Alþýðublaðið - 17.07.1958, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 17.07.1958, Qupperneq 3
Fimmtudagur 17. júlí 1958 1 Alþýöubloöiö Útgefandi: Ritstjóri: Fréttastjóri: Auglýsingastjóri: Ritstjórnarsímar: Auglýsingasími: Afgreiðslusfmi: Aðsetur: Alþýðuflokkurinn. Helgi Sæmundsson. Sigvaldi Hjálmarsson. Emilía Samúelsdóttir. 14901 og 14902. 1 4 9 0 6 1 4 9 0 0 Alþýðuhusið Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8—10. ^ — ‘ ■ '■ " Farmennirnir og Dmgshrún ÞJÓÐVILJINN heldur áfram að áfellast Alþýðublaðið fyrir stuðning þess við farmennina í nýafstöðnu verkfalli. Sú v.ðleitni hans er þó óvenjuleg eftir að verkfallinu er lokið, því að þá reynir Þjóðviljinn jafnan að gera gælur við stéttarsamtökin, þó að hann hafi mundað kútann í deilunni. En kommúnistablaðinu er svona mikið í nöp við stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur, að það hefur enn ekkj náð Valdi á sér til að látast. Hyggst Þjóðviljinn sanna, að far- menn hafi. ekkj orðið fyrir kjaraskerðingu umfram aðra launþega eins og iðulega hefur verið fram tekið hér í blað- inu. Það eit.t er svaravert í rnálflutningj hans — farmenn- irnir sjá um hit.t við þóknanlegt tæliifæri. Alþýðublaðið leyfir sér í þessu sambandi að vitna í umsögn sérfróðs manns, Jónasar Haralz, en hann rannsakaðj þetta atriði ©g komst að svofelldri niðurstöðu: „Leiðir þessi athugun tvimælalaust í ljós, að kjör háseta og kyndara á farskipum hafa rýrnað verulega umfram kjör annarra la.unþega“. — Þjóðviljinn ætti því að vita betur en, hann vill. vera láta, þó að honum sé óljúft að trúa Alþýðublaðinu. En sem sagt: Hann ber höfðinu vlð steininn. Verði h,onum að góðu! Annað atriði ber svo á góma í þessu sambandi. Þjóð- viljinn spyr um afstöðu Alþýðublaðsins til Dagsbrúnar- manna, ef þeir krefjist bættra kjara. Þeirri spurningu er sannarlega auðsvarað. Alþýðublaðið mun styðja sér- hvert verkalýðsfélag. sem fer fram á kjarabætur með þeim rökum, sem Ðagsbrúnarmenn hafa vafalauist á hendi. Auðvitað nær engri átt að gleyma lægst launuðu mönnunum á sama tíma og aðrir fá kaupleiðréttingu eða kjarabætur. Og Aíþýðublaðið spyr ekki um, hverjir skipi stjórn hlutaðeigandi verkalýðisfélaga. Það innir að- eins eftir málstaðnum. Dagsbrúnarmenn þurfa ekki að óttast, að Alþýðublaðið komi fram gagnvart þeim eins o,g Þjóð\fdjinn gagnvart fammönnunuim í nýa^stöðnu verkfalli þeirra og eftir að því hefur verið til lylcta ráðið. Kommúnistablaðið lætur væntanlega heyra frá sér, ef því finnst spurningunni ekki nægilega skýrt svar- að. Morgunblaðið segir í gær, að nú ætli kommúnistar að hrinda Dagisbrúnarmönnum út ií póþtlLskt vjerkfall. Sú afstaða er hneykslanleg af hálfu Morgunblaðsins. Því væri sæmst að athuga, hvaða breytingar hafa orðið á kjörum Dagsbrúnarmanna frá síðustu samningum og bregðast við hugsanlegum kröfum þeirra í samræmi við þá niðurstöðu. Alþýðublaðið hefur ekki hvatt til verkfalla Og vinnu- deiina undanfarið eins og Morgun'blaðið, þó að það horf- ist í augu við staðreyndir Og breyti samkvæmt því. En það gerir sér ljóst, að Dagsforúnarmenn eru flestum öðrum þjóð- félagsaðilum betur að kjarabótum komnir. Alþýðublaðið rnælist til réttlætis fyrir þeirra hönd og mun taka málefna- lega afstöðu í væntanlegri vinnudeilu þeirra. Það hefur sem sagt ekki sama sið og Þjóðviljinn og Morgunblaðið. Hitt er hverju orði sannara, að verkföll eru allt of tíð á íslandi. Það vandamál þarf að leysa. En slíku verður aldrei við komið ef fara á að ráðum Þjóðviljans og Morgun- blaðsins. Verkalýðshreyfingunni ber að finna grundvöll ,fyrir víðtæku samstarfi í kjaramálum, og það gerir hún foezt með því að efla Alþýðusamjband íslands inn á við og út á við. En þá þarf að víkja ævintýramönnunum til hliðar. SÍHAVARZLA. Fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir stúlku til síma- vörzlu. Enskukunnátta nauðsynleg. Tilboð með mynd, merkt: Sími, leggist inn á afgreiðslu blaðs- ins fyrir mántidagskvöld. Alþýðublaðið , » ( Utan úr heimi ) MEIRIHLUTASTJÓRN H. C. Hansen í. Danmörku hefur nú setið rúmlega ár að völdum og árangurinn er framar öllum vonum að því er Social Demo- kraten, blað. danskra jafnaðar- mann, segir. En meirihluta- stjórn H. C. Hansen er skipuð þingmönnum úr radikala flokknum. og Réttarsamband- inu auk jafnaðarmanna. Sjaldan hefur ný ríkisstjórn orðið fyrir me.iri árásum en þegar stjórn H. C. Hansens var mynduð fyrir ári síðan. Og þegar stefnuskrá stjórnarinnar sá dagsins lj.ós, varð stórskota- hríð stjórnarandstöðunnar ofsa fengnari en nokkru sinr,; fyrr. í dav ber enginn brigður á það, að ríkisstjórnin hafi unn- íð stórvirki. Hún hefur niarkað heildarstefnu og fylgt henni út í æsar þjóðínni til heilla. Ein- örð stefna er einn meginkostur meir ihlutast j órnar. Það má telja stjórnarflokkun um í Danmörku til eildis, að samvinna þeirra- innbyrðis hef ur verulega batnað á árinu. Það kemur ef til vill ekki nein- um á óvart þó þeir gætu staðið saman um stefnuskrá, sem H. C Hansen mörkuð var fyrirfram. Em á þessu fyrsta stjórnarári haf» komið upp ný vandamál, sem voru leyst samvinnunni a'5 skaðlausu. I algerri andstæðu við stjém arflokkana er varla unnt acS segja, að stjórnarandstaðan. stand; með pálma í höndunum að loknu þessu fyrsta ári. Hún getur ekki kvartað um skcrt á samvinnuvilja af hálfu stjórn- arflokkanna. Og þegar hún sam’t sem áður hefur haft svo hverfandi lítil áhrif á þá stefnu, sem rekín hefur ver.ð, þá er það einvörðungu að kenna hinni neikvæðu afstöðu, sem einkennt hefur stjórnar- andstöouna. Stjórnarflokkanna bíða ný vandamál og stöðugt ný ve.rk- efni, sem stjórnin á hverjum. tíma verður að leysa af hönd- um. V:ð vonum þjóðarinnar vegna, að næstu stiórnarár meirihlutastjórnarinnar muni verða jafn árangursrík og hi5 fyrsta, skrifar Social-Demo- kraten. ( Lénd og leióir ) MARGIR fagi-ir staðir eru í Himalaja bæði þar sem auð- velt er að komast og eins þar sem illt er yfirferðár tllegar naumast engum fært nema fug(Iinum fljúgandi. Sumir staðir eru þarna vel kannaðir, aðrir lítið eða ekki. Á BAK VIÐ NANDA DEVI Eitt kunnasta og frægasta fjall í sunnanverðum Hima- laja er Nanda Devi. Það er heilagt fjall meðal Hindúa, enda þýðir „devi“ gyðja eða skínandi björt, guðleg kven- vera. Það er eitt af hæstu fjöllunum í Himalaja, sem hef ur verið klifið, og gerði það brezki fjallagarpurinn Til- man. En á bak við fjail þetta er kvos, sem kölluð hefur ver- ið Nanda Devi kvosin af skorti á öðru nafni. Er þangað erfitt að komast, en tveir fræknir fjallagarpar, Eric Shipton, sá sem frægur er úr Everestferð um, og Tilman, sá sem áðan var nefndur. HELGXDÓMUR FJALLGYÐJUNNAR Það ætlaði ekki að ganga vel að komast inn í kvos.ina. Urðu þeir félagar að fara yf- ir ýmsar torfærur, unz þeir hátt uppi í fjöll.unum komust fram á gljúfurþrúnir óskap- legar. Beljaði fljótið Rishi Ganga þar undir, 2500 met.r- um fyrir neðan fset.ur þeirra. Þaðan freistuðu þeir að kom ast inn eftir gljúfrinu inn í kvosina* og það heppnaðisr þeim líka eftir mikla fyrir- höfn. Voru þeir þá komnir inn í helgidóm fjallgyðjunn- g -i -i i > i C i , FAGURT UMHVERFI Menn kynnu að halda, að í fjallakrika í 4000 metra hæð yfir sjó á bak við sjáifa fja!l- drottninguna Nanda Dsvi geti varla verið annað að finna en jökulurðir og klung- ur. En Shipton lýsir umhverf inu svo, að þarna séu bióm- um skrýddar grænar grundir, fagrar tjarnir, og hjarðir fjallasauða og geita voru á v o s i n beit. Umhverfis kvosina rísa snarbrattir fjallatindar og hvergi skarð í gegnum hamra veggina nema þar sem áin fellur fram eftir gljúfrinh. Mest ber á Nanda Devi og er norðurveggur hennar fevbna brattur. Eru litbrigði dags- birtunnar í fjallinu hin furðu legustu. S. H. Fyrirtæki £ Reykjavík óskar a5 ráða stúlku, sem gegnt gæti störfum einkarítara. Fyrsía flokks vélritunarkunnátta nauðsynleg. — Gott kaup. Tilboð ásamt mynd sendist afgreíðshi blaðsins fyrir mánudagskvölcl merkt: Einkaritari. ursföin Sæfúni 4 Selium allar teguodir af smurolíu. Fljót og góó afgrelósía. Síms 16-2-27. .. u. * J- J J * l

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.