Morgunblaðið - 02.02.1971, Síða 15

Morgunblaðið - 02.02.1971, Síða 15
MORGUNBLAÐJÐ, >RIÐJUÐAGUR 2. FEBRÚAR 1971 15 Tvennir tónleikar FYRRA misseri af starfsári sin- fómuhljómsveitarinmar lauk með tónleikum í Háskólabíói sl. fimmtudagskvöld. Magnificat eftir Monteveirdi, er hann samdi árið 1610, var fyrst á efnisskrántnd, en Pólýfón kórinn fór með kórhlutverkið. Monteverdi er hátt skrifaður í tónlistarsögumni, einkum fyrir afrek sín sem óperutónskáld, en einnig var harnn snjall kórtón- smiður, og samdi m.a. marga gullfallega madrigala. Verkið sem hér var flutt er forvitnilegt í kynningu. Að vísu mun þáttur hljómsveitarinnar hafa verið betrumbættur á síðustu öld, en kórhlutverkið flutt óbreytt. Pólýfónkórinn hefur sungið allra kóra fegurst á landi hér í meir en áratug, og hefur náð lengst í vönduðum flutningi á verkum eldri meistara. Það kom því mjög á óvart, þegar fyrir brá furðulegri ónákvæmni og grófheitum á stöku stað í þetta ■smn, og er ákaflega ólíkt þeirri fágun sem venjulega einkemnir kórmn. Má t.d. benda á staði eims og þegar karlaraddirnar sungu hinn langa frasa á orðinu „meo“ í upphafi verksins. í annan stað naut tær hljómur kórsins sín sæmilega í hinum hægu seigfljótandi laglínum, en var þó langt frá sínu bezta, enda var engu líkara en hljóm- sveit og kór kepptu hvort við annað í stað þess að vinna sam an. Svo virðist sem þessi ágæti kór sé mjög háður sínum fasta stjórnanda, Ingólfi Guðbrands- syni og með honum unnið þrek- virki á liðnum árum, nægi.r i því sambandi að minna á ó- gleymanlegan fluttning á h-moll messu Bachs 1968, en stjórnandi nú var Bohdan Wodiczko. virðingu og aðdáun á arfi kyn- slóðanna og snilli gamalla meist ara), jafnvel þó því stundum fylgi viss „músíkölsk óþægindi" fyrir suma. Pina Carmirelli og Árni Krist- jánsson héldu tónleika á vegum Tónlistarfélagsins í Austurbæj- arbíói sl. laugardag, og voru viðfangefnin sónötur eftir Moz art, Bach og Beethoven. í einleikssonötu Bachs reyndi á ágæta hæfni Carmirellis í þessu dýrt kveðna verki. Hin breiðu stef adagio kaflans, fúg an með sína rökvísu byggingu, fallegur largo þáttur, og hraður lokakaflinn, allt kom þetta prýðilega til skila og hljómaði vel á hennar frægu fiðlu. Samleikur þeirra Áma í són- ötum Mozarts og Beethovens var með miklum ágætum, og gaf Árni þar hvergi eftir. Þetta var samspil hinna þroskuðu lista- manna, er léku af yfirvegun, en létu þó gamminn geysa t.d. í tveimur síðustu köflum hinnar glæsilegu Kreutzer-sónötu Beet hovens, enda vel fagnað af þakk látum áheyrendum. í einu dagblaðanna sl. haust var þess farið á leit við Tónlist arfélagið að upplýsingar væru gefnar um þau verk er leika á hverju sinni, i stað þess að aug lýsa píanó í efnisskránni. Þetta hefur Tónlistarfélagið tekið til greina og bætt úr. Þakka skal það, sem vel er gert. F.gill R. Friðleifsson. Skrifstofuhúsnæði tif leigu Til leigu fjögurra herbergja skrifstofuhúsnæði neðariega við Laugaveginn. IMánari upplýsingar gefur: Málaflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar og Axels Einarssonar, Aðalstræti 6 sími: 26 200. Sólarkafti Vestfirðingafélagið á Suðurnesjum heldur sitt árlega sólar- kaffí í félagsheimilinu Stapa laugardaginn 6. febrúar og hefst kl. 8.30. Margt verður til skemmtunar. J.J. og Bert leika fyrir dansi. Aðgöngumiðar verða seldir í vefnaðarvörudeild Kaupfélags Suðurnesja föstudaginn 5. febrúar frá kl. 1—6 og við inn- ganginn. Vestfirðingar fjölmennið og takið með ykkur gesti. NEFNDIN. Tilboð óskast í sand- og malarnám og gróft undirlagsefni i Fífuhvammslandi. Tilboð sendist skrifstofu Ragnars Ölafssonar, hrl., Lauga- vegi 18, Reykjavík. Skrifstofuhúsnœði Nokkur samliggjandi skrifstofuherbergi í Miðborginni til leigu. Tilboð merkt: „Skrifstofur — 4860“ sendíst Morgunbl. Múioror! Múraror! Miðar á árshátið félagsins eru seldir á skrifstofunni daglega. Borð tekin frá í Sigtúni fimmtudaginn 4. febrúar milli kl. 4 og 6. Félagar fjölmennum og tökum með okkur gesti. SKEMMTINEFNDIN. Ljósmyndavörur — Útsala Seljum í dag og næstu daga, á stórlækkuðu verði, eftirtalda hluti, sem lítið eða ekkert sér á, en notaðir hafa verið sem sýnishorn í verzlun okkar. Isola og Isoly myndavélar, 6x6 format með hraða- og Ijósopsstillingum. Verð frá kr. 900.— Rapid myndavélar. Verð frá kr. 500.— Skuggamyndasýningavélar. Verð kr. 2000.— Kvikmyndatökuvélar. Verð frá kr. 5000.— Kvikmyndasýningavélar. Verð frá kr. 5000.— Ljósmyndaalbúm. Verð frá kr. 86.— TÝLI H.F., Austurstræti 20. Pina Carmirelli er vissulega ekki nein meðalmanneskja í sinni grein, en hún fór með einleikshlutverkið í fiðlukon- serti Bachs nr. 2 í E-dúr, og etns og manaði hljómsveitina til átaka, því leikur hennar var með ágætum. Oft hafa strengirn ir fengið orð í eyra, en í þetta sinn eru aðfinnslur óþarfar. Einkum var fyrsti kaflinn hressi lega leikinn, en heldur daprað ist flugið er á leið. Tónleikunum lauk með 5. sin- fóníu Schuberts, er hann skrif aði aðein.s 19 ára gamall, og ber þess merki að han.n hafi átt sér- lega létt með að semja. Verkið er fulit af indæliis laglínum og ljúfum hljómasamböndum og „laus við öll músíkölsk óþæg- indi“. Wodiczko stjórnaði liði sínu af natni og næmleik. Að setja saman efnisskrá er kúmst út af fyrir sig. Yngsta verk tónleikanna var 154 ára, það elzta 310 ára. Hvað með takt samtímans? Væri ekki hugs anlegt að raust nútímakompón- ista fengi oftar að hljóma við hlið þeirra eldri, (með fullri MYNDAMÓT HF. AÐALSTRÆTI 6 — REYKJAVlK PRENTMYNDAGERÐ SlMI 17152 OEFSET-EILMUR og plötur AUGLÝSINGATEIKNISTOFA SIMI 25810 Framleiðendur raftœkja Hö'um á lager vatns- og olíuhita- element frá hinu þekkta fyrirtæki i Svíþjóð. Ailar nánari upplýslngar gefur JOHAN RÖNNING HF. Skipholti 15, Reykjavík, sími 25 400. 20“ - Kr. 23710.- 24“ - Kr. 25.990.- NÝJAR GERÐIR AF HINUM GLÆSILEGU H. M. V. SJÓNVARPSTÆKJUM. TÆKNI- LEGAR NÝJUNGAR, S. S. TRANSISTORAR í STAÐ LAMPA AUKA ÞÆGINDI OG 'LÆKKA VIÐHALDSKOSTNAÐ. HAGSTÆÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR. FÁLKINN HF. SUÐURLANDSBRAUT 8, REYKJAVÍK.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.