Morgunblaðið - 03.11.1970, Síða 24

Morgunblaðið - 03.11.1970, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, URIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1970 ét báéum áttum EFTIR FEITH BALDWIN — Þú hugsar nú meira um hann og Mary en um mig, sagði Kathleen, en þó án allrar gremju. Faðir hennar brosti bliðlega til hennar. — Ég get nú ekki staðið mig við að fara að hafa áhyggjur af þér. Þá gæti ég eins vel verið kyrr heima, sagði hann. Marion Roberts hristi höfuðið. Kathleen hefur góða al- menna greind og við höfum al- ið hana upp við að vera sjálfri sér nóg. . . og ef. . . þá hefur hún að minnsta kosti vit á að fara til Hamiltons læknis. En hún fölnaði ofurlítið um leið og hún sagði þetta. — Góða mín, sagði dóttir hennar, — horfðu ekki svona á mig. Ég er fílhraust 'ðg er bú- in að fá alla hugsanlega barna- sjúkdóma, og seinast þegar ég fór til Ham gamla, þá sagði hann, að ef allir sjúklingamir sínir væru jafn hraustir og ég, þá gæti hann eins vel lokað búð Allar tegundir f útvarpstækl, vasaljós og leik- föng alltaf fyrirliggjandi. Aðeins f heildsölu til verzlana. Fljót afgreiðsla. HNITBERG HF. öldugötu 15, Rvlk. — Siml 2 28 12. og farið að skera út tré. Nei, þú skalt engar áhyggjur hafa. — Nei, það skal ég heldur ekki, sagði móðir hennar hóg- lega. Hún leit á manninn sinn með áhyggjusvip, sem hún reyndi að leyna. Leit hann ekki betur út en í morgun? Hún varð fyrst og fremst að hugsa um hann, að koma honum burt og láta hann hressast við, gæta og mataræði hans og sjá um, að hann fengi nóga hvíld og hefði eitthvað við að vera. Og hann hafði heldur ekki sofið vel í seinni tíð. Kathleen sagði: — Ef þið eruð með þessar áhyggjur af mér, þá strýk ég með stráknum í matvörubúðinni eða fer til Hollywood, svo að þið hafið þó eitthvað að fárast um. Þið hafið gert ykkar bezta með því að bjóða að taka mig með ykkur. En ég var þver og vanþakklát. Ég vildi heldur vera heima og hafast eitthvað að. En með sjálfri sér hugsaði hún: Guð minn góður, hvað ég sakna ykkar og ekki veit ég, hvemig ég held það út. . . En þetta gat hún ekki sagt, því að þau urðu að fá að fara í þetta ferðalag, frí og frjáls. Hún hugs aði: ég eyðilegg þetta allt fyrir þeim með allri forvitninni minni og skemmtanafíkn, því að þau reyna auðvitað að fylgja mér — auk þess mundi mér leið ast þetta, og það vita þau. Faðir hennar lagði frá sér dag blaðið og gerði einhverjar önug- ar athugasemdir við fyrirsagn- imar. Svo leit hann af konu sinni og á dóttur sína: — Kate getur gætt sín sjálf. Hún hefur áður sýnt það í ýmsu smálegu, og nú er tækifærið að sanna það fyrir alvöru. — Æitli það nú? sagði Kath- leen. — En segðu mér eitthvað af Patrick Bell — þú hef- ur ekkert sagt mér um hann nema að þú hafir rekizt á hann í einhverjum klúbbi og hann PANELOFNAR LÆGRI HITAKOSTNAÐUR BETRI HITANÝTING HÆRRA HITAGILDI PANELOFNAR uppfylla allar kröfur sem gerSar eru til mið- stöðvarofna f dag. Látið PANELOFNA einnig I yðar hús. Það er prýði að PANELOFNUM: ÍSLENZK FRAMLEIÐSLA. Söluumboð: HITATÆKI H.F. Skipholti 70, simi 30200 JD □r PANELOFNAR HF. Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl. Þú ert dálítið ágcngur í dag, kannske vegna alls, sem þú átt ógert. Nautið. 20. apríl — 20. maí. Þú verður að lagfæra áætlunina hjá þér og vinna upp ógerð verk. Tvíburamir, 21. maí — 20. júní. Þú ert alltaf að masa, þegar þú átt að vera að vinna. Krabbinn, 21. júní — 22. júli. Reyndu að gefa álit þitt á opinberum aðgerðum til kynna hið fyrsta Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Þér semur betur við þá, sem einhvers mega sín í dag, en þá sem þú umgengst meira. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Þú heldur, að þú sjáir fjáröflunarmöguleika, sem þó reynast vera eitthvað aUt annað, er á reynir. Vogin, 23. september — 22. október. Það liggur ekkert á neinum brcytlngum. Samskipti við ættingja treystast við smá áreynslu. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. Reyndu að halda skapinu £ skefjum, þótt erfitt sé. Það eykur hróður þinn. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Peningar verða eitthvað til umræðu, eftir því, hvernig þér hefur gengið að halda orð þín. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Þótt þú sért ekki alveg sammála samverkafólki þinu, er óþarfi að blanda fleirum í málið. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Ný tækifæri virðast skjóta upp kollinum, þegar þeirra er sízt von. Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz. Það gengur aldrei að fá peninga að láni hjá vinum sinum. sagðist kannski geta látið mig fá einhverja vinnu. — Ég þekki hann nú ekki vel, játaði faðir hennar, — enda þótt ég hafi einstöku sinnum séð hann og stundum talað við hann. Við komumst í snakk á einhverjum bar yfir einu glasi. . — Lawson! sagði kona hans. Ein lífsreglan hans var algjör bindindissemi. — Ég drakk nú ekki annað en engiferöl, flýtti hann sér að segja. — Svei mér þá! En svo að ég haldi áfram, þá er hann ungur........rúmlega þrítugur og stendur fyrir stóru verktaka fyrirtæki. Vinnur aðallega fyrir borgina . . . annars veit ég ekkert nánar um það. . . neðan- jarðarbrautir og brýr og þess háttar. Fyrirtækið stofnaði fað ir hans, en svo dó hann í fyrra. Pat sagði mér að karlinn hefði viljað senda hann í háskóla, en það vildi hann ekki og fór beint í viðskiptalifið úr gagnfræða- skólanum. Ég spurði hann, hvort honum hefði þá ekki verið heppiiegra að vera verkfræði- ingur, en hann svaraði kaldur og rólegur, að hann hefði fjölda hálaunaðra verkfræðinga í þjón ustu sinni. . . . Annars heitir hann nú ekki Bell. — Hvað í dauðanum heitir hann þá? spurði Kathleen. — Því er ég búinn að gleyma. Það er eitthvert langt ítalskt nafn, en pabbi hans fékk þvi breytt, þegar hann stofnaði fyr irtækið. . . mér er sagt, að hann hafi verið afskaplegur harð- stjóri. Hann sagðist eiga alltof marga frændur, bæði hér og í gamla landinu og undir eins og þeir fréttu um velgengni hans, mundu þeir vilja verða vehk- stjórar eða skrifstofumenn hjá honum. Svo að hann styttiþað niður í Bell. — En hvaðan er þá Patricks- nafnið? — Ég býst við, að hann hafi átt írska móður, sagði faðir hennar. Hann er eftirtektarverð ur ungur maður, Kate. Hörku- duglegur og heldur ágengur fyr ir minn smekk. Líkist mest götu valtara. Þér finnst hann áreiðan lega óslípaður demantur. — Það var þá ekki nema góð tilbreyting frá öllum þessum slípuðu sem ég hef fyrirhitt í seinni tið. Ég hitti einn í gær- kvöldi, sem var ekki einasta slípaður, heldur lika í platínu- umgerð. — Hver var það? sagði Mari- on. — Og þú hefur ekkert sagt mér af samkvæminu. Komstu seint heim? — Ekki mjög — ég held klukkan hafi ekki verið orðin eitt. Já, samkvæmið var stór- kostlegt. . . skrallmúsik og mik- ið af kampavíni, skemmtiatriði og fallegustu sýningarstúlkur í geggjuðustu kjólum. Mig hryllti við þegar ég hugsaði til feitu kerlinganna, sem þyrptust til Eloise, nú á dögum og kaupa litlu númerin, sem þær sáu út- stillt í gærkvöldi, og halda sig munu líta glæsilega út i þeim — eins konar tvíbura ljóshærðu stúlkunnar sem sýndi kjólinn. En ég býst nú við, að hún breyti þeim, eða telji viðskiptavininn á að fá sér heldur eitthvað ann að. . . . þvi að fyrirtækið þolir illa óheppilegar auglýsingar. Hanna naut sín heldur en ekki. Þessi sportföt hennar eru virki- iega eftirtektarverð, að minnsta kosti voru allar stórhrifnar af þeim. Ég ætti að spara rentu- peningana mína, úr því ég er komin á kaup, og kaupa mér ein slík föt. . . — Ég botna nú víst heldurlít ið í þessu, sagði faðir hennar. En segðu mér, hver þessi slíp- aði demantur þinn var.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.