Morgunblaðið - 02.03.1972, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐJÐ, FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1972
7
6db ö'í
DAGBÓK
BARWWA..
BANGSIMON
og vinir hans
Það var lítið gagn að
því fyrir Bangsímon að
vita það, því Kaninka átti
þann aragrúa af vinum og
ættingjum, af öllum stærð-
um og gerðum, að hann
vissi ekki, hvort hann
mætti búast við að sjá
Billa uppi í eikartré eða
ofan í sóley.
„Ég hef ekki séð neinn í
dag,“ sagði Bangsímon.
„Að minnsta kosti hef ég
ekki sagt: Góðan daginn,
Billi, við hann. Þarftu að
nota hann?“
„Ég þarf ekki að nota
hann,“ sagði Kaninka, „en
það er betra að vita, hvar
vinir manns og ættingjar
eru niður komnir, hvort
sem ætlunin er að nota þá
eða ekki.“
„Svoleiðis," sagði Bang-
símon. „Er hann týndur?“
„Ég veit það ekki,“ sagði
Kaninka. „Hann hefur
ekki sézt lengi svo ég býst
við, að hann hafi týnzt,“
hélt hún áfram. „Ég lofaði
að skipuleggja leit að hon-
um, svo þú skalt koma
með.“
Bangsímon kvaddi krukk
urnar sínar með söknuði
og vonaði að þær væru
fimmtán, og svo lagði hann
af stað út í skóginn með
Kaninku.
„Þetta,“ sagði Kaninka,
„er leit, og ég hef skipu-
lagt hana.“
„Iiefurðu hvað?“ spurði
Bangsímon.
„Skipulagt hana. Það er
gert, þegar á að leita að
einhverju til þess að allir
leiti ekki upp aftur og aft-
ur á sama stað. Þess vegna
ætla ég að biðja þig, Bang-
símon, að leita fyrst við
Grenitrén sex og halda
svo áfram í áttina að húsi
Uglunnar og vita, hvort þú
sérð mig ekki þar. Skil-
urðu mig?“
„Nei, ekki alveg,“ sagði
Bangsímon. „Hvað . . .?“
„Ég hitti þig þá við hús
Uglunnar eftir klukku-
tíma."
„Er Grislingurinn líka
skipulagður?“
„Við erum það öll,“ sagði
Kaninka og hvarf.
Um leið og Kaninka var
horfin, mundi Bangsímon
eftir því, að hann hafði
gleymt að spyrja, hver
Billi væri, og hvort hann
væri einn af þeim vinum
og ættingjum Kaninku
sem settust á nefið á
manni, eða einn af þeim,
sem hætt var við að'mað-
ur stigi ofan á af misgán-
ingi. En þar sem nú var
orðið of seint að spyrja að
þessu, ákvað hann að byrja
leitina með því að finna
Grislinginn og spyrja
hann, að hverju þeir væru
að leita, áður en þeir byrj-
uðu að leita.
„Og ekki er við því að
búast að Grislingurinn sé
við Grenitrén-sex, því
hann hefur verið „skipu-
lagður“ einhvers staðar
annars staðar. Og mér
þætti gaman að vita, hvar
það ætti helzt að vera.“
Til þess að muna þetta bet-
ur skrifaði hann þetta á
bak við eyrað:
HVERNIG Á AÐ LEITA
í RÉTTRI RÖÐ:
1. Einhver staður (til að
finna Grislinginn).
2. Grislingurinn (til að fá
að vita, hvar Billi er).
3. Billi (til að finna Billa).
4. Kaninka (til að segja
henni að ég hafi fundið
Billa).
5. Billi aftur (til að segja
honum að ég hafi fund-
ið Kaninku).
Næstu augnablik fannst
Bangsímon dagurinn ætla
að verða alveg óbærileg-
ur, því hann gætti þess
svo vel að líta ekki niður
fyrir fætur sér, að hann
steig niður fætinum þar
FRflMttHLBS
SflGfl
BflRNflNNfl
FERDINAND
Finnboga saga ramma — Teikningar eftir Ragnar Lár.
27. Bóndi kannaðist við Ásbjörn, föður Finnboga,
því að hann var af Hálogalandi ættaður. Voru
Finnboga fengin þurr klæði. Um morguninn gengu
þeir til sjávar, og var þá rekinn á land mestur
hlutur þess er á skipinu var. Var Finnbogi þar um
veturinn í góðu haldi.
28. Þann vetur gekk björn þar og drap niður fé
manna. Bárður stefnir þing og leggur fé til höf-
uðs birninum. Gerist björninn illur viðureignar og
drepur bæði menn og fé. Eitt kvöld talar Bárður
við sína menn, að þeir skyldu búast mót birninum
að morgni.
BRQTAMÁLMUR
Ka'upi allan brotamálm ha&sta
verði, staðgreiðsla.
Nóatún 27, snr»i 2-58-91.
HÁSETA VANTAR
á góðan 70 lesta netabét,
sem er að heifja netaveiðar.
Upplýsingar í síma 92-7053.
Karl Njálsson.
TtL SÖLU
Votvo Arrozon '65.
Sjál'fskiptur og góður bíll.
Uppl. í síma 81279.
HÁLFDAGSVINNA ÖSKAST
Umg stúl'ka með starfsreynslu
í skrifstofu óskar eftir hólf-
dagsvinnu (fynri hluta dags.)
Þeir, er vilija sinna þessu,
leggi uppi. inm í afgr. Mibl.
merktar 1922.
HEITUR OG KALDUR MATUR
Smurt brauð, brauðtertur,
leiga á dúkum, diskum, hnifa-
pörum, glösum og flestu sem
tifheyrir veizluhöldum.
Veizlustöð Kópavogs
simi 41616.
KEFLAVÍK
Óska eftir 3ja—4ra h'erb.
íbúð í Keflavik eða nágrenni
sem fyrst. Uppl. gefur WilJS-
am Scottow CTRI. Slmi
8442 eða 4143, Keflavíkur-
flugvelli.
FYRRVERANDI
óreglumaður óskar eftir góðu
starfi. Hefur sérstakan áhuga
á sölustarfi eða öðru. Margt
annað kaemi þó ti'l gr. Er á
bezta aldri. Tilboð, merkt
Bjartsýni 1921, sendist afgr.
Mbl.
PLASTEINANGRUN
GLERULL
BYGG ING^gUR
KÓPAVOGI
Sími: 40990
lil sýnis og sölu í dag
Bronco '69, 8 strokka
Fond Fairlane '66, 2ja dyra
Opel Commandoire '70, nýinnfl.
Taunus 17 M '66
Austin Mini '64
Volikswagen '64
Volkswagen '62
Volkswagen '60
Nýinnfluttir vörubílar:
Mercedes-Benz 1113 '66
Mercedes-Benz 1413 '66, drif é
öllum
M-Benz 1418 66, sturtúleus
Mercedes-Benz 1418 '66, skífu-
bíll með sturtu
M-Benz 2322 '66, sturtulau'S
Bedford '64.
BlLA-, BÁTA- og VERÐBRÉFA-
SALAN við Miklatorg. simar
18677 — 18675.