Morgunblaðið - 17.08.1971, Side 1
24 SIÐUR og 8 SIÐUR IÞROTTIR
182. tbl. 58. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 17. AGUST 1971
Prentsmiðja Morgnnblaðsins.
Ræða Nixons:
Umfangsmestu efnahagsaðgerðir í 40 ár
Eiga að draga úr
atvinimleysi, hamla
gegn verðbólgu og
vernda dollarann
Wasihington, 16. ágúst — AP-NTB
EFNAHAGSAÐGERÐIR þær, er Nixon Bandaríkjaforseti
boðaði í sjónvarpsræðu sinni í nótt, eru, að hans sögn, þær
umfangsmestu í Bandaríkjunum á sl. 40 árum. Efnahagsað-
gerðirnar beinast gegn verðbóigu og alþjóðlegum fjármála-
spámönnum og markmið þeirra er að vernda bandaríska
neytandann gegn flóði af ódýrum erlendum neyzluvörum.
„Tilgangur minn er að hefja í Bandaríkjunum nýtt velmeg-
unarskeið.“
Meginatriði aðgerðanna eru þessi:
0 Verð- og launastöðvun næstu 90 daga.
0 10% tollur á flestar innfluttar vörur.
0 Frá og með deginum í dag hætta Bandaríkin að kaupa
dollara af erlendum aðilum með gulli á verðinu 35
dollarar fyrir únsuna, eins og það hefur verið frá því
árið 1934. Ætlar forsetinn með þessu að láta dollarann
ákveða gengi sitt með því að láta hann fljóta. Þetta
mun hafa í för með sér að gengi hans lækkar gagnvart
sumum gjaldmiðlum, en hækkar gagnvart öðrum.
0 Þá leggur forsetinn til, að 7% aukaskattur á hifreiðum
verði afnuminn þegar í stað, en þingið þarf að sam-
þykkja það. Þetta myndi hafa í för með sér að bifreið-
ir lækkuðu um 150—200 dollara.
0 Forsetinn skoraði á þingið að flýta um eitt ár gildis-
töku nýrra skattalaga, sem hækka persónufrádrátt.
0 Hann skorar á þingið að heimila fyrirtækjum örari af-
skriftir, 10% á fyrsta ári og 5% á ári eftir það.
q Opinberum starfsmönnum verður fækkað um 5% og
lækkuð alríkisútgjöld um 4,7 milljarða dollara.
0 Forsetinn frestar launahækkunum til opinberra starfs-
manna um 6 mánuði miðað við 1. januar 1972.
0 Aðstoð til þróunarlanda verður lækkuð um 10%.
Ræða Nixons kom mjög á ó-
vart, en það var ekki fyrr en
seint í gærkvöldi að tilkynntvar
að hann myndi flytjá áríðandi
ræðu til þjóðarinnar. 1 upphafi
ræðu sinnar sagði forsetinn að
tíminn væri kominn til að end-
urskipuleggja og hleypa nýju
lifi í efnahagskerfi þjóðarinnar.
Hann sagði að aðgerðirnar mið-
uðu að því að draga úr atvinnu-
leysi, hamla gegn verðbölgu og
vernda dollaremn á aliþjóðlegum
fjármálamörkuðum. Forsetinn
lagði á það ríka áherzlu að að-
gerðir þessar væru bráðabirgða-
aðgerðir, þvi að hann ætlaði ekki
að setja bandariskt efnahagsláf
í spennitreyjiu. Hann lýsti þvi
yfir að hann hefði skipað fram-
færslukostnaðarráð, sem ætti að
vinna með samtökum atvinnu-
rekenda oig verkalýðs að því að
semja áætlanir, er tryggja stöð-
ugleika launa og verðs að verð-
stöðvunartimabilinu 1-oknu. Hann
sagði að á undanförnum 4 árum
hefðu laun hækkað, en menn
hefði ekkert verið betur settir,
þvi að verðbólgin hefði étið þær
hækkanir jafnóðum. Sérstaklega
kreppti skórinn að þeim 20 millj-
ónum manna, sem lifðu af eftir-
launum sínum. Forsetinn lagði
áherzlu á að hann myndi ekki
setja á stofn ráð til að fram-
fylgja verðstöðvuninni, heldur
Rússar skora á Islendinga
að falla frá útfærslunni
Genf arráöstef nan:
Viðurkenna ekki rétt neins til
víðari landhelgi en 12 mílur
FULLTRÚI SOVETRÍKJANNA
í 2. nefndinni á ftindi liafs-
botnsnefndar Sameinuðu þjóð-
anna í Genf sagði í ræðti
á föstudaginn, að Sovétrík-
in skoruðu á íslenzktt ríkisstjórn
ina að hverfa frá slikum aðgerð-
um sem þeim, er hún lýsti yfir,
að hún ætlaði að færa iandhelg-
ina einhliða út í 50 mílur fyrir
1. september 1972.
Sagði sovézki fulltrúinn, að
Sovétríkin viðurkenndii ekki rétt
neins ríkis til að helga sér sér-
staklega viðari fisveiðilögsögu
en 12 mílur og að Sovétstjórnin
harmaði einliliða ákvarðanir í
þessum efnum, meðan verið væri
að undirbúa alþjóðlega hafréttar-
ráðstefnu.
Mbl. hafði i gærkvöidi sam-
band við Hans G. Andersen, sem
þá var að koma til London frá
ráðstefnunni í Genf. Sagði Hans,
að þessi ummæli hefðu verið við-
höfð i langri ræðu fullitrúa Sov-
étrikjanna í 2. nefndinni, þar
sem talað er um landhelgismál
og fis'kveiðiréttindi. Þar ræddi
hann rniikið um að taka þyrfti
fiststofnana sem heild og þess
vegna væri lítið gagn i að ákveða
einhver fiskveiðitakmörtk. Slikt
yrði bezt gert fyrir atbeina
svæðastofnana, eins og oft hefur
verið talað um. Var þetta löng
ræða um þessar stofnanir og
hvemig þær ættu að vinna. —
Kvað hann alla sammála um að
vernda þyrfti fiskstofna, en það
má'l þyrfti bara að taka í heild.
Ekki bara að setja einhver ákveð
in mörk.
— Síðan vék hann með nokkr-
um orðum að því, að meðan ver-
ið væri að finna lausn á þessu,
þá væri það ekki í þágu alþjóða-
samvinnu að gera einhliða ráð-
stafanir, sagði Hans. Hann vék
svo að því að íslenzka ríkisstjóm
in hefði lýst þvi y-fir að hún ætl-
Fraroh. á bls. 22
myndi hann treysta á samvinnu
al'lra, sem í hlut ættu, þ.e.a.s.
bandarísku þjóðarinnar.
FISKUR UNDANSKILINN
TOLLINUM?
Varðandi 10% innfl'Utningstoll
inn sagði Nixon að honum væri
ekki beint gegn neinu ákveðnu
Framhald á bls. 23.
I annarri grein Freysteins Jóh annssonar, blaðamanns Morgunblaðsins, seni birtist á bls. 12 og
13 í blaðinu í dag, lýsir hann í niáli og niyndum heinisókn 6inni í flóttamannabúðir við Kalk-
útta. I>ar býr stór hluti flóttafólksins í holræsarörum, ei ns og sjá má á þessari mynd.