Morgunblaðið - 27.01.1971, Page 24

Morgunblaðið - 27.01.1971, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1971 bruna. Og þegar Kathleen kom þangað á föstudag, ásamt Hönnu, gat hún vel skilið þetta. Þarna var nógur snjór og nóg sól, og öldugjálfrið til að sofna við. Það var nú orðið of áliðið til þess að fara í sjóinn, en þau gerðu það nú samt og komu aftur hálffrosin en hlæjandi og hlupu inn i íþróttaherbergið i baðslopp um, meðan Joel blandaði í glös- handa þeim. Gamla frænkan hú n frú Keates var viðkunnanleg og hafði sig litt í frammi, og virtist hafa ánægju af nærveru þeirra. Hún sagðist sakna barn- anna, sem nú voru farin til borg- arinnar, ásamt kennslukonu sinni. En frú Keates ætlaði að verða þarna þangað til Ransom lokaði húsinu fyrir veturinn, en þá ætlaði hún i hitt húsið í Conn- ecticut og sjá um það, ef hann skyldi langa til að koma þangað um helgar, um veturinn. Þar voru þrjár vinnukindur — ágæt hjón og svo sonur þeirra, sem vann erfiðari verkin og var til taks um það, sem gera þurfti. Kathleen þóttist vera hálf-ein- mana þarna, en kunni því vel. Vitanlega voru Joel og Hanna þarna líka, en hún þóttist vera utan þessa töfrahrings, sem Joel hafði dregið kring um Hönnu. Og hún var þessu fegin, Hönnu vegna. Hún fór út að ganga eða synda með þeim og spilaði þriggja manna bridge . . . og sökkti sér niður í hugsanir sinar. Hún hugsaði vandamál sitt við- víkjandi Pat. Hún skyldi koma og bera vitni, yrði henni stefnt. Og hún skyldi svara öll- um spumingum sannleikanum samkvæmt — en svo heldur ekki meira. Hún skyldi engar upplýs- ingar koma fram með ótilkvödd. En fyrst og fremst skyldi hún þó segja föður sínum alla sög- una og hlíta síðan ráðum hans. Hún fann, að hún saknaði Pauls McClure. Hann kom akandi til þeirra einn sunnudag í hellirigningu. Eftir ríkulega máltíð síðdegis, fóru þau frá Hönnu og Joel, sem voru að spila tveggja manna spil, og gengu út á votan sandinn, til þess að tala saman í næði. Kath- leen var í gamalli regnkápu af Joel og með gamlan hatt, dreginn niður fyrir augu. Hún leit upp á móti regninu og hló, horfði svo á ókyrran sjóinn og öldumar sem gengu á land upp, freyðandi. Þarna voru spýtur á reki og gargandi mávar. Paul gekk við hlið hennar með hendur í vösum, og sagði: — Það er líkast þvi sem Hanna og Joel — Ég vona það að minnsta kosti, sagði Kathleen. — Það er allt í lagi með hann, sagði Paui. — Hann er þannig maður, að hann má gjama vera ríkur. Mér líkar vel hvernig hann ver aurunum sínum. — Þar er ég á sama máli. Þau stikuðu þögul í rigning- unni. Loks sagði Paul: — Leikritið er smásaman að taka á sig mynd. — Og hitt er útselt í þrjá mán- uði fyrirfram, sagði hún. — Ég er svo hreykin af þér. — Vegna þess, að það selst svona vel ? — Nei, ég hefði orðið það al- veg eins þó það hefði fallið nið- ur dautt. — Þetta vildi ég einmitt heyra, sagði hann ánægður. Allt í einu sagði hann: — Hvað er um Pat? — Hvað áttu við? — Ég á við . . . hvernig það er með ykkur. — Það er allt búið að vera. Vorum við kannski ekki að skála fyrir því? En ég var nú samt ekki orðin fullkomlega iaus þá. En það er ég núna. Eftir að ég hitti hann þarna frumsýningar- kvöldið. Þá var það litla sem var, búið að vera. — En réttarhöldin? — Ég vitna auðvitað ef ég má til. Hún sneri að honum regn- votu andlitinu. — En ég ætla ekki að gera honum neitt til meins, nema þá tilneydd. — Já, en þið Jim? Fjandinn hirði hann, sagði Paul. — Hann veit sitt af hverju. Félög — Félogosamtök Laugardagurinn 6. og 13. febrúar er laus fyrir þorrablót eða árshátíð. Nánari upplýsingar í síma 66195. HLÉGARÐUR Mosfellssveit. Ýtoskóila til sölu Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í ýtuskóflu af gerðinni TRACKSON byggð á CATERPILLAR D-6 með löngum beltum. Nánari upplýsingar gefur yfírverkstjóri Bergsveinn Sigurðsson áhaldahúsi bæjarins við Vesturgötu. Tilboð er greini verð og greiðsluskilmála sem kaupandi býður, skulu berast skrifstofu bæjarverkfræðings Strandgötu 6 eigi síðar en þriðjudaginn 2. febrúar n.k. BÆJARVERKFRÆÐINGUR Frá London og Kaupmannahöfn maxi-kjólar. Höfum fengið slórar sendingar aí hinum vinsælu maxi-kjólum. Verö, stærðir, snið og litir við allra hæfi. uverzlwnm L )run Rauðarárstíg 1. — Sími 150-77. — Já, hann veit víst nóg, ef bara . . . Jæja, sleppum því. Eig um við ekki að fara að draga okkur heim? Frú Keates er búin að lofa að gefa mér te og nú langar mig ekki I annað meira. — Kate . . . Hann greip hönd hennar . . . nei vertu ekki svona hrædd, ég ætlaði ekki að segja annað en það, að ég er hérna og bíð. Alltaf að bíða. Hún dró að sér höndina. — Já, ég veit það, Paul. Hún hugsaði, en það er ekki hægt að verða svona ástfangin sitt á hvað. Við verðum að bíða og hugsa málið. En hún sagði: •— Mér fellur bet- ur við þig en nokkurn annan mann, sem ég þekki. -— Það er gott til að byrja með, sagði hann. Ilann fór svo eftir kvöldverð- inn og hún saknaði hans, en horfði á þau Hönnu og Joel. Og Hanna kom inn til hennar um kvöldið, þegar hún var háttuð. — Ég ætla að giftast Joel, sagði hún formálalaust. — En hvað ég er fegin, Hanna! — Ég líka. Litlu svörtu augun voru bliðleg. Hún sagði: — Krakkarnir kunna vel við mig. Ég var hrædd við þau, en þau eru indæl. Og ég elska Joel. Kannski er ég ekki ástfangin af honum, en ég elska hann samt. Nú orðið þekki ég muninn á því tvennu. Og ég kann betur við það eins og það er nú. Kathleen spurði: — En hvað þá um Paul? — Sleppum því, sagði Hanna. — Kannski hefur þetta ekki ver- ið annað en þverhöfðaskapur í mér. Kannski voru það einhverj- ar leífar frá gamalli tíð. Ég veit ekki, hvort heldur. En hann er ástfanginn af þér og verður það aldrei framar af mér, hvernig sem þú snýst við þessu. Ég er hætt að þrá, að honum snúist hugur og þér snúist hugur frá Pat. Nú er það þitt að ákveða. Ég er laus við þetta . . . og fegin því. Ég vil, að þú trúir því. — Það geri ég líka, Hanna, og mikið er ég glöð fyrir þina hönd. — Jæja, þú afsakar þessi krakkatár mín, sagði Hanna nokkru síðar, — en svona er nú þetta. Góða nótt, Kate. Morguninn eftir þurfti Joel að fara til borgarinnar. En hann hafði fengið kvef og var með hita, og Hanna píndi hann til að vera um kyrrt. Hún sá um sím- tölin fyrir hann, og var þá svo húsbóndaleg og ákveðin, að Kathleen hafði hálfgaman af. Hún var í snúningum, bar súpu upp til hans, sat við rúmið hans og las upphátt. En Kathleen sat mest i bókastofunni eða fór út að ganga í allri rigningunni. Þvi að enn rigndi. Joel hafði batnað daginn eftir. En rigningin var sú sama. Til hvers ætti hann að fara að aka til borgarinnar í opnum bíl? Viidi hann kannski fá lungna- bólgu? spurði Hanna. Bíddu þangað til styttir upp, heimurinn færi varla í hliðina þó að hann væri hvergi nærri. Hann varð þvi kyrr, rólegur og viðkunnan- legur maður, sem elti Hönnu með augunum, hvert sem hún fór. Á miðvikudag rigndi meir en nokkru sinni, það hvessti og öllum merkingum, er rétt aS Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl. Allar ákvarðanir og skipulag fer út um þúfur. Nautið, 20. apríl — 20. niaí. Harmleikir og leiðindatilsvör eru ekki beint það, sem þú þarfn- ast þessa stundina. Tvíburarnir, 21. maí — 20. júni. Allir halda fast við sitt í dag, og þar við situr. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Viðskiptin verða æ flóknari, eftir því, sem fram í sækir. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Nú, þegar allir eru að brugga taka ekki of ákveðna afstöðu. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Pað er ekkert fordæmi að vera athafnasamur bara til að sýnast. Vogin, 23. september — 22. október. Það er ekki éalgengt að kvarta og kveina í dag, en skelfing gctur það verið óskemmtilegt. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvembev. Beyndu að koina þér úr óþægindum með að fara á smáflakk. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Alls kyns leyndainál koma á daginn. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Bjóddu vini þína velkomna og haltu réttu hugarfari og víðum sjón deil darhring. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Er ekki rétt að fara að lyfta sér upp á ný. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. Ef ekkí er hafið verk í fyrra lagi, er cins gott að láta það eiga sig. Hleyptu tkki öðrum heim til þín en þeim, sem þú gjör- þekkir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.