Morgunblaðið - 19.08.1972, Síða 14

Morgunblaðið - 19.08.1972, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. ÁGÖST 1972 0#g*faíidi Nf Árvekur, Rfcytojavík Frffmfeveemda&tjóri HareWur Svainaaon. flhstjórar Mattihías Johonnasaan, E/fó!ifur Konréð Jónsson. Aðstoðarritstijóri sitynrvir Gurvrvarsson. Rrtstjómarfui+trúi Þtorhjönn Guðmundsson Fréttastjóri Bjöm Jöhanrv&aon Augtýsirvga&^óri Ároi Garðar Krlatirvssqn. Ritstjórrt og afgreiðs!a Aðalstrssti 6, 9fmi 1Ó-100. Augíýaingar Aðabtreatí 6, sfrni 22-4-60 Áslkriftargjafd 225,00 kr á 'ménuðí irvnanlands I tausasöifu 15,00 Ikr einta'kið tpins og fram kom í Morgun- •*"' blaðinu í gær hefur bæj- arstjórn Sauðárkróks sam- þykkt samhljóða ályktun í tilefni af yfirstandandi fram- kvæmdum í orkumálum, sem sérstaklega snerta Norður- Kjartanssyni, og hefur hann í því efni beinlínis gengið í berhögg við gefin fyrirheit svo sem við Fjórðungssam- band Norðlendinga. Enda hefur hann lýst því yfir á Al- þingi, að hann hugsi sér að herra. Má og benda á, að einkamálgagn hans, Þjóðvilj- inn, hefur kallað það „bæjar- lækjarsjónarmið íhaldsafl- anna“ að vilja koma til móts við heimamenn í sambandi við lausn orkumála. Ástæða er til að rifja það upp, að ákvörðun um fram- kvæmdir við lagningu há- spennulínunnar frá Akureyri til Varmahlíðar var tekin án vitundar forsætisráðherra, sem þó er fyrsti þingmaður Norðurlands vestra. Það kemur fram í ályktun bæjarstjórnar Sauðárkróks að lagning háspennulínunnar leysir engan vanda og því sé eðlilegra að verja því fé, sem í hana fer, til virkjunarfram- kvæmda á Norðurlandi. Það VILJI HEIMAMANNA VIRTUR AÐ VETTUGI land. Þessi ályktun er í senn harður áfellisdómur á iðnað- arráðherra og staðfesting á því, sem Morgunblaðið hefur skrifað um þessi mál. í ályktuninni er lögð á það sérstök áherzla, að yfirvöld orkumála taki upp samstarf og samráð við sveitarfélögin, samstarfsnefndir þeirra og starfandi landshlutasamtök um alla áætlunargerð og framkvæmdir í sambandi við línulagnir, byggingu orku- vera og samninga um upp- setningu orkufreks iðnaðar, svo að betur verði gætt sjón- armiða byggðajafnvægis og byggðaþróunar. En á þetta hefur algjörlega skort hjá iðnaðarráðherra, Magnúsi koma raforkumálunum í það horf, að allt ákvörðunarvald um staðsetningu og byggingu nýrra orkuvera verði í hönd- um einnar stofnunar í Reykja vík, hvað þá hitt, er minna skiptir. Má í því sambandi minna á þau ummæli hans á Alþingi í vetur, að að því sé stefnt, „að framleiðsla raf- orku verði hliðstætt sam- félagsverkefni eins og til að mynda landsíminn“. Þarf ekki að fara mörgum orðum um, hver sé aðstaða byggðar- laganna úti á landi til þess að hafa áhrif á ákvarðanir þeirr- ar stofnunar. Þau eru engin. Og sama máli gegnir um að- stöðu byggðarlaganna til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við iðnaðarráð- hefði í för með sér stóraukið öryggi fyrir rafmagnsnotend- ur og ótvíræðan hagnað fyr- ir byggðarlögin. Er í því sam- bandi lögð sérstök áherzla á að hraða rannsóknum á virkj- unarmöguleikum í Jökulsá eystri og brýnt fyrir ríkis- stjórninni að láta ekki hjá líða að afla ótvíræðra heim- ilda til þeirrar mannvirkja- gerðar. Ef nokkuð má marka um- mæli Þjóðviljans í gær, eru litlar vonir til þess, að iðn- aðarráðherra, Magnús Kjart- ansson, fari eftir þessum ábendingum heimamanna. 1 hans augum eru slíkar ábend- ingar „bæjarlækjarsjónar- mið íhaldsaflanna“ og mætti hann þó minnast þess, að á sínum tíma barðist hann gegn Búrfellsvirkjun en krafðist í staðinn virkjunar Laxár í Þingeyjarsýslu. Hins vegar verður fróðlegt að fylgjast með því, hvernig fyrsti þing- maður Norðurlandskjördæm- is vestra, Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra, tekur áskor unum norðanmanna. Að óreyndu verður öðru ekki trúað en hann reyni að standa betur í ístaðinu fyrir þá eftirleiðis en hingað til. DAPURLEGT SINNULEYSI F Tm miðjan dag í gær hafði ríkisstjórnin enn ekki fengið í hendur forsendur úr- skurðar Alþjóðadómstólsins, og raunar hafði utanríkis- ráðuneytið tjáð Morgunblað- inu, að líklegt væri, að for- sendurnar kæmu í flugpósti og ekki væri að vænta, að þær yrðu handbærar hér fyrr en á mánudag. Engu að síð- ur sendir ríkisstjórnin frá sér ályktun, sem hún byggir á ófullkominni fréttatilkynn- ingu. Ríkisstjórnin gerist þó svo djörf, að láta að því liggja, að úrskurðurinn sé byggður á samkomulaginu frá 1961, enda þótt dómurinn taki skýrt fram, að um það atriði verði fjallað „er sá tími rennur upp“ að málið verði tekið til efnislegrar meðferðar. Því miður verður að segja þá sögu eins og hún er, að ráðherrarnir virðast lítið botna í úrskurði þeim, sem dómstóllinn kveður upp. Bæði blöð þeirra og raunar líka ríkisútvarpið töluðu um úrskurðinn sem bindandi dóm, en ekki tilmæli eða ábendingu til viðkomandi þjóða. Og ráðherrarnir láta hafa eftir sér ummæli, sem stangast gjörsamlega á. Þann- ig segir forsætisráðherra í Vísi: „Ég er furðu lostinn yfir þessum úrskurði Haagdóm- stólsins, sérstaklega að hann skuli kveða upp dóm um efn- isatriði, áður en tekin er af- staða til þess, hvort dómstóll- inn hefur nokkra lögsögu í þessu máli.“ En Einar Ágústsson segir í Tímanum: , „Ég undrast mjög, að Al- þjóðadómstóllinn í Haag skuli telja sig hafa lögsögu í þessu máli.“ Raunar er skiljanlegt, að ráðherrarnir eigi erfitt með að átta sig á úrskurðinum, þegar þeir hafa forsendur hans ekki í höndum. En hitt er óskiljanlegt, að ekki skuli hafa verið gerðar ráðstafanir til þess, að ríkisstjórn íslands fengi þegar í stað að vita um efni úrskurðarins, því að vissulega var auðvelt að fá dóminn allan hingað sendan símleiðis eins og Morgunblað- ið gerði þegar í fyrradag. En af þessu sinnuleysi er sprottinn margháttaður mis- skilningur, og meira að segja gekk ríkisútvarpið svo langt að segja, að dómur hefði ver- ið kvéðinn upp um það, að okkur væri óheimilt að færa landhelgina út. Tvöfalt vandamál LISBURN, Norður-lrlandi. — Brezki herinn virðist hafa komizt að þeirri sorglegu nið urstöðu, eftir þriggja ára baráttu á Norður-írlandi að ógerlegt sé að „sigra“ í baráttu við skæruliða með því að fara eftir öllum venju legum reglum almennra laga. Innan þessara marka, sem yfirstjórnin hér virðir, vegna þess að hún viðurkennir að „herinn verður að gera það setn fóíkið vill“, er talið, að eina raunsæa markmiðið frá hernaðarlegu sjónarm'ði sé ekki „sigur" heldur sköpun andrúmsV»íts, se-" -“rÍT stjórn málamönnum kleift að ná samkomulagi. Núverandi erfiðleikar á Norður-lrlandi eru slæmir, en samt ennþá á lágu stigi. Höfuðtilgangur hinna sautj- án þúsund brezku hermanna, sem hingað hafa verið send- ir, til að aðstoða hjálparlausa lögreglu staðarins, virðist vera sá að koma í veg fyrir að allt hlaupi í bál. Að nokkru leyti á starf hersins sér ekki fordæmi. Herinn á í höggi við tvo hugs anlega óvini, mótmælendatrú armenn, sem eru í meirihluta, og kaþólikkana, sem mynda minnihlutann. Mótmælendurn ir hafa nú myndað eigin liðs sveitir en hinir eru hraktir til vandræða af vopnuðum félögum írska lýðveldishers- ins, sem hafa rofið hið ó- formlega vopnahlé, sem ríkti um stutta hríð. Reyni brezku sveitirnar að hjálpa öðrum aðilanum, lenda þær samstundis i meiri vandræðum með hinn Brezki hermaðurinn í Ulster þyrfti að hafa höfuð Janusar, gríska guðsins með andlitin tvö, en einnig þolinmæði Jobs. Hon- um hafa verið settar vissar reglur um hvernig hann á að verja sig og hefur lág- marksfrelsi til að hleypa af. Eins og einn yfirmannanna í borginni sagði: „Við viljum ekki byrja að ráðast á þetta fólk.“ Irski lýðveldisherinn telur sig vera úrvalslið meðal borgarskæruliða, en Bretar eru ekki aldeilis á sama máli. Þeir viðurkenna, að Irski lýð- veldisherinn er hugrakkur og djarfur, þrátt fyrir frem- ur frumstæðan útbúnað og þjálifun, en hann velur stund- um skotmörk sín heimsku- lega. Almennt er talið, að ef ástandið versnar og hinar nýju einkaliðssveitir mótmæl- enda taka líka að skjóta á Bretana i stað þess einung- is að fara í mótmælagöng- ur gegn þeim, geti lýðveldis- herinn orðið hættulegri. Á því er enginn vafi, að yfirmenn brezka hersins eru óánægðir með þær hömlur, sem þeim finnst hinir ó- breyttu yfirmenn þeirra hafa sett á aðgerðir þeirra. En þeir virða skipanir þeirra og eru í góðri von „að reyna að skapa andrúmsloft, sem gerir stjórnmálamönnunum kleift að gripa til aðgerða". En menn eru óánægðir með að þurfa að berjast gegn „ósiðlegum aðferðum" með „siðlegum aðferðum“. Sum- um finnst jafnvel mögulegt, að sagan kunni að fordæma aðgerðirnar hér, ekki fyrir öfgarnar, heldur fyrir að vera svo vægilegar, að ófrið urihn I fi lengzt a, pörfu. Þeir sem eru í forsvari fyr ir brezka herinn líta köldum augum á tæknilegar hliðar þess að berjast við borgar- skæruliða í hinum vestræna heimi með aðferðum vest- rænnar siðmenningar. Þeir segja það augljóst, að her sem eigi í slíkri baráttu verði að leggja mun meiri áherzlu á upplýsingaöflun um andstæðinginn og skjóta dreifingu þeirra til yfirmanna hersveita. Herinn verði líka að leggja sig fram um að komast hjá ýfingum við ó- breytta borgara, jafnvel þótt það sé tiltölulega vonlaust verk, þegar við tvær hliðar er að eiga, sem hafa viðbjóð á hvor annarri. Sumum yfirmannanna finnst að þau lýðræðisríki, sem eiga í höggi við borg- arskæruliða verði að sætta sig við að reglur samfélags- ins verði stundum að brjóta. Þeir telja, að það sé heimska ein að nota hefðbundnar rétt arfarsreglur gagnvart mönn- um sem allir vita að eru ábyrgir fyrir ofbeldisverk- um, jafnvel þótt aldrei sé hægt að sanna það fyrir venjulegum rétti. Æ erfiðara verður að berj- ast gegn aðferðum borgar- skæruliða í sístækkandi borg um hins vestræna heims. Og þetta sjá þeir yfirmenn hers- ins, sem vilja varðveita þetta form siðmenningarinnar, sem einmitt stendur mest i vegi fyrir verndunaraðferðum þeirra. Einn yfirmaður sagði: „Kannski ekki sé til nein lausn á skæruliðavandamál- inu hvorki í borgum né sveit- um. Það tók okkur 12 ára að reka þá út úr Malaya. En samt tókst það aldrei fullkomlega. Þeir gætu alltaf skotið upp kollinum á ný.“ Eftir C. L. Sulzberger

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.