Morgunblaðið - 22.12.1972, Side 31
MORGUiNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1972
31
Fyrir skömmu efndi Vor
boðinn, sjálfstæðiskvenna-
félagið í Hafnarfirði til
jólafundar. Fundurinn var
mjög fjölsóttur, enda til
dagskrár fundarins vel
vandað.
M.a. sýndi Tómas Guðna
son, matsveinn frá „Kokk-
húsinu“, Reykjavík, ýmis-
legt í matargerð og var
mynd þessi tekin þá.
INNLENT
— Fíknilyf
Framhaid af bis. 32
Ásgeir í því sambandi á mál
tveggja útleindinga, sem enn
sitja í gæzl'uvarðhialdi vegna
stórfeWdrar dreifingar og
sölu.
„Við reynuim að hafa aiuig-
un opin eins og hægt er,“
sagði einn löggæziuimaður
við Mbl. „En það segir sig
sjálft, eiins og a'ðstæður eru,
að við getuim aðeins haft
hendui' á broti aif því 'miikla
'maigini, seim inn í iandið kem-
ur með pósti og mikl'um
stra'uimi ferðafólks.“
— Minning
Framhald af bls. 22
Guðrún var mammi s'íniuim og
starfi hans altt og heimili sínu
U'nni hún af heiium huga.
Hún var, þó af erlendum upp-
runa væri, samgróiin orðiin Is-
landi og ölliu sem íslenzkt var.
Það sýndi ræktarsemi hennar
við gróðurreit þeirra hjóna við
Elliðavatn. Þar undi hún með
manni sínu'm hverja stund, sem
gaifst frá hiniu erilssama lífs-
starfi.
Er ég haifði tal af henni síðast
í L andaiko tsspíta la, gerði hún
ráð fyrir að verða heiana uim
jólin. Heima, til að gleðjast með
manni símum, sonuim, tengda-
dætnuim og baTinabarnahópnium,
sem sum voru þá erlendis, ein
voru vænitiamleig. Þetta var henni
Míkt. Það var ful'lmægimg liíifsins
að sjá atllan myndiarlega barna-
bamaihópinin á heimili símu og
flá að eiga með þeirn stund á
degi háitiðarinnar.
Það er trú m'ín og von, að sú
ósk hemniar rætist niú.
Það siannast hér sem áður, að
milli ll'fs og datuða er aðeins eitt
(flötanáil. En við vitum Mka, að á
xniili lífsins og Drottins er að-
eins eitt fótmál.
Ég og aðrir kunnimgjar heim-
ilisins sendium niú Karli lækni,
somum, tengdadætrum og barna
börmum og öðrum aðstandend-
um innilegar saimúðat'kví'ðj ur.
Jótl Brynjólfsson.
2 útvarpsmenn víttir
ÚTVARPSSTJÓRI hefur vítt
Stefán Jónsson, dagskrármann,
og Einar Karl Haraidsson, frétta
mann og timsjónarmann þáttar-
ins „Við og f jölmiðlarnir", vegna
brots á hlutleysisreglum útvarps
ins i þættinum fyrr í þessttm
mánttði, en þar var fjallað um
samþykkt útvarpsráðs varðandi
reglttr um afskipti starfsmanna
útvarpsins af stjórnmálum.
Að sögn Andrésar Bjömsson-
ar, útvarpsstjóra, bentd hann
þessum tveimur starfsmönnum
á, hvað hefði verið ábótavant í
flutningi þáttarins samkvæmt
úrskurði útvarpsráðs, em ráðið
haifði áður fjallað um þátt þenin-
an og kvað upp þainn úrskurð,
að ummæli Stefáns Jónssonar í
þættinium væri brot á hlutleysis-
reglum útvarpsins.
Tveir 16 ára piltar
gripnir í innbroti
TVEIR 16 ára piltar voru hand-
teknir á innbrotsstað í verzlun-
inni Tízkuskenimitnni á Lauga-
vegi 66 í Reykjavík um kl. 04:30
í fyrrinótt, og við yfirheyrslur í
gær játuðu þeir á sig þrjú önn-
ur innbrot sömu nóttina og eina
innbrotstilraun, sem mistókst.
SkarpskygignSr lögregluþjónar
á eftirlitsferð um Laugaveginn
stóðu piltana að verki og höfðu
piltamir þá tekið sér hanzka í
verzluninmi. Áður um nóttima
höfðu þeir brotizt inn í skóverzl-
un Hvainnbergsbræðra á Lauga-
vegi 24, bókaverzlun Lárusar
Blöndals á Skólavörðustíg 2 og
tannlæknastofu Jónasar Thorar-
ertsens á Skólavörðustíg 2, og í
verzlunumium tveimur höfðu þeir
stolið skiptimynt, samtals um
4.000 krónum. Einnig höfðu þeir
gert tilraun til innbrots í Guð-
rúmarbúð á Klapparstig, en orð-
ið frá að hverfa, þar sem skrúf-
jám þeirra brotinaði.
Annar piltanna hefur áður
komizt á skrá vegna afbrota, en
hinn ekki. Þeir harðneita að hafa
fleiri innbrotsþjófnaði á sam-
vizkunni en þá, sem nú hafa ver-
ið upplýstir.
SIS:
EBE - samningurinn
— stadfestur hið fyrsta
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt fréttatilkynning frá
framkvæmdastjórn Sani-
hands ísl. sanivirmufélaga,
þar sem þeim tilniælnm er
beint tii ríkisst.jórnarinnar,
að samningur tslands og
Efnaliagsbandalagsins verði
staðfestur sem fyrst. Þar er
gert ráð fyrir að tollar verði
afnumdir í 5 jöfnum áföngttm
frá 1. apríi n. k. en til að svo
megi verða verður samning-
urinn að taka gildi hinn 1.
janúar næstkomandi. Ákvæði
er þó irm að fresta megi gild-
istökunni uni eitt ár.
Fréttafilkynningin fer hér
á eftir:
Framkvæmdastjóm Sam-
bainds íslemzkra samvinn'Uifé-
laga lýsir þeirri skoðun sinni
að samningur sá um friveivJ-
un og tollamál, sem undir-
ritaður var i Brussel, 22. júlí
sL mitti Isliands og Efnahags-
baindalags Evrópu hafi mikla
þýðingu fyriir íslenzkain út-
fl'Ubning í fram'fcíðinni. Á
fumdi fraimikvæmdiastjómar-
innar 20. desemiber 1972 var
samþykkt að beina þeim tiil-
mælium til pí'kisstjórnarininar
að saimnimgur þessi verði sfcað
festur sem fyrst.
Borgarstjórinn gagn-
rýnir ríkið f yrir seina-
gang skipulagsmála
BORGARSTJÓRI, Birgir ísleifur
Gunnarsson, gagnrýndi harðlega
á borgarstjórnarfundi í gær
þann seinagang, sem jafnan
væri af hálfu ríkisins við heild-
arskipulag lóða þeirra, sem rík-
ínu væri úthlutað. Þessi gagn-
rýni borgarstjórans kom fram í
umræðum um geðdeild á Land-
spítalalóðinni og einnig nefndi
borgarstjóri háskólalóðina sem
dæmi um framangreindan seina-
gang ríkisins.
.Sagði borgarstjóri það ófært,
að rikið skvldi alltaf draga svo
mjög að skipuleggja lóðir sín-
ar. „Hnífurinn er svo alltaf sett-
ur á háls okkar borgarfulltrú-
anna og við oklcur er sagt: Þið
verðið að samþykkja þessa bygg
ingu, annars eruð þið að bregða
fæti fyrir gott- mál.“ Sagði borg-
arstjóri, að þessi seinagangur
rikisins og pressa á bongarfuU-
trúa hindraði mjög allar efnis-
umræður um mál bygginga á
lóðum ríkisins.
Adda Bára Sigfúsdótfir kvaðst
taka undir þessi orð borgar-
stjóra, en gat þess þó, að nú
væri þessuim kapítula lokið á
Landspítalalóðinni, þar sem loka
tillögur um héildarskipulag henn
ar væru á næstu grösum.
Svarar ekki kostn-
aði að selja vín
Álagning skert um 35-40%
FÉLAGSFUNDUR var í gær
í Sambandi veitinga- og gisti-
húsaeigenda og var aðahimræðu
efni fundarins verðlagsmál gisti-
húsanna, en frá því í marz síð-
astliðnum liafa húsin ekki feng
ið leyfi tii þess að hækka verð
á útlagðri þjónustn sinni. Þá
fengu þau 10% hækkun, en í
nóvember ’7I, marz síðastliðnum
og svo aftur núna \ið verðhækk-
un áfengis, hefur álagning á
seld vín verði lækknð um sam-
taids 35% á léttum vínuni og
40% á sterkum vínum. Samband
ið hefur haft á orði að ekki svar-
aði Iengur kostnaði að selja vín,
en forsætisráðherra hefur lofað
því að mál þess verði tekin til
endurskoðunar eftir áramót.
Hafsteinn Baldvinsson, hrl., er
lögfræðingur sambandsins. Hann
tjáði Mbl. að í ársbyrjun 1972
hefði Sambandið látið fara fram
athugun á því hverju kostnaðar-
hækkunin næmi á tímabilinu frá
þvi er verðstöðvun var sett á í
september 1970 og til áramóta
1971—’72. Leiddi sú athugun i
ljós að hækkun kostnaðar hafði
orðið 14% á þeim tíma. I janúar
1972 sótti sambandið um hækkun
til verðlagsyfirvalda og fékk 10%
hækkun á seldri þjónustu í marz.
En sama dag og tilkynningin um
heimild til hækkunar var birt,
hækkuðu landbúnaðarafurðir um
11% og þýddi sú hækkun 5,45%
hækkun á kostnaðarliðum veit-
ingahúsanna. Sambandið óskaði
eftir því að þessi hækkun yrði
tekin með og lagði þá verðlags-
nefnd til að leyfð yrði 12% hækk
un, en ríkisstjórnin synjaði mála-
leitan sambandsins og því varð
hækkunin aðeins 10%.
í maímánuði sagði starfsfólk í
veitingahúsum upp samningum
og voru þá gerðdr nýir kjara-
samningar og nam kauphækkun
38%, en þá er að vísu meðtalin
vísitöl'uhækkun 1. júní og girunn
kaupshækkun í janúar. Eftir
þessa saim.niinga var kostnaðar-
athugunin frá þvi í ársbyrjun
endurskoðuð og kom þá í ljós að
kostnaðarhækkunin frá því í
september 1970 og þar til i júlí
1972 nam samtals 32%. Þar á
móti hafði komið heimild til
Borgarstj órn:
Ákvörðun um geðdeildina frestað
Á FUNDI iiorgarstjórnar siðd«g-
is í gær var samþykkt nieð 8
atkvæðum gegn 4 tillaga Alberts
Guðmundssonar nm aS borgar-
stjórn frestaði að taka afstöðu
tii umsóknar húsameistara rik-
isins um leyfi tii að byggja geð-
deild á lóð Landspítalans.
Kvaðst Albert Guómundsson
bera þessa tillögu fraim, þar sem
honuim hefði ekki gieCizt tíiml til
að kynna sér mál þetta nægilega
til að hann gæti tekið um það
ábyrga afstöðu. Adda Bára Sig-
fúsdóttir mælti harðast gegn
frestuninni og sagðá hún m.a. að
þeir sem hana vildu, hefðu orðið
„óheiðarlegum áróðri að bráð“.
Taldi Adda að fresfcun má'lsins
gæti orðið tiil þess. að reynt y.rði
að fá fram breytingar á fyrir-
hugiaðri byiggingu. Á mófci flrest-
uninni greiddu atkvæði auk
Öddu: Sigurjón Pétursson,
Kristján J. Gunnairsson og
Kristján Benediktssoin.
Þeir borgarstjómarf'ulltrúar,
sem til máls tóku voru á einu
máli um nauðsyn þess að geð-
deild yrði reist við Landspifcal-
ann, en ágreiningur koni fram
um með hverjum hætti það
skyldi verða.
hækkunar á þjónustu um 10%,
sem getið var hér að fra'man. 1
júlimánuði sótti þvi Samband
veitinga- og gistihúsaeigenda um .
hækkun til þess að mæta þess-
ari 22% kostnaðarhækkun, sem
á vantaði. Það erindi sambands-
ins liggur enn óafgreitt hjá verð
lagsnefnd og nú við verðhækkun
á áfengi. er álagning á vini skert,
en það hafði einnig verið gert
áður í nóvember 1971 og í marz
síðastliðnum. Á létfcum vinum
var álagning áður en til þessam
skerðinga kom 40%, en á sterk-
uim.110%. Álagning á léttum vin
um er nú 26%, en á sterkum
vínurn 66%. Skerðingin nemur
35% á léttum vínum, en 40% á
sterkum vínum. I tilefni þess-
arar síðustu skerðingar var svú
félagsfundurinn i gær ha'ldinn og
voru menn þar að bera s'aman
bækur sínar.
Hafsteinn Baldvinsson tók
dæmi um tvenn hjón, sem fara
út að borða og þau velja sér ó-
dýrustu rauðvínstegund með
matnum, St. Emilion, sem kost-
ar frá Á.T.V.R. 315 krónur. 1
veitingahúsinu kostar þessi
flaska 507 krónur, en af þvi tek-
ur ríkið í söluskatt 44 krón'ur,
þjónninn fær 66 krónur,
en veitingahúsið 82 krónur. Af
þessum 82 krónum á húsið síð-
an — sagði Hafsteinn, að greiða
fjármagnskostnað og allan rekst
urskostnað, auk þess sem það
veitir dýra þjónustu, svo sem
hvíta dúka, borðalagða þjóna og
tónldst.
En nú skulum við gera ráð
fyrir því, að veitingamaðurinn
hafi engan áhuga á að selja
rauðvínið — hann telji það ekki
borga sig — sagði Hafsteinn. —
Ef hann fær fól'kið til þess að
kaupa gosflösku, þá kostar hún
í innkaupi 6 krónur. Húsið sekir
hana á 50 krónur og fær af því
verði 33,20 krónur, þjónninn fær
6,50 krónur og 4,30 fara í sölu
skatt. Ef svo þessi tvenn hjón
kaupa fjórar gosflöskur í stað
einmar rauðvínsflösku, fær hús-
ið 132,80 kr. fyrir gosið, en að-
eins 82 kr. fyrir rauðvínið og
getur hver og eimn séð, að ekki
er eftir miklu að slægjast við
vínsölu i veitingahúsum nú orft-
ið. Mun meira er upp úr þvi að
hafa að selja gosdrykki en vín
— sagði Hafsteinn Baldvinsson.
Hafsteinn bætti því við, að
ekki hefði fengizt leiðrétting á
þessu þrátt fyrir viðtöl við verð-
lagsyfirvöld og ráðherra, en for-
sætisráðherra hefði nú lofað þvi
að mál Sambamds veitiniga- og
gistiihúsaeigenda skyldi endur-
skoðað strax eftir áramótin og
hafa félagar í sambandinu þegar
boðað fund 10. janúar, ef engin
leiðrétting fæst á máli þeirra.
Munu þeir þá á ný bera saman
bækur sínar í máli þessu ag þá
væntanlega ákveða til hverra áð-
gerða skuH gj-ipið.