Alþýðublaðið - 21.06.1930, Síða 6

Alþýðublaðið - 21.06.1930, Síða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Ný hús HátiHaleiksýnlng. Bygginganefnd bæjarins hefir gefið leyfi til þessara bygginga: Bergsveini Guðmundssyni leyft að byggja tvílyft íbúðarhús úr steinsteypu á lóðinni nr. 31 við Sólvallagötu. Stærð 90 ferm. Jóhanni Grímssyni og Ólafi tvílyft íbúðarhús úr steinsteypu á lóðinni nr. 17 við Seljaveg. Stærð 81 ferm. Benedikt Guðmundssyni leyft að byggja einlyft íbúðarhús úr steinsteypu á lóðinni nr. 40 við Freyjugötu. Stærð 93 ferm. Bimi Rögnvaldssyni leyft að byggja einlyft íbúðarhús úr stein- steypu á lóðinni nr. 78 við Berg- staðastræti. Stærð 90 fernn. Óla V. Metúsalemssyni og Vil- hjálmi Bjamasypi leyft að byggja tvílyft íbúðarhús úr steinsteypu á lóðinni nr. 29 við Seljavég. Stærð 94 ferm. Ólafi Ásgeirssynr leyft að hyggja tvilyft íbúðarhús úr stein- steypu á lóðinni nr. 4 við Sjafn- argötu. Stærð 99:5/i fernx. Sambandi íslenzkra samvinnu- félaga leyft að byggja prilyft geymsluhús úr steinsteypú á lóð, sem sambandið fær á leigu við Grófjna og Geirsgötu. Stærð 484,4 ferm. — Enn fremur er pví leyft að byggja bifreiðaskýli á lóð sambandsins við Sölfhóls- götu. Stærð 15 ferm. Enn fremur hefir nefndin Leyft Gísla Þorbjarnarsyni að breyta gluggum á húsinu nr. 36 við Bergstaðastræti; Ágústi Ólafssyni að gera breytingar á kjallara hússins nr. 10 við Ásvallagötu; Boga A. J. Þórðarsyni að setja kvist á húsið nr. 11 við Njáls- götu og Stefáni Runólfssyni að breyta gluggurn á húsinu nr. 16 við þingholtsstræti. ¥estar-!slendingariiir sem komu hingað s. 1. laugar- dagskvöld, vom 181 að tölu. Búa flestir þeirra hjá vinum og kunn- ingjum hér í bænum, en 40—50 pru í elliheimilinu. Hafa þeir far- rð í ýmsar ferðir hér um Suður- landsundirlendi. Á miðvd. fóm þeir austur að Sogi, í Borgarnes og upp á Kjalarnes, í Þrastarlund og víðar. Á fimtud. fóru þeir austur að Hliðarenda, í Fljótshlíð, enn frem- ur fóru þeir hér um nágrennið, til Hafnarfjarðar, að Bessastöðum og víðar. 1 dag ætla þeir austur að Gullfossi og að Geysi, ef hægt verður. Skipið, sem þeir komu með, Antonía, fer aftur héðan 5. júlí. Þessir Vestur- íslendingar em á vegum sjálf- boðaliðsnefndarinnar, en hinir, sem em á vegum Þjóðræknisfé-, lagsins, komu hingað í gær- kveldi. Haraldur Björnsson. Anna Borg. Ágúst Kvaran. Jóhann Sigurjónsson: Fjalía~Eyvindiir. Friðfinnur Guðjónsson. í fyrradag voru 50 ár liðin xrá fæðingu Jóhanns Sigurjónssonar, ihöfundur leikritsins, sem náð hefir mestri frægð allra íslenzkra leikrita. Leikritið er samiö upp úr sögunni af Fjalla-Eyvindi, út- laganum, sauðaþjófnum ógæfu- sama, sem allir þekkja. 1 höndum Jóhanns Sigurjónssonar hefir sag- an orðið að ódauðlegu listaverki, sem standa mun eins og tröll- aukinn minnisvarði yfir höfundin- um, gáfaða listamanninum, fræg- asta leikritaskáldi íslands. Fjalla- Eyvindur hefir verið leikinn í Kaupmannahöfn, Lundúnum, Miinchen, Hamborg, Riga, Hel- singfors, Winnipeg, Reykjavik og miklu víðar. Leikritið er upp- haflega samið á dönsku, en sam- kvæmí því, er Árni Pálsson bóka- vörður segir, hefir skáldið samið íeikinn jöfnum höndum á dönsku. og íslenzku. Fyrsta sýning leik- iritsins var í Kaupmannahöfn. Það hefir verið kvikmyndað og sýnt um allan heim. ' Fjalla-Eyvindur var sýndur hér í fyrsta skifti um jólaleytið 1912, en síðan hefir hann verið leikinn hér oft. Það var vel til fallið áð velja Fjalla-Eyvind til hátíðasýningar nú. Hefir Haraldur Björnsson undirbúið sýninguna frá því í fyrrahaust og æft í vetur. Hefir hann ekkert til sparað til að gera sýninguna glæsilega ,enda varð árangurinn eftir þvi. Að þessu sinni leikur ungfrú Anna Borg hlutverk Höllu, Ágúst: Kvaran Eyvind, Haraldur Björns- son Ames, Þorsteinn Ö. Stephen- sen hreppstjórann, Friðfinnur Jón bónda, Eyjólfur Jónsson Arn- grím holdsveika o. s. frv. Ungfrú Anna Borg leysir hlut- verk sitt af hendi af fram úr skar- andi snild, — og verður að efast um, að hér hafi nokkurn tíma fyr sést jafn góður leikur. Frá því fyrsta ,að hún kemur inn í baðstofuna sína með fasi hinnar stórráðu húsfreyju, og til hins síðasta, er hún fer út í stórhríð- ina, er leikur hennar fullkominn og sannur í öllum atriðum, jafnt smáum sem stómm. — Hún' lifir æfi Höllu. Hún skilur hana og' þekkir hana. Ágúst Kvaran leggur sig allan fram til að sýna Eyvind sem sannastan, en við og viÖ virðást honum fatast, sérstaklega í 1. og jafnvel lika í 2. þætti. 1 tveimur hinum síðustu er leikur hans góður; sérstaklega er hann með ágætum í 4. þætti. — List Önnu Borg er svo glæsileg, að mót- leikari hennar verður að gæta sín til fulls til þess að smæð hans verði ekki áberpndi við hlið hennar. Ef til vill verður efnid — sálin sjálf — í leikritinu og til þess að draga úr áhrifunum frá Eyvindi, er hann stendur við hlið Höllu í tveim fyrri þáttun- um. Jafnari er leikur Haralds Björnssonar og Höllu í 3. þætti uppi við jöklana. Þar er full- komið samræmi. Haraldur nær þá fullum tökum á Arnesi. Ef nokk- uð væri hægt að setja út á Har- ald, þá er það málrómurinn, og þessar smáendurtekningar í upp- hafi setninga, sem honum eru svo tíðar. Oft gera þær efni og leik áhrifameiri — en þannig varð það ekki í fyrra kvöld. Þorsteinn Ö. Stephensen leikur hreppstjórann ágætlega. Virðist Þorsteinn vera glæsilegt leikara- -efni. Friðfinnur er samur og jafn. Hann átti 40 ára leikaraafmæli í gær — og má í þvi sambandi færa honum hugheilar þakkir fyr- ir alt, sem hann hefir lagt fram til eflingar leiklistarinnar hér. Eyjólfur Jónsson var góður L hlutverki Arngríms holdsveika.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.