Morgunblaðið - 25.03.1971, Page 18
18
MORGUNRL.AÐÍB, FIMMTUÐAGUR 25. MARZ 1971
Verður einvaldurinn
atvinnulaus
*
— ef Island sigrar?
NORSK blöð eru þegar byrj
uð að skrífa um knattspyruu
landsleik ísiendinga og Norð-
manna, sem fram á að fara
ytra 26. maí nJs.T og byrjað
er að bollaleggja um þá
menn sena spila í norska lið-
ínu. Munu norskir atvinnu-
menn sem leika með hollenzk
um knattspyrnuliðum verða
kallaðir heím til Noregs tií
leiksins og eru þar einkum
tilnefndir þeir Harry Hestad,
Harald Berg og Finn See-
mann. Greinilegt er, að Norð
menn leggja mikla áherzlu á
að sigra með göðum marka-
mum í leiknum við íslend-
inga, þar sem þeir eru sárir
eftir tapið í fyrrasumar, og
er þegar farið að tala um að
norski landsiiðseinvaldurinn
komi til með að verða at-
vínnulaus í sumar, ef ekki
takist að vinna yfirburðasig
ur yfir fslendingum.
KR átti í erfiðleik-
um með Þrótt
KR-INGAR sluppu með skrekk-
inn í leik sínum við Þrótt í 2.
deild í handknattleik. Leikurinn
var lengst af mjög jafn, og Þrótt-
ararnir þó öllu betri aðilinn á
vellinum, en er fáeinar mínútur
voru eftir af leiknum tókst KR
loks að ná nokknrri forystu og
sigra með 20 mörkum gegn 18.
Stendur því enn sem fyrr bar-
áttan miUi þeirra og Ármenn
inga um sæti í 1. deild að ári, en
Ármenningar eiga eftir að leika
tvo leiki á Akureyri, og þurfa að
vinna þá báða til þess að fá úr-
slitaleik við KR.
Sem fyrr segir voru Þrótfcarar
lengst af betri aðilirrn í leiknum
á liaugardaginn, og átfu sinn
bezta leik uim nokkuim tíma.
Eimkum voru urrgu miennirnir í
iiðinu athyglisverðir og sýndu
Skemimtileg tilþrif. Ef þessir pilit-
ar halda áfram og bæta vi@, þarf
Þróttur engu að kvíða í framtíð-
inini. f hálifleik var staðan 10:9
fyrir KR, og þegar aðeins rúm-
lega 10 mínúfcur voru til leiks-
loka var staðan 13:13 og alít virt-
ist geta gerzt. En eftir það losn-
aði leikurinn nokkuð úr böndun-
uim og Þróttaramir misnotuðu
tvívegis tækifæri til þess að kom
ast yfir, leikreynslan kom KR-
inguan að notum og þeir sígruðu
í Ieiknum.
KR-liðið var ekkí nógu sann-
færandi í þessum leik, og ekkert
vafamái að miðað við hann á lið-
ið tæplega erindi í hina höirðu
keppni 1. deildarinnar. Hins veg-
ar hefur KR svo ágætum leik-
mönnum yfir að ráða, að mifcki
meira á að vera hæ-gt að fá út úr
Mðinu. Beztu mennirnir voru
Hilanar Björnsson, lanidsliðsþjálif-
ari, sem skoraði lanigflest mörk
KR-ingarma, og ,,gamli“ maður-
inn, Karl Jóhannsson, sera enn
sýnir mörg af þeim tilbrifuim, er
hann sýndi þegar harín var upp
á sítt bezta.
í Þróttarliðinu vafcti Traiusti
Þorgrímsson sérstafca athygli.
Þar er á ferðmni Jeikmaður sem
mikils má af vænita. Og í heild
virðist Þróttarliðið koma mun
botttr út, þegar hinum ungu eru
gefin tækifæri.
Óskar Sigurpálsson /afnhendir 175 kíló
Mörg lyftingamet á meistaramóti
*
— Oskar Sigurpálsson jafnhattaði 175 kg.
MEISTARAMOT Islands í lyft-
ingum fór fram sl. sunnudag í
fþróttahúsi Háskólans. — Mikil
þátttaka var í mótinu, sem fór
vel fram, og var lyftingamönn-
um okkar til mikils sóma. Mik-
ill fjöldi meta litu nú dagsins
Ijós, og ber þar hæst fslands-
met Óskars Sigurpálssonar, en
hann setti nýtt met í jafnhend
ingu, lyfti hann 175 kg, en
gamla metið var 170 kg. Kepp
endur voru frá Akureyri, Hafn
arfirði, Selfossi (en Selfoss
sendi nú í fyrsta sinn keppend-
ur í opinbert Iyftingamót), Vest
mannaeyjum og Reykjavík. —
AIls voru sett 6 íslandsmet, tvö
voru jöfnuð, 2 drengjamet og
12 héraðsmet.
Helztu úrslit urðu þessi:
FLUGUVIGT
__ íslandsmeistari Kári Elíasson,
Ármanni.
Pressa 52 kg. Snörun 55 kg.
(metjöfnun). Jafnhending 77,5
kg. (metjöfnun). Alls 182,5 kg.
FJAÐURVIGT
fslandsmeistari Asþór Ragnars
son, Ármanni.
Pressa 65 kg. Snörun 70 kg.
Jafnhending 90 kg. Alls 225 kg.
LÉTTVIGT
íslandsmeistari Rúnar Gísla-
son, Ármanni.
Pressa 90,5 kg. Snörun 83 kg.
Jafnhending 107,5 kg. Alls 281
kg. Allir árangrar Rúnars eru
ný íslandsmet.
MILUVIGT
íslandmeistari
jónsson, Þór.
Pressa 85 kg.
Jafnhending 105
Pressa 130 kg. (íslandsmet).
Björgvin Sigur ; Snörun 95 kg. Jafnhending 125
kg. Alls 350 kg.
G. K.
Snörun 80 kg.
kg. Alls 270 kg.
Lokastaðan
í 1. deild
LOKASTAÐAN í 1. deild Is-
landsmótsins í handknattleik
varð þessi:
Valur
10 802 198:169 16
FH 10 7 2 1 198:187 16
Fram 10 5 1 4 191:193 11
Haukar 10 3 2 5 181:179 8
ÍR 10 2 2 6 188:201 6
Vík. 10 037 175:202 3
Markhæstu leikmenn í mótinu:
mörk:
Geir Hallsteinsson, FH 61
Þórarinn Ragnarss., Hauk. 52
Vilhj. Sigurgeirsson, ÍR 47
Ólafur H. Jónsson, Val 41
Axel Axelsson, Fram 40
Brynjólfur Markússon, ÍR 40
Bergur Guðnason, Val 38
Ólafur Einarsson, FH 37
Pálmi Pálmason, Fram 36
Einar Magnússon, Viking 33
Stefán Jónsson, Haukum 31
Viðar Símonarson, Haukum 29
Guðjón Magnússon, Víking 28
Jón Hjaltalín, Víking 28
Örn Hallsteinsson, FH 28
Ólafur Ólafsson, Haukum 27
Birgir Björnsson, FH 25
Jón Karlsson, Val 25
Hermann Gunnarsson, Val 24
Björgvin Björgvinss., Fram 24
Georg Gunnarsson, Víking 24
Þórarinn Tyrfingsson, ÍR 23
Ásgeir Elíasson, ÍR 22
Gylfi Jóhannesson, Fram 22
Jóhannes Gunnarsson,. ÍR 20
LETTÞUNGAVIGT
íslandsmeistari Gunnar AI-
freðsson, Ármanni.
Pressa 132,5 kg. Snörun. 95 kg.
Jafnhending 135 kg. Alls 362,5
kg. Mjog góð þátttaka var í
þessum flokki, m.a. kepptu þar
þrír Selfyssingar, og stóðu þeir
sig allir vel í sinni fyrstu
keppni.
MILLIÞUNGAVIGT
íslandsmeistari Guðmundur
Sigurðsson, Ármanni.
Pressa 147,5 kg. Snörun 125
kg. Jafnhending 160 kg. Alls
432.5 kg. Guðmundur reyndi við
nýtt íslandsmet í jafnhendingu,
reyndi að lyfta 175 kg, og var
nærri því að takast. Hörku-
keppni var um 2. verðlaun í
þesisum flokki milli Ármenning
anna Björns Ingvarssonar og
Stefáns Valdimarssonar og sigr
aði Björn, lyfti 345 kg.
ÞUNGAVIGT
fslandsmeistari Óskar Sigur-
pálsson, Ármanni.
Pressa 160 kg. Snörun 122,5
kg. (metjöfnun). Jafnhending
175 kg, nýtt íslandsmet. Alls
457.5 kg.
Leikur meistaranna
YFIRÞUN G A VIGT
íslandsmeistari Björn
son, KR.
Lárus-
Þessi mviid er úr leik
NJt. laugardag
Akraness og Fram í meistarakeppni KSÍ.
leika Fram og IBK í Keflavík.
íslandsmeistaramót
í fimleikum
Velðlaunahafar á ly ftinganiótinu
ÁKVEÐIÐ er að meistaramóit í
fimleikum 1971 verði haidið dag
ana 31. marz, 1. apríl og 3. apríl.
Fyrirkomulag keppninnar er
nokkuð breytt frá fyrri íslands
mótum, og fjölbreyttara en áð-
ur:
31. marz kl. 29.06, fer fram
keppni í skylduæfingum kvenna
í íþróttafiúsi Háskólans.
Keppt verður í þessum grein-
um:
1. Stökk á hesti
2. Æfingar á dýnu
3. Æfingar á gólfi með músik.
Yfirdómari verður frú Sigríð-
ur Valgeirsdóttir.
1. apríl kl. 20,00 fer fram
keppni í skylduæfingum karla í
íþróttahúsi Háskólans.
Keppt verður í þessum grein-
um:
1. Æfingar á svifrá
2. Æfingar á tvislá
3. Æfingar í köðlum
4. Æfingar á hesti
5. Æfingar á dýnu
6. Æfingar á gólfi
Yfirdómari verður Valdimar
Örnólfsson.
3. apríl kl. 14,30 í Laugardals-
höllinni fer fram Iokaþáttur
keppninnar með frjálsum æfing
um í öllum framangreindum
greínum. — Verðlaunaafhending
verður strax að lokinni keppni.
Fimleikasýningar verða á
milli atriða. Eru þar á ferðinni
drengjaflokkar úr Vestmanna-
eyjum og Reykjavík undir
stjórn þeirra Gísla Magnússonar
og Ásgeirs Pálssonar.
Fimleikasamband Islands von
ar, að þessar breytingar á fyrir
komulagi mótsins verði öllum
til hagræðis, keppendum, starfs-
mönnum og gestum.
(Frétt frá Fimleikasam-
bandi fslands).