Morgunblaðið - 02.03.1972, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1972
Indverskir hermenn frá
Bangladesh 12. marz
Indira Gandhi ítrekar tilboð
um friðarsamninga við Pakistan
Nýju Delhi, 1. marz. AP.
TALSMAÐUR landvarnarráðu-
neytis Indlands skýrði svo frá í
dag, að allir indverskir hermenn
yrðu koninir lieim frá Bangla-
desh 12. mar/. n. k. eða 13 dög-
um fyrr en upphaflega var áætl-
að.
Forsastisráðherrar landanna,
Indira Gandhi og Mujibur Rah-
man höfðu samið um, að her-
mennimir yrðu allir farnir þann
25. marz. Að sögn talsmannsiins
verður Mujibur viðstaddur hátíð-
lega kveðjuathöfin i Dacca þegar
síðustu hermennirnir fara.
Nú eru sagðir í Bangladesh
um 15.000 indverskir hermenn
eða tíundi hluti þeirra manna,
sem réðust gegn hersveitum Pak
istans á sínum tima.
Indira Gandhi ítrekaði i dag
tilboð sitt frá 15. ágúst sl. um
friðarsamning við Pakistan. —
Zulfikar Ali Bhutto, forseti Pak-
istans, hefur enn ekki svarað til-
boði hennar en vestrænir frétta-
menn i nýju Delhi segja, að þar
sé uppi sterkur orðrómur — en
óstaðfastur — um að Bhutto
muni koma þangað til viðræðna
við Indiru Gandhi, þegar allir ind
versku hermennirnir séu á brott
frá Bangladesh.
Mujibur í Moskvu
Leitar eftir efnahagsaðstoð
So vétrí k j anna
Moskvu, 1. marz — AP
MUJIBUR Rahman, forsætis-
ráðherra Bangladesh, ræddi
í dag í þrjár klukkustundir
við Alexei Kosygin, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, og
er talið víst, að viðræðurnar
hafi fyrst og fremst snúizt
um efnahagsástandið í Bangla
desh og hvað Sovétmenn
vilji leggja af mörkum til úr-
bóta.
Ekkert var um viðræðurnar
sagt opinberlega annað en að
samskipti þeirra Mujiburs og
Kosygins hefðu verið hlýleg og
vinsamleg, og þeir hefðu rætt
„alþjóðleg vandamál, sem báðir
hefðu áhuga á“. Meðal sovézku
fundarmannanna voru Vladimir
S. Novikov, sem sérstaklega
fjallar um efnahagsmál og Semy-
on A. Skacmzov, sem fjallar um
utanríkisviðskipti. Ennfremur
var þar Andrei A. Grechko, land-
varnaráðherra Sovétríkjanna.
í kvöld hélt Kosygin veizlu til
heiðurs Mujibur og voru þar
einnig þeir Leonid Brezhnev,
flokksleiðtogi og Nikolai Pod-
gomy, forseti.
Sovétríkin eru fyrsta landið ut-
an Indlandsskaga, sem Mujibur
Rahman heimsækir frá því hann
komst til valda í Bangladesh. Á
Moskvuflugvelli tóku á móti
honum þeir Kosygin, Andrei
Gromyko, utanrikisráðherra, og
Dmitry S. Polyanski, varaforsæt-
isráðherra. Þar voru einnig 200
sovézkir verkamenn, sem veifuðu
Pakistan:
Bhutto takmarkar
jarðeignir manna
Nýju Delhi, 1. marz — AP
ZULFIKAR AIi Bhutto, for-
seti Pakistans, sem er erfingi
einnar mestu jarðeignaf jöl-
skyldu landsins, hefur til-
kynnt, að jarðcignir manna
verði gerðar upptækar
að vissu marki. Ekki fylgir
fregninni, hvort uppteknu
landsvæðunum verði skipt á
milli smábænda eða þau
þjóðnýtt.
Bhutto skýrði frá þessum ráð-
stöfunum sinum í útvarpsræðu
í gærkvöldi. Harrn sagði, að hér
eftir mætti enginn eiga meira
en 4 hektara af ræktuðu landi
og 8 hektara óræktaðs lands. Ár-
ið 1959 hafði Ayub Khan, fyrrum
forseti landsins, sett mörkin við
12,5 hektara ræktaðs lands og
25 hektara óræktaðs lands.
Bhutto sagði, að þessar nýju
ráðstafanir miðuðu að afnámi
lénsskipulags í landinu. Þær
mundu koma niður á öllum land-
eigendum, einnig opinberum
starfsmönnum og hermönnum.
Hinum fyrrnefndu yrði einungis
leyft að halda 2,5 hekturum af
jarðeignum, sem þeir hefðu
eignazt á starfsferli sínum í
þjónustu hins opinbera og gerð-
ar yrðu upptækar allar jarð-
eignir, sem herforingjar hefðu
komizt yfir með ólöglegum hætti,
meðal annars með ólöglegu
braski með landsvæði, er lægju
að indversku landamærunum.
Hins vegar kvaðst hann ekki
gera upptækar landeignir, sem
mönnum innan hersins hefðu ver
ið gefnar i viðurkenningarskyni
fyrir veitta þjónustu — þau land-
svæði hefðu þeir fengið fyrir að
verja land sitt og þjóð.
fána Bangladesh og hrópuðu:
„Vinátta, vinátta — Bangladesh
og Sovétríkin!"
MU.IIBUR ÞAKKLÁTUR
Sovétrikin voru, sem kunnugt
er, fyrsta stórveldið, sem viður-
kenndi tilvist Bangladesh sem
sjálfstæðs ríkis og hafa sovézk
blöð og TASS-fréttastofan lagt
mikla áherzlu á það, hve þakk-
látur Mujibur Rahman sé Sovét-
mönnum fyrir stuðning þeirra i
sjálfstæðisbaráttu Bangladesh.
Segja Sovétmenn að Mujibur
þakki Sovétstjórninni einnig, að
hann skyldi látinn laus úr fang-
elsi í Pakistan.
Mujibur hefur látið sér mjög
tíðrætt um það frá þvi hann tók
við stjómartaumunum hversu
þörf Bangladesh fyrir efnahags-
aðstoð erlendra ríkja sé nú brýn
— nauðsynlegt sé að gera ýms-
ar ráðstafanir í efnahagsmálum
til þess að koma í veg fyrir
sundrungu og óeirðir í landinu.
Hefur sovézk sendinefnd, aðal-
lega skipuð sérfræðingum í
efnahagsmálum, dvalizt um hrið
i Dacca til þess að kynna sér
hvers land og þjóð þarfnast, en
þegar hafa verið sendar þangað
gjafir frá Rauða krossinum í
Sovétríkjunum og ýmsum öðr-
um samtökum þar.
Búizt er við, að Mujibur verði
í Moskvu til föstudags, en fari
siðan í heimsókn til Leningrad
og Tashkent.
Verkfall kolanámiunanna í Bretlandi leystist í fyrri viku þegar
tilboð kolanámustjórnarinnar um bætt kjör námiimanna var
samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Verkfaliið
hafði þá staðið í 47 daga og valdið gífurlegu fjárhagstjóni. —
Verkfallið náði til 282 þúsund námumanna, en um 217 þúsund
þeirra tóku þátt í atkvæðagreiðslunni um nýja kjarasamninga,
og greiddu aðeins 7.500 þeirra atkvæði gegn tiiboðinu. Sam-
kværnt nýju samningiinum fá námumennimir 20% launahækk-
un, og gildir sú hækkun aftur l'yrir sig, eða frá 1. nóvember í
fyrra. — Mynd þessi var tekin þegar námumenn voru að greiða
atkvæði um samningana.
Afstaða íslendinga
„hlutdræg66 og
„ósveigjanleg
- segir framkvæmdastjóri sam-
taka brezkra togaraeigenda
«
FRÉTTARITARI Times i Hull
hefur eftir Austen Laing,
framkvæmdastjóra samtaka
brezkra togaraeigenda, að af-
staða íslendinga varðandi fyr-
irhugaða útfærsln fiskveiðilög
sögu landsins í 50 sjómílur sé
„hlutdræg“ og „ósveigjanleg“.
Hanrn segir, að í viðræðum
við Jónas Árnason, sérlegan
sendimann sjávarútvegsráðu-
neytisins, sem fram fóru í
Hull í gær, hafi Laing svarað
af Breta hálfu þeim röksemd-
um íslendinga, að_ þeir óttist,
að fiskimiðin við fsland verði
tæmd, ef þeir láti sitja við 12
mílna fiskveiðilögsögu.
Laing segir, að engar vís-
bendingar séu fyrir hendi,
sem styðji þá staðhæfingu ís-
lendinga að fiskiðnaði þeirra
sé hætta búin. Hanin segir, að
Bretar hafi alltaf skilið á-
hyggjur íslendinga af vaxandi
veiðigetu þjóða heims og hin-
um hreyfamlegu fiskiskipaflot-
um, sem væru líkastir ryk-
sugum á miðunum, en þeir
teldu á hinn bóginn, að bezta
lausnin væri að setjast niður
og ákveða veiðikvóta í sam-
ráði við vísindamenn. Þegar
fyrir liggi upplýsingar um
hvað fiakistofnamir þoli, ætti
að vera hægt að ökipta veið-
inini milli þjóðanna og veita
fslandi forréttindi sem strand-
ríki.
Laing sagði, að íslendingar
vildu ekki einu sinni reyna
slíkt samkomulag. Þeir ætli
að færa út fiskveiðitakmörk-
in i 50 sjómílur frá 1. sept-
ember, en leyfa Bretlandi og
V-Þjóðverjum að veiða innan
markanna í tiltekinn tíma
gegn því, að Bretar samþykki
rétt íslendinga yfir umræddu
svæði. „Við staðhæfum segir
Laing, að íslendingar geti
ekki gefið það, sem þeir eiga
Kafbáturinn
dreginn til
Murmansk ?
Washington, 1. marz. AP. I hilaður um 1000 kílómetra norð-
TVÆR sovézkar herflugvélar, austur af Nýfundnaiandi síðast-
hafa varpað niður vistum til liðinn föstudag. Sovézkur drátt-
kjarnorkukafbátsins, sem fannst | arbátur er nú kominn á vettvang
____________________ og dregur kafbátinn i norðaustur-
átt, sem bendir til að verið sé að
fara með hann til Murmansk.
Hann fer þá að öllum likindum
gegnum sundið milli íslands og
Færeyja. Nokkur öninur sovézk
skip eru á þessum slóðum, og
fylgja þau kafbátnum og drátt-
arbátnum eftir fyrst í stað a.m.k.
Flugvélar frá bandarisku
NATO-stöðinni i Keflavík, hafa
fylgzt með ferðum kafbátsins og
hinna sovézku skipanna, en einn-
ig er bandariskt straindgæzluskip
á þessum slóðum. Það kom á vett
vang strax síð&stliðinn laugar-
dag, og bauð kafbátsforingjan-
um alla þá aðstoð sem það mætti
veita. Sovétmenn hafa ekki þeg-
ið það boð.
ekki — og teljum að málið
hafi siglt í strand.“
Bretar eru þeirrar skoðun-
ar að þvi er Laing segir, að
íslendingar eigi að vísa mál-
inu til Alþjóöadómstólsins,
„sem hafi verið settur til þess
að verja litlar fiskveiðiþjóðir",
en þeir neiti því á þeirri for-
sendu, að það mundi taka of
langan tíma.
Loks segir, að sjónarmið Is-
lendinga séu þau, samkvæmt
upplýsingum Jónasar Árna-
sonar, að skoðanir opinberra
aðila í Bandaríkjunum hafi
hneigzt til útfærslu fiskimiða
og næf sjónarmiðum Islend-
inga. Þetta muni koma i ljós
á Hafréttarráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna.
Þessu kveðst Laing vilja
svara með því, að þá sé bezt
að bíða eftir ráðstefnunni en
þangað til hún verði haldin,
sé hægt að setja þjóðum veiði
kvóta á íslandsmiðum.
Þetta vilji Islendingar held-
ur ekki fallast á.
Nær 5000 frá
Suður-Víetnam
Saigon, 1. marz — NTB
YFIRSTJÓRN bandaríska her-
liðsins í Suðiir-Víetnani tiikynnti
í dag, að innan skamms yrðu
4.960 bandarískir hermenn flutt-
ir frá liardaKasvæðnm ogr flestir
jieirra sendir heim. Verða þá eft-
ir í landinu 125.000 bandariskir
hermenn, niu fótgöngidiðssveitir
ng tvær stórskotaliðssveitir.
Gert er ráð fyrir, að s-víet-
namska hernnm verði afhentar
nm 100 þyrlur, þegar hersveitir
þessar fara.