Morgunblaðið - 19.08.1972, Síða 24

Morgunblaðið - 19.08.1972, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST, 1972 í frjálsu ríki eftir VS. Naipaul Dayo. Þau litu alltaf niður á Dayo. Þau létu hann sofa í stof- unni og þar varð hann að búa um sig á gólfinu á kvöldin þeg- ar aðrir voru farnir að sofa. llann hafði ekki herbergi þar sem hann gæti stundað nám sitt eins og sonur Stefans. Hann varð að lesa bækurnar á litla framdyrapallinum framan við þetta litla hús frænda míns. Hann náði næstum út á gang- stéttina, svo Dayo sá alla sem fram hjá fóru og allir sáu hann. Sáu hann? Þeir gátu rétt út höndina og flett blöðunum í bók- inni sem hann var að lesa. En þessi ástundun hans á pallinum vakti athygli og hann fór að njóta virðingar í nágrenninu. Ég held að þessi virðingarvott- ur, sem vesalings drengurinn naut, hafi gert fjölskyldu Stef- ans afbrýðisama. Sérstaklega voru það dætur Stefans, sem snerust gegn hon- um, þegar eðlilegra hefði verið að þær væru stoltar af þessum frænda sínum. En, nei. Eins og annað fátækt fólk, gátu þær ekki unnt öðrum þess að rísa til vegs. Það skyldu þær einar gera. Þvi það eru þeir fátæku, sem halda öðrum fátækum niðri. Þeim fannst niðurlæging að nærveru Dayos. Ekki hefði ég orðið hissa þótt einn daginn hefðu komið boð um það frá Stefani, að Dayo væri að flangsa utan í dætrum hans og angra þær. Þið getið rétt imyndað ykkur gleði þeirra, þegar Dayo fór í prófin og féll. Þið getið ímynd- að ykkur hve glöð þau urðu í hjarta sínu. En það var bara vegna þess, hve skólinn, sem Dayo sótti, var lélegur. Hann komst ekki í góðan skóla. 1 góð- um skólum er alltaf spurt: hverra manna og hvaðan? Dayo varð að fara í einkaskóla þar sem kennararnir sjálfir eru próf lausir aular. En dætur Stefans taka ekki tillit til þess. Maður skyldi ætia að Stefan tæki málstað Dayos eftir öH stór yrðin um framsæknina og að hann mundi gera eitthvað til að hjálpa dnengnum og örva hann. En Stefan verður sjálfur skrítinn eftir að sonur hans er farinn. Hann hefur ekki áhuga á neinu. Hann er eins og maður í sorg. Eins og maður, sem býst við slæmum fréttum, að brot hætti hluturinn muni brotna og skera hann. Andlit hans verður þrútið og hárið grátt og stritt. En það er ég, sem fyrstur fæ slæmu fréttirnar. Ég kem heim dag nokkurn í miðri viku eftir erfiðan akstur með flutninga- vagninum og þar er Dayo. Hann er prúðbúinn, eins og maður I heimsókn. En hann segist vera farinn úr húsi Stefans fyrir fulit og allt. Hann fari þangað ekki aftur. Hann segir: „Þau vilja hafa mig fyrir hlaupatík." Ég sé hvað honum líður illa og ég sé, að hann er hræddur um, að við munum ekki trúa honum og mun um neyða hann til að fara aftur. Það vill faðir minn lika gera. Hann klórar sér í handleggjun- um og strýkur grátt vanga- skeggið svo skrjáfar í og hann segir eins og hann viti allt: „Þú verður bara að sætta þig við það." Svo vesalings Dayo hafði ekki í annað hús að venda en til mín. Og þegar ég lít framan i hann og sé, hvað hann er hræddur, dregur úr mér allan mátt og ég fer að titra. Blóðið ólgar í mér og mig verkjar í handleggina eins og i þeim séu vírar, sem einhver togar í. Dayo segir: „Ég verð að kom- ast burt. Ég verð að fara. Ef ég fer ekki, veit ég, að þetta fóilk gengiur af mér dauðum með af- brýðisemi sinni." Ég veit ekki, hvernig ég á að svara. Ég kann ekkert á þetta. Ég hef engin sambönd. Stefan hefur sambönd, en nú get ég ekki beðið Stefaai neins. „Ég get ekkert gert hér,“ sagði Dayo. „En við olíulindirnar?" spyr ég. „Olíulindirnar. Þeir hvitu geyma sér beztu stöðurnar. Ég gæti í mesta lagi komizt að á efnarannsóknarstofu." Efnarannsóknarstofu. Þetta orð hef ég ekki heyrt áður. Mér finnst mikið til um það. Fjöl- skylda Stefans metur einsk- is menntun Dayos, en ég sé, hvað hann hlýtur að hafa lært mikið á þessum tveimur árum og að hann hefur tamið sér nýjan talsmáta. Hann ber ekki óðan á. Röddin ris ekki og hnígur, hann patar mikið með höndunum og hann hefur fallegan hreim, svo stundum hljómar rödd hans eins og konurödd, eins og hjá mennt- uðu fólki. Mér fellur vel þessi í þýðingu Iluldu Valtýsdóttur. nýi talsmáti, þó að ég verði hálffeiminn, þegar ég horfi á hann og hiuigisia um það, að harni, bróðir m'inn, sé slíkur málsnill- ingur. Og nú fer hann að tala og ég læt hann tala og þá hverfur ótti hans og áhyggjurnar. Svo spyr ég hann: „Hvað ætlarðu að læra, þegar þú ferð burt. Lækn- isfræði, endurskoðun eða lög- fræði?" Móðir min grípur fram í og segir: „Ekki veit ég, en frá því Dayo var lítili drengur, hefur mér alltaf fundizt hann eiga að verða tannlæknir." Svona er nú hennar gáfnafar og allir vita, að hún hefur aldrei hugsað sér Dayo í tannlækning- um eða nokkru öðru fyrr en á þessu augnabliki. Við látum hana segja það, sem hún vill segja og hún fer niður í eldhús- ið og Dayo fer að tala á sinn háit. Hann svairar mér ekki beint, hann er að bræða eitt- hvað með sér og loks kemur það. Hann segir: „Flugvélaverk- fræði". Þetta orð hef ég heldur ekki heyrt áður. Ég óttast það dálít- ið, en Dayo segir að slikur skóli sé í Englandi, þar sem aðeins þurfi að borga skólagjöld. Svo þetta verður að samkomulagi. Hann fer burt til að stunda fram haldsnám í flugvélaverkfræði. Og samstundis fer Dayo að haga sér eins og fangi á flótta, eins og hann þurfi að ná skipi, sem er að leggja úr höfn, einis og honum sé ómöguiiiegt að staldira við annan mánuð á eyjunni. Það kemur líka á daginn, að hann Áklœði — Aklœdi Ensk, sænsk, hollenzk og belgísk pluss- og ýmis önnur áklæði í miklu úrvali. ásamt snúrum og kögri. Verzlunin Hverfisgötu 82, sími 13655. Geymsluhúsnœði Óskum eftir að taka á leigu lagerhúsnæði um 300 ferm. Innkeyrzla á jarðhæð nauðsynleg. Tilboð sendist Mbl. fyrir 23. ágúst merkt: „Geymsluhúsnæði — 73“ . velvakandi 0 Athugasemdir við „Rabb“ „Fei’ðamaður skrifar: Rvík, 13. 8. ’72. Kæri Veivakandi! Eftir að hafa lesið „Rabb" Jóhönnu Kristjónsdóttur í Les- bókinni 13. 8. '72, get ég ekki orða bundizt, þó að ég sé sam- mála J.K. að mestu. X sumar hef ég ferðazt víða um landið sem fararstjóri fyrir erlenda ferðamenn. Þar sem gist hefur verið í tjöldum, hef ég kynnzt vel aðstæðúm og einnig heyrt álit ferðamann- anna á þessum hlutum. Ég álít að ástandið sé víðast mjög slæmt, og sums staðar óviðun- óindi. Hef ég rætt þetta við sam ferðamenn mina og vini yfir kaffibollanum, en ætla ekki að láta þar við siitja, eins og okk- ar er von og vísa. 0 Það, sem þarf að vera á tjaldstæðum Á tjaldstæðunum ætti að vera salerni, þvottaaðstaða og ruslatunnur; einnig einhver, sem hefur eftirlit með þessu öllu. Víða hefur „spútnikum" verið komið upp, en þeir Leysa engan vanda. Hefði aldrei átt að setja þá upp. Eftir að hafa heimsótt „spútnik" einu sinni, gerir maður það aldrei aftur (felur sig frekar á bak við stór- an stein). Hafa útlendingamir 'stundum tekið myndir af þess- um annars ónothæfu hlutum. Hefðd mátt spara þá fjármimi til annars og betri útbúnaðar. Það er aðeins á tveimur tjaldstæðum, þar sem mér finnst ástándið viðunandd, en það er á Akureyri og Laugar- vatni. Þó hefur húsinu á Laug- arvatni ekki vexið valinn rétt heppdlegur staður, þannig, að sé tjaldað hjá húsinu, sem stendur rétt við veginn, er um langan veg að fara í þægindin. Á öðrum tjaldstæðum er ástandið mjög slæmt, að minu áliti og hef ég verið á mörgum tjaldstæðum sunnan- og norð- anlands, en ekki á Vesturlandi. Þetta mætti laga með dálitlum tilkostnaði, sem myndá borga sig og vera okkur til sóma. 0 Þjónusta gegn endurgjaldi Ég er viss um, að fólk vill greiða peninga fyrir þjón- ustu á tjaJdstæðum, þ. e. sal- emi, þvottaaðstöðu og rusla- tunnur. Eftirlitsmaður sæi síð- an um að halda saiemunum nóthæfum, tjaldstæðunum hreinum og inniheimta gjöldin. En fleira má betur fara. Ég ætla að nefna Krisuvík, Náma- skarð og Dimmuborgir: 1 Krisuvik og Námaskarði er nánasit ömerkt, hvar hættum- ar eru. Getur ókunnugt fólk Lent þarna i ógöngum og farið sér að voða. Er reyndar furðu- legt að ekki skuli hafa orðið þar fleiri slys en í’aun ber vitni. 1 Dimmuborgum hefur leiðin að „kirkjunni" verið merkt, en ekki er Lengur hægt að fylgja þeim vegvisum. Mætti setja kort upp við hliðið til Leiðbein- ingar fyrir ferðamenn. Með fyr- irfram þökk fyrir birtingu. Ferðamaður." 0 Gallaður glerungur á matardiskum og glösum úr leir „Mengun og hollustu- hættir eru oft rædd í blöðum og tímaritU'm víða um Lönd. Bæði vísindarit og önnur rit leggja sitt af mörkum þar. Blý er eitt þeirra efna, sem er oft getið um vegna óhollustu, sem af þvi getur stafað, og má sjá lesmál um það efni, til dæmis þar sem mátningarefni með blýi er til umræðu eða gaJlaður glerumgur á diskum eða Öðr- um miatarílátum úr leir. Ég hef orðið þess var, að í Reykjavík eru dæmi til þess, að diskar og Leirglös hafi slæm an glei’ung. Dæmi eru til þess, að sjáanlegir fx’amieiðslugallar hafi verið í glerung súpudiska, sem reyndist vera slæmur. Dæmi er til þess, að gallar i glerung á Leirgiasi hafi aukizt, þegar vökvi sem böm og full- orðnir drekka var látinn standa i því. Slíkan leirvarning forð- ast ég að niota, þegar matur og drykkur eru annars vegar. H. G." Verktakar — ræktunariélög DEUTZ 8005, 85 hestafla dráttarvél árg. ’65 með vökvastýrðú ýtublaði og 100” jarðtætara til sölu. Vél og tæki nýyfirfarin og í mjög góðu ástandi. Til sölu og sýnis hjá H/F HAMRI, vcladcild, sínii 22123, Borgartúni. Fyrirtœki vorf verður lokað vegna sumarleyfa frá og með 19. ágúst til 28. ágúst. MAGNÚS MAGNÚSSON HF., Eyrarvegi 33, Selfossi. Grindavík Til sölu 116 fm raðhús ásamt bílskúr við Staðar- hraun. Húsin seljast fokheld. Upplýsingar í símum 8066 og 8273 eftir kl. 19. Borgnesingar — Útsala ÚTSALA hefst á niánudag. KJÓLAR, JERSEY BUXUR, TERYLENEBUXUR á drengi og ungl- inga og herra og margt, margt fleira. Verzlunin VALGARÐUR, Borgarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.