Morgunblaðið - 25.03.1971, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1971
FH-ingar Islandsmeistarar
eftir 12-10 sigur gegn Val
Bæði liðin sýndu stórkostlegan
varnarleik og góða markvörzlu
Reynslan var FH-ingum nota-
drjúg — Dæmt 121 aukakast
FH-ingar urðu Islandsmeistarar
eftúr einn skemmtilegasta og
mest spennandi leik sem leikinn
hefur verið í Laugardalshöllinni.
Var sigur þeirra í leiknum 12:10
sanngjam eftir gangi leiksins,
sem þó var frá byrjun til enda
eins jafn og hann gat orðið. En
þegar mest á reyndi kom reynsl-
an FH-ingum til góða og tauga-
spennan var ekki eins mikil hjá
þeim og Valsmönnum, sem gerðu
nokkrar afdrifaríkar skyssur, í
sóknarleik sínum sem faerði FH-
ingum boltann.
Fessi úrslitaleikur einkenndist
annars mjög af frábærum varn-
arleik beggja liða og góðri mark
vötrzlu. Hafa FH-ingar sennilega
aldrei, hvorki fyrr né síðar, náð
»ð spila svo þétta og ömgga
vöm og segir það út af fyrir sig
mikla sögu að i síðari háifleik
skoruðu Valsmenn aðeins f jögur
mörk — þrjú úr vitaköstum og
eitt eftir hraðaupphlaup. FH-ing
ar gáfu aldrei nein grið í vöra
hrmi, komu fram á móti mönn-
unum og hindruðu þá f að fá
færi til þess að skjóta. Ef svo
Valsmenn náðu að skapa sér færi
varði Birgir Finnbogason í FH-
markinu, «11 hann stóð sig frá-
bærlega vel i þessum leik.
En Valsvömin stóð einnig fyr
Ir sinii, eins og oftast áður. Lék
hún mjög svipað og FH-vömin,
en beittiir sóknarleikur FH-inga
tókst þó stundum að opna hana.
<f>iafnr Benediktsson var í marld
Valsmanna lengst af og varði
hvað eftir annað frábærlega vel.
Þannig má nefna sem dæmi, að
eitt sinn komst Geir Hallsteins-
son inn i sendingu, brunaði upp
og stökk næstum inn í mark
Valsmanna. En Ólafur var vel á
verði, reiknaði skot Geirs út og
varði.
VALSMENN HÖFÐU
YFIR f HÁLFLEIK
Það leyndi sér ekki þegar leik
urinn hófst, að leikmenn beggja
Jiða voru þrúgaðir af tauga-
spennu. FH-ingar byrjuðu með
boltann, en tókst ekki að skora
í fyrstu sókninni. Þeir náðu bolt-
anvm aftur og Geir Hallsteins-
son, markakóngurinn í 1. deild,
skoraði fyrsta markið. Skömmu
síðar bættu FH-ingar öðru
marki við. Var þar Ólafur
Einarsson að verki, sem stökk
upp fyrir framan vörn Vals-
manna og skoraði, að því
er virtist fyrirhafnarlaust. Oft-
sinnis síðar í þessum leik
reyndi Ólafur siðan að leika
þetta aftur, en alltaf voru Vals-
menn vel á verði og tókst að
stöðva hann áður en skotið reið
af. Á þessum fyrstu mínútum
voru Valsmenn áberandi óstyrk
ir og sóknarleikur þeirra hik-
andi og fálmandi. Hefðu FH-
ingar jafnvel átt að ná meira
forskoti, þar sem þeir áttu tvö
stangarskot, áður en fyrsta
mark Vals kom.
Eftir misheppnaða sókn FH-
inga hófu svo Valsmenn hraða-
upphlaup á 7. mínútu, sem end
aði með því að Ágúst ögmunds-
son var frír í vinstra horninu
og átti auðvelt með að skora.
Þar með var tónninn gefinn fyrir
Valsmenn, sem skoruðu þrjú
næstu mörk og breyttu stöð-
unni í 4—2 sér í vil, þegar 12
mínútur voru af leik. Mörkin
gerðu Bjarni Jónsson með glæsi
legu langskoti, Ágúst Ögmunds-
son eftir svipað hraðaupphlaup
og þegar fyrsta mark Vals-
manna kom og loks Bergur úr
vítakasti. Þegar svo var komið
hefur eflaust mörgum dottið í
hug að sagan úr leik liðanna um
daginn ætlaði að endurtaka sig,
en þá sigruðu Valsmenn með
miklum mun.
En FH-ingar voru ekki á þeim
buxunum að láta fara þannig
með sig aftur. Geir skoraði 3
mark þeirra á þann hátt sem
honum er einum lagið. Hátt npp-
stökk og þnimuskot. Síðan kom
tiu minútna kafli í leiknum seim
ekkert mark var gert og sýndu
varnir liðanna sina beztu hlið í
þessum leikkafla. Siðan fann
hinn bráðefnilegi Jónas Magnús
son smásmiigu inn á Unu hjá
Valsmönnum og var þá ekki að
sökum að spyrja. Boltinn lá í net
inu. Aftur var jafnt 4-4 og
skömmu síðar náðu FH-ingar
aftur forystnnni mcð marki frá
Birgi. Þegar rúmlega 1 mínúta
var til loka hálfleiksins jafnaði
Hermann fyrir Val, og FH-ingar
voru síðan fullbráðir á sér, í
eina skiptið f leiknum, er þeir
reyndu markskot þegar um hálf
minúta var eftir. Valsmenn voru
fljótir að snúa vöm í sókn og Ól-
afur skoraði síðasta mark hálf-
leiksins. Staðan var 6-5 fyrir Val.
.Tafnari gat leikurinn tæpast ver-
ið og úrslitin tvísýnni.
TVEGGJA MARKA
FORYSTA Á VÍXL
Valsmönnum tókst að auka for
skot sitt þegar á fyrstu mínútu
síðari hálfleiks, er dæmt var víta
kast á FH, sem Bergur skoraði
örugglega úr. En eftir þetta var
Jónas Magnússon — einn af beztu og öruggustu mönnum FH í úrslitaleiknum, hefur þarna fundið
smásmugu á Valsvörninni, sem hann notfærði sér og skorar. —
leiðin í netmöskva FH-marksins
næsta ógreiðfær og Valsaðdáend-
ur þurftu að bíða í heilar 16 min
útur eftir marki frá sínum mönn-
um. Á þessum mínútum tókst
FH-ingum hins vegar að skora
fjögur mörk og breyta stöðunni
í 9-7. Þegar 13 mínútur voru til
leiksloka var dæmt vítakast á
FH, og var það nokkuð strangur
dómur. Bergur tók kastið og skor
aði. Staðan var þar með orðin
9-8 fyrir FH og allt gat gerzt,
ekki sízt vegna þess, að nú var
greinilegt að spennan var kom-
in í l'.ámarlc hjá FH-ingum.
BIRGIR VER VÍTAKAST
Þegar 12 mínútur voru til leiks
loka var enn dæmt vítakast á
FH og Bergur var sendur fram.
Á miklu reið fyrir Valsmenn að
nýta þennan góða möguleika,
og jafnframt var áríðandi fyrir
FH að forðast markið. Og það
tókst. Skot Bergs var engan veg-
inn misheppnað, en skjótur sem
Varnarleikur beggja liðanna var nokkuð átakamikill, en þó aldrei
grófur. Hér er ólafur H. Jónsson að reyna að finna sér skotfæri,
en FH-ingarnir taka hraustlega á móti honum. — (Ljósm. Mbl.:
Sveinn Þormóðsson).
elding tókst Birgi að verja. Virt-
ist sem með þessu atviki yrðu
nokkur þáttaskil í leiknum. FH-
ingar fögnuðu gifurlega og tví-
efldust, en Valmenn virtust hins
vegar brotna nokkuð niður og
þrátt fyrir að Hermanni tækist
að jafna 9—9 úr vítakasti, var
FH greinilega öruggari og betri
aðilinn á vellinum síðiistu minút-
urnar.
Birgir Björnsson færði þeim
forystuna aftur með marki úr
vítakasti þegar 7 minútur voru
eftir og Kristján Stefánsson jók
forskotið í tvö mörk skömmu
síðar. FH-ingar fengu síðan gull-
ið tækifæri til þess að bæta enn
við, er þeir náðu boltanum frá
Valsmönnum og hófu hraða-
upphlaup.
En skyndilega snerist dæmið við.
Valsmenn náðu boltanum og Ól-
afur skoraði 10. mark Vals. Stað-
an var 11-10 fyrir FH og spennan
orðin slík, að mestu aðdáendur
liðanna þorðu varla að fylgjast
með leiknum.
En rúmlega tveimur minútum
fyrir leikslok kom svo markið,
sem tryggði FH íslandsmeistara-
titilinn. Þar var Jónas Magnús-
son að verki, sem smeygði sér
inn í örlitla glufu í Valsvörninni
Valsmenn gerðu síðan örvænt-
ingarfullar tilraunir til þess að
skora, en FH-vömin stóðsl öll
áhlaup og sekúndurnar liðu. —
Loks var leikurinn flautaður af
og FH-ingar og aðdácndur þeirra
þustu fram á völlinn og dönsuðu
sannkallaðan stríðsdans. Mikilli
baiáttu uin íslandsmeistaralitil-
inn var lokið. — Baráttu, sem
kcvtað hefur margar stundir og
svitadropa.
ALDREI BETRI
HANDKNATTLEIKUR
Það leikur tæpast á t.v eim tung
um að handknat.tleikur íslenzkra
liða hefur aldrei verið betri en
í vetur iné íslandsmótið eins tví-
týnt og spennandi. Þessi leikur
var sannarlega hámark mótsins
og góður samnefnari fyrir þá
spennu og tvísýnu sem verið lief
ur í leikjunum. En jafnframt er
þetta sennilega einn allra bezti
leikur sem islenzk félagslið hafa
háð sin á milli. Að visu var a«ð
séð að leikmenmimir vom tnuga
spenntir um of og kom það eink
um fram i sóknarleik þeirira, en
vamimar og markvarzlan hjá
báðum liðum var edns og bezt
getur gerzt. Er greinilegt að ís-
lenzkir handknattleiksmenn hafa
tekið geysilegum framfönim i
varnarleik í vetur, og má segja
að mikið sé með þ\4 fengið, þar
sem hann hefur löngum verið
veikasti hlekkurinn hjá þeim.
121 AUKAKAST
Dómarar í leiknum vom þeir
Björn Kristjánsson og Karl Jó-
hannsson og skiluðu þeir hlut-
verki sínu vel. Voru þeir mjög
ákveðnir þegar frá byrjun og
tókst að halda leiknum niðri. En
oft urðu þeir að grípa til flaut-
unnar og aukaköstin voru
hvorki fleiri né færri en 121.
Það eina sem hefði mátt finna
að hjá dómurunum var að nokk
uð miðræmi var í túlkun þeirra
á vítakastbrotum. Bjöm var þar
greinilega til muna strangari og
dæmdi a.m.k. einu sinni víta-
kast á FH á brot, sem var hlið-
sætt þeim, sem FH-ingar fengu
aðeins aukakast á.
I STUTTU MÁLI
fslandsmeistarar 1971: Flm-
leikafélag Hafnarf jarðar, er sigr
aði VaJ 12:10.
Mörldn: FH: Geir 2, Birgir 2,
Kristján 3, Jónas 2, Óla fur 1, Öm
1 og Þorvaldur 1. Valur: Bergur
3, Ágúst 2, Hermann 2, Ólafur 2
og Bjarni 1.
Dómarar: Karl Jóhannsson og
Bjöm Kristjánsson og dæmdtii
erfiðan leik vel.
Vikið af leikvelli: VaJur: Jén
Karlsson í 2 míniitiur.
Beztu leikmenn: FH: 1. Birgir
Finnbogason, 2. Kristján Stefáns
son, 3. Geir Hiallsteinsson. Valur:
1. Ólafur Benediktsson, 2. ólalur
Jónsson, 3. Stefán Gunnarsson.
Leikurinn: Góður samnefnari
fyrir þá mörgu skemmtilegu og
spennandi leiki sem leiknir liafa
verið í þessu fslandsmóti. Senni-
lega bezti leikurinn sem íslenzk
félagslið hafa liáð sín á milli.
— stjl.