Morgunblaðið - 02.02.1971, Side 12

Morgunblaðið - 02.02.1971, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1971 Ráðgjafanefndarfundur EFTA var haldinn í Genf dagana 15.—16. október sl. Var þetta 21. ráðgjafarfundurinn, en hann sækja fulltrúar frá iðnaði og atvinnu vegum í liimim ýmsu EFTA-löndum og skiptast á skoðunum um hagsmunamál sín. Að þessu sinni sóttu þeir Guð- mundur II. Garðarsson, Gunnar J. Friðriksson og Jón Bergs fund þennan. Sjást þeir hér að fundarstörfum. Fyrsti fundur Finna og EBE Óska tengsla en ekki aðildar Vilja halda tollfrjálsum viðskiptum við Rússa EINS og kunnugt er hafa Finn- ar óskað eftir einhvers konar tengslum við Efnahagsbandalag- ið í Briissel. Finnland er nú eitt af aðildarríkjum EFTA, eins og íslendingar. Finnar hafa þó tekið skýrt fram að þeir óski ekki eftir fullri aðild, eins og Danir og Norðnienn hafa gert, heldur einungis viðskiptatengsl- Þann 6. þessa mánaðar var haldinn í Briissel viðræðufund- ur fimnskra embættis- og stjóm málamanna og fulltrúa Efnahags bandalagsins. Finnsku sendi- nefndinni veitti forstöðu aðal- samningamaður Finna gagnvart EBE, Reino Rossi ambassador. Af hálfu EBE var aðalsamninga maðurinn Walter Wellenstein. Islendingar stærstu innflytjend- ur þorskf laka til Bandaríkjanna Juku heildarinnflutninginn um 2 5% árið 1970 ÍSLENDINGAR eru nú orðnir stærstu innflytjendur frystra þorskflaka til Bandaríkjanna. Hafa þeir nú um 51% heildar- innflutningsins í sínum höndum. Hefur þetta hlutfall hækkað úr 25% árið 1965. Olía við Spánar- strönd Áður fyrr voru Kanadamenn stærsti innflytjandinn, en nú flytja þeir inn til Bandaríkj- anna um 40% af heildarmagn- inu. MIKLAR VERÐIIÆKKANIR Alls jókst innflutningur á fiskblokkum frá íslandi til Bandaríkjanna um nálægt 25% miðað við jan.-sept. 1969 og sama tíma 1970. Hefur hinn ^góði afli og stöðugt hækkandi verðlag átt sinn mikla þátt í þessu. Eins og kunnugt er hafa verið mjög miklar hækkanir á fiskblokkum á Bandaríkjamark- aðnum, og er verðið nú komið í um 40 sent pundið. Var það ekki nema 23—25 sent fyrir ör- fáum árum. ÝSUBLOKKIR Hlutur íslendinga í in.nflutn- ingi ýsuflaka til Bandaríkjanna er hvergi nærri eins stór og þorskflakanna. Alls voru flutt inn til Bandaríkjanna á tímabil inu jan.-sept. 1970 24 millj. punda. íslendingar flytja aðeins inn um 10% af því magni, en Kanadamenn um 30%'. Hefur þessi innflutningur aukizt í heild um 11% til Bandaríkj- anna miðað við árið áður. Al'ls voru flutt inm til Banda- ríkjanna 212 millj. punda af frystum fiskblokkum fyrstu 9 mánuði ársins 1970. Er það 2.6% aukning frá því árinu áð- ur. FYRIR nokkrum vikum fannst olía fyrir utan Miðjarðarhafs- strönd Spánar. Er það olíufé- lagið Shell, sem að leitinni stóð samkvæmt samningi við Spán- arstjórn. Olían fannst fyrir ut- an strönd Tarragona. Enn hafa talsmenn Shell í London ekki skýrt frá því hve mikið magn er hér um að ræða, en fregnir frá Madrid herma að talið sé að þarna sé um svipað magn að ræða og á Ekofisk-svæðinu við Noregsströnd. Ef Taragon-svæð- ið veitti olíu, sem næmi 250,000 tunnum á dag myndi það nægja til þess að uppfylla alla olíu- þörf Spánar. Á síðasta ári voru fram- kvæmdar þoranir eftir olíu fyr- ir utan Ebrosléttuna og fannst þar nokkuð af mjög hreinni olíu. Þar eru frekari rannsóknir þó nauðsynlegar áður en lengra er haldið, en vonir eru einnig bundnar við olíuframleiðslu á þeim stað. Shell-félagið á 51% hlutabréf- anna í leitarfélagi því, sem þessa olíu hefur fundið, en að félaginu standa allmargir aðrir aðilar. Norsk gullnáma: Hlutabréfin margfaldast í verði Mikill gróði norskra skipafélaga GÍFURLEG aukning hefur orð- ið á verðmæti norskra hluta- bréfa á síðasta ári. Munu Norð- menn ekkj aðra eins aukningu á verðbréfamarkaðnum og hef- ur þessi aukning verið forsíðu- efni norskra blaða undanfarna daga. Hlutabréf í 35 fyrirtækjum tvöfölduðust í verði á síðasta ári og er það mjög óvenjulegt. Hlutabréf ýmissa fyrirtækja hækkuðu þó enn meira og nam hækkun þeirra frá 100—800%. Þau hlutabréf, • sem lang mest hækkuðu í verði, eru bréf í skipafirmum. Eins og kunnugt er hefur olíuskipamarkaðurinn verið stórkostlegur á síðasta ári i og hafa norsk útgerðarfyrirtæki • rakað saman fé á markaðnum, sem ekki eru dæmi til síðan í Súez-deilunni 1956. Hlutabréf í iðnaðarfyrirtækjum norskum koma ekki fyrr en í 14. sæti yfiir hækkanir á markaðnum. Mesta hækkun hlutabréfa var í einu útgerðarfyrirtækjanna. Hlutabréf þess hækkuðu í verði um 823%. Nonsk dagblög telja að ekki sé útlit fyrir að hlutabréf í norskum félögum eigi eftir að hækka svo ákaflega á næstu ár- um — nema núverandi góðæri á skipamarkaðinum haldizt. Það er tekið fram, að enda þótt hækkanirnar og gróðinm hafi verið mestur á olíuskipa- markaðnum, þá hafi einwig góður ágóði verið af leigu ann- arra fragtskipa, þannig að allur skipastóllinn norski hafi notið góðrar afkomu á siðasta ári. Tekið skal fram, að ekki eru dæmi til slikra hlutabréfahækk ana frá öðrum Norðurlöndum á þessu ári. Tollasamningur Möltu og EBE Tekur gildi 1. apríl 39 þús. skópör — framleidd 1969 ÞRJÁTlU og níii þúsund pör af skóm vorn framleidd hér á landi 1969 að því er fram kemur í des- emberhefti Hagtíðinda. Skiptist framieiðsian þamnig, að átta þúsund pör af karlmanna skóm voru framleidd, fjögur þús und pör af kvenskóm; tíu þúsund af barna- og unglingaskóm, tíu þúsuind af mmiskóm, sardölum og léttum skufatnaða og sjö þúsund pör af kuldaskóm, skíða skóm og vinnuskóm fyrir karl- menn. Þetta er allmiklu minni skó- framleiðsla en var árið 1968; það ár nam framleiðslan 66 þúsund pörum og þrjú næstu ár þar á umdan nam framleiðslan 64 þús- umd pörum, 69 þúsumd pörum og 70 þúsund pörum. EINS og kunnugt er hefur ar tolla á Möltu-vörum. Malta gert aukaaðildarsamn- Malta lækkar sína tolla um ing við Efnahagsbandalagið. 15% við gildstöku samnings- Gert er ráð fyrir, að þessi ins. Síðan enn um 25% við samningur taki gildi þann 1. byrjun þriðja ársins og apríl n.k. Nær samningurinn 35% við byrjun fimmta tii tveggja fimm ára tíma- ársins. Eftir fimm ár eiga ^ bila. vörur frá EBE að njóta | Kjarni þessa viðskipta- sömu tollfríðinda á Möltu / samnings er sá, að eftir gild- sem vörur, sem þangað eru ) istöku hans mun Efnahags- fluttar inn frá Samveldinu. ^ bandalagið lækka alla tolla Mikilvægt ákvæði er í i sína á vörum frá Möltu um þessum samningi þess efnis, ■ 70%. Gerð er undantekning að Maita getur aftur hækkað um nokkrar vefnaðarvörur, tolla ef stjórnin telur það sem ekki er ieyfður óhindr- nauðsynlegt vegna efnahags- aður innflutningur á. legrar þróunar í landinu. Á hinn bóginn tekur Malta sér þær skyidur á herðar, að Þessi samningur við Möltu lækka tolla á vörum, sem hefur vakið mikla athygli, fluttar eru inn frá Efnahags m.a. hjá þeim þjóðum, sem bandalagslöndunum, en mikl- nú sækja um viðskiptatengsl um mun hægar en EBE lækk við bandalagið. TVÆR SKÝRSLUR Á þessum fundi afhenti finnska sendinefndin bandalag- inu tvær skýrslur, sem samdar hafa verið vegna umsóknar Finna. Fjallar önnur þeirra um afkomu og ástand í finnska landbúnaðinum, en hin fjallaði um viðskipti Finna og Rússa. Er almennt talið, að ástæða þess að Finnar óski ekki eftir fullri aðild að EBE sé sú, að tengsl þeirra við Rússa hindri slíka aðild og einnig hlutleysis- stefna þeirra. Myndu Rússar líta fulla aðild Finna mjög óhýru auga þar sem EBE er pólitískt bandalag jafnframt því sem það er viðskiptabanda- lag. ÞRJÚ MEGINATRIÐI Á þessum fyrsta fundi EBE og Finnlands gáfu báðir aðilar almennar yfirlýsingar um stefn- una í þessum málum. Ambassa- dor Rossi skýrði helztu sjónar- mið Finna. Fulltrúi EBE, Well- enstein, endurtók það sem fyrr- verandi formaður ráðherra- nefndar bandalagsins, Walter Scheel, hefur þegar látið í ljós gagnvart Finnum, að væri meg- inatriði málsins, að því er varð- ar umsókn þeirra. Þessi atriði eru eftirfarandi: 1. Miða ber að lausn, sem hmdr ar nýjar viðskiptahömlur í Evrópu. 2. Samningurinn verður að vera í samræmi við 24. grein GATT-samningsins. 3. Ekki má skerða sjálfstæðan ákvörðunarrétt Efnahags- bandalagsins vegna samnimg- an.na við Finna. Fulltrúi Finna á þessum fyrsta fundi lýsti því yfir, að þessi sjónarmið væru í sam- ræmi við afstöðu Finna sjálfra. SOVÉT-VIÐSKIPTIN Að fundinum loknum skýrði ambassador Rossi svo frá að leitazt yrði við að finna lausn á málinu, sem ekki hefði í för með sér nýjar viöskiptahömlur. Að því er varðar landbúnaðinai óskar Finnland eftiir einhvers konar fyrirkomulagi, sem gerir Finnum kleift að viðhalda við- skiptum sínum við bandalagið — án þess að gerast þátttakend ur að nokkru leyti í landbúnað- arstefnu EBE, Að öðru leyti vill Finnland komast að við- skiptasamningum við bandalag- ið í samræmi við 24. grein GATT-samningsins, en óskar ekki eftir neinu tollabandalagi. Loks er síðasta ósk Finna sú, að þeir geti haldið áfram hinum tollfrjálsu viðskiptum sínum við Rússa, en þau viðskipti hafa verið tollfrjáls síðasta áratug- iinn samkvæmt samningi milli landanna tveggja frá 1960. Finnar lýstu sig ánægða með niðurstöður fundarins. Næsti fundur verður haldinn 22. marz að tillögu EBE. í millitíðinini munu þó aðrir' fundiir verða haldnir af embættsmönnum um þessi efni öll.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.