Alþýðublaðið - 30.07.1930, Síða 4

Alþýðublaðið - 30.07.1930, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ um heilsufarið í sínu héraði ár- ið sem leið (íslendingur 28. júní), að segja megi að „30 ára berkla- varnir af sama tagi og nú eiga sér stað samkvæmt lögum dg með miklum tilkostnaði" hafi (í Akureyrarhéraði) „ekki stöðvað framgang veikinnar að sýnilegum mun“. Yfirleitt mun pað vera svo annars staðar hér á landi og ilandinu í heild sinni, að árangur berklavarnanna sé ósýnilegur. Læknar virðast megna mjög lítið. En pá verður að telja skyldu peirra að kynna sér enn betur og prófa enn frekar önnur úr- rœdi. Dr. Sechehaye segir fyrst sögu meðals pessa. Upphafið er, að major Chas. H. Stevens í Londion, en þá í Birmingham, varð seytj- án ára að aldri talsvert veikur af lungnaberklum. Hann leitaði læknis, sem ráðlagði honum að fara til hálendissléttunnar í Transvaal eða Orange í Suður- Afríku. Þetta gerði Stevens. Þangað kominn heyrði hann tal- að um negra-„lækni“, sem hefði til meðal við brjóstveiki. Hann leitaði pessa læknis, sem lét hann fá meðalið (jurtaseyði) og lækn- aði hann á skömmum tíma. Upp frá pessu hefir æfi ’nans nú í 25 ár verið svo að segja óslitin bar- átta á móti lœknunum og vísind- unum til pess að fá meðalið við- urkent og pað notað. Verði þetta nokkum tíma, verður sú rauna- saga eitt dæmið í viðböt við fjöldamörg önnur um píslarvætti fmmherjanna. Hé:r skal sú saga eigi rakin. Ég læt mér nægja að pýða nokkur. orð Stevens í bréfi tii mín 15. maí p. á. Hann skrifar: „Þér sjáið á bók dr. Sechehaye, að pað er ekki glæsi- legt hlutskifti fyrir leikmann að gerast forgöngumaður í lækna- vísindum. Vissulega hefi ég oft freistast til pess að gefa alt frá mér og láta pað deyja. En þeg- ar ég var orðlnn alráðinn j pessu fékk ég venjulega með næsta pósti eitt eða fleiri pakk- lætisbréf frá mönnum, sem pökk- uðu mér lífgjöf sína og báðu sumir um hjálp fyrir vini eða ættingja sína. Þér sjáið — ég varð hreint og beint neyddur til pess að halda áfram, par eð mér fanst ég verða morðingi, ef ég hætti.“ (Frh.) Flugið. „Súlan“ gat ekki lent í Vest- mannaeyjum i fyrra dag vegna sjávarólgu, en varpaði par pósti á land. I gær flaug hún norður og til Austfjarða. í dag er hún í síldarleit. Veðrið. Kf. 8 í morgun var 12 stiga hiti í Reykjavík. tJtlit hér um slóðir: Breytileg átt og hægviðri', víðast léttskýjað. — Hægviðri um land alt í dag. Kona GandMs. Heirasknlegt j útlendingadaður, Ég er einn af peim, sem eru peirrar skoðunar, að við eigum að sýna útlendingum, er hing.að köma, fulla kurteisi. En pað er langt á milli frá því að sýna kurteisi eða viðhafa slíkt heimskulegt útlendingadaður sem það, er nú er til sýnis utan á pósthúsinu og símastöðinni. 1 fyrra var hengt nafnspjald utan á pósthúsið. Er á pví orðið „Pósthús”, mynd af lúðri, sem er alpjóða póstmerki, og síðan orðin „Post offioe“, sem er pósthús á ensku. Ég verð að segja, að ég kann afar-illa við að sjá nöfn á erlendu máli utan á byggingum rikisins, enda gerist pess ekki pörf, að minsta kosti ekki á póst- húsinu. Norðurlandabúum, Þjóð- verjum og Bretum mun, auðvelt að átta sig á orðinu „pósthús", enda myndi póstlúðurinn taka af allan vafa hjá þeim. Ég verð að segja, að útlend- ingadekur petta vakti undrun mína yfir því, hvað undirlægju- hátturinn gæti verið mikill hjá sumum Islendingum. Núna fyrir nokkrum dögum sá ég, að komið var spjald utan á símstöðina, sem vakti bæði undr- un mína og reiði. Þar er rœ:fiis- hátturinn svo mikill, að par er ekki einu sinni verið að hafa I fyrir pví að setja nafnið á ís- lenzku, heldur stendur þar bara orðið „Telegraph", en pað orð skilur að eihs lítill hluti pjóðar- innar. Ti> hvers er nú svona und- irlægjuháttur við útlendinga ? Þeir peirra, sem purfa á síma að halda, eru ekki lengi að læra orðið sími, enda er til alpjóða- merki fyrir síma, sem allir út- lendingar skilja. Ríkið heimtar ákveðna réttritun á öllum bókum, sem gefnareruút með styrk frá pvi; en hvaða sam- ræmi er í pví annars vegar og svo hins vegar að klína útlend- um orðum, sem engir eða fáir Islendingar skilja, utan á opin- berar byggingar. Landi. Til Norðurpólsms í kafbát. Sir Hubert Wilkinis er nú sem óðast að búa sig í Norðurpóls- för pá, er hann ætlar að fara í kafbát næsta ár. En kafbát penn- an er nú verið að byggja. Það verður ekkert smáræðis skip, pví þ.að verður 1000 smálestir og á- höfnln 18 manns. Engin vand- kvæði eru talin á að ná nógu an'drúmslofti, pví kafskip petta verður útbúið með borum, pann- ig að pað géti á stuttum tíma borað göt gegnum margra metra þykkan hafís. Forystu vísindalegu rannsóknanna, sem gerðar verða í leiðangrinum, á norski prófess- orinn Sverdrup að hafa. Það verður líklegast lagt af stað í júni að ári. Það var sir Hubert Wilkins, sem flaug frá Alaska norður um Grænland til Svalbarða; en í fyrrá var hann í Suðurpólsför. Uppgötvaði hann pá úr flugvél, að Grahamsiand er eyjaklasi, og skírði hann par eitt breitt sund Stefánssons-sund eftir Vilhjálmi. Um ðl&fgimro og Fegimm* St. EININGIN nr. 14. Fundur í kvöld. Embættismannakosning. Tekin ákvörðun um skemtiför1. Félagar! Gerið svo vel að fjöl- menna. Næturlæknir er í nótt Sveinn Gunnarsson, Óðinsgötu 1, sími 2263. Dráttarvextlr. Alpýðublaðið hefir enn verið beðið að minna á, að d ráttarvext- ir verði reiknaðir af fyrri hluta útsvara þessa árs hér í Reykja- vik, ef sá helmingur útsvarsins verður ekki greiddur fyrir 2. ágúst. Knattspyrnukappleikurmn í gærkveldi milli „K. R.“ og ensku knattspyrnumannanna af „Atlantis” fór pannig, að „K. R.“ vann með 2 gegn 0. Hafði naum- ast verið búist við svo glæsileg- um sigri „K. R.“-manna, þar eð ma'rgir úr peirra liði eru erlendis, en við prautæfða Englendinga að keppa. í fyrri hálfleiknum var ekkert mark skorað, en í hinum síðari vann „K. R.“ sigurinn. Var margt áhorfenda, bæði Islending- ar og Englendingar. Voru flestir farpegar „Atlantis“ par viðstadd- ir. Nasas pasja, fyrv. forsætísráðherra Egypta- lands. Bifreiðarslysið á sunnudaginn. Guðrún Tryggvadóttir á Njáls- götu 34, litla stúlkan, sem varð fyrir bifreiðinni á sunnudaginn, liggur enn veik. Hefir hún rænu öðru hverju, en ekki alt af. Lækn- ir býzt við, að líkt verði um heilsu hennar 3—4 næstu daga, en úr því muni henni fara batn- andi. Litla stúlkan liggur heima, en ekki í sjúltrahúsi. Sumarstarfsnefnd F. U. J. mæti í Alþýðuhúsinu kl. 8 ann- að kvöíd. Félag Vestur-íslendinga býður öllum Vestur-ísleniding- um, sem staddir em hér í Reykja- vík, á fund, sem haldinn verður á föstudagskvöldið kl. 8 í alþýÖU- húsinu Iðnó. Verða par ræðuhöld og fleira til skemtunar. Var upp- haflega í fáði, að fundur pessi yrði haldinn fyrri, en sökum ým- issa atvika gat pað ekki orðið. Oddur Sigurgeirsson: Guðrún Lárusdóttir, sem Knútur er búinn að gera að fátækrafulltrúa, vill ekki láta mig kvitta fyrir eftir- laun mín eins og aðrir heiliar- legir menn gera, heldur vill hún sjálf skrifa sitt eigið nafn. Ég er á móti þessu. Hún hefir ekk- ert læknásvottorð, en pað hefi ég. Hvað vill hún svo upp á dekk? Magnús V. er fjármálamaður minn, en ekki Guðrún, eða rnein önnur kvinna. Þetta er alt satt og rétt. Oddur Sigurgeirsson af Skaganum. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Haraldur Guðmundsson. Alpýðuprentsmiðjan. ? /

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.