Morgunblaðið - 16.06.1971, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MEÐVIKUDAGUR 16. JIÚNÍ 1971
Svíþjóð:
Verkamenn
boða skyndiverkföll
STOKKHÓLMI 15. júní — NTB.
• Stjómir sambands sænskra
tmiburverkamanna, járn- og
málmiðnaóarverkaman’ ■ bafa
setið á fundum í d. þess
að ræða boðun skynu., critfalla
innan þesara iðngreina á næst-
unni. Sömuleiðis hefur samband
verkamanna í timburiðnaðinum
boðað skyndiverkföll, sem ná
munu tfl 3—4 þús. manna.
Fylgja fundir þessir í kjölfar
ákvarðana sambanda flutninga-
og byggmgaverkaírnanna uim að
standa fyrir skyndi verkf öllu m
raeðal félagsmanna sinna og bú-
izt er við sarns konar aðgerðum
margra annarra fagfélaga innan
sænsSka ailþýðusambandsins. Á
morgun er t. d. fundur hjá
stjóm sambandis námaverka-
marma en sikyndiverkföttl þeirra
eru sögð ná til a.m.k. 1000 verka-
manna við námumar í Mið-
Sváþjóð og Boliden námumar í
Vesterbotten.
Samninigaviðræðum er haldið
áfram millli deiluaðila undir for-
ystu Jaria Hjailmars.sons og
munu verkalýðBifólögin ekkert
haifasit að meðan þeim er haldið
áfram.
0
íÆ
Gæzluvöll-
ur við
Lindar-
götuskóla
EINS og undanfarin sumur verð-
ur starfræktur gæzluvöllur á:
skólalóð Lindargötuskólans fyr-
ir tveggja til fimm ára börn. —
Verður gæzla þar frá kl. 9—12
árdegis og 2—5 síðdegis, nema á
laugardögum frá kl. 9—12 árd.
Við Fróðá.
„Ný Fróðárundur44:
Fróðá keypt til fiskiræktar
197 metra laxastigi opnaður
í Svartá í vikulokin
NOKKRIR áhugamenn um
fiskeldi og fiskirækt hafa tek-
ið á leigu Fróðá á Snæfells-
nesi í snmar og eru fram-
kvæmdir hafnar við að bæta
gönguskilyrði fyrir fisk í
ánni og búa til fallega veiði-
staði. I haust verður svo
væntanlega gengið frá kaup-
um á Fróðárjörðinni og ánni.
„Við vonum að okkur takist
að skapa ný Fróðárundur,“
sagði Jakob Hafstein við
Morgunblaðið, „en þessi nýju
undur verða í fiskiræktinni."
Þá sagði Jakob, að Veiðivötn
h.f., en hann er ritari þess
félags, myndu í vikulokin
opna i Svartá i Skagafirði,
einhvern lengsta og mesta
Iaxastiga á landinu — 197
metra langan með 14 metra
dýpt fremst og er kostnaður
við þennan stiga þegar orð-
inn um 2,4 milljónir króna.
Fróðá á Snæfellsnesi er lítil
á, 8—10 kílómetrar, þegar
allt er taTið og þolir ekki
meira en tvær stangir á dag
að sögn Jakobs. „En það er
fiskiræktin, sem við höfum
áhuga á,“ segir hann, „og til
hennar er áin mjög vel fallin.
Við getum einnig notað Fróð-
árvaðalinn, en inni í honum
gætir sjávarfalla.
Sem stendur bendir allt til,
að við getum verið ánægðir
með aðstæður vestra og verð-
ur þá í haust gengið frá kaup-
um á jörðinni og ánni.“
Sagði Jakob að ef færi sem
horfir, myndu þeir félagar
sieppa talsverðu magni af
laxaseiðum í Fróðá strax í
haust, en til framtíðarverk-
efna heyrði m.a. að tryggja
rennsli árinnar með vatns-
miðlun ofan frá Seljadal.
Veiðivötn h.f. tóku Svartá
fyrir ofan Reykjafoss á leigu
fyrir þremur árum og er þar
um 25—30 kilómetra langt
vatnasvæði að ræða. Miklu
magni af laxaseiðum hefur
verið sleppt í ána og sem fyrr
segir verður nú í vikulokin
opnaður þar 197 metra lang-
ur laxastigi. Formaður Veiði-
vatna h.f. er Indriði G. Þor-
steinsson, ritstjóri og gjald-
keri Haukur Þ. Benediktsson,
forstjóri Borgarspítalans.
Settur prestur
á Hvanneyri
SÉRA KRISTJÁN Róbertsson,
sóknarprestur á Siglufirði, hefur
samkvæmt eigin ósk verið sett-
ur sóknarprestur að Hvanneyri
í Borgarfirði frá 1. júlí n.k.
Biskup Islands hefur aug-
lýst Siglufjarðarprestakall laust
til umsóknar og er umsóknar-
frestur til 15. júli, að því er seg-
ir í frétt sem Mbl. barst frá
skrifstofu biskups.
Óbreytt
veður?
Chiang vill
ekki gef a sig
Taipei, 15. júní. — AP
CHIANG Kai-Shek, forseti For-
mósu, fór í gær höróum orðum
um þá meðlimi stjórnar hans
sem hafa ráðlagt breytingar á
stefnu Formósu vegna sóknar
Kinverska alþýðulýðveldisins á
vettvangi heimsstjórnmála. 1
langri yfirlýsingu sem forsetinn
sendi öryggisráði sinu, virðist
hann einnig útiloka að fylgt
verði tiflögum Bandaríkjastjórn-
ar um tiisiakanir af hálfu For-
mósu, til að reyna að koma í
veg fyrir ósigur þegar enn einu
sinni verða greidd atkvæði um
aðild Kína að Sameinuðu þjóð-
unum í haust.
Chiang sagði að á síðustu
Framhald á bls. 27.
16skipseldufyr
SEXTÁN íslenzk skip seldu
tuttugu sinnum i Danmörku og
Þýzkalandi á timabilinu frá 7.
til 12. júní sl., samtals 1.081,4
Iestir af síld fyrir 14.313 þúsund
krónur og er meðalverðið 13,24
krónur hvert kíló. Hæsta meðal-
verði náði Þorsteinn RE, sem
seldi 57,9 lestir í Þýzkaiandi fyr-
ir 1.174.376 krónur — meðalverð
á kíló 20,28 krónur, en mesta
sölu hafði Loftur Baidvinsson,
EA, sem seldi 84,8 lestir í Dan-
mörku fyrir 1.215,300 krónur —
meðalverð 14,33 kr. fyrir kílóið.
Að auki seldu skipin svo 286
lestir í gúanó fyrir 939.365 kr.
— meðalverð 3,28 kr. hvert kíló,
12,2 lestir af ufsa fyrir 166.503
krónur — meðalverð 13,65 kr.
fyrir kílóið, og 0,6 lestir aí
makríl fyrir 13.459 krónur —
meðalverð 22,43 krónur hvert
kíló. Samanlagt söluverðmæti
afla skipanna varð því 15.432,4
þúsund krónur.
Kosningaskemmt-
anir D-listans
S.IÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
nuin efna til skemmtana fyrir
alla þá, er unnu fyrir D-listann
í kosningunum sl. sunnudag.
Skemmtanirnar verða að Hótel
Sögu og í Sigtúni næstkomandi
sunnudag og mánudag,
Á sunnudag verða skemmt-
anir að Hótel Sögu og í Sigtúni
fyrir 8 ára starfsifólk og eldra.
Á Hótel Sögu mun híljómsveit
Ragnars Bjaamaaoniar leika fyrir
dianisi frá M. 20 til 1, en í Sig-
túni hljómsiveitimar Trix og
Ævinitýri. Á mániudag verður
svo skemmtun í Sigtúni fyrir
sitarfsfólk á aldrinum 14 til 18
ám. Þar mun hljómsveitin Trix
leika fyrir danisi frá M. 8 til 12.
Llll 1 • 11.1 • Fjöldi skemmtikrafta mun koma
fram á öllum skemmituniuim
Hér fer á eftir listi yfir síld-
arsölurnar:
Magn Verðm. Verðm.
Danmörk lestir: ísl. kr.: pr. kg.:
7. júni Bára SU 49.6 594.299 11,98
7. — Gissur hvíti SF 72.3 680.582 9,41
7. — Súlan EA 115.7 1.171.377 10,12
7. — Álftafell SU 56.1 543.726 9,69
8. — Fífill GK 81.5 1.166.933 14,32
8. — Hilmir SU 45.3 511.494 11,29
9. — Héðinn ÞH 50.6 711.132 14,05
10. — Gissur hvíti SF 54.9 692.556 12.61
10. — Súlan EA 8.0 36.985 4,62
10. — Loftur Baldvinss. EA 84.8 1.215.300 14,33
10. — Náttfari ÞH 51.0 656.904 12,88
10. — Reykjaborg RE 7.6 97.807 12,87
10. — Bára SU 20.9 61.500 2,94
10. — Magnús NK 58.1 924.124 15,91
10. — Þórkatla II GK 42.0 561.187 13,36
12. — Helga Guðmundsd.BA 57.8 1.048.587 18,14
12. — Eldey KE 66.6 999.581 15,01
Þýzkaland:
7. júni Reykjaborg RE 41.6 691.488 16.62
7. — Þorsteinn RE 57.9 1.174.376 20.28
10. — Dagfári ÞH 59.1 773.110 13.08
Aðgömgumiðar verða afhentir í
Vaiihöill við Suðurgötu á föstu-
dag og laugardag frá M. 10 tii 16.
Aðalumræðuefnið
dagana, næst kosningunum er
vafalaust veðrið, en það hef
/ ur verið með eindæmum
I gott víðast hvar á Iandinu,
| það sem af er júníniánuðl.
7 Hefur úrkoma verið hverf-
andi, nema helzt í V-Skafta
fellssýslu, og í Reykjavík
hefur t.d. aðeins mælzt 0,1
mm úrkoma það sem af er
mánuðinum, en meðalúrkoma
í Reykjavík í júní er 41 mm.
Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar var orðið
niokkuð svalt á NA-landi
undiir kvöld í gær og skúrir
voru í V-Skaftafellssýslu, en
annars staðar var heldur
hlýtlt. Var í gærkvöldi eMd
útlit fyrir annað en veður
1 mundi haldast svipað eitt-
hvað áfram. 1
f Vestmannaeyjum muna
elztu menn ekki eins gott
vor og nú, enda hefur verið
sólskin og blíða nær dag
hvern undanfarið. í kjölfar
veðurbilðunnar hefur komið
mikill og góður afli hjá bát-
um og sagði fréttaritari Mbl.
i Eyjum að ekM yrði amnað
sagt en lánið léki við menn
þar.
Hafsteinn Ólafsson bóndi
og veitingamaður í Forna-
hvammi sagði að þar hefði
vorað vel og væri allur gróð
ur mun betur á veg kominm
en í fyrra. Væri orðið allvel
grænt inni á Holtavörðu-
í heiði. Hafsteinn sagði að um
ferð hefði verið venju frem
ur mikil undanfarið og ættá
veðrið vafalaust sinn þátt í *
því.
Ragnar Lárusson
Ragnar Lárusson
látinn
SÍÐASTLIÐINN föstudag lézt
á Landakotsspítala Ragnar
Lárusson forstjóri Ráðningar-
skrifstofu Reykj avíkurborgar eft
ir þunga sjúkdómslegu.
Ragnar Jón Lárusson var
fæddur 8. maí 1907 hér í Reykja
vík og voru foreldrax harus
Lauritz Hanaen ajómaður í
Hafnarfirði og Sigríður Erlends-
dóttir. Hann var framfærslu-
fulltrúi í Reykjavík í mörg ár
og forstöðumaður Ráðningó
skrifstofu Reykjavíkurborg
frá 1955 og til dauðadags. Hai
var og í stjórn Viranumiðluns
skrifstofunnar í Reykjaví
Hann var og í Húsnæðismál
stjóm og formaður Landsmál
félagsins Varðar í mörg ár
framarlega í forystuliði Sjá
stæðisflokksins. Þá vann hæ
eimníig mjög mikið fyrir íþrótt
hreyfinguma og varlengi í stjó
Knattspyrnusambanda íslani
Eftirlifandi kona Ragnars
Andrea F. G. Jónsdóttir.