Morgunblaðið - 09.05.1972, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.05.1972, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAl 1972 3 Skagamenn sigurvegarar Haukarnir frískir og ákveðnir Barátta við llatikamarkið. Stefán .lónsson, markvörður, er kominn út og tekst að bjarga. ÍBK sótti ekki gtill í greipar Hafnf'irðinga (Hauka) er liðin mættust í Litlu liikarkeppninni á laugardaginn. Hvorugu liðinu tókst að skora löglegt ntark, og þar með fórtt mögttleikar ÍBK til sigurs i keppninni í ár. ÍBK virðist nú eiga við töluverð vandamál 'að etja, og munar þar j mestu um að þeir tveir leikmenn sem voru einna beztir í liðinu í fyrra, þeir Vilh.jálmur Ketilsson og Gísli Torfason leika ekki með því. Vilhjálmur á enn í meiðsl- uin sem hann varð fyrir í fyrri leik ÍBK og Tottenham í fyrra- haust og Gisli hefur átt við veik- indi að stríða. Munu þeir ekki verða með Keflavíkurliðinu fyrr en á miðju sumri. Leikurinn i Hafnarfirði hófst ekki fyrr en 10 mínútum eftir augiýstan tima, sökum þess að dómaranum seinkaði. Þegar á heildina er litið verður það að segjast að leikurinn haft verið fremur sáakur, en hins vegar l áttu bæði liðin þokkaiega leik- kafla. Haukaliðið kom á óvart í þessum leik með miklum dugn- aði og krafti, sem kynni að geta fleytt liðinu alllangt í sumar ef hann helzt. Keflvikingarnir áttu þó til muna meira i leiknum, einkum i síðari háifleik og voru þá öheppnir að skora ekki. Reyndar gerðu þeir eitt mark sem dæmt var af vegna rang- stöðu. Kom það eftir að dæmd hafði veriö aukaspyrna á Hafn- ^ arfjarðarliðið, og var þá einn j Keflvikingur rangstæður og veif aði línuvörður á rangstöðuna. Boltinn barst svo fram á völl- inn og þar átti Ástráður Gunn- arsson þrumuskot að marki Haukanna, sem Stefán Jónsson réð ekki við. Linuvörðurinn hafði hins vegar haldið veifu sinni á lofti allan tímann og dóm arinn dæmdi mark'ð af. Haukarnir áttu einnig sin tækifærí i leiknum og tvö þeirra voru mjög opin, sitt í hvorum hálfleik, en þeir höfðu ekki heppnina með sér að þessu sinni. — í Litlu-bikarkeppninni Akurnesingar hafa nú tryggt sér sigur í Litlu bikarkeppninni þótt enn séu tveir leikir óleikn- ir, því á laugardaginn unnn þeir Kópavog í leik á Akranesi, en á sama tínia gerðu Hafnfirðing- ar og Keflvíkingar jafntefli í Hafnarfirði. Akurnesingar hafa hlotið 8 stig, tapað tveim og eiga eftir leik við Keflvíkinga í Keflavík. Kefiavík er með 5 stig og hefur tapað 5 stigum. I>ótt þeir vinni Akurnesinga um næstu helgi dugar það ekki nema til að fá 7 stig út úr keppninni. Kópa- vogur er með 4 stig, hefur tap- að 6 stigum og á eftir leik við Hafnfirðinga í Hafnarfirði. Hafnfirðimgar eru með 3 stig, hafa tapað 7 stigum og eiga eftir leik á heimavelli við Kópavog. Leikurinn á Akranesi á laug- ardag var i he:Id slakur og lit- ið sást þar af skemmti’legum til- þrifum hjá leikmönnum. Ekki er þó við veður og völl að sak- ast í þetta skiptið, þvi allar að- stæður til keppni voru eins og bezt verður á kosið. Pátt bar til tíðinda framan af leiknum, þar sem leikmenn börð ust aft meira af kappi en forsjá og vildi það oft verða tilviljun hvort knötturinn hafnaði hjá samiherja eða mótherja. Á 28. min. var Matthías með knött- inn út á hægTa kanti og gaf hann góða sendingu til Eyleifs, sem sendi knöttinn með góðu vinstri fótar skoti í netið. Á 41. mín einlék Matthías lag- iega í gegnum vörn Kópavogs en slakt skot hans hafnaði fram hjá markinu. Min. síðar munaði minnstu að Kópavogi tækist að j-afna, er Guðmundur Þórðarson komst í gott færi, en Einar Guð leifsson markvörður kom út á móti honum og tókst að verja í hom. Rétt fyrir lok hálfleiksinis á svo Eyleifur hörkuskot að marki, en Ólafur Hákonarson varði vel. Kópavogur jafnaði á 67. mín, er Guðjón Finnbogason dæmdi vítaspyrnu á Akurnesinga. Þór Hreiðarsson var með knöttinn innan vitateigs og átti í höggi vð Björn Lárusson, sem að þessti sinni lék stöðu hægri bak varðar. Björn brá I>ór illilega og var umsvifalaust dæmd víta spyrna, sem Haraldur Erlends- son skoraði örugglega úr. Og áfram hélt leikurinn, en hvorki gekk né rak fyrir liðin að skapa sér tækifæri til að skora. Á 73. mín kom löng send ing frá Akumesingum fram á vöi'inn og tókst Eyleifi fyrir mikið harðfylgi að komast fram- hjá Einari Þórhallssyni og skora án þess að Ólafur Hákon arson hefði nokkur tök á að verja. Eins og ég sagði, vaf þessi lsikur fremur slakur og bauð ekki upp á skemmtilega knatt- spyrnu. Þrátt fyrir það er auð- séð, að liðin eru í góðri æfingu. Kópavogur átti heldur meira i leiknuni án þess þó að skapa sér tækifæri til að skora. Erf- itt er að gera upp á milli ein- stakra leikmanna, þar sem lið- ið er skipað jöfnum leikmönn- um. Ólafur Hákonarson var ör- uggur í markinu cvg verður ekki sakaður um mörkin. Einar Þór- halissoin átti einn'g góðan leik og sömuleiðis Haraldur Erlends son og Þór Hreiðarsson. Akurnesingar voru með sitt sterkasta lið og hafa nú heimt Matthías heim í góðri æfingu frá Englandi. Að vísu sýndi hann ekki mikið í þessum leik, en þó er það auðséð, að hann hefur að mestu lagt einleikinn á hilluna, en leggur meira upp úr samleik. Eyleifur var bezti maður liðsins og barðist allan tímann. >á var Teitur einnig ágaetur, ein samt daufari en í undanförnum leikjum. Jón Al- Ólafur Hákonarsson, markvörður I BK, grípur fallega inn í leikinn. freðsson stóð fyrir sinu að vanda og sömuleiðis Þröstur og Jón Gunnlaugsson. >á var Ein- ar Guðleifsson ágætur í mark- inu. Akurnesingar hafa sjaldnast átti góða leik: á möiinni á vorln og verður því gaman að fylgj- ast með þeim í deildinni, þegar lei'kið verður á grasi. En liðið er i góðri æfingu og verður ör- ugglega í baráttunni um efstu sætin í sumar. Guðjón Finnbogason dæmdi leikinn og gerði það vel. í leik varaliðanna sigurðu Akumesing ar Kópavog með 5-0. Hdan. Staóan i Litlu bikarkeppn- inni er nú þessi: Akranes 5 4 0 1 10-4 8 Keflavik 5 2 1 2 8 6 5 Kópavogur 5 2 0 3 8-10 4 Hafnarfjörður 5 113 5-9 3 Þessir leikmenn bafa skorað Fram vann Þrótt 6-2 í Reykjavíkurmótinu FBAM og Þróttur léku I Reykja- víknrniótinu i knattspyrnu á laugardaginn og mátti segja að það væri leikur kattarins að niúsinni. Framarar höfðu leik- inn í hendi sér nær allan tím- ann og unnu stórsignr 6:2. Var leiknr Fram að þessu sinni ein- hver sá skemmtilegasti sem sézt hefur til íslenzks knattspyrnu- liðs í sumar, og virðast Framar- ar frískir og í góðri þjálfun, og það seni meira er — þeir hafa átt menn til þess að fylla í þau skörð sem þeir Arnar Guðlaugs- son og Jóhannes Atlason skildu eftir. Má mikið vera ef þeir verða ekki í haráttunni um Is- landsmeistaratitilinn í ár, ef svo lieldur fram sem horfir. Framarar tóku leikinn við Þrótt þegar í sinar hendur, og liðið náó. þegar í upphafí mjög skemmtilegum samleiksköflum, þar sem boltinn gekk frá sam- herja til samherja timunum saman. Það verður náttúrlega að segjast að Þróttarar voru frem- ur óákveðnir og óöruggir í þess- um leik, og eftir að mörkin tóku að koma virtist baráttuandinn minnka. í hálfleik var staðan 3:1, og hafði Kristinn Jörundsson skor- að tvö markanna fyrir Fram, en sem kunnugt er þá varð Krist- inn Islandsmeistari í körfuknatt- leik á fimmtudagskvöidið með ÍR og er einn af okkar allra snjöllustu íþróttamömnum í þeirri grein. 1 síðari hálfVeik Framh. á bls. 6 flest mörk: Teitur Þórðarson ÍA 4 mörk Ey’.e'fur Hafste nsson ÍA 4 mörk Þór Hreiðarsson UBK 4 mörk Steinar Jóihannsson ÍBK 3 mörk Jafntefli í Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.