Morgunblaðið - 22.12.1972, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1972
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
14444^25555
14444-S? 25555
BILALEIGAN
AKBllAUT
8-23-47
scndum
HÓPFERÐIR
Til leigu i lengri og skemmri
ferðii 8—34 tarþega bílar.
Kjartan Ingimarsson,
sími 32716.
STAKSTEINAR I
Stefán Jónsson
Alþýðubandaiagið er farið
að klofna. Veizlan er liðin, og-
nú hriktir í hinni hátimbr-
uðu byggingu bandalagsins.
Að vísu fengust Alþýðu-
bandalagsmenn í Reykjavík
til þess að samþykkja stuðn-
ing við gengisfellingartillög-
ur ráðherra sinna, undir því
yíirskini, að það œtti eftir að
reka herinn. Hins vegar vita
það bæði ráðherrar flokksins
og eins Alþýðubandalagsfé-
lagið í Reykjavlk, að enginn
meirihluti á Alþingi er fyrir
brottvikningu hersins, svo að
fyrrgreint fyrirheit er ámóta
mikils virði og uppáskrift
gjaldþrota manns á víxil.
Utan af landi berast þau
tíðindi, að Alþýðubandalagið
á Raufarhöfn hafi mótmælt
harðlega svikum ráðherra
sinna. Ennfremur hafa flokks
menn sagt sig úr félaginu og
bent er á, að nú geti svo far-
ið að enn einn sameiningar-
flokkur myndist til vinstri
við Alþýðubandalagið. Það
verður að játa, að Albýðu-
bandalagið á Raufarhöfn er
að visu ekki stórt félag, en
án efa mun samþykkt þess
hafa mikil áhrif innan komm-
únistahreyfingarinnar. Því
verður t.a.m. ekkt trúað að
óreyndu að Stefán .lónsson
hunzi gjörsamlega þessa
ályktun kjósenda sinna.
Þess vegna er þeirri hóg-
væru spurningu beint til dag-
skrárfulltrúans: Fá ekki
hlustendur útvarpsins fljót-
Iega að heyra skoðun hans á
gengisfellingunni? Rinar
Karl Haraidsson tæki það
áreiðanlega að sér með
ánægju að koma henni að i
einum af sínum hlutiausu
þáttum um þjóðmál.
Ríkisstjórnin
og
námsmennirnir
En ríkisstjórnin hefur ekki
aðeins svikið gengisfellingar-
loforð sitt, eða fyrirheitið um
að skattleggja ekki þá, sem
sizt mega sín eins og gamla
fólkið veit gerst. Hún hefur
nú svikið námsmenn landsins.
Hér áður gumuðu stjórnar-
flokkamir núverandi af, að þá
fyrst fengju námsmenn mál-
svara, er vinstri stjórn fengi
völd. Og í himmi aikunna
máiefnasamningi, sem nú
ónáðar samvizku hinnar svik
sömu rikisstjórnar dag og
nótt, segir að „koma skuii á
viðtíekum stuðningi við náms
fóik“ Og hvernig eru efnd-
irnar á þessu fyrirheiti. Fátt
lýsir þeim betur en ályktun
fundar Síne-félaga nú fyrir
skömmu. f ályktuninni segir:
„Fundur á vegum SfNE
haldinn á íslandi 18.12. 1972,
lýsir því yfir, að hann harm-
ar að núverandl ríkisstjórn
hefur á síðustu mánuðum
margsinnis slegið ryki í augu
stjómar SÍNE og félaga, með
loðnum svörum og fljótandi
loforðum, sem síðan hafa
flest verið svikin. Við teljum,
að ráðherrar og aðrir þeir er
eitt sinn studdu í orði stefnu
SÍNE, hafi gert sig að hrap-
orðamönnum, sem siglt hafi
eftir vindum, en ekki talað af
sannfæringu. Við skorum á
ríkisstjórnina að líta í eigin
barm og standa við gamlar
yfirlýsingar, nú, þegar hún
hefur tækifæri til. Það er
okkur hryggðarmál að þessi
ríkisstjörn skuli verða til þess
að námslán standi í stað eða
rýrni í fyrsta skipti í mörg
ár.“
Er varnarliðið
farið?
Hinar fjölbreytilegn túlk-
anir ráðiierra landsins á geng
isfollingarummælum í mál-
efnasamningnum á ýmsum
tinmm hafa orðið til þess að
önnur ákvæði þess plaggs
hafa verið skoðuð á ný. Um
þetta fjallaði Gunnar Thor-
oddsen alþingismaður í þing-
ræðu fyrir nokkru. Ræddi
hann um hina nýju túlkun og
sagði m.a. „Þetta væri vissu-
lega mjög athygUsverð túlk-
unaraðferð á stjórnarsáttmál-
anum að þetta ákvæði ætti að
eins við það ástand sem
var, þegar stjórnin var mynd
uð. Núverandi stjórnarflokk-
um kæmi ef til vill til hugar
að nota sömu túlkunaraðferð
siðar í öðrum samböndum. Ef
t.d. varnarsamningurinn við
Bandarikin væri tekinn til
endurskoðunar eða uppsagn-
ar skv. stjórnarsáttmálanum,
þá mætti segja í samræmi
við túlkunina á gengislækk-
unarákvæðinti, að stjórnin
léti varnarliðið hætta við að
fara, því að með varnarliðinu
hefði auðvitað verið átt vjð
varnarliðið sem var, er
stjórnarsáttmáUnn var gerð-
ur.
Nú er það svo, skv. föst-
um reglum, að hermennirnir
eru hér aðeins eitt ár, ef þeir
eru einhleypir, en fjölskyldn
menn i mesta lagi tvö ár. Áð-
ur en núverandi kjörtímabil
er á enda, þá verður allt
varnariiðið, sem var þá, er
núverandi stjórn kom til
valda, horfið af landi brott
og máiið þar með leyst og
varnarsamningurinn efndur."
spurt og svarad
Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS
Hringið í síma 10100 ki.
10—11 frá mánudegi til
föstudags og biCjið um
Lesendaþjónustu Murg-
unbiaðsins.
LEIGAN
A'JCSREKiíy 'ir.
' j - -ýfcrv SÍMI 42<60Ó. 7
MORGUNBLAÐSHÚSINU
MARGFAtBAR
161!«
2Bovrjnni)InÍíit>
mmmm
HVERT FARA FRÍMERKIN?
Jón jóhannesson, spyr:
—- Hvað verður um notuð
írimerki sem opinberum stofn
unum berast á bréfum? Þarna
hlýtur í sumum tilvikum að
vera um að ræða veruleg verð
mæti, sbr. það dæmi þegar
stjórnandi þáttar hjá Ríkisút
varpi/Sjónvarpi sagði að sér
hefðu borizt á fmmta þúsund
svör við e nni getraun.
Við töluðum við tvo aðila út
af þessu: Gunnar VagnSson,
fjármáiastjóri Útvarpsins,
svaraði: Spyrjandinn mun I
þessi tilviki eiga við kross-
gátu sjónvarpsins. Andvirði
þeirra frímerkja var, sem og
andvirði annarra frímerkja
sem sjónvarpinu berast, gefið
til styrktar heimilinu að
Skálatúni. Halldór V. Sigurðs-
son hjá ríkisendurskoðiininni,
sagði: — Það eru ekki til
neinar fastar reglur um þetta
mér er kunnugt um að
margar opinberar stofnanir
gefa þessi frímerki til góð-
gerðastoínana.
ÍSLANDSMÓT YNGRI
FI.OKKANNA
Steinar Jóhannsson, Hverf-
isgötu 31, spyr:
— Hvemig á íslandsmótið í
yngri flokkunum að starfa?
Hvenær kemur mótaskrá HSI
út og hvar verður hægt að fá
hana?
Einar Th. Mathiesen, for-
maður HSÍ svarar: — Héraðs
mótunum er nú rétt að Ijúka.
Mót yngri flokkaininia hefur
aldrei byrjað fyrr en upp úr
áramótum og þannig verður
það einnig nú. Mótanefndin er
að vinna að niðurröðuninni
sem er mikið verk og erfitt
því íslandsmótið hefur aldrei
verið stærra en í dag. Það
taka að þessu sinni þátt í þvi
150 flokkar sem þýðir um 1800
manns. Við erum lika í hús-
næðisvandræðum þar sem
hér eru í rauninni ekki nema
tvö fullkomin keppnishús,
Laugardalshöllin og íþrótta-
húsið í Hafnarfirði. Skráin er
því miður svo stór og dýr að
það er ekki hægt að gefa hana
út á prenti en félögin fá fjöl
rituð eintök og svo verður
reynt að koma henni á fram-
færi með öllum öðrum tiltæk
um ráðum, t.d. í fjölmiðlum.
RAFMAGNí
MEDALLANDIÐ?
Jytta Eiberg, „Grund“, Mel-
hól, Meðallandi, V-Skaft.,
spyr:
— Hvað kemur til að ekki
er lagt rafmagn hingað í Með-
allandið? Tvö ár eru síðan rík
israfmagn var lagt um Síðu
og Landbrot. Byggð n í Meðal
landi er i áframhaldi af Land-
brotinu, um sex kílómetrar
milli næstu bæja.
Valgarð Thoroddsen, raf-
veitustjóri, svarar:
— Rafvæðing Meðallands-
ins er í þriggja ára áætlun
um rafvæðingu í sveitum.
Gert er ráð fyrir að rafvæð-
ingu þessara 20 býla í Meðal-
landi ljúki á næsta ári.
Það hefur komið í ljós að
fólk úti á landsbyggðinni get-
ur stundum ekki náð til les-
endaþjónustunnar simleiðis,
af ýmsum ástæðum. f slikum
tilvikum er auðvitað sjálf-
sagt og velkomið að
senda skriflegar fyrirspurnir
og við munum gera okkar
bezta til að svara þeim.
ORÐ 1 EYRA ____ Gengi
Jæja, þá erum við búnir að
hafa það af að stráfelU: geng-
ið, Lúðvík ekki nema nokk-
urra kópeka virði og hanni-
ba'l brot úr brauðpenmgi
frá Bíldudalsverzlun. Það er
erfiðast að gengisfella menn-
íngarmálaráðherrann, því
hann hefur aldrei verið skráð
ur á neitt gengi, enda þótt
gengi fljótt að tylla undir
hann stólnum.
Jakob hefur alltaf verið á
þeim buxonum, að án væri
ills gengis, nema heiman
hefði, einsog kéllingin fræga
sagði, og því einsgott að kol-
fella gengið einsog skot, enda
gengið útfrá, að úrvalsskosta-
nefndin gengi ekki á bak
orða sinna um betra gengi, ef
allt gengi að óskum.
Og auðvitað er þetta ágæt
gengisfellíng. Þetfca er nebb-
lega alltöðruvísi gengisfelling
en forðum tíð, þegar gengið
var á rétt svokallaðra lág-
kunamanna, þegar gengið
var fellt. Nú er sko annar
uppi. Öld nýtur snilldar-
manna, sem gengið hafa á
hólm við fjanda þann, er
gengi kallast á voru máli, og
klofið hann í herðar niður og
vel það. Úrvalskostegengið
er líka semkunmugter skipað
hinum færustu mönnuim, enda
gengi ekki amnað en gengið
gengi á gegndarlausa vits-
muni f jármálaspekinga vorra.
Og þetta er alltsaiman ósku
gaman, og maður talar ekki
leingur um kosti einsog
Hrafnkell gamli Freysgoði,
heldur valkosti, og Jakob ætl
ar meiraðseigja ekki að bera
sér leingur í munn það nýja
orð valkostanefnd, hekti*'
notar hann ennnýyrðið úr-
valskostanefnd.
Og svo dönsum við áfram
kríngum gengiskálfinn, þeg-
ar við erum ekki önnum kaf-
in við að gánga kríngum
seðlabánkarunn snemma á
sunnudagsmorgni.