um- framgreiðslna á fjárveitingum í þessu skyni í fjárlögum yfirstand andi árs. Þá er gert ráð fyrir, að framlengd verðd lagaókvæði um 7,5 millj. kr. skerðingu framlaga til nýbýla, þar eð aðstaða sýnist ekki vena breytt á þvi sviði. Þess má geta, sem er mjög mikil- vægt fyTÍr bændur, að ríkissjóð- ur hefur tekið á sig að greiða. lán, sem tekið var til bráða- birgða í Seðlabankanum vegna gengistaps Áburðarsölu níkisins, sem nam um 40 millj. kr. í sam- bandi við jarðræktarframlögin vil ég endurtaka það, sem ég gerði í fjárlagaræðunni s.l, haust að ég tel óumflýjaMtegt ammað «n taka til emdurskoðúnar með hlið sjón af bneyttum aðstæðum og nýrri tækni ýmsa jarðræktar- styrki. Hefur lamdbúnaðarráð- •herra fallizt á að taka þau mál til heildarendurskoðunar. Enn eitt harðindaár hefur nú herjað á bændastétt landsins, þótt nú sé það í öðrum lands- hlutum en undanfarin tvö ár. Engimn veit enn til hlítar, hversu stórt vandamál hér er um að ræða, og því miður er það vafa- laust ekki leysanlegt nema að nokkru ieyti, enda þótt nægilegt fjármagn væri til staðar. í fjár- fjárlagafrv. eru af eðlilegúm ástæðum eikki gerðar neinar til- lögur um úrbætur á þessum vanda, þvi að í byrjun ssptember var eiklfci vitað, hvað sá vandi yrði miikill, en unnið hefúr verið að könnum vandamálsins af Harð ærisnefnd, sam landbúnaðarráð herra skipaði, og m-un málið koma til kasta Alþingis í ein- hverju formi eftir að ríkisistjórn in hefur athugað niðurstöðúr nefndarinnar. Mjög aukin tramlög til hafrannsókna Á sviði sjávarútvegsmála er um miklar hækkanir að ræða vegna hafrannsókna. Fyrst og fremst 28 millj. kr. aukin útgjöld vegna framlags til byggingar- sjóðs hafrannsóknaskips og jafn framt hæfckar framlag til Haf- rannsóknastofnunarinnar um tæpar 10 millj. kr., fyrst og fremst vegna reikstrar þessa nýja skips, sem vætanlegt er til lands ins á miðju ári. Er þá jafnframt gert ráð fyrir því, að úr nótfcun verði tekið það skip, sem til þessa hefur unnið að hafrann- sóknum. Hið nýja skip mun verða með þeim fuJJkommusbu á því sviði. Ekki er lagt til að taika upp að nýju neitt framlag til Fisikv'eiðasjóðs, þó að þess væri vitaniega nauðsyn vegna mikill- ar fjárþarfar sjóðisins, en án nýrr ar tekjuöflumar fyrir ríkissjóð er þess ekki kostur. Fiskveiðasjóði úfveg- að aukið tjármagn Það skal þó skýrt tekið fram, að gerðar verða ráðistafanir til þess að afla Fiskveiðasjóði á næsta ári nægilegs fjármagns til þess að standa straum af skuld- bindingum sínum og t'il þess að greiða með viðunandi hætti fyrir skipasmíðum, en efling skipasmíð anna innanlainds er nú eitt af hin.um mikilvæigusto viðfangsefn um til þess að tryiggja atvinnu- öryggi í landinu. f þvi samlbandi verður þó að hafa í huga, að ekki er nægilegt að smíða skip, heldur verður að vera einihver eftirspurn eftir nýjum skipum og nýir kaupendur að vera til stað- ar, þótt vel komi til greina að veita skipasmíðastöðlvunuim að- stoð til skipasmiða, þótt kaup- enidur séu ekki fyrir hendi strax við upphaf smíða hvers skips, eins og nú hetfur verið ákveðið. 10 millj. kr. framlag til afla- tryggingasjóðs Gert er ráð fyrir, að óbreytt regla gildi um framlag til afla- tryggiinigiasjóð3 á mætsita árd og gildir í ár og mun frumvarp verða flutt á Alþingi um nauð- synlega breytingu á lögum sjóðe auðið án þess að stefna afkomu ins í þessu efni. Er þetta talið sjóðsins í hættu, því að vitan- lega verður hamn að geta staðið við hinar almennu skuldbinding ar sínar. Hins vegar gegnir sér- stöku máli með hin nýju útjgjöld, sem á sjóðinn lögðust snemma á þessu ári vegna samrúnga um hlutdeild sjóðsins í greiðslu fæð iskostnaðar skipverja á fiskiskip um. Var við þá samningsgerð gert ráð fyrir sérstakri fjáröflun til sjóðsins til að standa straum af þessu.m útgjöldum og talið, að 10—15 millj. kr. myndi á skorta til þess að ná saman endum. Er lagt til í fjárlaga'fruimvarpiniú nú að veitt verði sérstakt aukafram lag, 10 millj. kr. til Aflatrygg- ingasjóðs í þessu skyni, en hins veigar sýna áætlanir, að horfur eru á, að halli sjóðsins vegna þessara nýju útgjalda muni verða allmiklu hærri og verður þá að gera sérstakar ráðstafanir til þess. að afla þess fjár, svo sem í upplhafi var gert ráð fyrir, þeg- ar samningarnir voru gerðir. Hœkkað framlag til sveitarafveitna Gengisbreytingarnar leiddu til svo mikillar hækkunar á skuld- um . Rafm agrus'veitna ríkisins, að ekstrarhalli þess fyrirtækis hefði sjáanlega orðið með öllu óvið- ráðanlegur, ef ekki hefðú komið til sérstakar ráðstafanir. í þessu skyni var verðjöfnunargjald á rafmagni hækkað um helming og verður þó að gera margvíslegar fleiri ráðstafanir til þess að tryggja afkomu þessa fyrirtækis. Af þessum sökum er allur rekstr airgruradvöllur Rafmagnsveitna ríkisins nú í heildarendurskoð- un og hefir rafmagnsveitunum verið skipuð sérstök stjórnar- nefnd. Til þess að styrkja hag raf ma gnsve i t n an n a væri mikil ■nauðsyn að geta dregið verulega úr rekstri diselorkustöðva, en þær breytingar kosta mikið fé og því miður hafa rafmagnsveit- urnar ekkert fé aflögu úr eigisi rekstri til framkvæmda, heldur verður að fjármagn.a þær fram- kvæmdir að öllu leyti með nýj- um lántökum. í þeiim drögum að framkvæmdaáætlun fyrir árið 1970, sem fyligj.a fjárlagafrum- varpinu er gert ráð fyrir að afla rafmagnsveitum rikisins 35 m. kr. nýrra lána ú næsta ári, að viðbættum tollalánum. Væri án efa þörf meira fjármagns, en hér sem á öðrum sviðum verður að sníða sér stakk eftir vexti og leiðir til lánsfjáröfluinar eru nú sem fynr mjög taikimiankiaðar. Fnaimiliag í fjárl. t l sveitanaifvæð- imngaTÍnnar hefur síðustu árin verið óbreytt, sem hefur leitt til minnkandi framkvæmda. Nauð- synlegt er að stefna að því að ljúka sem fyrst lagningu þeirra veitna, þar sem meðalfjarlægð milli býla er innan við 1,50 km. Er því lagt til að hækka fram- lagið til sveitarraívæðingar um 5 nrillj. kr. Þá léttir og á Orku- sjóði, að lagt er til að taka inn sérstaka fjárveitingu, 6,3 millj. kr., til greiðslu á framfcvæmda- Lánum vegna sjóðsins. Fangelsismál Framlög til löggæzlu hækka um 11,2 millj. kr. og til embætta sýslum&nna og bæjarfógeta um samtals 7,3 millj. kr. og er hér fyrst og frernst um launaíhækk- anir að ræða. Hafa þá þessir lið ir verið laskkaðir um 5 millj. kr. í trausti þess, að frá næstu áramótam að telja geti komið til framkvæmda þær breytingar til sparnaðar í lögreglumálum, sem unnið hefuT verið að og undir- nefnd fjárveitinganefndar hefur mælt með, að yrðu framkvæmd- ar. Rekstorskostn.aður landhelg- isgæzlunnar hækkar ekki, og er því um raunverulegan sparnað að ræða í refcstri þeirrar stofn- unar. Nefnd hefur fyrir nokkru skilað áliti um endurskipulagn iingu fangelsismála. Endanleg á- kvörðun hefur ekki verið tekim um fjárveitingar til framkvæmd ar þeim tillöguim, eins og þær liggja fyrir, en þó er gert ráð fyrir nýjum fjárveitingum til end urbóta í fangelsismálum. í fjár- lögum yfirstandandi árs var veitt fé til þess að hægt væri að flytja fangaklefa lögreglunner í lög- reglustöðina nýju úr Síðumúla, og nú er lagt til að veita 2,7 millj. kr. til rekstrar almenns fangelsis í Síðumúla. Þá er einn- ig lagt til, að hækka framlag til Litla-Hrauns um eina millj. kr. með það í huga, að hægt sé að hefjast handa utn stækkun hælis ins. Fyrirlestur um fœðingurhjúlp FUNDUR verður haldinn á veg- um Kvenréttindafélags Íslands n.k. miðvikudag kl. 8.30 að Hall- veigarstöðum, niðri. Þar mun Guðmundur Jóhannesson fæðing ar- og kvensjúkdómalækmr við Land pítalann flytja erindi um nýjungar og fraimfarir í fæðing- arhjálp. Á þessari mynd eru þrír synir Péturs Thorsteinssonar, sendiherra, þeir Pétur, Björgólfur og Eiríkur að sýna Luther I. Repogle, hinum nýja sendiheirra Randaríkjanna á folandi, 30 ára gamalt hnattlíkan í sendiráðinu í Washington. En þetta hattlíkan var framleitt fyrir 30 árnm af fyrirtæki Repogles, sem nú framleiðir um 600 þúsund linattlíkön á ári. llnattlíkanið er enn í notkun á heimilinu, en móðir drengjanna, frú Oddný Thorsteinsson, eignaðist hnattlíkanið, þegar / hún var teipa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.