Morgunblaðið - 16.04.1972, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.04.1972, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDA.GUR 16. APRÍL 1972 Fa «/U/./.7f, I > lAFiit; 14444 g 25555 miWifí BILALEICA-HVÉFISGOTUIOÍ 14444 3 25555 BILALEIGA * CAR RENTAL ir 21190 21188 LEIGUFLUG FLUGKENNSLA SENDUM enwooti GHEF RAGNARJÓNSSON. hæstaréttarlögmaður. GÚSTAF Þ. TRYGGVASON, lögfræðingur. Hverfisgötu 14 - Sími 17752. Lögfræðistörf og eignaumsýsla. MÁIASKOLINN IVIÍIVIIR r L Upplýsiogar um vandaða skóla í Englandi daglega 3—4. ða J ga I BRAUTARHOLT 4 S.10004 Sr. Þórir Stephensen: HUGVEKJA FERMINGIN MYNDIN, sem guðspjall þessa sunnu- dags sýnir okkur, er af Góða hirðin- um. Hún varð snemma vinsæl meðal kristinna manna. Við sjáum hana í Katakombunum í Róm, og við sjáum hana enn í kirkjulegri list okkar tima. Okkur íslendingum er þessi mynd auðskilin, um hið mikla gildi hirðisins fyrir hjörðina. í>ó var það jafnvel enn mikilvægara suður á Gyðingalandi, þar sem erfitt var um haga og enn erfiðara að ná til vatns. Þar lærði hjörðin að treysta algjörlega á forsjá hirðisins og fylgja honum eftir. Hún hlustaði á raust hans, er hann söng hjarðljóð sín, og hún fór smám sam- an að elska þennan mann, sem sá fyr- ir öllum hennar þörfum. Jesús líkir sjálfum sér við hinn góða hirði, sem jafnvel leggur lífið í söl- urnar fyrir hjörð sina. Við höfum ný- lega rifjað upp, hvernig það gerðist og einnig sönnun þess, að heinn, sem dó á krossi, er jafnframt upprisinn og heldur áfram hirðisstarfi sínu meðal okkar mannanna, sem nú byggjum jörðina. Um þessar mundir er timi ferming- anna í kaupstöðum hér á landi. Þús- undir unglinga ganga upp að ölturum kirkna sinna til þess að heita Kristi fylgd, kjósa sér Góða hirðinn að leið- toga. Þessi athöfn hefur orðið fyrir all- mikilli gagnrýni að undanförnu. Um það hefur verið rætt, að kirkjan end- urskoðaði afstöðu sína til hennar. Ýmsir vilja, að allt sé tekið til endur- mats, innihald hennar, ytri búningur og ekki sízt aldur fermingarbarn- anna. Ef viö reynum að ihuga þessa hluti hér, að þvi leyti, sem rúmið leyfir, þá komum við fyrst að spurn- ingunni: Hvað er fermingin? — Hún er staðfesting barnsins sjálfs á gjörð og vilja foreldra þess, er það var skírt til kristinnar trúar. Eigi að leggja ferminguna niður eða hrófla við inni- haldi hennar, þá verðum við að end- urskoða afstöðu okkar til skimarinn- ar, og þar hygg ég, að margur verði viðkvæmur fyrir. Meðal erlendra þjóða hafa verið uppi stefnur, sem hafa viljað leggja hina kirkjulegu fermingu niður. En þar, sem þetta hefur tekizt, hefur alls staðar, þar sem ég þekki til, verið horfið að því ráði að taka upp eitt- hvað annað í staðinn. Ég þekki bæði til „borgaralegrar fermingar", sem fram fer fyrir veraldleguim valdsmanni, sem minnir hinn unga mann á hans borgaralegu dvggðir, og einnig „æsku- lýðsvigslunnar“ au«turþýzku, sem er nánast stjómmálalegs eðlis. Vígslur hafa lengi ftdgt mannkyn- inu eða athafnir, sem framkvæmdar hafa verið á þessu árabili, þegar ungl- ingurinn er að ná þroska hins full- orðna manns. Þær hafa átt að tákna inngöngu unglingsins í samfélag hinna fullorðnu. Á þessu tímabili verða mjög greinileg þáttaskil í lífi hvers einstakl- ings, og ekki sízt þess vegna hygg ég, að þörfin hafi komið í ljós fyrir eitt- hvað annað, þar sem fermingin hefur verið lögð niður. En ég hef ekki trú á þvi, að neitt það, sem við mundum fá í stað ferm- ingarinnar, yrði ungum manni heilla- rikara en fylgd hans við hinn góða hirði. Og ef fermingin hyrfi með öilu, þá væri það undansláttur í siðgæðis- kröfum þjóðfélagsins til einstaklings- ins. Slíkt mundi smám saman leiða af sér veikbyggðara þjóðfélag. Og hverjum dettur í hug, að við höfum efni á slíku? Kirkjan hefur að undanförnu unnið að endurskoðun og eflingu fermingar- undirbúningsins. Þvi starfi er engan veginn lokið. En undirbúningurinn þarf að fara fram bæði á heimilunum og í kirkjunni. Heimilin hafa alltaf lykilaðstöðuna gagnvart bömunum. Sum heimili hafa kvartað undan því, að þau skorti stuðning kirkjunnar til að r-æða við börnin um ferminguna og gi’ldi hennar. Kirkjan þarf þvi að géfa út iitið fræðslurit handa heimilunvim, svipað því, sem gefið hefur verið út um bænalíf barna og er afhent við skírnir. Það mundi auðvelda mjög hlut heimilanna að þessu máli. Jesús Kristur er viðurkenndur sem höfundur æðstu siðgæðishugsjóna lífs okkar. Það viðurkenna jafnvel þeir, sem þó hafna trú á hann. Ég hef eng- an mann hitt, sem hefur staðhæft, að kristin trú spilli manninum og líft hans. Hitt er aftur öllum ljóst, og ekki sizt þeim, sem játa trú á Krist, hve mikið skortir á fylgd okkar allra við hann og boðskap hans. Þess vegna ’er lífið ekki betra en það er. Við vitum fyrir vist, að öflugri fylgd við Krist, kenningar hans og hugsjónir, skapar fegurra og betra mannlíf. Bróður- kærleikur hans er það eina, sem get- ur læknað meinsemdir manniífsins. Hvi skyldu menn þá amast við fermingunni? Hún er ein af leiðun- um að langþráðu marki mannkynsins. Þvi er hitt miklu nær að nýta hana betur. Spumingin um aldurinn er erfið við- fangs. Næstu árin eftir ferminguna eru erfitt mótþróaskeið i ævi unglings- ins, en siðan koma þau ár, er maka- val hefst og því ekki heppUeg tU ferm- ingar. Ég hef þá trú, að ef æskilegt sam- starf tekst miUi foreldra og fermingar- föður, þá sé hægt að gera börnum um 14 ára aldur vel ljóst um hvað er að ræða. Þau eru að lofa að vinna að þvi eftir megni, að fegurstu hugsjónir lífsins nái fram að ganga. Þau eru að heita þvi að reyna að skapa bræðra- lag, vináttu og frið meðal einstakl- inga og þjóða. Þau eru með þessu að skapa eilíf verðmæti, sem ná út yfir gröf og dauða. Svo mikils virði er kenning hins góða hirðis. Og það að þekkja hann, að þekkja kærleika hans, það skapar smám sam- an kærlei’kann til hans, trúna á hann sem frelsara, vissuna um það, að hann er vegurinn, sannleikurinn og lífið — hinn góði hirðir mannkynsins alls. ORÐ I EYRA Grunnskólinn Og þá eru það nú sfcóla- og cppeldismálin, mál mála, eins og alilir vita og þeir bezt, siem aldrei hafa setið amnars staðar en öðrum megin við kennara- borðið. Grunnskólinn eir örugglega það, sem koma sfcal. Það hef- ur Jakob margbölvað sér upp á. Grumnsfcól'i er ákaflega fínt orð, þótt það sé enn bara í frumvarpi. Það sýwir víðsýni og mennimgarvizku og háan memmtumarstandarð að nota orðið grunnskóli, að ógleymdu einimga>kerfmu, í hvert sirnn, sem skólamál ber á góma eða í ritvél. Grurmsikóli er and- hverfa djúpsfcóla, sem bæði getur þýtt sjómannasikóli og skóli, þar sem djúpt er kafað. 1 grunnskóla á hins vagar að fleyta sér á hundasundi og kafa helzt sem minnst. Þó má hneigja höfuð í djúpið öðru hverju, eins og fyrir er sagt í væntamdegum skólasöng: Litíu andairungarnir .... ALlir sannir menningarvitar að Jakobi ekki undamsfciildum eru tel'árir á því, að grumn- Skólafrumvarpið er merkilegt menningarplagg, j)ó Þórgnýr á Sandí sé á móti því, enda bróðir Hermóðs. Samkvæmt grunnskólafrumvarpi er rétt- ur nemenda rétbur, en hann hefur lemgst af verið órétbur. Þá kemur sál fræðiþjónusta nokkuð við sögu, en það er einmitt sú þjónusta, sem nú er nauðsymleguisf, enda í tízfcu með Svenskum fyrir áratug eða svo. Auðvitað er gert ráð fyrir svokölluðum kennurum í pró- gramminu. Enda er sjáiifsagt að hleypa þeim inn 1 keninislu- stofur, ef niemendur leyfa. Og þeir ættu jafnvel að fá að segja sína meiningu, ef sá'l- fræðinigur grunnskólans teiur það vogandi. Jakob og fleiri hugsandi og velimeinandi foreldrar eru humdraðprósent sjúrir á því, að það eitt vaintar í grunn- skólafrumvarpið, að sálifræð- inigar verði lögskipað innvent- ar í hverri kenmslluts'tofu táil vemdar saklausum eniglabösB- onum otokar gegn spilltum og aftu'rhaldssömum kennaralýð. — Jakob. meö DC-8 LOFTLEIDIR PARPOOTUn bcin líno í Íor/Króideild asroo: ^KdupmðnnahöPn ^Osló ^ Stokkhólmur ^Glasgow sunnudaga/ sunnudaga/ manudaga/ laugardaga mánudaga/ [oriöjudaga/ (oriöjudaga/ föstudaga. London laugardaga fimmtudaga og föstudaga. fimmtudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.