Morgunblaðið - 09.03.1971, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.03.1971, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1971 . . 31 . . sagði Blackbrook hneykslaður. — Ég var rétt að segja yður, að Caleb kom ekki í jarðarförina hennar móður minnar, enda þótt hann væri þarna á staðnum. Og til hvers ætti ég þá að leggja á mig kostnað og fyrirhöfn tii að fylgja honum til grafar? — Nei, sannarlega ekki, sagði Jimmy og sýndi á sér fararsnið. — Vel á minnzt, getið þér bent mér á einhvern góðan gististað í Margate? Ég fæ nokkurra daga frí bráðum, og er að hugsa um að fara þangað, svo sem til tilbreytingar. CORTINA1971 — Þér fáið ekki annað betra en staðinn þar sem við gistum alltaf, sagði Blackbrook. Það er Eureka-hótelið, rétt við bað- ströndina. Þar er gott að vera og þar er útvarp, sem hefur danshljómlist á kvöldin. — Þakka yður fyrir, ég ætla að muna það. Hann kvaddi siðan og fór til Scotland Yard, og skrifaði Appleyard þaðan og skýrði í stuttu máli frá þvi, sem honum hafði orðið ágengt. Hanslet lögreglustjóri gerði eins og hann hafði lofað. Þeg- ar hann kom aftur frá Oxford hringdi hann í Harold Merefield, sem var ritari dr. Priestley og tjáði honum, að þeir Jimmy hefðu með höndum verkefni, sem gæti verið forvitnilegt fyrir gamla manninn. Útkoman varð sú, að þeir Jimmy voru boðn- ir til prófessorsins næstkomandi þriðjudagskvöld. Það var föst regla hjá Priestley, að með- an setið var að borðum skyldi ekki talað um annað en aimenn- ar fréttir, og ekkert skyldi trufla matarfriðinn. Það var því ekki fyrr en eftir mat, að dr. Priestley, Harold og gestir þeirra tveir minntust á verkefn- ið, sem Jimmy hafði með hönd- um. — Það er skrítið, hvernig þetta gerist stundum, prófessor, sagði Hanslet. f vikunni sem GLÆSILEGT LITAÚRVAL AF SÖNDERBORG PRJÚNAGARNI Freasia Gloria Verzlunin DALUR Framnesvegi 2, Sími 10485. Hin kunna dansk- norska visnasöngkona (á leiðinni frá tón- leikum í Elisabeth Hail i Lundúnum til tónleika í New York) Birgitte Grimstad heldur tvær söngskemmtanir í Norræna Húsinu: þriðjudaginn 9. og miðvikudaginn 10. marz kl. 20,30. Ólíkar efnisskrár. Eiginn gitarundir.eikur. Úr blaðadómum: ,,an artist of rare quality'' „a very Iong time since I enjoyed a recital so much" ,,a genuine artist" „she is defiant and hard, she is romantíc and warm" „Masterful ballad singing" „a whole world of musicality, wit and humor" „a truly superior talent". Aðgöngumiðar á kr 150.00 í Norræna Húsinu daglega kl. 9—16. Sími 17030. — Hjartanlega velkomin. NORR€NA HUSIÐ POHJOLAN TAIO NORDENS HUS leið sendi ég Jimmy til Lyden- bridge, vestur í landi, til þess að elta uppi óaldarflokk, sem við vissum, að var á leiðinni þangað. En hann var ekki bú- inn að vera þar meira en klukkutíma, þegar hann lenti í máli, sem líkist óvenjumikið morði. Vilduð þér heyra alla sög una? Hún er að minnsta kosti eftirtektarverðari en nokkurt af hinu, sem ég sagði yður frá siðast. — Svipurinn á Priestley varð allur að brosi. — Þér vitið nú fyrir löngu, hve veikur ég er fyrir öllu, sem óvenjulegt er, sagði hann. — Ef fulltrú- inn riennir að segja mér söguna, skal það verða mér ánægja að hlusta á hana. Jimmy rakti þvi ýtarlega at- vikin að dauða Calebs og rann- sóknir þeirra í sambandi við hann. Það gladdi hann, að áður en frásögninni var langt komið, benti Priestley Harold að ná sér í blað og blýant, en það var ör- uggt merki þess, að áhugi hans var vakinn. Priestley gerði enga athuga- semd fyrr en Jimmy hafði iok- ið máli sínu. Þá sagði hann: — Aðalgallinn á þessu máli öllu er sá, að enginn virðist geta hafa haft neinn tilgang með því að myrða manninn, — ef hann þá hefur verið myrtur. — Það hefur hann áreiðan- lega verið, sagði Jimmy. Ég vona að við höfum gert yður ljóst hið óvenjulega ástand, sem rikti í Farningcote-klaustrinu. Það er ekki ofsagt, að ættin hef- ur komizt í fullkomna örbirgð aðeins fyrir trúna á einhverja heimskulega ættarsögn: „Meðan þessi turn er uppistandandi, skal Glapthorneættin búa í Klaustr- inu.“ Hefði ekki verið þessi hrokafulla áletrun, hefðu þeir selt eignina meðan eitthvað var upp úr henni að hafa, og hefðu þá getað lifað sæmilegu lífi. Hanslet snuggaði eitthvað og trúði þessu ekki. — Viltu segja mér að upplýst nútímafólk trúi á aðra eins vitleysu og þetta er? sagði hann. — Það gerir Símon gamli Glapthorne áreiðanlega, og allt bendir til þess, að Caleb Pörulaust Ali Bacon Við skerum pöruna frá fyrir yður. Þoð er yðar hagur. Biðjið því kaupmann yðar aðeins um ALI BACON. SlLD FISKUR AKRA karamellur Hann öskrar óvenju hátt en það stafar örugglega ekki af þorsta. hafi verið sama sinnis, sagði Jimmy. — Kallaðu það hjátrú ef þú vilt. Fjöldi fólks er nógu hjátrúarfullur til að trúa á ann að eins og þetta. Og þeir hafa alltaf trúað því, að meðan turn- inn standi, sé hugsanlegt, að gæfa þeirra geti verið væntan- leg. Og loks verður þetta að þrá hyggju. — Og hvað haldið þér um möguleikana á slikri breyt- ingu til batnaðar? sagði Priest- ley. — Ég er hræddur um, að von- in sé heldur lítil, sagði Jimmy. Og þó væri það hugsanlegt, að Benjamín, sem er siðastur af ætt inni, græði það mikið, að hann geti forðað eigninni frá nauð- ungarsölu. — Annar vélstjóri á farmskipi græðir nú sjaldan nein ósköp, sagði Hanslet með fyrirlitningu. — Nei, ekki að jafnaði, skal ég játa. En hugsum okkur nú til dæmis, að Benjamín fyndi upp einhverjar umbætur á véla- útbúnaði skipa. Nei, ég veit það annars ekki. Það er heimskulegt að láta sér detta það í hug. En þegar manni verður hugsað til þessarar tröllatrúar Símonar gamla, er erfitt að hugsa sér, að þar liggi ekkert að baki. — Mér þætti nú nær að at- huga hugsanir ættföðurins, sagði Priestley. — Hvaða trú hafði Thaddeus Glapthorne á þessari áletrun? — Það er ekki vitað, sagði Jimmy. — En trúin virðist hafa gengið að erfðum til afkomenda hans. -— Og hann virðist hafa eftir- látið þeim, til eftirbreytni, nokkra ritningarstaði, sagði Priestley. — Sögðuð þér ekki, að í ættarbiblíunni hafi eitthvað verið skrifað með hendi Thadde- usar, sem kallað var: „Ritning- arstaðir handa ætt minni“ ? — Stendur heima. Hvernig sem fortíð Thaddeusar kann að hafa verið, þá virðist hann hafa snúið sér að biblíunni á efri ár- um. Ég tók eftir þvi í bókinni, að öll börnin báru einhver bibliunöfn, og þeim sið hafði verið haldið, allt til vorra daga. — Hefur yður dottið í hug að athuga þessa ritningarstaði, sem Thaddeus skildi eftir handa ætt- inni? sagði Priestley. — Nei, ekki var nú það, sagði Jimmy, — en ég krotaði þá hjá mér eg er með þá skrá með mér núna. —- Þá getur Harold náð í biblíu og við skulum svo athuga þá saman. Þér gefið mér staðina í réttri röð, og svo les Harold þá upp jafnharðan. — Sá fyrsti er Jesaja 34. 16, sagði Jimmy. Harold fletti bókinni þangað til hann fann staðinn: „Leitið í bók Jahve og lesið: Ekkert af þeim vantar, ekkert þeirra sakn ar annars, því að munnur Jahve hefur svo um boðið, og það er andi hans, sem hefur stefnt þeim saman.“ Allar tegundlr f útvarpstwk), vasaljóa og leik- tcng alltaf fyrlrliggjandl. Aðeins I lieildsölu til ventlana. Fljót afgreiðsla. HNITBERG HF. öldugðtu 18, Rvlk. — Slml 2 28 12. Sinfóníuhljómsveit íslnnds Tónleikar í Háskólabíói fimmtudaginn 11. marz kl. 21:00. Stjórnandi: Bodhan Wodiczko. Einleikari: Rafael Orozco. Efnisskrá: Konsert fyrir hljómsveit eftir Herbert H. Ágústsson, píanókonsert nr. 2 eftir Prokofjeff og sinfónía nr. 2 eftir Beet- hoven. Aðgöngumiðar seldir í bókabúð Lárusar Blöndal og bóka- verzlun Sigfúsar Eymundssonar. {; 11 11 11 11 11 ii 11 11 11 11 ii ii ii ii n n ii ii ii ii i Algjör nýjung Sjúkra-og 1 VHrlngið og leitið lilboða. ÍALMENNAR TRYGGINGAR” Ij PÓSTHÚSSTHXETI • SIMI1770Q /i :==========™5>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.