Morgunblaðið - 09.05.1972, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.05.1972, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1972 \ Þess vegna grét Gordon Banks EINS og skýrt hefur verið frá í Mbi. var Gordon Banks, hinn kunni markvörðnr Stoke-liðsins o" enska landsliðsins, valinn „knattspyrniiniaður ársins'* i Engrlandi. Má segrja, að Banks hafi verið vel að þeini titli kom- inn þar sem sact er, að aðrir enskir markverðir hafi ekki kom- izt með ta-rnar þar sem hann hafði hælana í vetur, og engfum öðrum manni gat Stoke-liðið þakkað fremur sigur sinn í deildabikarkeppninni, þar sem Banks varði hvað eftir annað stórglæsilega. En skjótt skipast veður í lofti. Banks þótti sjálf- sagður í enska landsliðið, setn mætti V-Þjóðverjum á Wembley í Evrópukeppni lands- liða. Þar fékk hann hins vegar þrjú mörk á sig og eftir leikinn fóru að heyrétst þær raddir, að Banks væri orðinn of gamall og það þyrfti yngri mann í markið framvegis. Sennilegt er þó, að Banks haldi stöðu sinni i lands- Kðinu fyrst um sinn, a.m.k. með- an Sir Alf Ramsey ræður þar ríkjum, en hann hefur haldið mikið uppá Banks. Gordon Banks er annar leik- maður Stoke sem hlýtur titil- inn „Knattspyrnumaður ársins". Hinn Stoke-leikmaðurinn var hinn frægi Stanley Matthews, er hlaut tilnefninguna árið 1963. Banks er einnig annar markvörð- urinn, sem þennan titil hlýtur. Hinn var leikmaður Manchester City, Bert Trautmann, sem hlaut útnefnmguna árið 1956. Traut- mann var hins vegar ekkert um þá dýrð' sem um hann skapaðist eftir þetta, gefið og dró sig til baka úr knattspymunni. Eftir að valið hafði verið kunn- gert, sagði Gordon Ban ks: — Ég átti von á þvi að það yrði félagi minn úr Stoke, George Eastham, sem yrði valinn og varð þvi mjög undrandi, er mér var til'kynnt þetta. Ég hef verið bæði mikið og lengi í knatt- spyrnunni, en þetta er sennilega bezta árið hjá mér. Gordon Banks, sem er 30 ára, lítur út fyrir að vera nokkuð þungur á sér og jafnvel feitur. Svo er þó alls ekki. Hann er mjög vöðvastæltur og hefur fá- dæma snöggar hreyfingar, og einnig mun sjón hans vera með afbrigðum góð. Hann er kvænt- ur og á tvö börn, dreng, sem heitir Robert, og telpu, sem heit- ir Wendy. Þegar Gordon Banks var að því spurður, hversu lengi hann ætlaði sér að vera í knattspyrn- únni, sagði hann: — Ég ætla að vera svo lengi sem mér finnst sjálfum að ég standi mig. Ég held, að ég end- ist örugglega út næsta leiktíma- bil og ég neita þvi ekki, að innst inni el ég með mér þann draum, að taka þátt í einni heimsmeist- arakeppni í viðbót. Banks hefur leikið með enska landsliðinu alls 70 sinnum og verið með í þremur heimsmeist- arakeppnum. Hann var í enska liðinu, sem vann heimsmeistara- titilinn á Wembley 1966, eftir æsispennandi úrslitaleik við V- Þjóðverja. Talið var, að Gordon Banks hefði átt mikinn þátt í þeim sigri, ekki einungis með frábærri markvörzlu í leikjunum, Framh. á Ms. 6 Slysasaga markvarðar I BI.AÐINli Sunday Times hefur teiknarinn Paul Trevillion rakið slysasögu Gordons Banks og get- ur einnig um þau atvik, þar sem talið er að Banks hafi gert hvað bezt sem markvörður. 1. Litli fingur hægri handar brotnaði fyrir þremur árum. 2. I.itli fingur hægri handar brotnaði fyrir tveimur árum í 1. deildar Ieik. 3. Baugfingur hægri handar úr liði, eftir að Banks hafði lent í árekstri við einn samherja sinna. 4. I^uigatöng hægri handar úr liði, eftir að knötturinn kom fremst á fingurgóminn. 5. Þumalfingur brotnaði i leik í Suður-Afríku í fyrrasum- ar. C. Úlnliðurinn Inákaðist meðan Banks var markiörður Lei- cester fyrir nokkrum árum. 7. Þiimalfingur vinstri handar hefur farið úr liði. 8. Baugfingur vinstri handar brotnaði, er sóknarleikmað- ur sótti að Banks, þegar hann var að sparka út. 9. I.itlifingur vinstri handar skaddaðist alvarlega í leik, og er nú tilfinningalaus. • A. Pele: Frægasta vörn Gord- ons Banks. Það var í heimsmeist- arakeppninni í Mexíkó að Pele komst inn fyrir vörn Englend- inga og skaut. Pele fagnaði marki, en skjótur sem elding kastaði Banks sér niður og tókst að slá boltann frá með lófa hægri handar. B. George Best: I leik í 1. deild núlli Manchester Etd. og Stoke 19«9 komst Best einn inn fyrir vörnina. Banks kom á móti og tókst að slá knöttinn frá með lófa hægri handar. C. Francis Lee: í leik í 1. deild milli Stoke og Manchester City sl. vetur fékk M. City auka- spyrnu við vítateigslínu. Lee skaut sannkölliiðu þrumuskoti að marki, en Banks tókst að slá knöttinn yfir með fingiirgómun- um. D. Wyn Davies: I leik milli Stoke og Newcastle var Wyn Davies aðeins fáeina metra frá marki er hann fékk knöttinn og skaut, en Banks sló yfir með fingiirgómunum. E. Martin Peters: í leik Stoke og Tottenham í fyrra átti Peters skalla að marki Stoke af mjög stuttu færi, en Banks koni blá- fingurgómuni á knöttinn og sló hann yfir. F. Bobby Charlton: 1 leik milli Manchester Ctd. og Stoke átti Charlton þrumiiskot frá víta- punkti á niark Stoke og stefndi það í hornið niðri. Banks kast- aði sér og sló frá. Brot á velsæminu , Knattspyrnukappi sektaður JAMES Dunne, leikmaður enska knattspyrnuliðsins Ful- ham varð að koma fyrir rétt í Sunderland fyrir skömmu, og þar var hann dæmdur í sekt, sem nemur um 7 þús. isl. kr. Afbrot hans var að of- bjóða velsæmi áhorfenda með an á knattspyrnukappleik stóð. Forsaga málsins er sú, að lið Dunne, Fulham, var að keppa í Sunderland í desem- ber sl., og var þá óspart baul- að á liðið af heimamönnum og þá sérstaklega á Dunne, sem er irskur landsliðsmaður og einn bezti leikmaður Ful- ham-liðsins. Fóru læti áhorf- enda svo í taugarnar á knatt- sþyrnukappanum að hann sneri sér skyndilega að áhorf endastúkunni, tók niður um sig buxurnar og veifaði jarli sinum nokkrum sinnum. Tvær konur í áhorfenda- hópnum tóku þetta óstinnt upp og kærðu Dunne, og fékk hann sekt, eins og fyrr grein- ir. Taldi dómarinn í málinu, Alan Olson, að knattspyrnu- maðurinn hefði ofboðið vel- sæminu með þessu atferli sinu. En Dunne var reyndar ekki á sama máli. — Ég var í liti- um buxum innanundir knatt- spyrnubuxnum og engum átti að ofbjóða þetta sagði hann! Dýrkeyptir leikmenn EINS og Mbl. hefur áður skýrt frá hafa óvenju margir leikmetwi skipt um félög í enska knattspyrnuheiminum að undanförnu og þegar kaupæðið stóð sem hæst nú í vetur, var erfitt að hen-ia reiður á öllum félagaskiptunum. Nú hafa reikningsskilin verið gerð og í ljós kemur, að 172 leikmenn hafa skipt um félög á þessu kepþn istímabili og fjárfestingin nemur 5% milljón punda, sem er algjört einsdæmi. — Dýrkeyptustu leikmennimir eru þessir: Leikmaður: Frá: Til: Verð í *: Alan Ball Everton Arsenal 220.000 Ian Moore Nott. Forest Man. Utd. 200.000 Rodney Marsh Q. P. R. Man. City 200.000 Ralp Coates Burnley Tottenham 190.000 Malc. MacDonald Luton Newcastle 180.000 Steve Kember Cr. Palace Chelsea 170.000 Tony Green Blackpool Newcastie 150.000 Martin Buchan Aberdeen Man. Utd. 130.000 Chris Garland Bristol City Chelsea 108.000 John Sammels Arsenal Leicester 100.000 Alan Birchenall Cr. Palace Leicester 100.000 Keith Weller Chelsea Leicester 100.000 Chris Chilton Hull Coventry 92.000 Bob Hatton Carlisle Birmingham 80.000 Chris Nicholl Luton Aston Villa 75.000 Bobby Graham Liverpool Coventry 75.000 Alan Hunter Blackburn Ipswich 70.000 John O’Rourke Coventry Q. P. R. 65.000 Ian Ross Liverpool Aston Villa 60.000 Alistair Brown Leicester W. B. A. 60.000 Bobby Gould Wolves W. B. A. 60.000 Keith Dyson Newcastle Blackpool 60.000 John Craggs Newcastle Middlesbrough 60.000 Hér má síðan bæta við, að kaupverð Chris Nicholls hækkar í 90.000 pund, ef Aston Villa vinnur sig upp í 2. deild, sem þykir nú næsta öruggt — R. L. Úr landsleik Englands og V-Þý zkalands á dögunum. Hinn frægi markakóngur siðustii hcimsme istarakeppni Gert Muller sækir þarna, en íordon Banks hefur rétt einu sinni verið réttur maðiir á réttiim stað og kemur út og gómar boltann af tám skyttiinnar. f þessura leik fengu Þjóðverjarnir dæmda vítaspyrmi á Eng- leudinga og var Banks við það að verja hana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.