Morgunblaðið - 03.01.1973, Page 19

Morgunblaðið - 03.01.1973, Page 19
MORGUNRLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1973 19 Sigríður Jónsdóttir Siglufirði — Minning Frá Siglufjarðarkirkju var í gær gerð útför Si'griðar Jóns- dóttur, sem andjaðist á sjúkra- húsd Siglufjarðar hinn 27. des- ember sl. eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Sigríður var fædd 28. sept. 1889 á Stóru-Brekku i Fljétum. Foreldrar hennar voru hjónin Anna Kristjánsdóttir og Jón Þor iáksson bóndi þar. Árið 1900 ffliuttist Sigríður með foreldrum sínum og systkinuim, þeim Birni, Ólöfiu og Margréti, að Hóli í Siglufirði, þar sem þau bjuggu í 6 ár. Skömimu eftir komuna að Hóli tóku foreldrar Sigríðar í fóstur ársgamla stúlku, Sigfús- ínu Sigfúsdóttur, og urðu þær Sigríður einkar samrýmdar alla tíð síðan, þótt aldursmunur væri nokkur. Eftir dvölina á Hóli íluttist fjölskyldan á Siglu nes, en Sigriður var þó að miklu leyti að heiman næstu ár in að vinna fyrir sér, m.a. á Akureyri, i Húnavatnssýsiu og Reykjavík. Skóianám hennar varð ekki annað en tveir vetur í barnaskóla og einn vetur i K ve n n askól anum í Reykjavík við hússtjórn og vefnað. Árið 1917 fluttist Sigríður svo til Siglufjarðar, þar sem hún átti heima æ síðan. Starfaði hún fyrstu árin sem ráðskona á heim iíi Sören Goos, sem var uimsvifa mikill atvinnurekandi á Siglu- firði á þeim árum, en 1924 gift- isf hún eftirlifandi manni sín- um, Snorra Stefánssyni, vél- stjóra og síðar framkvstj. síld- arverksm. Rauðku. Hófu þau bú skap sinn í foreldraihúsum Snorra, Hlíðarhúsi, og þar hefir heimili þeirra verið alla tið síð an. Þau Snorri eignuðust eina dóttur bama, Önnu, en þó var jafinan mannmargt á heimili þeirra einkum framan af. Enn- fremur hefir systir Sigríðar, Ólaf, átt heimidi í Hlíðarhúsi ásamt fjölskyldu sinni. Hafði Sigríður jafnan miklum heimilisstörfuim að sinna, enda helgaði hún sig þeim af stakri natni. Þó gaf hún sér tima til að vinna að félagsstörfum með fevenfélaiginu Von, sem um margra ára skeið hefiir starf- ræfet barnaheimili á Siglufirði og unnið að öðrum mannúðar- málum, og var Sigríður heiðurs- fétogi þess hin siðustu ár. Ég kynntist Sigríði fyrst fyr- ir tæpum 20 árum, er ég varð tengdasocnur hennar. Það vakti strax athygli mína, hve mikla alúð og saimvizíkusemi hún lagði í öll sín verk, efeki síður í smáu en stóru, allt var unnið af ýtrustu vandvirtoni, enda bar heimiii hennar þess ljósan vott allit til hinztu stund- ar. 1 stofuim hennar var innrétt- ing og húsbúnaður með gömlum en fáguðum brag, sem nútima- fólk hefir yfirleitt efeki séð nema þá tiibúinn á leiksviði, enda sá ég óbunnuga iðulega verða forviða, er þeir komu þar inn. Er aðdáanlegt, að henni skuli hafa enzt þrek til að sjá urn heknili sitt og eiginmann sinn, sem alblindur hefir verið mörg síðustu ár, svo vel og lengi sem raun ber vitni. Sigriður var dul og hlédræg, og liðu þvi nokkur ár, þar til ég taldi mig hafa kynnzt henni svo að þekkja skapgerð hennar og lífsskoðun. Hún var bók- hneigð og víðlesin, einkum þó i ættfræði og henni skyldum bók- menntum, en fylgdist þó mjög vel með daglegum fréttum og var óvenju minnug á menn og málefni, jafnt frá l'iðnum tíma sem nýjum. Hún myndaði sér ákveðnar sjálfstæðar skoðanir, hvort heldur var í dægurmál- um, þjóðmálum eða trú-málum, en var of hæversk til að reyna að ota þeim skoðunum að öðr- um. Samvizkusemi, ósérhlífni, nægjusemi og fórnfýsi voru þær meginstoðir, sem hún byggði líf sitt á. Þessar undirstöður lét hún aldrei haggast. Loks er mér ljúft að minnast þess, að þrátt fyrir meira en 15 ára búsetu mína og einkadóttur hennar í næsta húsi og þar af leiðandi tiðan samgang milli heimilanna, minnist ég þess aldrei að hafa heyrt hana segja orð til afskipte af mér eða mín- um högum, þótt ég hafl sjálf- -sagt geflð ærin tiiiefni til. Fyrir þá einstöku tiliitssemi vil ég minnast tengdamóður minnar með alveg sérstöku þakklasti. Blessuð sé minning þessarar sæmdarkonu. Knútur Jónsson. Grlskt orðtæki segdr: „Dánir menn eru dánir — dönsum og tökuim framtíðinni með fögnuði." Efalaust er sá hugsunarháttur, sem í orðum þessum felst, heil- næmur frá félagslegu og heilsu farslegu sjónarmiði. Enguim hlýzt &f því bót, er sorgin skradir sálina öllum æðri sem óæðri tilflnningum, unz hún stendur ein eftir og umhverfist í sj'álf.simeðaumkun. En þó. Þó er um við einungis mannlegar ver- ur, og enginn, hversu heimspeki lega og fræðilega sem hann lit- ur hin ýmsu fyrirbrigði mann- legrar tilveru, getur hjá þvi komizt. að greina í lifii sinu og sál spor, sem nákominn ættingi eða vinur hefur í þau markað, og ásamt öðrum áhrifavöldum rrtóteð skaphöfn hans og dagfar. Á barns og unga aldri verður hver og einn fyrir ótaii áhrifa frá uimhverfi sínu, en oftast er það ekki fyrr en fullorðins ár- in nálgast, að skiiningur á áhrif um þessium tekur að vakna — skyndilega rennur upp fyrir hverjum og einum, hvað og hver hann er í raun og veru. 1 leikriti sínu um mikilmennið Thomas More, lætur höfundur- inn, Robert Bolit, Thomas More spyrja hertogann af Norfolk, hvort ekki fyrirfinnist i honum ein einasta sin, sem aðeins sé Norfolk og ekkert annað. Hér snertnr Bolt hina stóru spurn- ingu um það fyrirbæri, sem nefnt er persónuleiki, og hve mikið af honum sé í rauninni manns eigið. Og nú, þegar elskuleg frænka hefur kvatt í siðaste sinn, hefi ég það sterklega á tilfinning- unni, að allt í fari hennar, skap höfn og persónuleika, hafli verið hennar eigið — allir þeir eigin- leikar, sem hún var búin í svo ríkuim mædi, hafl verið hún, eig- inleikar sem heiðarleiki, fórnar- lund, eljusemi, æðruleysi og djúp virðing fyrir trúnni og fyr- ir arfleifð þjóðarinnar, þeim máttarstoðum, sem menning Okk ar stendur og fellur með. Þessir eiginleikar eru líklega þeir, sem heimur okkar þarfnast hvað mest á þessum tímum vélrænnar hugisunar, þar sem „félagslegt öryggi“, eins og það svo hag- tega er orðað, er síaukið á kostnað frelsás, og ofannefndir mannkostir verða eins og vlnd- gári í kaffibolia samanborið við pappírsbrimið. Það er síður en svo tízíka nú á dögum að flika tilfinningum sínum eða leyfa sér að minnast með trega bernsku og æsbu, en á þessari stundu kemst ég ekki hjá því að minn- ast bemskuára minna og allra þeirra, sem þeim eru tengdir. Og þær minningar eru — auk föðurhúsanna — órjúfanlega tengdar Hliðarhúsi og þeim, sem það gamla, góða hús hafa byggt. Þar voru sögur sagðar, leikið, stutt og styrkt í þeim vandkvæðum, sem lítið, van- máttka barn ekki fékk við ráð- ið, góð ráð gefin og frætt um undur náttúrunnar, ekki hvað sízt er þau urpu af sér vetrar- hulunni í litla skrúðgarðinum, Fædd 14. september 1917. Dáin 25. deseniber 1972. 1 dag verður hafin út til greftr unar frá Fossvogsikirkju frú Klara Halldórsdóttir kaup- manns Jónssonar frá Kalastaða- koti á Hvaifjarðarströnd sem andaðist jóiadaginn sl. Hún var eiginmanni sínum, Ingólfl Sveins syni lögregluþjóni, stoð og stytta í lífinu, kát og hress alla jafna þó ekki gengi heil til skógar áð- ur yflr lyki. Þau giftust 1939 og varð þriggja barna auðið, en fyr ir þeirri miklu sorg urðu þau 1964 að sjá á bcfe syninum, Þor- steini, aðeins 18 ára að aldri. Önnur börn þeirra eru Rósa leikkona og auglýsingateiknari og Halldór flugmiaður. 1 þöglum hópi vina og vanda- manna, sem sorgin sló á sjálfa höfuðhátíð kristnin'nar er eink- anlega að minna á móður hinn- ar látmu, frú Guðm-undu Guð- mundsdóttur ekkju Halldórs kaupmanns. Við fráfall frú Klöru, sem átti í rikum mæli beztu eiginleika foreldranna, er mér tregt um tungu, hafandi þekkt þau hjón, Klöru og Ing- ólf, frá fyrstu tíð og ætíð að góðu. Rík fórnarlund og elska «1 barna sinna og sólargeislans á heimilinu, litlu dótturdóttur- innar, nöfnu sinnar, var góðri móður hjartans ylur og aðals- merki. Með trega og söknuði kveðjum við Klöru á sólhvörí- um. Þess er ég þó öruggur og færi í tal með fullvissu, að jóiin eru ekki einasta með lægstan sól argang, heldur tímaskipti með daghækkandi sólargang. Ein- föld staðreynd og sönn — en líka huggunarrík. Lárus Sigurbjörnsson. í DAG fer fram frá Fossvogs- kirkju útför Klöru Halldórsdótt- ur, húsimóðuir að Hamrahlíð 9. Klara var fædd 14. september 1917 í Reykjavík. Hún var dótt- ir hjónanna Halldórs Jónssonar kaupmanns frá Kalastöðum á Hvalfjarðarströnd og Guðmundu Guðmundsdóttur er ættuð var úr Dýrafirði. Auk Klöru áttu þau hjón tvær dætur og einn son. Æskuárin liðu i hópi foreldra og systkina og að skólanámi loknu hóf hún vinnu við verksmiðj'U- störf. Árið 1939 giftist Klara Ingóifi Sveinssyni lögregluþjóni. Var með þeán hjónum mikið jafn- ræði, bæði myndarleg í sjón og raun, dugmikil og samhent. Þeim varð þriggja barna auðið. Elztur er Halldór flugmaður hjá Loft- leiðum, þá Þorsteinn örn vél- virkjanemi og yngst Rósa aug- lýsiingateiknari og leikkona, Þau hjón urðu fyrir þeirri þungbæru raun að Þorsteinn örn féll frá að- eins 18 ára gamall árið 1964. Má nærri geta hvilíkur missir það var foreidrum og systkinum að sjá á bak Þorsteini, sem svo miklar vonir voru við tengdar. En harm sinn báru þau af þeirri stillingu og æðruleysi sem ein- kenndi dagfar þeirra allt. Þau Ingólfur og Klara stofn- uðu fyrst heimili að Mímiisvegi sem - frænka annaðist af stakri natni. Og af og til var litið tál hliðar með glettnisiegum skiin ingsglampa í augum, er lítii hönd iæddist inn á mlli rifs- berjarunnanna til að njóta af gnægtabúri náttúrurmar, þótt oft væri það rýrt af veðraham hins norðlenzka vetrar. Og oft- ar en ekki struku kinnarnar mildar, kærleiksrikar hendur, sem þrátt fyrir önn dagsins og barning mót oftum náðarlausri Móður Náttúru, giötuðu aldrei tengslum sinum við rætur, er áttu sér aðsetur í hjarta úr skiru gulli. Þegar tiifinnmgin um, að „Hin fagra nýja ver- öld“ Huxleys sé á næsita leiti og nálgist okkur hraðar en svo, að við fáum fylgzt með eða spornað við, getum við aðeins 6. Þegar hið svonefnda smáíbúða hverfi var skipulagt og tekið til úthlutunar 1951—1952 urðu þau þar meðal fyrstu landnemanina. Reistu þau sér þá smekklegt og vandað einbýlishús að Heiðar- gerði 38 og unnu sjálf öllum stundum að byggingiu þess eins og þá var siður. Heimilið i Heiðargerði 38 bar listfengi og smekkvísi Klöru fagurt vitni hvort sem á það var litið utan húss eða imnan. Innan húss mátti líta listfengar hannyrðir hennar og fagran blóma- og trjágarð ræktaði hún utanhúss ag hlúði þar að viðkvæmum gróðri öll suimur af alúð og nærfæmi. Voru þau hjónin mjög samhent við að byggja upp þetta hlýlega heim- ili og þar nutu þau og börn þeirra margra góðra stunda sem ég veit að Ingólfur og börn- in minnast nú með þakklæti og trega. Milli frumbyggjanna í Heiða- gerði tókst yfirleitt strax góður kunnin.gsskapuir eða náin vinátta sem vel hefur enzt gegnum árin. Inigólfur og Klara voru mjög vel látin aí nágrönnumum. Þau voru jafnan hressileg og hlý í viðmóti. Ég kom oft á heimili þeirra og naut þar vinsemdar og gestrisni sem geymd er í þakklátuim huga. Börnin í hverfinu voru mjög hænd að Klöru enda kunni hún vel að umgangast þau af skilíi- ingi og nærfærni. Var hennar og þeirra beggja mjög saknað er þau höfðu bústaðaskipti fyrir fiáum árum og fiuttust að Hamra hlíð 9. Varð þá færra um sam- fundi en áður eins og gerast vill í fjölmenni borgarlifsins þegar annir eru nægar og menn mikla fyrir sér vegalengdir sem þó engar eru. Klara Halldórsdóttir var ágættega greind. Hún hafði mik- inn og lifandi áhuiga á tónlist og áttu þau Ingólfur bæði sameigin legar unaðsstundir á því sviði. Börnin hafa erft þennan áhuga foreldranna i rikum mæli. Hail- dór er áhugamaður um tónlist og Rósa hefur ásamt föður sin- um fengizt nokkuð við lagasmíð, eins og mörgium mun kunnugt. Heimi'Mð var hið helga vé Klöru og því og börnunum helg- aði hún starfskrafta sína. Þar átti hún sínar hamingjustundft-. Og mikill sóiargeisli reyndist henni dóttiurdóttiirm unga sem bætzt hafði i fjöiskylduna og var sannkafflað yndi hennar og eftir- toeti. Þótt heiisa Klöru væri ekki sterk síðustu árin lét hún litt á sjá og mætti erfiSleikum og van- heilsu með dugnaði og kjarki. Meðal annars stundaði hún reglulega sundstaði borgarinnar árum saman og lét ekki veðurfar eða annað afltra sér. 1 sundið sótti hún styrk -og heiilsugjafa sem án efa hefur fært henni auikna starfskrafta og lengt Mf hennar, þótt enginn megi að lok- um sköpuim renna. Nú þegar leiðir skiljast kveð ég Klöru Halldórsdóttur með þakkiæti og virðingu. Ég veit að ég mæli fyrir munn *nargra óskað þess af öllu hjarta, að heimurinn megi ala fieiri og fleiri, sem eiga þá mannkosti, sem frænka var gædd i svo rikum mæli, til að bera. Við syrgjum og söknum frænku, en hún á sér í hjörtum ökfear eilífan iverustað, sem aldrei mun verða sviptur feg- urð sinni og hreinleika — fyrir því hefur hún sjálf séð. Guð blessi minningu þina, elsku frænka, og styrki þína nánustu, sem nú sjá þér á bak, — ekki hvað sízt harin, sem mest hefur misst, og gefi að fleiri þinir lík- ar eigi eftir að vaxa og dafna á jörðu hér og glæða það leiðar ljós, sem þú og þínir líkar hafa tendrað í hjörtum okkar, seni eftir lifum. Jósep Blöndal. gamalla kunningja hennar og nágranna þegar ég bið henni blessunar á ókominum leiðum. Hennar er sárt saknað aif vinum og ættingjum. En mestur er missir vinar mins, Ingólfs Sveinssonar og bamanna og að þeim er að vonuim sárastur harmur kveðinn við fráfall ágætrar eiginkonu og umihyggj u- samrar móður. En minningin um Klöru er þeim dýrmæt eign og harmabót á erfiðri skilnaðar stund og ókomnum tímum. Ég. færi Ingóltfi, börnunum og öðr- um, sem um sárt eiga að binda við fráfall Klöru, innilegar sam- úðarkveðjur. Guðimindur Vigfússon. Það var að morgni jóladags, að vinur okkar Ingólfur Sveins- son hringdi. Iiún Klara konan hans er dáin. Við slíka frétt stendur maður eftir hijóður og orðvana. Við dauðanum er mað- ur alltaf jafn óviðbúinn. En við förum að dæm i þínu Klara min, þegar þú varðst að sjá á eftir syni þinum, sem kippt var burtu i blóma lifsins. Þá hygig ég að þú hafir fundið meira tii, en þú vildir láta aðra sjá, þú og þið hjón hertuð ykkur upp og héld- uð ykkar göngu æðrulaus. Máske hefur það hjálpað þér að þú trúðir „að sálin vaki þó sofni líf“, og með þá trú vona ég að þú nú, hafir hitt drenginn þinn aftur. Þessar línur eru hinzta kveðja og þakkir fyrir ánægju- legar samverustundir bæði á ferðalögum og á heimiid þínu, sem þú sýndir slíka umönniyn, að fátítt er. Þar varð hver hlutur. að vera á sinum stað, fág»ður og hreinn. Nú eiga um sárt að bdnda eiginmaður, börn og li'tla nafna þin og dótturdóttír, sem þú annaðist af sömu nærgætni og gleði og blómin í garðinum þínum, sem ég hef ekki séð sýnda meiri nákvæmni og um- önnun, en þannig vannst þú öll þín störf. Eiginmanni, börnum og öðrum ættingjum sendum við ok!*ar innilegustu samúðiarkveðjur og endum þessar línur á orðum skáldsins: Er vetrar geisar stormur stríður Þá stendur hjá oss friðarengii! bliður, og þegar ljósið dagsins dvín oss drottins birta kringum skín. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt Árdís og Gunnar. SKILTuTGRAFREm OG KROSSA. Flosprent sf Nýlendugötu 14 sími 16480. Minning: Klara Halldórsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.