Morgunblaðið - 19.08.1972, Side 19

Morgunblaðið - 19.08.1972, Side 19
MUKIjUIN'ti'i-íAt> 11), KAUUAKUAUUK ±i*. ÁGÚSi ±Vi2 JL& — Læknanám Framhald af bls. 15. bennslu. Þær hafa ekki verið boðnar fram og ekki verið eftir þeim leitað. Það er rétt að einasta starf- andi augndeild landsins er í La n d ako tss pí tal a og hefir verið svo í raun lengst af, þó ekki haifi verið á henni fast form fyrr en nú síðustu ár. Yfirlæknir hennar er Guðmundur Björns- son dr. med., einn af fremstu augnlæknum landsins og sá eini með doctorsgráðu frá Háskóla íslands. Hann tók við 1. janúar 1972, af Bergsveini Ólafssyni, sem hefir starfað við spítalann alla sína læknisævi. Kennari Háskólans í augn- læknisfræðum náði hámarks- aldri embættismanna á önd- verðu ári 1970. Ekki hefir það embætti verið skipað enn og ekki auglýst mér vitanlega. Ekki er það af þvi að ekki sé hægt að skipa það svo allir væru fullsæmdir af, og sýnist þá — Klín Minning Framhald af bls. 18 Um tvítugsaildur gifltist Elln Sveini Ásmundssyni. Þau reistu bú að Eyrarbakka en fluttust til Reykjavikur eftir eitt eða tvö ár, þar sem Sveinn lærði prentiðn. Sambúð þeirra varð ekki löng. Þau slitu samvistum eftir nolckur ár. Höfðu þau þá elgnazt tvö böm, dó annað þeirra á fyrsta ári, en sonurinn Sigurður nú yfirverkstjóri í Öl- gerð Egils SkaJlagrímssonar og fylgdi móður sinni þar til hann kvæntist. Oft mun lífsbaráttan hafa verið hörð, unnið í fiski og öðru, sem tii féll og hvergi slak- að á. Nokkru síðar giftist Elín Guð- mundi Valdimarssyni, málara. Kreppuárin voru þá í algleym- ingi og oft Mtið um vininu, en Elin lagði krafta sina fram óskerta, þvi maður hennar var heilsutæpur. Með ráðdeild og sparnaði tókst þeim að eignast íbúð við Nýbýlaveig í Kópavogi. Fyrir fáum árum seldu þau þá ibúð og keyptu litla og snotra íbúð á Njálsgötu 34, sem þau munu hafa áttt skuldiausa, og sést á því að ekki mun hafa verið sóað í óþarfa. Þó munu þau hjón hafa verið gestrisin og veitul eftir því sem efni leyfðu. Með Guðmundi eignaðist Elín tvö böm, Ernu, sem gift er Stefáni Péturssyni, Snorrabraut 35 og Valdimiar, sem kvæntur er Sigurbjörgu Jósúadóttur. Sigurður var, sem fyrr segir, hjá móður sinni, þar til hann kvæntist Þuríði Stefánsdóttur. Síðustu ár Guðmundar var hann mjög þrotinn að heilsu og gat Mtið sem ekkert unnið. Hann amdaðist 1969. Síðustu æviár EMnar hrakaði henni mjög en þó hélt hún uppi heimili sinu að Njálsgötu 34. Sjálfsagt hefur hún notið aðstoðar barna sinna að einihverju leyti og að ég hygg sérstakiega Sigurðar, sem var móður sinni ætíð mjög góður sonur. Fyrir ári síðan var heils- an svo farin að ekki var viðlit að halda lengur heimili. Flutttst hún þá á EMiheiimilið Grund þar sem hún undi hag sinum vel. Hún fékk heiiablæðinigu fáum dögum fyrir andlát sitt og komst aldrei til meðvitundar eftir það. Má því segja að dauð- inn færi um hana milduim hönd- um. Búast má við að dauðinn hafi ekki verið henni óvelkom- inn ges'tur. Lifskraftamir voru þrotnir og margir af gömlu vin- unum famir á undan. Þykir mér ekki óMklegt að hún hafi stund- um hugsað einis og skáldlð: „Af liði þegar lögð er fremsta röð um leikvöll breitt og orðin hvílustofa. Mér stundum finnst þó vakan væri glðð oig vorið bjart sé gott að fá að sofa.“ einhver brotalöm vera á kerf- inu. Má geta þess, að kennar- inn í augnsjúkdómafræði, lagði sjúklinga sína i Landakots- spítala frá þvi hann hóf störf hér i bæ, og þar til hann varð sjötugur og hætti að stunda sjúklinga í spítalanum í sam- ræmi við reglur spítalans um starfsaldur lækna. Ég hefi lengi haft þá hug- mynd, að ekki veitti af að nýta 'aGtta spitala bongajrinnair til kennslu læknanema, oft haft orð á því i samtölum og raunar kom- ið því á prent fyrir nokkrum árum. Mér er það óneitanlega dálitið undrunarefni, að maður utan læknaskólans skuli fyrstur taka undir þessar hugmynd- ir opinberlega, en gleðst yfir því eigi að síður, eins og yfir öllu, sem má verða Háskólanum til vegsauka. Ég vík aftur að því, sem ég nefndi í upphafi og varð kveikja þessara hugrenninga, en það er framtíð læknánáms á Islandi. Ef haldið er áfram á sömu braut, er fyrirsjáanlegt að við menntum fleiri lækna en starfsskilyrði eru fyrir hér á landi og það myndi „óhjákvæmilega leiða til útfiutnings á læknum," eins og rector segir. Þessi útflutningur er þegar hafinn. 1 læknaskrá 1. janúar 1972, sem gefin er út af skrifstofu landlæknis, er getið allra islenzkra lækna og búsetu þeirra. 1971 luku 24 candidatar námi, en meðaltal síðustu 10 ára er 19 candidatar á ári. 1 árslok höfðu 430 læknar lækningaleyfi á íslandi, þar af voru 315 bú- siettir hér á landi. 115 voru við bráðabirgðastörf eða framhalds- nám, eða búsettir erlendis. Nokkur hluti þessa fólks kem- ur aftur að framhaldsnámi loknu, en veru'legur hluti þess hefir tekið sér bólfestu ytra og hyggur ekki á heimkomu. Þá er 81 candidat, sem á ófengið lækn- ingaleyfi og er við bráðabirgða- störf eða framhaldsnám, fáir hér heima, flestir ytra. Gegnir sama máli um þetta fólk, sumir koma heiim, en margir eiga ekki aftur- kvæmt. Af 511 læknislærð- um mönnum, eru 315 með fasta búsetu hér á landi, þar i taldir þeir, sem hættir eru störfum sak ir aldurs eða sjúkleika, en 196 eru við fra,Mhalds:nám eða satzt- ir að erlendis, þ.e. nærri 2 af hverjum 5 læknum eru ytra. Þó helmingur þeirra kæmi aftur he:m, oig kannsfci er það of há tala miðað við reynslu undan- farinna ára, þá yrði samt fimmti hver íslenzkur læknir að vinna ævistarf sitt í framandi löndum. Meðalfjöldi læknacandidata var 19 á ári s.l. 10 ár. Hvað verður þegar fjöldinn er orðinn 40, 50, 60 eða fleiri á ári? Það þýðir að þá kemur von bráðar að því, að meirihluti íslenzkra lækna verð- ur að starfa fjarri fósturjörðu, það þýðir að verulegur hluti þess unga fólks, sem byrjar nám i læknadeild Háskólans dæmir sig til útlegðar ævilangt. Það toann að vera að oss finn- ist vér hafa efni á því nú í góð- ærinu að standa undir langri og dýrri menntun margra Islend- inga fyrir erlend riki, en hitt leikur ekki á tveim tungum að vér höfum ekki efni á að missa stóra hópa af duglegu efnis- fólki úr landi. Hitt væri nær að beina þvi inn á brautir, þar sem það gæti notað hæfileika sína og dugnað til þess að byggja upp land, sem i sumum greinum er vanþróað. Þætti mér þvi rétt að rikisvald og forráðamenn Há- skó'la Islands hyigðu að því, hvort þeir eru á réttri leið með læknadeild Háskóla íslands og hugsuðu jafnframt um framtíðar verkefni skólans í öðrum grein- um. - Fiskifræði Framhalcl af bls. 15. stefnu, sem Sjálfstæðisflokkur- inn fylgir er tillitið til einstakl- ingsins í þjóðfélaginu og því markmiði er unnt að ná eft- ir mörgum leiðum. Núverandi að ferðir eða ríkjandi ástand er auðvitað ekki algilt né end- anlegt. En hvernig getur Sjálfstæðis- flofckuininn þá kOæðzt sinum bið- ilsbuxum? Eitt helzta baráttumál lýðræð- isiegs stjórnmálaafls er raun- hæft og virkt lýðræði. Forsenda þess er almennur jöfnuður og afnám misréttis, efnahagslegs eða pólitísks. AU- ir flokkar hafa beitt sér fyrir fé lagslegum úrbótum og auknu jafnrétti og umtalsverður árang ur hefur náðst i útrýmingu fá- tæktar og efnaleysis. Velferðar- þjöðfélagið er viðurkennt. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt áherzlu á efnalegt sjálf- stæði borgaranna, og hefur bar- izt fyriir aðsitiæðum, sem ýttu undir sjálfsbjargarviðleitni ein- staklinganna. Þetta sjónarmið hefur ekki eitt ráðið úrslitum, en hefur tvimælalaust átt drjúg- an þátit i efnahaigisQiegri velferð hér á landi. Sjálfstæðisflokkurinn má hins vegar ekki vera svo afdráttar- laus í afstöðu sinni til frjáls- ræðisins, að í skjóM þess skap- ist misrétti eða misskipting, með þvi að óeðlilegur auður safnist á fárra hendur, hvorki hjá ein- staklingum, félögum eða rikis- valdi. Því hlýtur athyglin í aukn um mæli að beinast að því að koma i veg fyrir óeðlilega auð- söfnun, einokunaraðstöðu eða fjármálavöld. Efnahagslegt sjálfstæði, heil- brigð samkeppni og réttlát- ur jöfnuður þarfnast verndun- ar og frjálsræðið verður að eiga sín takmörk, svo það verði ekki misnotað eða því misþyrmt. 1 þvi sambandi verður að tak- marka atvinnurekstur rikissjóðs, setja lög gegn hringamyndunum, efla atvinnulýðræði og skapa öll um almenningi möguleika til þátt töku í atvinnurekstri og eigna- myndun. Virka þátttöku fjöldans og ábyrgð hans á ákvörðunartöku í samfélaginu verður að tryggja með dreifingu valds, stærri og öflugri sveitarfélögum, breyttri kjördæmaskipan og einfaldara stjórnkerfi. Gera verður ítarlega úttekt á þeim sjónarmiðum, sem fram hafa komið varðandi hágvöxt versus mengun, og láta þar ráða ferðinni það grundvallar- sjónarmið að einstaklingurinn sé ekki vélrænt tæki i höndum hag fræðiformúlunnar, heldur mann eskja, sem á að njóta umhverfis I og lifsgæða. I því sambaridi verður Sjálf- stæðisflokkurinn að vera reiðu- búinn til að endurskoða afstððu sína til neyzluþjóðifélagsins og hinna félagslegu þarfa. Lifsgæð in rru ekki að öllu leyti fölgin i þættum efnahag og gildismat- ið fer ekki eftir gildi krónunn- ar heldur velferð sálarinnar. Menntun þjóðarinnar verður að miða við aukinn andlegan þroska og iðju sem fullnægir þörfum einstaklingá en ekki heildar. Rótleysi æskunnar er eitt stærsta vandamál þjóðfélags ins og það er stórkostlega háska legt ef lýðræðisvitund og sjálfs virðing er borin ofurliði af anar kisma og upplausn. Það er bjarg föst sannfæríng mín, að mennta- kerfið verði að móta markvisst, heilbrigðar þjóðfélagshug- myndir, siðgæði og kristin fræði. Ekki rneð því að troða í unglinga ákveðnum stefnum eða trúar- skoðunum, heldur með því að innræta lýðræðislega hugsun og kenna þeim að trúa. —O— Það sem hér að framan er upp alið, eru aðeins nokkur dæmi af handahófi. Sjálfstæðisflokkur- inn á ekki að eltast við vinsæl tJíZkufyrirbi’iigð'i þeirra sjálfra vegna, en hann á að bregðast skjótt við ef upp koma hreyí- ingar meðal þjóðfélagshópa og gera sér grein fyrir hvort þær samrýmist grundvallarskoðun- um hans, einstaklingshyggjunni. Hann á jafnvel að hafa frum- kvæði í slíkum málum. Ég hef marg oft bent á, að einstaklingshyggjustefnan eigi erindi til núttmaiþjóðifélaigs- ins, þar sem véimenninigin, hóp- sáiMn og tillitslaus áætlainagierð ræður ríkjum. Ekki til þess að draga úr nauðsynlegri yfir- stjórn eða skipulegum vinnu- brögðum, heldur til að tryggja hlut einstaklingsins sem mann- eskju í samfélaginu. Slíkar stjórnmálaskoðanir byggjast ef til vill á íhaldssömum og gamal- grónúm lífsskoðunum, en hljóta að teljast byltingarkenndar frammi fyrir þeirri sósíölsku hugmyndafræði, sem nú virðist ríða húsum hér sem annars stað- ar. HEiMSÆKIÐ GRÖÐURHUSIÐ Stór - Rýmingarsala Seljum um helgina mikið magn af mjög ódýr- um og góðum pottaplöntum, allt frá 50 kr. stykkið. Notið þetta einstæða tækifæri og fáið plantað í kerin. Einnig er á ÚTSÖLU mikið af gjafavöru, blómapottum, pottahlífum og sitthvað fleiru. Heimsækið GRÓÐURHÚSIÐ Gróðurhúsinu Sigtúni, sími 36770. Pétur Björnsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.