Alþýðublaðið - 06.08.1930, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
BerMaveikimeðal
Bók um það eftir svissaesk-
an lœkni.
Eftir Kr. Linnet.
(Nl.)
Það er nú liðið meira en hálft
annað ár síðan ég aflaði mér
upplýsinga um meðal þetta og
keypti nokkuð af því. Ég hefi síð-
an reynt það bæði á heimili minu
og utan heimilisins á nokkrum
sjúklingum. Reynsla mín er auð-
vitað lítil og ekkert á henni að
byggja fyrir aðra. En hún er góð
það sem hún er. Ég tek þetta
fram til skýringar, þvi að ég tel
mér frekar skylt en ella að geta
meðalsins og bókar dr. Seche-
haye, úr því aðrir virðast eigi'
ætla að verða til þess. Sjálfur er
ég sannfærður um að meðalið
getur komið að gagni.
Tilgangur minn með grein
þessari er aðallega sá að hvetja
til þess, ad meoalid oerdi rœki-
lega prófað á nokkuð mörgum
sjúklingum, og með pví sem allra
fyrst skorið úr um glidi pess.
Þegar litið er til þess, að á
ijárlögunum fyrir árið sem kem-
ur eru veittar 800,000 — átta
hundruð púsund — krónur sern
styrkur til berklaveikra sjúklinga
í eitt ár, og þegar litið er ti!
alls þess nrikla tjóns og allrar
þeirrar stórkostlegu eymdar og
sorgar, sem af veiki þessari leið-
ir og hefir leitt fyrir þjóð vora,
virðist fyrirgefanlegt þó að leik-
maður, sem hefir von um að
þekkja nokkurt ráð við þessu,
«r að gagni megi koma, taki til
máls þegar aðrir þegja. Það virð-
.ist eftir því, sem að frarnan hefir
verið frá skýrt, eigi vera ástæðu-
laust að krefjast þess af lækna-
stétt landsins og hlutaðeigandi
stjórnarvöldum, að þeir kynni sér
þetta mál og sinni þvi síðan.
Það er hverfandi lítil upphæð af
800 000 krónu fúlgunni að verja
svo sem 5000 krónum til kaupa
á meðali þessu og með því sann-
prófa gildi þess. Vér eigum ekki
víst hvenær aðrir gera það. Fyr-
ir þessa upphæð má fá nægilega
mikið af meðalinu til þess að
nota við 50 sjúklinga í þrjá mán-
uði. Ef vel tekst mun það gefa
þúsundfaldan ávöxt og gera bjart
á hundruöum heimiia. Ef það
misheppnast slokknar að eins
einn vonameistinn í viðbót. Er
unt að efast um hvað rétt sé að
gera?
Hvað ep að frétta?
Skoðun bifreiða. Á morgun
verða skoðuð bifreiðar og bif-
hjól nr. 226—300.
Skátafélagið „Ernir“ biður fé-
laga sína að fjölmenna á fundi
í barnaskólanum annað kvöld kl.
81/2. Fundur þessi er mjög áríð-
andi fyrir alla félagana.
Knattspyrnan. Jafnleiki varð í
gæp i’ knattleiknum milli „K. R.“
og „Fram“. Skomðu 3 mörk
hvort.
Togararnir. „Geir“ kom í gær
af ísfiskveiðum með 1500 körfur
ísfiskjar og fór til Englands með
aflann. „Gyllir“ fór í gærkveldi
á saltfiskveiðar. —. I morgun kom
þýzkur togari hingað lítið eitt
bilaður .
Skipafréttir. „ísland“ fór í gær
vestur um land í Akuieyrarför.
„Esja“ var í morgun á ísafirði.
„Súðin“ fór í moigun frá Sauðár-
lcróki; hafði beðið þar í sólarhring
eftir afgreiðslu vegna veðurs. —
Oliuskip, sem kom: í fyrra dag til
Olíuverzlunar islands, fór aftur í
gær.
Þakkarávarp.
Ég er nú komin á sjötugs-
aldur. Foreldrar mínir voru af
góðum og vönduðum ættum, en
fátæk. Varð ég fljótt að fara Trá
þeim og i vist til vandalausra og
vinna eftir megni — eða meira—.
Síðan hefi ég verið vinnukona,
þar til mig þraut heilsu fyrir
nokkrum árum, fyrst fyrir ekkert
kaup nema nauðsynlegustu
spjarir á kroppinn — og þær
voru ekki úr silki í þá daga —
og síðar fyrir svp lítið kaup fyrir
árið auk fatanna, að nú þættu
lítil eins dags laun — 7—12 krón-
ur —. Nú er ég útslitin af erfiði
og ofþreytu og þar að auki þjáð
af langvinnum sjúkdómi, mitt
litla, samanspara.ða kaup gersam-
lega þrotið og ég algerlega um-
komulaus einstæðingur, sem svíð-
ur sárt, ef ég neyðist til að
þiggja sveitarstyrk, enda þótt á
það kunni nú að vera litið öðr-
um augum en gert var í ungdæmi
mínu; þá var það talin nærri þvj'
eins mikil hneisa að þiggja af
sveit eins og að éta hrossakjöt.
Nú — i þrengingu minni —
sendi almáttugur guð mér svo
marga sanna vini, sem hafa styrkt
mig og glatt með gjöfum, hug-
hreystandi orðum, samhygð og
góðu atlæti á allan hátt. Vil ég
þar fyrst til nefna núverandi hús-
bændur mína, sæmdarhjónin Sig-
urþór oddvita Ölafsson og konu
hans, Sigríði Tómasdóttur í
Kollabæ í Fljótshlíð, þá kvenfé-
lag Fljótshlíðar og marga aðra
Fljótshlíðinga og fleiri fjær og
nær. Enn fremur frú Mörtu Jóns-
dóttur í Baldurshaga í Vest-
mannaeyjum, Ingibjörgu dóttur
hennar og sérstaklega son henn-
ar, ísleif Högnason, sem hefir
gefið mér stórgjafir.
Öllu þessu fólki færi ég nú mitt
innilegasta hjartans þakklæti og
bið þessum velgerðamönnum
minum allrar blessunar nú og að
eilífu.
Og ég veit að guð bænheyrir
mig, því hann getur ekki látið
kærleiksverk ólaunuð.
Halldóra Magnúsdóttir.
SJm dagiran og vegirara.
Hjarta-ás
smjarlíkið
er bezt
STÚKAN 1930 fer skemtiför sunnu-
daginn 10. ágúst. Nánari upplýs-
ingar á fundi á föstudag, Fjöl-
menniðl
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson,
Laugavegi 49, sími 2234.
Dansleik
halda íþróttamenn næstkomandi
föstudagskvöld kl, 9 L/a í K. K-
húsinu, til að fagna Færeyjaför-
unum. Þar verða einnig afhent
verðlaunin frá alþingishátíðar-
mótinu. Öllum þátttakendum og
starfsmönnum alþingishátíðarmóts-
ins er fijáls aðgangur ókeypis.
Einnig geta aðrir íþróttamenn og
konur fengið aðgang meðan^hús-
rúm leyfir, gegn lágum aðgangs-
eyri.
„Varðeldar",
skátablað, sem gefið er út á
ísafirði, verður selt á götunum á
morgun. Blaðið er laglegt útlits
og skemtiiegt fyrir alla, unga og
gamla, sem unna útilífi og fjall-
göngum. Blaðið verður selt frá
afgreiðslu Fálkans í Bankastræti.
Daði Daðason,
dyravörður Templara í Bröttu-
götu, slasaðist á föstudaginn var.
Hann var að vinna að múrverki
við hús Jóns Björnssonar á Þórs-
götu 10, en þá biluðu trönurnar,
sem hann stóð á, og féll hann
til jarðar. Viðbe.nsbrotnaði hann,
og að líkindum hefir líka brotn-
áð í honum rif. Daði er nú 68
ára.
Maður meiddist
í gær niður við höfn á þann
hátt, að hann ætlaði að stökkva
upp á bifreið, en hrökk af henni
aftur 0g varð þá fyrir annari
bifreið. Talið er, að hann hafi
þó ekki meiðst hættulega.
Bifreiðarslysið
á mánudagsnóttina hafa nú
fengist nánari upplýsingar urn.
Eins og áður var sagt, var of
hröðum akstri um að kenna sam-
kvæmt því, sem upplýst hefir
verið. Þetta var kl. að ganga 3
urn nóttina og því ljós á bif-
reiðum. Önnur bifreið ókáundan
og var mikið ryk á veginum. Það
er staðfest af mörgum vitnum,
að bifreiðarstjórinn var ekki ölv-
aður. — Bifreiðin rann út af veg-
inum, þar sem hann er að eins
lítið eitt upphækkaður. Var hún
komin fram hjá bugðu, sem þar
verður, en fram undan var veg-
urinn nærri beinn. Þegar bifreiðin
rann út af veginum misti
bifreiðastjórinn alveg stjórn á
henni, svo að þegar hann
ætlaði að neyta hemilsins, steig
hann í ógáti á benzíngjafann í
Asgarður.
StoppsslS iu&siffjSfjBi. Smiðnní:
ullap œýjnstn f§©rliip ai:
BÉOppaðKBKI. —
L©B®fe©&iEÍr p} úvalt
SypÍpBfgBlaitðÍ, hús*
Boyn ácklffi tll wlð wiðíjperð-
asr. witmæ. Saiisss*
gjarnt verðt, flsksw & Mjalti,
BræðrafetftrífiWgfi^ 4, sími
1733.
Gott herbergi óskast nú þegar
i mið- eða austur-bænum, handa
einhlevpum reglumanni. Simi 988.
Miíisið, að Ilðlbreyttasta úr-
valið af veggmyndum og spoi>
öskjurömmum er á Freyjugötu
11, sími 2105.
Sok&tnp. Sfiikfeni?. Sokfesr
frá prjónastofunni Malin eru ís-
Ienzkir, endingarbeztir, hlýjastir.
hans stað. Við það hentist bif-
reiðin áfram og rann um 60
metra utan við veginn. Sleit hún
tvær girðingar á þeirri leið og
kastaði um 12 metra úr stað öðr-
um endanum á 800 kg. þungri
stálpípu, sem lá á stöplum við
veginn og er ein af pípum þeim,
sem ætlaðar eru til sundhallar-
leiðslunnar. Síðan valt bifreiðin
um og brotnaði svo, að hún er
ónýt að mestu, en meiðsli urðu
þó ekki önnur en þau, sem áður
var sagt frá, á einum farþegj-
anna.
Flugið.
Ekki flugfært. Of hvast til þess.
TILKINNING. Ég æfði og sýndi
kónginum á Bolabási reiðskap og
turniment, þótt það væri hvorki í
samræmi né samráði við grað-
hestaatið. Nú eru laun mín og
viðurkenning komin frá Danmörku.
Er það ekkert dinglumdangl svo
sem þingmenn fengu.
Það er medalía eins stór og
undirskál. Verð með hana um
helgina.
Oddur Sigurgeirsson
hinn sterki af Skaganum
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Haraldur Guðmundsson.
Alþýðuprentsmiðjan.