Morgunblaðið - 14.07.1972, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 14.07.1972, Qupperneq 14
14 MORGUNBLA.ÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚL.Í 1972 AUCLÝSINC Opið bréi til íslenzhu þjóðnrinnnr Bretland hóf fiskveiðar í hafinu við ísland fyrir um 300 árum, og þótt samhúðin hafi ekki ætíð verið snurðulaus, hefur eðlilega þróazt vinátta á milli þjóða okkar. Nú hefur þessum vináttutengslum verið stofnað i alvarlega hættu með þeim aðgerðum ykkar, sem felast í þeirri viðleitni að færa út fiskveiðilögsögu íslands í 50 mílur. Við álítum, að þið séuð á rangri leið í þessu máli og — sem gömlum vinum — finnst okkur að við höfum rétt til að bregða upp réttri mynd af því sem um er að ræða. í fyrsta lagi er það ólöglegt sem þið eruð að gera. Við gerum okkur grein fyrir, að þetta er umbúðalaus fullyrðing, en sönn engu að síður. Við gerðum bindandi samning, sem kvað svo á, að sérhverjum ágreiningi yrði skotið til Alþjóðadómstólsins í Haag. Við erum fúsir til að gera þetta. Þið eruð það aftur á móti ekki. Ennfremur höfum við beðið ykkur um að bíða þar til væntanleg ráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefur fjallað um allt það er varðar alþjóðalög þessu máli viðkomandi. Þessu hafnið þið líka, jafnvel þótt stungið hafi verið upp á sérstökum ráðstöfunum er myndu ná yfir þann tíma sem þetta tæki. Þið hafið sagt að aðgerðir ykkar miðuðu að því að vernda fiskstofnana. Er það nú rétt? Og er þetta bezta leiðin til þess? Minna má á, að það var ekki Bretland sem svo að segja tortímdi síldinni ykkar. Og ef loðnunni er hætta búin, stafar þeirri hættu ekki frá okkur. Ekki eru það heldur brezkir fiskimenn, sem ógna þorskinum með veiðum á hrygningar- svæðum hans — svæðum, sem einungis eru nýtt af Islendingum, Við höfum alveg eins mikinn áhuga og þið á að varðveita þessi stórvægilegu fiskimið. Við erum fúsir til samvinnu á tvennan hátt. Við myndurn sjálfviljugir takmarka það fiskimagn sem við sækjum hingað, og við höfum boðizt til að halda okkur frá vissum svæðum á viss- um árstímum og vissum sva*ðum á öllum tímum, þegar verndunarsjónarmið krefjast þess, til þess að varðveita fiskstofnana. Sameiginlega gefa þessi tilboð til kynna að við óskum eftir því að taka mjög mikið tillit til fiskveiðihagsmuna íslendinga, en ekki á kostnað réttinda okkar og lífsviðurværis. Að öllu samanlögðu vitum við að málstaður okkar er traustur. Og hjá okkur eru lífshagsmunir í veði. Hjá okkur eru heil bæjarfélög sem eru beint eða óbeint háð fiskveiðum á hefðbundn- um fiskimiðum okkar, sérstaklega á miðunum við íslands. En ekki myndu fyrirtætlanir ykkar einungis hafa óheillavænleg áhrif á gervallan fiskiðnað okkar. Þær myndu líka skaða skyldan iðnað og, þegar allt kemur til alls, þjóðarbúskap okkar allan. Þar af leiðandi verð- um við að tjá ykkur, að við munum nota öll tiltækileg ráð til þess að sjá til þess að réttindi okkar séu ekki eyðilögð. Sem gamlir og góðir vinir vildum við tjá ykkur þetta milliliðalaust. Birt sem upplýsingar fyrir almenning af Hagsmimrszmtökam brezka fiskiðnaðarins. AUGLÝSING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.