Morgunblaðið - 06.04.1972, Síða 5
1
MORGUÍNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 0. APRÍL 1972
k
ÞORKELL SIGURBJÖRNSSON SKRIFAR UM
Mattheusarpassía
Á skírdag heyrðist Mattheus-
arpassía Bachs í fyrsta sinn á
Islandi. Flytjendur voru Póly-
fónkórinn, barnakór og tvaer
kammerhlijóm.sveitir ásamt níu
einsöngvurum undir stjóm Ing-
ólfs Guðbrandssonar. Þar með
er samt ekki allt talið, þvi að
segja má að tala flytjenda hafi
orðið um eitt þúsund, þegar
mest var, því að þá söng ekki
aðeins Pólýfónkórinn, heldur
og nær allir áheyrendurnir líka.
Sálmalögin í Mattheusarpassí-
unni eru frá hendi höfundar
hugsuð sem e.k. undirtektir
safnaðarins — og í löngum
flutningi er fólki sérlega hollt
að fá að standa upp og syngja
með, þó ekki sé nema þrisvar
sinnum eins og hér var gert.
Mattheusarpassían var hér flutt
örlítið stytt.
Hiti og þungi dagsins hvildi
á stjórnandanum, sem vitanlega
var og ábyrgur fyrir öllum æf-
ingum, að frátöldum barnakórn
um, sem Þorgerður Ingólfsdóttir
hafði æft. Hanin vann þarna
mikið þrekvirki: Verkinu kom
hann á framfæri og það er eitt
sér nokkuð, kórinn fékk hann
til að syngja af sömu ágætum
og fyrr, alvöru pípuorgeli kom
hann inn í landið í tilefni þessa
flutnings. Hið síðast talda eitt
sér hefur hingað til staðið í öll-
um héiiendum tónleikahöldur-
um.
Tempi voru yfirleitt góð, en
styrkleikahlu tfal'la var stund-
um ekki nógu vel gætt milli
hlljóimsveitar og söngvara eða
innbyrðis milli atriða. Bach fer
fr£im á alls konar styrldeika-
breytinigar í þessu verki, sem
nútímamenn mega gera enn
meira úr vegna breyttra tón-
gæða hljóðfæranna. Annað
vakti einnig spumingu, og það
var sá mikli stærðarmunur milli
kóranna tveggja, samræming
tónhendinga í kór og hljómsveit
í dúettinum og kórnum nr. 33
eða t.d. stuttu forslögin i arí-
unni „Erbarme dich“ (nr. 47).
Svona má telja upp smáatriði,
sem taka mætti tillit til við síð-
ari uppfærslur verksins — þvi
að vonandi festir Mattheusar-
passían hér rætur sem annars
staðar — og alltaf getur eitt-
hvað farið betur.
Við flutning Mattheusarpassí-
unnar var engum klappað lof i
lófa. Áheyrendur risu úr sæt-
um, fyrst i minningu Jesú Krists
og síðan, að flutningi loknum,
til heiðurs höfundinum. Hér er
því ekki fráleitt að lesandinn
standi upp og taki ofan fyrir
Ingólfi og öðrum flytjendum!
Michael Goldthorp frá Eng-
landi hlijóp i skarðið fyrir Sig-
urð Björnssom, sem veiiktist, þeg-
ax tveir dagar voru til stefnu,
ag sömg hTjuitverk Guðspjallla-
mannsins og tenóraríurnar.
Goldthorp er léttur og þægileg-
iur tenór, gerði veT, og varð litið
hált á þýzkunni. Halldór Vil-
helmsson söng Jesú, öruggur og
alvörugefinn. Guðfinna D. Ólafs
dóttir söng sópran aríur og dú-
ett, og sýndi, að hún er í sí-
felfJdri íram'för, með hireinum
söng og skýrum framburði. Alt-
ari'urnar sömg Rutih L. Maignús-
son á sinn vandaða og myndar-
lega hátt. Ingimar Sigurðsson
söng Pétur og bassaariur 1.
þáttar. Hann hefur svo góða
rödd, að hann ætti að nota
næstu 6—8 árin til að skóla
hana á einhverjum úrvals skóla.
Guðmundur Jónsson söng
hlutverk Æðsta prestsins og
Pílatusar. 1 bassaaríunni „Gebt
mir memem Jesum wieder" var
hann orðinn hálfu öðru takt
slagi á eftir öllum öðrum áður
en lauk. Rúnar Einarsson, Ásta
Thorstensen og Elin Sigurvins-
dóttir fóru með smærri einsöngs
atriði.
Einleikarar í einstökum atrið-
um voru systurnar Rut og Unn-
ur María Iin.gólifsdiæibur, sem léku
á fiðlur, flautuleikararnir Jón
H. Sigurbjörnsson og Jósef
Magnússon og óbóleikarinn
Kristján Þ. Stephensen, sem
einnig brá fyrir sig enska hom-
inu þegar á reyndi. Allt þetta
fólk fór með hlutverk sin af
fyllsta öryggi.
Óska menn sér nokkurs frek-
ar? Jú, að þetta góða fólk haldi
svona áfram og geri sífellt fleiri
þátttakendur í nýjum sigrum
sínum, sitjandi eða standandi,
syngjandi eða hlustandi.
(,!
FERMINCARCJÖFIN
í ÁR ER
LUXO
LESLAMPI
Allnr gerðir
nllir litir
HEIMILISTÆKI sf.
Hafnarstrœti 3 — Sími 20455
m
Félagsstarf Sjálfstæðisflokksins
Reykjaneskjördæmi
ÓLAFUR G. EINARSSON, alþm. verður til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Keflavík kl. 17—19 í dag.
S j álf stæðisf élag
Garða- og Bessastaðahrepps
Sjálfstæðisfélag Garða- og Bessastaðahrepps heldur almennan
fund föstudaginn 7. apríl nk. kl. 21 að Garöaholti.
Fundarefni: Magnús Jónsson, fyrrverandi ráðherra, ræðir stjórn-
málaviðhorfið. Frjálsar umræður.
Garðhreppingar, fjölmennið!
Fundur verður haldinn í trúnaðarmannaráði félagsins að Garða-
holti föstudaginn 7. apríl kl. 20,30.
Fundarefni:
Kosning skipulagsnefndar og fleira.
STJÓRNIN.