Morgunblaðið - 02.02.1971, Side 7

Morgunblaðið - 02.02.1971, Side 7
MOBGUNBLAÐEÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1971 7 Hús alþýðusamtakanna, — Lindarbær. Voldug gata með fallegu nafni Eitt látlausasta og þá jafn- fram líka eitt fallegasta götu nafnið í okkar kæru höfuð- borg er Lindargata. Það lœt- 'ur svo lítið yfir sér en feTur þó svo mikið í sér — fegurð og ljúflyndi hinnar tæru, hjal andi lindar, nauðsyn hins ómengaða vatns, sem enginn maður fær án lifað. En það er óralangt síðan þetta var. Nú sést hér engin lind Hins vegar er Lindargatan orðin höfuðstræti hins svonefnda Skuggahverfis. En ég „mundi segja" að Lindargata væri síður en svo skuggaleg enda mun nafngift hverfisins ekki standa í sambandi við myrk- ur og dimmu. — Nóg um það að sinni, þvi hér verður Lindargatan ekki gerð að um talsefni sem leið aftur í liðna tið, heldur skai hún kynnt sem ein aðalgata borgarinnar. Já, það má meira að segja taka svo stórt upp í sig að spyrja hvort hún — Lindar- gatan — sé ekki ein voldug- asta gata Reykjavikur og þar með landsins alls. — Hvað er maðurinn að fara? Er þá landinu kannski stjómað frá Lindargötunni? Ja, það er nú það! Má það ekki að vissu leyti til sanns vegar faara. Aiiir kannast við Arnar- hvol. Hann stendur á horni Ingólfsstrætis og Lindargötu. Þar eru flest ráðuneytin til húsa. Þar er sjálfur ríkis- kassinn geymdur. Og hversu lengi mundum við, opinberir starfsmenn, lífi halda, ef sá kassi væri lok — lok og læs situndinni lengur. Austan við Amarhvol stendur hús Hæstaréttar með traustar súlur réttiætisins við inngang sinn. Um þetta hús ber að hafa sem fæst orð. Að eins taka undir það, sem við- frægt er efttir Magnúsi Torfa- sýni: Guði sé lof o.s.frv. Enn er ótalið það hús við þessa götu, sem að vísu er hvorki hús ríkisins né réttlæt isins. En það má samt, öðr- um húsum fremur kallast hús valdsins, — þar sem teknar eru hinar áhrifamestu ákvarð anir sem hafa víðtækar af- leiðingar og geta gjörbreytt gangi þjóðmála. Þetta hús stendur á homi Skuggasunds og Lindargötu, og má muna tvenna tímana. Áður fynr var Sanítas þar til húsa og eilíft flöskuglamur frá morgni til kvölds. Galsa- fengnir strákar hentu „gler- inu" út á bil og brunuðu með gosið út um allan bæ. Svo keypti alþýðan þetta stóra hús og lét endursmiða það og innrétta frá kjallara- gólfi upp i rjáfur fyrir marg- ar miiljónir. Nú eru þarna nokkrar tasíur af dýrmubluð um skrifstofum sem framleiða „mannsæmandi lífskjör" handa alþýðunni og stjóma verkalýðsbaráttunni í sókn hennar eftir veraldargæðum velferðarríkisins. — Það er er þetta hús, sem sýnir það öllu öðru fremur hvað Lindar gatan er „voldug og sterk". Það er ekki mikið um „for- retningar" við Lindargötuna. Þó munu þar leynast tvær mestu sælgætisgerðir lands- ins, Freyja og Víkingur. Svo að segja má með sanni, að framlag Lindargötunnar er ekki litið tii þessa (sykur) neyzluþjóðfélags, sem Mör- landinn er nú orðinn frægur fyrir eins og flotið áður fyrr. Ýmsir þjóðlegir stígir skera Lindargötuna á leið sinni ofan úr bæ til sjávar, eins og t.d. Klapparstígur, Vatnsstígur og Vitastigur. Á hominu við Klapparstig stendur stórt og reisulegt timburhús — tvær hæðir, kjallari, ris með kvistum. Og lætur all-mikið tii ain taka þrátt fyrir aldur sinn. Það var á sínum tima byggt af Milljónafélaginu. „En hvað er milljón?" segja þeir nýríku. Og „hvað vill þessi timburkumbaldi vera að hreykja sér?“ segja víðáttu- mikTar steinvillur millanna í dag. En þessa stóra og reisu- lega húss er ekki getið eða minnzt hér vegna þeirrar milljónar, sem það kann að hafa verið kennt við einhvem tima heldur vegna þess, að það var lengi í eigu eins gagn merkasta fræðimanns, sem Is land hefur átt, Hannesar Þor steinssonar þjóðskjalavarðar. Hann keypti það af Milljóna félaginu 1915 og bjó þar til æviloka — 1935. Allir þeir mörgu sem hafa yndi af pers ónusögu og „þjóðlegum fróð- leik" virða minningu þessa gagnmerka fræðimanns og hafa hana í hávegum. — Nú höldum við áfram aust- ur Lindargötuna án þess að nokkuð beri til tíðinda. — Eftir þvi sem innar dregur verða húsin líkari hinni gömlu Reykjavik, eins og hún var þegar Skuggahverf- ið var að byggjast. Hvert þeirra á siína sögu þótt ekki verði hún hér sögð. Svo er komið að Frakka- stíg og hér skyldi maður ætla að Lindargatan hætti eins og hver önnur skikkanleg gata þegar hús standa í vegi og hún getur ekki haldið sinu striki beint áfram. Nei, ekki aldeilis, Lindargatan lætur sig það engu Skipta þótt Franski spttalinn (Gaggó Lindó) standi hér eins og Þrándur í Götu. Þá leggur hún bara „ganske pænt“ lystilega lykkju á leið sína og heldur áfram meöfram spit alanum og Sláturfélaginu alia leið austur að Vitastíg. Þar er Lindargötunni áreið anlega lokið. — G.Br. HÉR ÁÐUR FYRRI Hús Hannesar Þorsteinssonar. Lítið hús við Lindargötu skýlir laufríku tré. Skrífstofustúlka óskast strax. Þarf að vera vön vélritun og bréfaskriftum á ensku og dönsku. Nokkur bókhaldskunnátta æskileg. Tilboð ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist Morgunbl. merkt: „4862“ fyrir 5. febrúar. Sniönámskeið Næsta kvöldnémskeið hefst 5. febrúar. Innritun einnig í næsta framhaldsnámskeið. SIGRÚN A. SIGURÐARDÓTTIR DrápuhKð 48, sími 19178. METSÖLUPLATA ÓMARS RACNARSSONAR KOMIN AFTUR SC-hljómplötur PIFCO GÆÐAVARA í SÉRFLOKKI QUEEN CURL hárliðunar- tœkið Verð aðeins krónur 2.395.oo Söluverð í Bretlandi £ 9.19.6 eða ca. kr. 2.150.00. Með 16 rúllum í vandaðri tösku með spegli í loki og öryggisljósi. FÁLKINN HF. Suðurlandsbraut 8, sími 84670.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.