Morgunblaðið - 08.08.1970, Blaðsíða 5
MORGUNKLAÐÍÐ, LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1970
O
Islandssýning
í Stokkhólmi
Rætt við forstjóra Statens
historiske museum,
dr. Olov Isaksson
Dr. Olov Isaksson.
Á næstunni er fyrirhugað
að setja upp Islandssýningu á
Statens historiska museum í
Stokkhólmi. Mun sýningunni
að öllu forfallalausu komið
upp haustið 1971 eða, ef ófyrir
sjáanlegar tafir verða, haust-
ið 1972.
Forstjóri Statens histor-
iska museum, dr. Olov Isaks
son, hefur verið hér á landi
að undanförnu, m.a.til að viða
að sér efni til þessarar sýn-
ingar. Blaðamaður Mbl. hitti
dr. Isaksson snöggvast að
máli og innti hann eftir til-
högun sýningar þessarar og
aðdraganda málsins.
— Eg hef lengi haft hug á
sýningu af þessari gerð, byrj
aði Olov Isaksson. Fyrir fjór-
um árum var ég hér á íslandi
og ferðaðist þá nokkuð um
með dr. Kristjáni Eldjárn.
Bar þá m.a. á góma, að Is-
landssýningu yrði komið á
fót í Svíþjóð. Sannleikurinn
er sá, að Sviar eru næsta
ófróðir um Island svo að ís-
landskynningar er mikil þörf
þar í landi.
1 megindráttum verður fyr-
irhuguð sýning á þá lund, að
reynt verður að draga upp
mynd af íslandi fyrr og nú.
Verður með ýmsu móti varpað
ljósi á viðburði nútíðar og
fortíðar. 1 því skyni verður
m.a. safnað saman miklu af
myndum, listmunir ýmsir
FRYSTIKISTUR
IGINS-djúpfrystirinn gerir yður kleif hagkvæmari matar-
Innkaup og sparar yður snúninga vegna matarkaupa.
Tvöfaldur þéttilisti I loki — hlifðarkantar á hornum —
Ijós I loki — færanlegur á hjólum — Ijósaborð með
rofa fyrir djúpfrystingu, kuldastilli og 3 leiðbeiningar-
Ijósum, ,,gult djúpfrysting" — „grænt venjuleg frysting"
— „rautt of lág frysting", —
Stærðir Staðgr.verð Afborg.verð
145 Itr. kr. 16 138,— kr. 17.555 — \ út + 5 mán.
190 Itr. kr. 19.938>— kr 21.530— i út + 5 mán.
285 Itr. kr. 24900,— kr. 26.934,— \ út + 6 mán.
385 Itr. kr. 29.427— kr 31800— } út + 6 mán.
r \
“vy
RAFIÐJAN
VESTURCÖtU 11 REYKJAVlK SlM119294
verða fengnir að láni, einnig
munir frá ýmsum tímum, sem
hafa menningarsögulegt gildi.
Ef við rekjum okkur um-
hverfis landið og byrjum á
Vesturlandi, þá er ætlunin að
vekja athygli á Reykholti, bæ
Snorra Sturlusonar, en marg
ir Svíar kannast við hann og
verk hans. Munum við ef til
viU reyna að draga upp
mynd af Snorralaug á sýning
unni. Á Norðurlandi hefur at
hygli okkar einkum beinztað
Glaumbæ, kirkjunum aðVíði
mýri og í Gröf, dómkirkjunni
á Hólum, prestsetrunum i
Laufási og á Grenjaðarstað og
bænum á Þverá. Á Austur-
landi beinist athyglin einkum
að bænum á Burstarfelli, en
á Suðurlandi að Stöng í Þjórs
uniBODsmEnn fvrir
IGNIS
HEimillSTIEKI
VESTURLAND -
AKRANES
Hr. Jón Frímannsson,
rafvirkjameistari.
ÓLAFSVÍK
Hr. Tómas Guðmundsson,
rafvirkjameistari.
STYKKISHÓLMUR
Hr. Haraldur Gíslason,
rafvirkjameistari.
BÚÐARDALUR
Hr. Einar Stefánsson,
rafvirkjameistari.
KROKSFJARÐARNES
Kaupfélag Króksfjarðar.
PATREKSFJÖRÐUR
Hr. Valgeir Jónsson,
rafvirkjameistari.
DÝRAFJÖRÐUR
Hr. Gunnar Guðmundsson
ÖNUNDARFJÖRÐUR
Hr. Arnór Árnason.
ISAFIRÐI
Raftækjaverzlunin Póllinn h/f.
umBODsniEnn fvrir
IGNIS
HEimilliIIEKI
NORÐURLAND
BLÖNDUÓSI
Verzlunin Fróði h/f.
AKUREYRI
Verzlunin Raftækni
Ingvi R. Jóhannsson.
HÚSAVIK
Raftækjaverzlun Grims & Arna.
RAUFARHÖFN
Kaupfélag N.-Þingeyinga.
AUSTURLAND.
VOPNAFJÖRÐUR
Aiexander Árnason,
rafvirkjameistari.
EGILSSTAÐIR
Verzlunarfélag Austurlands.
ESKIFJÖRÐUR
Verzlun Elísar Guðnasonar.
HÖFN, HORNAFIRÐI
Verzlunin Kristall h/f.
umBonsmEnn fvrir
IGNIS
SUÐURLAND
VESTMANNAEYJAR
Verzlun Haraldar Eiríkssonar.
RANGARVALLASÝSLA
Kaupfélag Rangæinga.
ARNESSÝSLA
Kaupfélag Árnesinga.
KEFLAVÍK
Verzl’unin Stapafell h/f.
AÐALUMBOÐ:
RAFIÐJAN — VESTURGOTU 11
SlMI: 19294
RAFTORG V/AUSTURVÖLL
SIMI: 26660
árdal, Keldnabænum, Búrfells
virkjun og nútlma landbúnaði.
Þá gerum við ráð fyrir að
kynna atvinnuvegi og lands-
hætti. Verður m.a. sýnt hvern
ig fuglaveiði er stunduð í
Vestmannaeyjum, fíll, lundi
o.fl. og einnig verða dregnar
upp myndir frá Mývatni og
fleiri markverðum stöðum á
Islandi. Þá verður að sjálf-
sögðu mikið efni frá hinum
ýmsu sviðum fiskveiða. Land
fræðilegum og jarðfræðilegum
aðstæðum verða einnig gerð
ítarleg skil á þessari væntan
legu sýningu.
Við Sören Hallgren ljós-
myndari erum nú hingað
komnir til að undirbúa þessa
sýningu. Munum við vinna
okkar störf í nánu sambandi
við þjóðminjavörð, Þór Magn-
ússon, og þjóðminjasafnið.
Alls gerum við ráð fyrir að
verða hér sex vikur að þessu
sinni, en söfnunarstarfi okk-
ar hér lýkur að öllu forfalla
lausu næsta sumar. Ég vil
geta þess hér, að sendiherra
Svía á íslandi, Gunnar Gran
berg, hefur verið okkur eink-
ar hjálplegur við allan und-
irbúning hér á landi.
ísland er eitt af þeim fáu
löndum á jarðarkringlunni þar
sem enn er til staðar nægi-
legt landrými, heilnæmt loft
og hreint vatn, heldur Olov
Isaksson áfram. Og hér er svo
undra skammt til fortíðarinn-
ar. Mér fannst það merkilegt,
þegar ég heyrði að dr. Sig-
urður Þórarinsson væri alinn
upp í baðstofu. Og mér finnst
Islendingar sameina vel minn
ingu hins liðna og nýjungarn-
ar. Arkitektúrinn hér í
Reykjavík finnst mér t.d. w
mjög skemmtilegur og fjöl-
breytilegur. Og hér er nóg
landrými og margir grænir
blettir.
Ég hef komið til Krisuvík-
ur. Það var stórkostlegt. Þá
hef ég einnig flogið yfir Þjórs
árdal, til að sjá afstöðuna úr
lofti.
Við munum reyna að kom-
ast til helztu staða hér á Is-
landi meðan á þessari dvöl
stendur, en héðan höldum við
17. ágúst nk.
Skrifstofustúlka
Norðurverk hf. óskar að ráða skrifstofu-
stúlku til starfa við Laxárvirkjun.
Upplýsingar í síma 96-21822.
Norðurverk hf.
MYNDAR
Hafið þér nokkurn tíma Velt fyrir yður, hvers vegna
myndlampar sjónvarpstækja hafa bogadregin horn. -
Philips gerði það og framleiðir nú nýja gerð af mynd-
lampa, sem sýnir stærri hluta af útsendri mynd, vegna
þess að nú eru hornin orðin rétt. - Athugið myndina
hér að ofan, hún skýrir sig sjálf. Lftið inn og skoðið
tækin, þá sést munurinn enn bettir.
NÝIR
AFBORGUNARSKILMÁLAR:
ÚTBORGUN KR. 5.000,OO
EFTIRSTÖÐVAR á 12 MÁN
HEIMILISTÆKI SF.
HAFNARSTRÆTI 3, SIMI 20455
SÆTÚNI 8, SlMI 24000
PHILIPS
sjónvarpstœkin sýna nú
STÆRRI HLUTA
ÚTSENDRAR