Morgunblaðið - 02.02.1971, Síða 11
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1971
11
„Að gera það hollasta í hverju
til heilla mannlífi á íslandi66
— rabbað við Stefán A. Pálsson, sjötugan í dag
Stefán A. Pálsson.
Hairn virðist ef til vill svolit-
ið harður á svipinn í fyrstu
fyrir þá sem ekki þekkja
hann, en ekki líður á löngu
þar til glettnin brýzt fram úr
áugunum og ákveðnum svip.
Gíettnin og hlýjan sem ræður
ríkjum x huga þessa manns, á
hverju sem gengur. „Þrátt fyr-
ir böl og alheimsstríð," eins og
ségir í einu vestmanneysku
gamansömu kvæði.
( Stefán A. Pálsson er sjötíu
ára í dag. Ég ræddi við hann
fyrir nokkrum dögum áður en
hann hélt af landi brott til
Kanaríeyja, ásamt konu sinni
HiJdu Malmquist en þangað
buðu vinir hans og Sjálfstæðis
flokkurinn honum i tilefni af-
mælisins, en allt frá því að
Stefán var lítill drengur hefur
hann tekið þátt í stjómmálum
Islands og sérstakan áhuga hef
ur hann haft á kosningum. Öll
um kosningum, enda hefur
hann tekið þátt i öllum stjóm
málalegum kosningum á Islandi
síðan 1914 og alla tið í röðum
ákveðnustu og duglegustu
Sjálfstæðismanna.
1 gegnum starf Stefáns A.
Pálssonar um ævina hefur
hann kynnzt náið fólki úr hin-
um ýmsu þáttum þjóðlífsins og
af því hefur hann dregið dám.
Stefán er fæddur í Djúpa-
vqgi 2. febrúar árið 1901. For
eldrar hans voru Stefanía Guð
mundsdóttir og Páll H. Gísla-
son verzlunarstjóri, sem síðar
varð kaupmaður í Kaupangri
í Reykjavík.
1 Djúpavogi var Stefán að-
eins tvö fyrstu ár ævi sinnar,
því foreldrar hans fluttust til
Fáskrúðsfjarðar þar sem þau
bjuggu til ársins 1911 er þau
fluttust til Reykjavikur.
Þegar ég kyimtist Stefáni
fyrir nokkrum árum var það i
sambandi við kosningar, en
hann stjómaði utankjörstaða-
kosningu Sjálfstæðisflokksins
og þar fékk enginn að sitja
auðum höndum eða dútla við
skrifborðið. Menn voru í önn-
um, allt var á fullri ferð i kosn
ingahríðinni.
Stefán sat sjaldan lengi á
sama stað, honum var það
ekki eigtnlegt. Framtak og
starf,, hreyfing, átti betur við
hann og því kom mér það ekki
á óvart þegar ég rabbaði við
hann að hann gekk títt um
gólf um leið og hann rifjaði
upp eitt og annað úr safni sjö-
tiu áranna. 1 stuttu afmælis-
rabbi verður þó aðeins hægt að
stikla á flúðum í því efni.
Ég spurði Stefán fyrst um
unglingsár hans í Reykjavik.
Hann tók nokkur skref fram
og aftur og það færðist prakk
árasvipur yfir andlitið og fas-
ið:
„Á unglingsárunum í Reykja
vik var oft mikill hasar og
brösótt samkomulag milli aðal-
andstæðinganna, Austurbæjar-
strákanna og Vesturbæing-
anna. Ég bjó í Kaupangri við
Lindargötuna og varð því Aust
urbæingur um leið og ég flutt-
ist til bæjarins.
Einhvem veginn varð það nú
svo að ég valdist I forystuhóp
liðs Austurbæinga og þar
voru margir góðir strák-
ar og duglegir. Miklir bel-
jakar og harðir i slagsmálum.
Reyndar höfðu Vesturbæingar
einnig harðsnúið lið og það
gerði kappið í erjumar. Það lá
við að þessir aðilar hötuðu hver
annan út af lífinu og varla var
óhætt fyrir Austurbæinga og
Vesturbæinga að fara inn á um
ráðasvæði hvors um sig nema í
liðsfylgd.
Á þessum árum var faðir
minn afgreiðslumaður Sunnan
fara og ég ásamt bróður minum
bar blaðið út til fastra áskrif-
enda. Þegar við fórum í Vest-
urbæinn urðum við hreinlega
að leita færis til þess að ekki
yrði ráðizt á okkur.
Oft sló i bardaga milli herja
Austur- og Vesturbæinga, götu
bardagar voru harðir og það
var iíf i tuskunum. Við Aust-
urbæjarstrákarnir tókum obk-
ur stimdum til og útilokuðum
Vesturbæinga frá þvi að fara
1 Sundlaugamar gömlu og þá
dreifðum við okkur til dæmis á
heila götu og hleyptum engum
í gegn. Nú orðið virðist
bernska strákanna fara fram
öllu kristilegar, enda úr meiru
að velja til þess að dreifa at-
hafnaþránni.
Við strákamir á þessum ár-
um héldum vel saman og flest-
ir þessara stráka fóru síðan
inn í knattspyrnufélögin og
létu þar að sér kveða. Ég
var meðal þeirra stráka, sem
séra Friðrik hópaði i kring um
sig og knattspyrnufélagið Val-
ur varð síðan stofnað upp úr.
Við mættum undir forystu séra
Friðriks vestur á Melum með
haka og skóflur til þess að
ryðja okkur lítinn fótboltavöll
þar sem Melavöllurinn er nú.
Þá stofnuðum við félagið Hvat
og upp úr því félagi var Val-
ur stofnaður, en þegar það
gerðist fóru margir af
neðri Austurbæingum í Víking,
en ekki Val, því Víkingur sam
anstóð mestmegnis af Miðbæjar
strákum. Ég var einn af þeim
sem fóru i Víking og þar sem
við vorum margir vildum við fá
2 menn af 5 í stjóm, en loforð-
ið var svikið á aðalfundi, svo
að við sögðum okkur allir úr
Víkingi og gengum næsta vor í
Fram. Nokknir félaigar mínir
urðu upp úr þvi uppistaðan i
liði Fram, sem á þessum árum
var mikið uppgangslið og stóð
sig vel.
Árið 1929 var fremur illa
komið fyrir Fram því ekki
hafði verið lögð sú áherzla sem
skyldi á að byggja upp lið
yngri flokkanna. Við tókum okk
ur þá saman nokkrir stálpað-
ir menn og tókum að okkur
stjóm Fram til þess að byggja
upp yngri flokkana. Ég var þá
formaður í 4 ár og alltaf mætt-
um við með yngri strákunum
á æfingar til þess að hvetja þá
í íþróttunum."
Ég spurði Stefán þessu næst
um pólitískan áhuga hans,
sem ekki er hægt að segja
annað um en hafi ver-
ið talsverður, sem meðal ann
ars kemur fram I þvi að hans
helzta áhugamál og tómstunda-
gaman hafa verið kosningar.
Hann svaraði:
„Faðir minn var mjög póli-
tískur af stofni gamla Sjálf-
stæðisflokksins. Vegna áhuga
hans held ég að minn
áhugi hafi vaknað og síðan hef
lur hann aldrei kulnað. Ég
tók fyrst þátt í kosningum 1914
sem , sendill, og þótti það vera
mikill vegsauki, en út úr þeim
kosningum komst Sveinn
Bjömsson á þing. Síðan hef ég
verið við allar kosningar og
margar hafa þær verið spenn-
andi. Það má nefna til dæmis
kosningarnar 1919 þegar aðeins
var kosið í Reykjavík. Sveinn
Björnsson var þá gerður að
sendiherra, sennilega til þess
að kúpla honum út úr póli-
tíkinni, en hann var þá annar
af tveim þingmönnum Reykja-
víkur. Þegar Sveinn íór var
kosið I Reykjavík og þá bauð
Jakob Möller sig fram. Hann
fór í ógurlega harða baráttu
við Jón heitinn Magnússon
heimastjórnax-mann, en ungt
fólk hópaðist um Jakob Möller
og hann sigraði með nokkurra
atkvæða mun. Þetta voru sér-
staklega spennandi kosningar
og það var geysilegur kraftur
í þeim. Svo voni kosningar
1921, þegar ákveðið var að
Reykjavik skyldi fá 4 þing-
menn. Þá var það til dæmis sem
Jón Baldvinsson, eða Alþýðu-
flokkurinn fékk fyrst þingsæti
og þá komst Jón Þorláksson
eirmig loks á þing og Magnús
heitinn Jónsson fór þá einnig
fyrst á þing. Þetta voru mjög
harðar kosningar.
Árið 1923 um haustið eftir
kosningamar var gamli
Ihaldsflokkurinn stofnaður á A1
þingi, en eins og kunnugt er
máli
sameinaðist hann Frjálslynda
flokknum árið 1929 og Sjálf-
stæðisflokkurinn var stofnað-
ur. Þá var Jón Þorláksson kos
inn formaður og Ólafur Thors
varafonnaður.
Það gerðist margt i pólitíkinnl
á þessum árum og mikil harka
var oft á tiðum ríkjandi. Á
þessum árum voru kosningar á
svo til hverju ári og ekki var
það til að bæta úr þegar Jón-
asartímabilið gekk í garð upp
úr 1928. Við Sjálfstæðismemn
í Reykjavík vorum ákaflega
vondir út í hans stefnu, því
okkur þótti hann fara svo illa
með mál Reykvíkinga og
reyndar fleiri, því hann
hreinlega níddi þá niður sem
ekki stóðu og sátu eins og
hann vildi og tætti þannig með
offorsi nokkra helztu fram-
kvæmdamenn landsins.
Þá voru Reykvikingar útbá-
súnaðir úti á landi sem Grims-
bylýður og Sodóma og Gomora
var það, sem helzt var hægt
að líkja Reykjavík við að sögn
Jónasar frá Hrlflu. Reykjavík
var að sögn hans og annarra
Framsóknarmanna, samnefn-
arinn fyrir anskotann í sam-
íélagimfu.
Árið 1938 fóru fram kosning
ar í Reykjavik til bæjarstjóm
ar og þá voru komnir fyrir
nokkrum érum til liðs við Sjáll
stæðisflokkinn eldheitir og dug
legir liðsmenn. Þeirra á meðal
var Bjami Benediktsson, sem
eftir stofnun Sjálfstæðisflokks-
ins fór strax af miklu kappi að
Franihald á bls. 24
I; Næsta mál á dagskrá
|; Öryggi fjrir alla með
hóptryggingu ~
Ný sameinuð líf-, slysa- og sjúkratrygging, sem hentar fyrir
hve.rs konar félagssamtök, starfsfólk fyrirtækjá, hagsmuna-
samtök og lífeyrissjóði.
Trygging serh bætir tekjumissi vegna fjarveru frá starfi, með
dagpeningum f allt að þrjú ár, greiðir bætur vegna meiri eða
minni örorku, og dánarbætur falli fyrirvinna frá.
Sé þessi trygging tekin fyrir hóp, verða iðgjöld allt að 30%
lægri að jafnaði.
Athugið hve aðrar tryggingar duga skammt.
Sendum fulltrúa okkar á fund allra sem þess óska til að gefa
nánari upplýsingar.
Hringið og Ieitið tilboða.
ALMENNAR TRYGGINGARf
PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SÍMII7700
II
II
II
II
II
II
I I
I i
II
II
I I
II
II
II
II
II
II
9
\