Morgunblaðið - 16.06.1971, Blaðsíða 24
■ ■ 7!
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNl 1971
haía verið með þegar hann
hringdi til hennar foröum.
Básarnir voru nokkuð langt
frá dansgólfinu, svo áð þau
gátu ekki kotnið mjög nærri, en
Andy beindi dömu sinni eins
nærri þeim og hann gat. Þau
heyrðu bæði hæðnislega rödd-
ina í honum.
Coooooo ooooo c
I 34 §
Coooooooooooc
skonsunni og ekki alltof þægi-
iegt.
Sjáið þér það, sem ég sé?
sagði Lloyd, sem var að horfa á
dansfólkið. sem hamaðist þrátt
fyrir allan hitann. Húrr leit í
áttina og sá það, sem hann átti
við.
Þarna dönsuðu þau innan um
alla mannþröngina Joybelle
Thomas og Andy MeCarthy, en
Joybelle var varla þekkjanleg.
Það var nú ekki einasta það, að
hárið á henni hafði verið skraut
lega uppsett, varirnar vel mál-
aðar og kjóliinn ljós og fór
henni vel, heldur var það svip-
urinn á andlitinu, sem var orð-
inn svo gjörbreyttur. Hann ljóm
aði ailur af ánægju. Það var
sýnilegt, að hún hafði ný-
iega lært að dan.sa, en lét að
stjórn Andys, sem annars
var nú ekki sérlega erfitt, þvi
að hann hefði getað dansað við
ljósastaur og þó með yndis-
þokka. Hárið á honum var gljá-
andi og liðað. Hann var í ljós-
rauðri skyrtu og snöggklœddur
og meðan Joybelie horfði
á hann eins og dáleidd, lét hann
augun reika um ailan salinn.
Loks stöðvuðust þau við Nancy.
Áður en hún gæti litið undan,
hafði hún séð hann brosa, og
þetta sama bros hlaut hann að
DEEP PURPLE
ÞETTA ER SÍÐASTA AUGLÝSINGIN
FYRIR HLJÓMLEIKANA Á FÖSTUDAG.
ENN ERU TIL UM 700 MIÐAR, SEM VERÐA
SELDIR í LAUGARDALSHÖLLINNI í DAG
KL. 4—7 OG FRÁ KL. 5 Á FÖSTUDAG EF
ÞEIR ENDAST SVO LENGI.__
MÆTUM í GÓÐU SKAPI OG GERUM
ÞESSA HLJÓMLEIKA AÐ ÓGLEYMAN-
LEGASTA VIÐBURÐI ÁRSINS!
GÓÐA SKEMMTUN!
— Viltu bara sjá, Joy. Þau
hljóta að vera að kanna fátækra
hverfin.
—- Líklega er þetta rétt hjá
Dillon, sagði Lloyd. — Við verð
um að koma þeim burt úr borg-
inni.
— Já, en það getið þér ekki
gert. Það er einmitt það,
sem Joybelie er að saka yður
uim, að þér séuð að hundelta
hann.
— Það yrði ekkert þessháttar.
Andy yrði boðin góð atvinna í
annarri borg og -stærri. Og til-
boðið kemur frá mönnum, sem
hafa ekkert samband við okk-
ur, og jafnvel þeir sem tilboðin
gera, hafa enga hugmynd um,
að við stöndum þar að baki. Ég
vorkenni hverjum þeim, sem fær
hann í vinnu, en það verða þeir
að sjá um sjálfir.
Hvað fær yður til að halda,
að hann fari?
— Hann fer eins og skot. Haf-
i.ð þér aldrei heyrt fólk tala um,
að Lloydstown sé svoddan sveit
arkrókur og gera tilraunir
til að komast burt þaðan? Og
Andy verður al'l'taf að hlaupa
burt frá einhverju, til æviloka.
— Ég vorkenni mest stúlku-
garminum, hélt hann áfram eft-
ii- nokkra þögn. — Dillon fletti
upp feriinum hennar í skýrsl-
unum. Hún kom úr sveit
og þurfti að fara á hjóli
i gagnfræðaskólann. Svo vann
hún sig gegnum háskólann. Og
hún trúir öllu sem hún les á
prenti, veslingurinn. Hún fór af
skaplega i taugarnar á starfs-
fólkinu á skrifstofunni, en þrátt
fyrir allt, þá á hún nú samt
betra skilið en hann Andy
MeCarthy.
— En ekki gæti hún farið að
giftast honum Andy. Hann er að
minnsta kosti fimm árum yngri
en hún. Nancy var svo hneyksl-
uð á svipinn, að Lloyid fór að
hlæja.
Það breytir engu. Fjöidi
karlmanna giftist sér eldri kon-
um. Og oft fer það vel, ekki sízt
þegar konan er eins og mamma
Stíiíl
Hrúturinn, 21. mar/. — 19. apríl.
Reyndu að vinna eins vel og hægt er í dag, til að fyrirbyggja
mistök síðar.
Nautið, 20. apríl — 20. mai.
Þú verður að sætta þig við það, að fjölskyldan stækkar og
breytist.
Tvíburarnir, 21. mai — 20. júní.
Það er oft skemmtilegt að deila blíðu og stríðu með öðrum.
Það breyt-ir ekki aðeins þínu lífi, heldur þeirra, sem þú deilir kjör-
um með.
Krahbinii, 21. júni — 22. júlí.
Það skipti litlu máli, hve þig fýsir í deilurnar, það borgar
sig betur að sitja hjá.
Kjónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Allir hlutir taka stakkaskiptum einhvern tima, og jafnvel stund
um að þér ásjáandi. Reyndu að breyta framkomu þinni.
Meyjar, 23. ágúst — 22. september.
Flest mál á dagskrá eru tilfinningamál, og gefa einhverjar
ákvarðanir til kynna.
Vogln, 23. september — 22. október.
Reyndu að fara eftir settum reglum meðan þú starfar. Reyndu
síðan að gera þér grein fyrir árangrinum.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Reyndu hæfni þína til forystu strax, því það er ckki eftir
neinu að bíða.
Boginaðurinn, 22. nóvember — 21. deseniber.
Þú átt annríkt framan af, og erfiðið ber góðan ávöxt. Þér ATerð
ur launað það, þótt síðar verði.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Gott skipulag þitt keniur fljótt í Ijós, og árangurinn verður
óvenju góður. Gleymdu aldrei vinnutilhöguninni.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
I dag skiptir jafnvægi þitt höfuðmáli. Reyndu að biðjast af-
sökttnar, ef þess gerist þörf.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. niarz.
Þú ert stórhuga, en þér gengttr betur, ef þú sníður þér stakk
eftir vexti.
l>ér fá id yóar feró hjá okk u r
hringió í síma 25544
fyrir manninn og hann vill láta
dekra við sig. Ef hún bara ætti
eitthvað til, gæti þetta verið
ágætt.
Þau sneru sér nú að matnum
í nokkrar mínútur, og þá var
eins og Lloyd langaði til að leiða
hugann frá leiðinlegu efni og
hann tók að spyrja hana um frí
ið hennar.
Þessi staður við tjörnina, sem
þér ætlið til, er það ekki sumar-
húsið hans Carmody dómara? Ég
kynni að rekast þar inn ein-
hvern daginn. Við eigum þarna
hús, enda þótt ég hafi nú aldrei
komið inn í það, og líklega
engin annar, síðan forust-
inn var smástrákur. Einhverjir
fasteignasalar hafa verið að
sækjast eftir því hjá honum, og
hann hefur beðið mig að fara
þangað og lita á það. Það er
sömu megin við tjörmina og hús
Carmodys dómara.
Þau töfðu ekki lengi eftir að
hafa lokið máltiðinni og ekki
sáu þau Joybelle né Andy eftir
það. Kannski hafði Joybelle tal-
ið félaga sinn á að fara.
— Segið móður yðar, að þetta
skuli ekki koma fyrir aftur . . .
að þér þurfið að vinna svona
lengi frameftir. En hins vegar
langar mig til að borða með yð-
úr kvöldverð einhvern tima og
þá á skemmtilegri stað en þess-
um.
Þegar þau komu að húsinu,
voru alJir gengnir til náða. Allri
giuggar voru dimmir, og það
EVUDÆTUR:
NÝTT - NÝTT - NÝTT
6VQ
mátti næstum þreifa á blómailm
inum.
- Sumarið er næstum á enda
og ég er enn ekki farinn að sjá
garðinn yðar — enn eitt, sem
maður verður að bíða með til
næsta áxs. Röddin var daufleg,
rétt eims og hann hlakkaði til
að sjá þennan ómerkilega garð
þeirra, jafnvel þótt það yrði að
bíða.
Við dyrnar laut hann niður og
kyssti hana á varimar. Þér
eruð svo fall'egar, og það er svo
sjaldan að ég læt eftir mér það,
sem mér dettur i hug, sagði
hann.
12. kafli.
Tjörnin var fimm milur á
lengd og á einum stað minna en
ein míla á breidd. Að synda yf-
ir hana þvera var fyrsta afrek,
sem piltar unnu, sem þama
dvöldu að sumarlagi. En annað
afrekið var að fara niður foss-
inn á róðrarbáti. Fossinn var við
norðurenda tjarnarinnar. Þar
sem Indíánaáin rann út í hana,
en hún kom ofan úr fjöllunum
og rann fram af háum stalli. Að
fara niður fossinn leit út fyrir
að vera miklu hættulegra en
það var í raun og veru. Foss-
inn var aðeins sex feta hár og
féll niður í grunnt vatn. Eina
hættan var sú að meiða sig á
grjótinu i botninum og eyði-
leggja bátinn.
Við vesturbakka tjarnarinn-
ar voru fjögur sumarhús og
þeir sem þau byggðu forðum
höfðu gætt þess, að landrými
væri nægilegt til að tryggja gott
næði. Þetta voru allstór hús með
fjórum il sjö herbergjum og við
hvert þeirra var b;cði bryggja
og bátanaust. Handan við vatn-
ið voru nokkrir óvandaðir kof-
ar, sumir málaðir en aðrir ómál-
aðir, en allir áttu þeir sér eitt-
hvert nafn.
Frú Risley, ráðskona Carmod-
ys hafði tekið Mary opnum örm-
um. Hún var einmana þama.
Hin húsin þarna megin voru
auð og yfirgefin. Tveir eigend-
umir komu þar stöku sinnum
um helgar, til þess að hvíla sig
eftir aðrar helgar, som þeir
höfðu eytt á fjörugri stöðum, en
IJewellynhúsið, sem var næst
þarna, hafði ekki verið notað ár