Morgunblaðið - 16.06.1971, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JONl 1971
Jafntefli með
mörkum næg-
ir Islcndingum
— í síðari leiknum við Frakka
í OL-keppninni í París í kvöld
1 KVÖLD kl. 19.3« hlaupa ís-
lenzku landsliðsmennimir í knatt
spymu í sínum hvita búningfiim
Inn f Jean Bonin leikvanginn f
Paris til síðari leiksins gegn
landsliði Frakka en leikurinn er
liður f undankeppni Ólympíu-
leikanna að ári. Fyrri leiknum
hér f Laugardal lauk með
markalausu jafntefli 12. mai sl.
Nú verður úr þvf skorið hvort
liðanna heldur áfram í undan-
keppninni, og: hvort er úr leik.
Islenzka liðinu nægir jafntefli
ef mörk era skoruð, t. d. 1:1 eða
2:2, þvf mörk á útivelli ráða úr-
slitum ef jafnt er.
Islenzka landsliðið hélt utan i
gær og hafði fyrir brottför orðið
fyrir miklum áföll'um. Akumes-
mgarnir þrir sem valdir höfðu
verið til fararinnar höfðu boðað
forföll. Haraldur Sturfaugsson
hefur verið veikur, Matthias
Hallgrimsson meiddist í leiknum
gegn ÍBV um helgina og Eyleif-
ur getur ekki farið af persónu-
legum ástæðum.
I þeirra stað voru aðeins vald-
ir tveir leilcmenn, Skúli Ágústs-
son Akureyri og Kristinn Jör-
undsson Fram. Fleiri fengust
ekki, en þess ber að geta að val
í liðið var bundið við ákveðin
nöfn sem gefa varð upp fyrir
fyrri leikinn. Til vióbótar þeim
þremur sem nú forföHuðust
höfðu Einar Gunnarsson ÍBK
áður boðað forföll og Jóhannes
Eðvaldsson er farinn til S-Afríku,
og Si'gurbergur Sigsteinsson
treystist ekki til farar með stutt-
um fyrirvara.
— Svona forföll myndu
veikja hvaða landslið í heimi
sem er sagði Albert Guð-
mimdsson er liðsmenn voru
komnir til Parísar i gær. Við
ráðamenn liðsins vonim f
hreinum vandræðum. 1 allan
vetur höfum við t. d. þjálfað
Einar Gunnarsson upp f það
að taka við stöðu Kllert
Schram. Nú hefur hann á-
kveðið nð leika aðeins með
Iiði fBK. Petta og önnur for-
föll þeirra manna, sem telja
verður f kjaraa liðsins, eru
að sjálfsögðu mikið vanda-
mál. Og takist okkur að klóra
f bakkann, þá sýnir það mjög
aukna breidd f fsl. knatt-
spyrnu.
Landsliðshópurinn sem útl er
er þannig skipaðux:
Markverðir: Þorbergur Atlla-
son og Magnús Guðmundsson.
Vamarmenn: Jóhannes Atlason,
Guðni Kjartansson, Þröstur Stetf-
ánisson, Ólafur Sigurvinsson og
Marteinn Geirsson.
Tengiliðir: Skúli Ágústsson,
Frá fyrri ieik íslendinga og Frakka, Þorbergur ver skot de Martigny. Tekst að halda mark
inu hreinu í kvöld?
Guðgeir Leifsson, Ásgeir Elas-
son.
Framherjar: Kristinn Jörunds-
son, Ingi Björn Albertsson, Sæv-
ar Tryiggvason og Eiriendur
Magnússon.
Liðsmenn fengu góöa ferð ut-
an í gær, en biðu tvo táma á flug-
velli í London áður en haldið
vax til Parisar. HópurLnn kom
sér sáðan fyrir á hótcli í mið-
borg Parisar og síðar var létt
ætfing.
1 landsieiknum í kvöld er
beHigísíkur dómari, en línuverðir
verða franslkir.
Landsliðið dvelst i Paris á
þjóðhátíðardaginm, en á fösitu-
daig er haldið heim með við-
komu í Lomdom og Glasgow og
kcwnið hingað kl. 8.15 samkvæmt
áætlun.
Fjölsótt 17. juní mót
Bezta íþróttafólk 13 félaga og sambanda
keppir um Forsetabikarinn 1 Laugardal
17. JÚNÍ-MÓT frjálsíþrótta-
manna verður að vanda veglegt
mót og hafa keppendnr frá 13
félögum og héraðssamböndum
viðs vegar að af landinu tilkynnt
þátttöku sína. Frjálsíþróttafólk-
ið „vígir“ nú Laugardalsvöll-
inn eftlr gagngerðar breytingar
á grasteppi valiarins, en breyt-
inganna vegna hefur vöUurinn
verið lokaður þar til nú.
17. júní-mótið hófst i gær-
kvöldi og var þá ráðgerð keppni
I 17 greinum, þar af 7 kvenna-
greinum. Verður nánar sagt frá
þeirri keppni á morgun.
Aðalgreinar mótsins fara hins
vegar fram á þjóðhátíðardaginn
en þá hefst keppnin kl. 16,30,
með 110 m grindahlaupi, iang-
stökki kvenna, hástökki og kúlu-
varpi. Síðar verður keppt í
grindahlaupi kvenna, 100 m
hlaupi karla, pilta, sveina og
kvenna, langstökki, 400 m
hlaupi kvenna, kringlukasti
kvenna og kúluvarpi kvenna. Þá
ve»ður og keppt í 400 m og 1500
m hlaupi karla og loks í 1000
m boðhlaupi. Samkvæmt tíma-
seðli er gert ráð fyrir að mót-
inu ljúki á 2 klukkustundum.
Segja má að flest af bezta
frjálsíþróttafólki landsins mæti
til leiks, en keppendur eru úr
Reykjavik, Hafnarfirði, Snæ-
fells- og Hnappadalssýslu, Árnes-
og Rangárvallasýslu, úr Borgar-
firði, Eyjafirði, Austfjörðum,
Vestmannaeyjum og úr Kjalar-
nesþingi.
Að venju er keppt um For-
setabikarinn á þessu móti og
öllum öðrum er fram fara á
landinu þennan dag og hlýtur
hann sá keppandi er bezta afrek-
ið vinnur samkvæmt stigatöflu.
Handbók
KSÍ komin
1 GÆR kom í bókabúðir Hand-
bók og mótaskrá KSl, sem
Mótanefnd KSl hefur séð um út-
gáfu á. í bókinni er að finna
glöggar og handhægar upplýs-
ingar fyrir þá sem að knatt-
spyrnumálum starfa eða þurfa
að fá upplýsingar um sitthvað
er að knattspyrnu lýtur.
í bókinni er að finna skrá um
alla leiki sem ákveðnir eru 1971,
upplýsingar um lög og reglur
KSl, um öll félög sem taka þátt
í landsmótum og bikarkeppnum
KSl 1971, starfandi knattspyrnu-
ráð, dómaratal, símanúmer á
ýmsum knattspyrnuvöllum
landsins og sitthvað fleira sem
að gagni má koma. Er fyrirhug-
að að gefa út slík bók árlega
og þá að auka hana og stækka
eftir þörfum og kröfum. Bókin
kostar 50 kr.
Fimleika-
fólki boðið
utan
SÆNSKA KNATTSPYBNAN DANSKA KNATTSPYBNAN
Staðan í sænsku knattspym- Staðan í 1. deild dönsku knatt
unni er nú þessi spymunnar er þessi:
AIK 8431 14:7 11 Frem 10 7 1 2 24:15 15
Maimö 8431 15:10 11 Vejle 10 6 2 2 29:21 14
Atvitaberg 8332 12:5 9 R. Freja 10 6 2 2 20:16 14
Norrköping 7 3 3 1 5:3 9 Hvidovre 10 5 2 3 21:15 12
Djurgárden 8413 13:13 9 B 1901 10 4 3 3 24:20 11
Luleá 8 3 3 2 9:11 9 KB 10 5 1 4 23:25 11
Landskrona 8 2 4 2 7:7 8 Brönshöj 10 5 0 5 17:19 10
Öster 8 0 7 1 7:8 7 B 1909 9 2 4 3 15:14 8
örgryte 8 2 3 3 8:11 7 Köge 10 4 0 6 19:26 8
Hammarby 7 14 2 5:6 6 B 1903 9 2 3 4 13:13 7
Elfsborg 8 2 0 6 8:13 4
örebro 8 12 5 4:13 4 —>
NOBSKA KNATTSPYBNAN
Staðan í 1. deildinni norsku
er nú þessi:
Viking 7 5 1 1 20:8 11
Hamarkam. 7 4 3 0 10:3 11
Strömgodset 7 3 3 1 15:8 9
Vejle hefur gert flest mörk
dönsku liðanna í 1. deildav
keppninni. Hér er Ailan Simon-
sen að skora eitt af fjórum
mörkum, sem liðið skoraði á
móti Kögen.
AaB — KB 1:4
Hvidovre — B 1903 1:0
B 1909 - - AB 2:2
Frem — Randers Freja 5:1
Köge — Vejie 2:4
B 1901 - — Brönshöj 1:2
1 annari deild hafa þrjú fé-
4 lög 14 stig að loknum 10 leikj-
4 um. Það eru AGF, Næstved og
Horsens. Næstu þrjú félög
hafa 13 stig: Slagelse, Fugle-
bakken og B 1913.
FINNSKA fimleikasamibandið
býður stúltoum frá ödlum Norð-
uriönduinum á aldrinum 14—25
ára á námstoeið í fimleikum og
„rytmistori" leitefimi, sem haldið
verður í KisakaQMo Idrottis-
institut (u. þ. b. 50 km frá HeQs-
intoi) dagana 24.—31. júlí 1971.
Uppihald er fritt, en ferðir verða
þátttatoendur að greiða.
Fiffleikasambaindi Islands hatfa
borizt fleiri boð um niámstoeið
bæði í Danmörtou og Svíþjóð.
Upplýsimgar hjá stjórn Fim-
leikasambands ÍSlands eða 1. S. I.
Lauigardal.
Fredrikstad
Lyn
Sarpsborg
Rosenborg
Brann
Hödd
Frigg
AB
AaB
Úrslit einstakra leikja í sið-
ustu viku urðu þessi: