Alþýðublaðið - 18.08.1930, Page 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ 1]
Pistlar
frá Ólafi Þ. Kristjánssyni.
II.
Oxford, 4. ágúst.
Ég varó aÖ hætta í gær, af pví
iað ég varð að fara með öðru
fóliki til að láta taka mynd af
mér. Pað verður falleg mynd af
svona mörgu fólki og öllu í góðu
skapi. — Nú varð hlé á skrift-
lunum, því tvær ungar, skozkar
stúlkur komu til mín og báðu mig
að skrifa nafn mitt í minnis-
bækur sínar, og .auðvitað geri ég
það. Petta er ^lgengt hér, að
menn safna nöfnum manna af
ýmsum þjóðum, og er gaman
að þvi, þó að ég gefi mér ekki
tíma ti,l þess.
Ég get ekki stilt mig um að
segja frá því, að lengi, í gærdag
var ég að leita að einhverri hæð,
sem væri nógu há til þess, að
ég gæti séð þaðan yfir borg-
ina og umhverfið. Ég fann að
visu eina litla hæð eða kollóttan
hól, en hann var þannig umlukt-
ur af trjám, að útsýni fékst
hreint ekki neitt. Má nærri geta
hvernig ég hefi kunnað því, vest-
fi'rzkur maðurinn.
Klukkan hálf-átta hófst hátíð-
legasta athöfn, þingsins: þing-
setningin. Allir söfnuðiist saman
í fundarsalnum, sem var fánum
skreyttur. Salur sá er hinn prýði-
legasti að allri gerð. Þakið er
hvelft og fagurlega útskorið.
Forseti, mag. art. Bernhard
Long, setti þingið. Þar næst las
Julio Baghy upp kvæði eitt gott,
er hann hafði ort. Baghy er tví-
mælalaust snjallastur skálda
þeirra, er yrkja á esperanto.
Hann er ungverskur að kyni og
var um skeið herfangi austur í
Síberíu. Hann hefir sitað sögu
eina (Viktimoj), sem gerist þar,
og mörg kvæði. Hann er mann-
vinur mikill og hæðir beizklega
þá menn, sem tala um mannúð,
en afneita henni í verkum sínum.
Sum kvæði hans eru römm á-
deilukvæði, þar sem hann húð-
flettir í lipru rími og snjölLum
orðum rangsleitni og hræsni nú-
verandi þjóðskipulags auðvalds-
ins. Eldur frelsis og kærleika
ilogar í ljóðum hans. Þeim espe-
rantistum, sem þora að heyra
frumlegar hugsanir og hafa á-
nægju af kvæðum, er ekki hægt
að benda á neitt betra til lesturs
en ljóðabækur þessa ungverska
snillings. (Preter la vivo, Pilgri-
moj.) — Þess þarf ekki að geta,
að kvæði hans var fagnað með
dynjandi lófaklappi.
Þá gengu fram fulltrúar ýrnissa
rikja og færðu þinginu kveðjur
og heillaóskir frá ríkisstjórnun-
um. Þessi ríki áttu þarna full-
trúa: Austurríki, Brazilía, Hol-
land, Lichtenstein, Noregur, Pen-
silvanía (í Bandaríkjunum), Pól-
land, Rúmenía, Saar-héraðið,
Ungverjaland, Þýzkaland og Vik-
toría (í Ástralíu). Þrjú þessara
ríkja, Austurríki, Rúmenía og
Þýzkaland, höfðu svo mikið við,
að þau létu sendiherra sina flytja
kveðjurnar, þótt þeir kynnu ekki
að mæla á esperanto. Hin ríkin
völdu esperantista. Fulltrúi Aust-
urrikis gat þess, að esperanto
væri nú þegar víða kent í fram-
haldsskólum þar í landi og yrði
þó meira á næstunni. Hann mint-
ist líka á það, að borgarstjórnin
í Vínarborg hefði látið af hendi
ókeypis húsnæði handa espe-
ranto-safni. Hollenski fulltrúinn
talaði mn námskeið það, sem rú-
menski ábótinn Andreo Ce hélt
jnýlega í Amhem í Hollandi. Það
var ætlað kennurum víðsvegar að
til að kynna þeim kensluaðferð
þá, er ðe hefir notað með ágæt-
um árangri, einkum í Svíþjóð.
Hann kennir algerlega munnlega.
200 kennarar úr 21 landi voru í
Arnhem til þess að læra af
„mikla manninum með litla nafn-
ið“. — Fyrir Pólland talaði
doktor Felix Zamenhof, bróðir
höfundar málsins. Hann gat þess,
að fyrst hefði hann ekki viljað
sinna esperanto neitt og sýndi
fram á það, að í raun og veru er
afskiftaleysi ög kæruleysi gagn-
vart málefnum verra en bein
andstaða. „Afskiftaleysið er
synd“, sagði hann. — Robert
Kreuz, skrifari þingsins, talaði
fyrir Lichtenstein, og fórúst hon-
mn þannig orð, að þar mælti
digrasti maður þingsins fyrir
hönd minnsta ríkisins, því að
Kreuz er lágur maður vexti en
ákaflega gildur. Hann gat um
það, að Lichtenstein hefði fyrir
skömmu gefið út nokkur bréf-
spjöld af náttúrufegurð þár í
landi með texta á esperanto. Lét
hann þá ósk í Ijós, að fleiri
ríki fetuðu í fótspor þess.
Næstur talaði formaður mið-
stjórnar esperantista, John Mer-
chant, sá, sem áður var nefndur.
Hann er ágætur ræðumaður.
Minti hann rnenn á þau miklu
sannindi, að skaðlegt væri að
hugsa á þann veg: „Það mun-
ar ekkert um mig; ég er svo ó-
nýtur og kraftasmár." Alt, sem er
til, er myndað af óteljandi ara-
grúa einstaklinga, sem ekki
byggja mikið upp einfr sér. Hvað
ætli yrði eftir af úthöfunum, eí
allir litlu vatnsdroparnir væru
sannfærðir um að það munaði
ekkert mn sig og yfirgæfu haf-
ið? En mönnum vill oft gleymast
þetta. Og þó er framtíð allra
góðra mála komin undir þvi,
hvernig einstaklingarnir hver í
sínu lagi taka þeim og hvað þeir
gera fyrir þau.
Að ræðu Merchants lokinni
gengu fram fulltrúar esperanto-
félaga í mörgum löndum og
fluttu kveðjur og heillaóskir.
1 Síiðan -var samkomunni slitið
með því að syngja lofsönginn:
„En La mondon venis nova sento“,
og eins hafði liann verið sunginn
í fundarbyrjun. Var það stór-
fenglegt að heyra þennan mikla
mannfjölda, sem kominn var að
úr ólíkustu hlutum hnattarins,
syngja einum rómi þetta gull-
fallega kvæði.
Er óhætt að segja það, að sam-
koma þessi var hin prýðilegasta,
bæði að ytra útliti og þó ekki
síður að því, er snerti „stemn-
inguna" hjá fólkinu sjálfu, en það
er jafnan mest um vert.
(Frh.)
Dm daginai og veginn.
Næturlæknir
er í nótt Björn Gunnlaugsson,
Laufásvegi 16, sími 325.
Togararnii.
„Maí ‘ kom í gær-af ísfiskveiðum
með dágóðan afla, Hann fór aftur
á veiðar í gær.
Með veikan mann
kom enskur togari liingað í
morgun.
Skipafréttir.
„Botnía“ og „Alexandrína drottn-
ing“ komu í gær frá útlöndum.
í morgun kom hingað enskt her-
skip (eftirlitsskip),
Til berklaveika drengsins
í FLatey: Frá 4Í. S. 3 kr„ frá
J. V. 2 kr„ frá tveimur drengjum
5 kr„ frá B. F. 5 kr„ frá M. S.
2 kr. og frá Oddi sterka kr. 1,50.
Áður komið kr. 561,30. Samtals
kr. 579,80.
Maðurgséstlá flugi.
Morgunblaðið flytur í gær þá
eftirtektaverðu frétt, að maður hafi
sést á flugi fyrir nokkrum dögum
uppi á Uxahryggjum, (á sennilega
að vera yfir Uxahryggjum eða
uppi við pá). Fregnin er svo
merkileg, að það er rétt að setja
hana hér alla eins og hún er í
Morgunblaðinu, og er hún þannig
þar: „Örn sá Hákon Bjarnason á
flugi uppi á Uxahryggjum fyrir
nokkrum dögum. Flaug örninn í
suðurátt og var með spóaunga í
klónum". Fregnin er að sumu leyti
mj ög nákvæm hj á blaðinu en þó hefði
hún verið fullkomnari hefði blaðið
getað jafnframt gefið upplýsingar
um, i hvaða átt Hákon hafi flogið,
hefði það til dæmis getað bætt
aftan við klausuna: „en Hákon
flaug til útnorðurs, Hann var með
vindling milli hægr'i þumal- og
vísi- fingurs. í hnappagati vinstra
megin hafði hann fjalldalafjólu,
en í jakkavasa hinumegin hafði
hann smurt brauð og var Morgun-
blaði vafið um, til þess að ekki
hallaðist á. En á bakinu hafði
hann 16 árgang af Morgunblað-
inu. Virtist það ekkert þyngja flug
hans; svo mikið léttmeti var það“.
D.
Meiðsli.
Stúlka meiddist á föstudaginn
á þann hátt, að hún hljóp út úr
bifreið, sem var í gangi. Stúlkan
féll í óvit. Meiddist hún á höfði
Hvitir sloppap kven- og
kapl-manns. -- Vlipnbiiðio,
Langavegi 53. Sfmi 870.
Vinuofatnaðup, hvftip og
bpúnip samfestingap, nan.
kinsföt allap stærðip, viimu-
skjrtup, axlabönd og belti,
vetlingap, sokkap, næpföt,
peysup, bláap og mislitap.
Vðpubúðin, Laugavegi 53,
sfmi 870.
MUNIÐ: Ef ykkur vantar hús-
gögn ný og vönduð — einnig
notuð —, þá komið í fornsöluna,
Aðalstræti 16, simi 1089 eða 1738.
Miamlfi, að ifðlbreyttasta úr-
valið af veggmyndum og spor-
öskjurömmum er á Freyjugötu
11, sími 2105.
Mikil sala, lágt vepð. Tfzku-
búðin, Grundarstfg 2.
35 kp. f Sötin af briinleitu
kamgarni f Tízkubúðinni,
Gpundarstfg 2.
Stoppnð húsgðgn. Ymsar
gerðip. Divanar úvalt fyrip-
iiggjandi. Einnig gept við
notuð húsgögn. Vönduð
vinna. Sannglarnt verð.
Húsgagnavinnustofan —
Hverfisgötn 30. Fpiðrik
J. Ólafsson.
og hefir legið síðan, en er nú á
batavegi. Hún heitir Guðriður
Sigurðardóttir, Laugavegi 67 A.
Flugið.
„Súlan“ heldur kyrru fyrir í dag.
Veðrið.
Kl. 8 í morgun var 8 stiga hiti
í Reykjavik, mestur á Hornafirði,
11 stig, minstur (þar, sem veður-
fregnir greina frá,) á Blönduósi, 5
stig. Útlit hér um slóðir: Minkandi
norðaustan- og austan-átt. Dálítið
regn öðru hverju, — Vætusamt
um land alt, einkum á Vestur- og
Norður-landi,
Pétur Á. Jónsson
syngur í síðasta sinn í K.-R.-
húsinu kl. 9 í kvöld. Aðgöngu-
miðar þeir, er eftir kynnu að
verða óseldir (á 2 og 3 kr.),
seljast við innganginn frá kl. 8V2,
(en í dag í bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar og hljóðfæraverzl-
un Katrínar Viðar.
Slökkviliðið var kallað siðdegis
í gær á Lindargötu 44 B. Hafði
kviknað í út frá reykpípu í þvotta-
húsi, en var þegar slökt, svo að
skemdir urðu örlitlar.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Haraldur Guðmundsson.
Alþýðuprentsmiðjan.