Alþýðublaðið - 21.06.1930, Side 2

Alþýðublaðið - 21.06.1930, Side 2
í I " AEÞ.ÝÐUBIiAÐIÐ e Oli finna logð niðnr hátíðisdagana Landsstjómin hefir samkvæmt heimild þeirri, sem gefin er í 5. gr. laga nr. 15 19. maí 1930, sett eftirfarandi ákvæði, er gildi í Hafnarfirði og Reykajvík: Öll almenn útivinna skal falla niður dagana 26., 27. og 28. júní. ISömu daga skulu allar sölu- búðir, skrifstofur, afgreiðslustof- «r, þar með taldir bankar, vinnu- I stofur og verksmiðjur, vera lok- aðar. Þó mega mjólkurbúðir, I brauðbúðir og kjötbúðir vera opnar þessa daga, ef samkomu- lag næst um þaÖ við starfsfólk þeirra. Sama gildir um prent- smiðjur, sem annast prentun dagblaða. Sunnudaginn 29. júní mega sölubúðir vera opnar kl. 4—7 sið- degis. Vesfnr-íslendinpr komn . í gœrkveldi. í gærkveldi var von á Mont- ealm“, ameríska farþegaskipinu, sem Vestur-Islendingarnir, sem enn voru ókomnir, ætluðu að koma með. 1 tilefni af þessu fóru varðskipið „Óðinn“ móti skipinu með margt manna og hitti það rétt hjá Garðsskaga. Heilsuðust Islendingar með húrrahrópum, en siðan lögðust skipin hlið við hlið, og voru þar fagnaðarfundir hjá þjóðbræðrum og systrum austan. og vestan hafsins. Með stuttum ræðum voru Vestur-íslendingar boðnir velkomnir, en þeir svör- uðu og létu ánægju sína í ljós yfir því, að vera komnir hingað. Flestir þeirra munu aldrei hafa séð ísland fyr. Margt er í þessum hópi af eldra fólki, en færra af hinu yngra. Ferðin hingað gekk vel og voru um 370 Vestur-ls- lendingar með í förinni. Þessi' hópur er á vegum Þjóðræknisfé- lagsins. — Ráðgert er, að skip komi hingað að sækja þá og þeir fari um 4. ágúst. Um dagims og veginn. Zeppelin flugskipiö þýzka, kemur ekki, þar eð ekki fengust nógu margir farþegar til fararinnar. Mun mörgum þetta vonbrigði mikil. Veðrið. Lægðin, sem var vestur af ÍReykjanesi í gær, þokast nú hægt norður eftir Grænlandshafi og mun valda áframhaldandi suð- austanátt hér á landi næstu daga. Veðurútlit í dag og nótt: Sunnan og suðaustan kaldi og skúrir um alt land. Bíóaugiýsingar eru á 4. síðu í blaðinu. Björn Ólafsson biður þess getið, að hann svari engum fyrirspumum um Þingvallaakstur né neinu þar að lútandi í verzlunarskrifstofu sinni né heima, hvorki símleiðis eða á annan hátt. Menn verða að snúa sér með alt slíkt beint til öku- skrif^tofunnar. Prestastefnan var sett í gær. Sagði einn á- hugasamur prestur utan af landi, að sér hefði brugðið í brún, þeg- ar hann hefði komið hér í kirkj- una og séð þar ekki nema örfátt manna úr Reykjavik við setningu stefnunnar, eftir allan kristin- dómsáhuga íhaldsins, sem svo innilega hefir Iýst sér í Morgun- blaðinu. Þótti honum það gegna mestu furðu, að koma utan af landi, þar sem enginn hældi sér af kristindómi, en kirkjan var alt af full, hingað til Reykjavíkur þar sem stærsti stjórnmálaflokkurinn hælir sér af honum seint og snemma, en kirkjan er tóm, eða svo til. Ungir listamenn opna sérstába málverkasýninga Nokkrir listamenn, þar á meðal langflestir hinir yngstu, hafa stofnað með sér Félag óháðra listamanna og efna til sýningar nú um hátíðina. Verður hún opn- uð næstu daga í fimleikahúsi 1- þróttafélags Reykjavíkur við Landakot. Meðal þessara lista- manna eru Jón Engilberts, Gunn- laugur Ó. Scheving, Freymóður Jóhannesson, Ásgeir Bjarnþórs- son, Eyjólfur Eyfells, Kristján Magnússon, Friðrik Guðjónsson og Snorri Arinbjamar. Hafa þeir ,um 100 listaverk á sýningunnL Flest er þar olíumynda, nokkuð af teikningum, en fátt vatnslita- mynda. — Margir þeirra, sem að framan geta, hafa sýnt hér verk sín áður, en þó hefir fátt sést. elftir suma þeirra ti'l dæmis Gunn- laug ó. Scheving, sem margir telja einna efnilegastan og frum- legastan í hópi hinna yngri manna. i Menn mega búast við þvf, að fá að sjá eitthvað nýtt, eitthvað ungt og hressandi á þessari sýn- ingu. — Vonandi marka þessir ungu menn og tímamót í sögu íslenzkrar málaralistar á þessu ári og með þessaii sýningu. Fáir munu telja eftir sér sporin upp í fimleikahúsið. Hvað er að frétta? Messur. Landakotskirkja: Há- messa kl. 9 f. h. og k'l. 6 e, h. guðsþjónusta m. predikun. Spít- B. Cohen, 15 Trinity Honse Lane, Hnll, Engftand. Til oiisna möron viðsMftavina á Islandi: Mér þykir leitt, að geta ekki verið viðstaddur Alþingishátíðina, en ég hefi íengið ráð á húsnæði í næsta húsi við mitt, og á sama tíma og pjóð- hátíð yðar stendiir yfir, er ég að láta gera breytingar á pví. í næsta skifti er pér heimsækið mig í Hull, munuð pér sjá að húsnæði mitt er miklu stærra og vöru- birgðirnar miklu meiri en áður, en verðið jafnvel enn pá lægra en pað hefir verið. Ég óska öllum viðskiftavinum mínum og íslenzku pjóðinni hamingju og góðs gengis á hinnimikluhátið. Yðar einlægur B. Goheas. Kvennaflokkur Ármanns. Þær stúlkur, sem æft hafa fimleika Jijá Ármanni í vor, eru beðnar að mæta á æfingu í K.-R.-húsinu kl. 10 á mánudagskvöldið. Knattspyrnumót Islands hefst á Iþróttavellinum annað kvöld. Þátttakendur eru félögin: Fram, Valur, K. R., Víkingur og Vest- mannaeyingar. Verður óefað mannmargt á vellimun meðan mótið stendur yfir, enda má bú- ást við vasklegum leik. Gudmundur Kristjánsson söngv- ári efnir til söngskemtunar í. Gamla Bíó á mánudaginn kem- ur. Guðmundur hefir dvalið vest- an hafs og sungið með German Grand Opera Company í öllum stærstu borgum Ameríku og fengið lofsamleg ummæli blað- anna þar. Verður þetta að líkind- um eina skiftið, sem Guðm. syng- úr hér í Rvík að þessu sinni. Ungfrú Rigmor Hanson danz- mœr gefur bæjarbúum og gestum þeirra kost á að sjá íslenzka danzlist á þriðjudaginn kemur kl. 6 í Gamla Bíó. Mun skemtun þessi verða mörgum tilhlökkunar- efni, því danzsýningar ungfrúar- innar hafa jafnan þótt með beztu þ'kemtunum hér í bæ. S. ■ Áheit á Strandarkirkju 10 kr. frá N. N. Sigurjón tilkynnir: Beztu gest- ir Islands á þessu ári eru Vestur- íslendingar. íþróttamenn fagna þeim á Álafossi á morgun kl. 3 ‘alakirkjan í Hafnarfirði: Hámessa ;kl. 9 f. h. og kl. 6 e„ h. guðsþjón- usta m. predikun. Fríkirkjan á morgun kl. 5: Minningarguðs- þjónusta, séra Árni Sigurðsson. Sjómannastofan: Samkoma á stofunni annað kvöld kl. 6. Ríkisbankinn þýzki hefir lækk- að forvexti niður í 4o/0. Miklir hitar eru nú á Norður- löndum. Hér kvartar enginn und- an þeim. Drengir óskast til að selja að- göngumiða að knattspymumóti Islands. Komi á íþróttavöllinn milli kl. 10 og 11 á morgun. Adgöngumidar að móttökuhátið fyrir Vestur-íslendinga í Nýja Bíó kl. 4 í dag fást afhentir í Elliheimilinu fyrir þá, sem komu jmeð Antonia, en í Landsspítalan- um fyrir þá, sem komu með Montcalmi til kl. 3 í dag, en eftir það í Nýja Bíó. Gellin og Borgström halda hljómleika í Gamla Bió kl. 3 á morgun. Vegna mikillar aðsóknar verða pantaðir en ósótt- ir aðgöngumiðar seldir í dag milli 5 og 7. Prentvilla er í blaðjinu í gær í augl. frá Sambandihu, er hún leiðrétt í sömu augl. í blaðinu í dag. Hópsýningarmenn. Muriið að sækja fimleikabúningana í kvöld kl. 10 í Iþróttahúsi K. R. — Gleymið ekki Þingvallaförinni í fyrra málið kl. 8.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.