Morgunblaðið - 02.03.1972, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1972
H *
EHlert Schram:
Sala mjólkurvara frjáls
— að fullnægðum skilyrðum
um sölu og meðferð
Á FUNDI neðri deildar i gær
kom til 1. umræðu frumvarp Ell-
erts B. Schram o.fl.f sem er í
því fólgið, að samsölustjórn sé
skylt að heimila mjólkurvöru-
verzlunum, sem um það sækja,
sölu og dreifingu mjólkurvöru,
enda sé þeim almennu skilyrðum
fullnægt, sem samsölustjórn
ákveður um aðbúnað, greiðslu-
fyrirkomulag og meðferð mjólk-
urvöru. Meðfiutningsnienn að til-
lögunni eru Lárus Jónsson, Matt-
hias Bjarnason og Ragnhildur
Helgadótttir.
Hannibal Valdimarsson lýsti
yfir stuðningi sinum við frum-
varpið.
Ellert B. Schram (S) sagði, að
reynslan hefði sýnt, að frjáls
verzlun reyndist farsælust neyt-
endum og þjóðarbúinu í heild. í
þvi máli, sem hér væri til um-
ræðu, liti dæmið hins vegar svo
út, að almenn dagleg nauð-
synjavara væri seld og henni
dreift undir yfirstjórn hags-
munasamtaka, sem ekki hefðu
tekið tillit til þróunarinnar.
Þingmaðurinn sagði, að lengi
hefði verið deilt
á þetta fyrir-
komulag. —
Ágreiningurinn
stæði um það,
hvort eða af
hverju ekki
mætti selja
mjólkurvörur 1
verzlunum, sem
væru reiðubún-
ar til að bjóða fullkomnasta út-
búnað og þjónustu við sölu vör-
unnar, eða hvort áfram ætti að
liðast í skjóii landslaga, að sam-
sölustjórn gæti drottnað yfir eða
jafnvel mismunað aðilum, og
komið í veg fyrir þá auknu þjón
ustu og það viðskiptalega jafn-
rétti, sem farið væri fram á.
Helztu rök fyrir umræddri
bneytingu saigði þingmaðurinn
vera, að bændur gætu losnað við
óþarfa fjárfestingu, sem næmi
tugum milljóna, ef horfið yrði
frá því að reisa sérstakar mjólk-
verzlanir. Neytendur ættu auð-
veldara með að nálgast mjólkur-
vörur, þegar þær væru seldar
með öðrum matvörum, og aukn-
ir möguleikar myndu skapast til
heimsendingar mjólkur, en
hvort tveggja gæti vafalaust
leitt til aukinnar sölu og neyzlu
mjólkurvara. Heildardreifingar-
kostnaður á mjólk myndi að öll-
um líkindum lækka, og væri þá
höfð hliðsjón af þróun slikra
mála i Danmörku. Eytt yrði því
viðskiptalega misrétti, sem þró-
azt hefði í skjóli núgildandi fyr-
irkomulags og stjórnunar, og
myndi það forða óþarfa tor-
tryggni og árekstrum.
Loks sagði þingmaðurinn, að
það væri skoðua sin, að með
framgangi þessa rnáls væri veiið
að gæta jafnt haigsmuna fram-
leiðenda og neytenda. Lagði
hann áherzlu á, að samkvæmt
frumvarpinu væri gert ráð fyrir
að yfirstjóm sölu og dreifingar
mjólkur yrði áfram í höndum
samsölustjóma.
Ágúst Þorvalðsson (F), sem
sæti á i stjórn Mjólkursamsöl-
unnar, sagði m.a., að engin vissa
væri fyrir því, að við sölu á
mjólkurbúðunum fengu framleið
endur rétt verðgildi þeirra. Enn-
fremur fylgdi slíkum ráðstöfun-
um uppsögn fjölda starfsfóiks.
Þá sagði Ágúst, að nú færi
fram athugun á því hvort búðir,
sem nú hefðu mjólkursöluleyfi,
fullnægðu þeim skilyrðum, sem
sett hefðu verið. Nú þegar væri
búið að athuga 139 búðir, og af
þeim fjölda væru 43 sem ekki
fullnægðu settum skilyrðum.
Benti hann á, að iiklega yrði erf
itt að hafa svo gott eftirlit með
mjólkursölu, ef meirihluti mat-
vöruverzlana í borginni fengi
m j ólkursöluleyf i.
Þingmaðurinn sagði, að fyrir
nokkru hefðu fulltrúar þeirra
verzlana, sem nú hefðu mjólkur-
söluleyfi, krafizt hærri sölu-
launa, en þeim verið synjað.
Gætu allir séð, hvernig það mál
hefði staðið ef matvörukaup-
menn hefðu mjólkursölu, og
væru einir um hituna.
Þá benti þingmaðurinn á að
Mjólkursamsalan hefði alltaf
reynt að sinna hagsmunum neyt-
enda, m.a. með þvi að fylgjast
vel með að nýjungum í tækni og
að vanda pakkningu vörunnar.
Gylfi Þ. Gíslason (A) sagði,
að löggjöfin um framleiðsluráð
landbúnaðarins væri meingölluð
frá upphafi og brýn þörf á að
taka hana til endurskoðunar. Þá
gerði hann það
að umtalsefni,
að ýmsir stæðu
i þeirri trú, að
hækkun á land-
búnaðarvörum
nú kæmi öll inn
í kaupgjaldið 1.
júni n.k. Þetta
væri mikill mis-
skilningur.
Hækkunin á landbúriaðarvörun-
um nú svaraði til 2,14 vísitölu-
stiga. Samkvæmt gi.dandi land-
búnaðarlögum ættu neytend-
ur ekki að fá 1,8 stig af þessari
hækkun bætt, heldur yrðu þeir
að bera þann hluta hækkunarinn
ar bótalaust.
Alþingismaðurinn gerði aíðan
sámanburð á verðlagi .nú og 4.
des. við undirskrift kjarasamn-
inganna og tók sem dæmi, að
þá kostaði 1 kg af súpukjöti
124.50 kr., nú 165.50 kr. Skyr
kostaði þá 24.50 kr., nú 41 kr.
Ostur, 45%, þá 142.50, nú 185.80
kr. Siðan sagði alþingismaður-
inn: Þessar verðhækkanir hafa
verið bættar með 1% kauphækk
un og verða bættar með annarri
1% kauphækkun eftir þrjá mán-
uði. Getur hver sagt sér sjálfur,
hvort kjör launþega eru nú að
versna eða batna.
Ragnhildur Heigadóttir (S)
sagði, að frumvarpið fjallaði um
afnám á einkaaðstöðu Mjó’kur-
samsölunnar á dreifingu mjólkur
vara, sem væri með torskildari
fyrirbærum i viðskiptalifinu,
eins og nú væri komið, enda
skorti talsvert á, að mjólkurdreif
ingin hefði fylgt því lögmáli að
gera neytendum til hæfis.
Alþingismaðurinn gerði eink-
um að umtalsefni, að með skipu
lagi mjólkurdreifingarinnar
kæmi fram algjört skilningsleysi
á tima og fyrirhöfn húsmæðra.
Dró hún upp mynd af þeim
erfiðleikum, sem ung húsmóðir
með fimm í heimili, ætti við að
stríða í dagleg-
um aðdrætti á
nauðsynjum og
þeim mikla tima
sem það tæki
hana að fara i
og búa börn sin
til slikra verzl-
unarferða.
Sagði hún, að
ekki væri úr
vegi, að gerð yrði á þvl rann-
sókn, hve langan tíma það tæki
húsmóðurina að fara i slíka
leiðangra. Það gegndi furðu,
hvernig húsmæðurnar hefðu lát-
ið fara með tima sinn í þessu
efni.
Ragnhildur Helgadóttir taldi,
að það væru mjög haldlitil rök,
að starfsstúlkur i mjólkurbúðum
misstu atvinnu siína þótt mjólk-
urbúðimar legðust niður. Sin
kynni af þeim væru slik, að eng-
ar likur væru á, að þær ættu í
erfiðleikum með að fá atvinnu
annars staðar, svo góða þjálíun
sem þær hefðu fengið.
Að lokum sagði alþingismað-
uirinm, að það hefði lengi verið
óisk neytenda á íslandi að geta
feingið mjólikina senda heim, en
ekki komið til framkvæmda.
Hins vegar hefðu ýmisir kaup-
merm sent vörur heim og þanmig
sýnt skilning á önnum húsmæðr-
anraa. Sjóntanmið kaupmainina og
neytenda hlyti að fara saman, ef
vel.væri, og bezt væri komið til
móts við neytendur með sam-
þykkt frumvarpsins.
Hannibal Valdimarsson lýstl
yfir stuðningi við frumvarpið.
Benti hanin á, að með fullkom)-
imni kælingu og lokuðum umbúð
um hefðu við-
horfin breytzt
og sagði að nú
væri ekki nokk-
ur ástæða til að
amast við því,
að mjólk væri
seld í matvöru-
verzluinum, ef
skilyrðum um
hollustuhætti og
heilbrigðiskröfum um meðferðog
sölu mjól'kurafurða væri full-
nægt. Hann taldi, að óþarft væri
að standa undir 40 til 50 mjólk-
urbúðum við hliðinia á fultkomin-
um matvörubúðum og sagði, að
kostniaðurinn af þeim hvDdi á
neytendum.
Loks undirstrikaði ráðherra, að
frumvarpið gengi ekki lengra en
svo, að sarnsölu.stjómin gæti vel
við unað.
Ellert B. Schram lýsti ánægju
sinni yfir undirtektum ráðherra
og sagði jafnframt, að viðskipta-
ráðherra hefði á fundi með
Verzlunarráði gefið sanns konar
yfirlýsingu.
Þingmiaðurinn undirstrikaði, að
með frumvarpinu ætti ekki að
gefa mjólkursöluna frjálsa, held-
ur yrðu viðkomandi verzlanir að
fullnægja settum skilyrðum, sem
saimsöluistjómiin setti. Hann lagði
áherzlu á, að allur almenniinigur
væri einróma þeirrar skoðunar,
að þjómustuna yrði að bæta að
þessu leyti.
^Bætt úr brýnni þórf.
<zNýir salir fyrir stórarog smáar samkomuíi
Höfum 10-150 manna sali fyrir ráðstefnur, fundi,
árshátíðir, spilakvöld,jólatrésskemmtanir, þorrablót, veizlur, blaðamannafundi og fleira.
Sjáum um veitingar, mat og drykk. Dansgólf - Bar.
UPPLÝSINGAR f SÍMA 82200