Alþýðublaðið - 02.09.1930, Page 3
AEÞÝÐÖBHAÐIÐ
P>ÚTSALAN.
Kápntau, Kjólatau, Morgnnkjólatan, Flanel,
mikið at golftreFÍum og sokknm o. m. fl.
Allir kjóiar og kápnr seljast i'yrir hálfvirði.
Regnfrakkar með 20% afslætti.
Einnlg er ár nógu að velja í IJtbiii okkar á Langavegl.
Notlð tækifærið til aðjgera góð kanp.
Tvisttan,
50 anra.
feO anra.
Elephant-cigarettnr.
Ljúffengar og kaldar. Fást alls staðar
fi heildsoln h|á
Tóbaksveizlun Islands h. f.
Til verzlana:
Gouda-
Steppe-
Kúmen-
ostar
rá Mjólkurbúi Flóamanna hafa nú lækkað mikið í
verði.
Ennfremur er hinn marg-eftirspurði Edamerostur
(kúluostur) nú kominn á markaðinn, framleiddur af
sama búi.
Reynið pessa ágætu og ódýru osta, og þér mun-
uð sannfærast um, að peir standast samanburð við
samskonar erlenda að gæðum og eru auk þess ódýrarí.
Sendið pantanir yðar til vor.
Sláturfélag Suðurlands,
Sími 249 (3 línur)
jna og hagur íbúanna þvi farið
versnandi. í vetur bárust bréf
frá þeim þess efnis, að þeir liðu
skort, en bréf senda þeir frá sér
í flothylkjum, þegar norðvestan-
veður er, og rekur þá flothylkið
venjulega annars staðar á Suður-
eyjum eða á meginlandi Skot-
lands. Urðu þessi bréf, sem í
liand bárust í vetur, til þess, aÖ
þeim voru tvívegis sendar vistir
•— í fyrra skiftið varð eigilient:
við eyna sökum brims. Var eyj-
arskeggjum boðið að flytja þá
á land og tóku þeir því vel, nema
þrír gamlir menn, að því er ensk
blöð sögðu frá; þeir gengu þegj-
andi burt þegar málið var rætt.
Seinni hluta vikunnar sem leið
barst Fréttastofunni svohljóðandi
skeyti:
Glasgow: Herskipið Harebell
kom í dag til Oban (Firth of
Lorne, Argyllsbire, Skotlandi). Er
herskipið á leiðinni til St. Kilda
til þess að sækja eyjarskeggja,
sem ætla að flytjast þaðan.
Hverri fjölskyldu á eyjunni verð-
ur gefin peningaupphæð og fólk-
inu verður séð fyrir húsnæði og
húsgögnum og atvinnu. Búist er
við, að Harebell verði kominn
aftur ti.l Oban á laugardag.
Á laugardaginn barst FB. ann-
að skeyti, er hljóðaði svo:
Glasgow: Harebell hefir flutt á
braut frá St. Kilda 34 eyjar-
skeggja. Fjölskyldurnar á eyj-
unni voru tiu alls. Átta þeifra
setjast aðP í Skotlandi, hinir fara
á land í Oban. — Öll skjöl og
skilríki voru flutt frá St. Kilda
á skipinu Dunora Castle, 573
kindur og 13 stórgripir. Áður en
eyjarskeggjar fóru af stað gengu
þeir í kirkjugarðinn. Gátu fæstir
þeirra dulið hve sárt þeim þótti
að verða að hverfa á braut .frá
heimkynnum sinum. — St. Kilda
hefir verið bygð í meir en þús-
und ár.
Skeyti þetta er dálítið ógreini-
legt. Eyjarskeggjar eru ekki tald-
ir nema 34, en munu vera nær
80. Þó verður skeytið helzt skilið
svo, sem að allir eyjarbúar hafi
fluzt í iand.
(Myndir af íbúum St. Kilda
eru í sýningarkassa Alþýðu-
blaðsins.)
Góður afli.
Einn af vélbátum Samvinnufé-
lags ísfirðinga hefir aflað um
8800 tunnur síldar í sumar og
annar nær því jafn mikið.
Síldveiði byrjuð aftur.
1 gær kom einn af bátum Sam-
vinnufélags Isfirðinga, „Vébjörn",
til Siglufjarðar með milli 600 og
og 700 tunnur síldar. Fékk hann’
síldina alllangt norð-austur af
Gfímsey.
Heimfiutuingur lika norðnr-
faranna.
Lundúnum (UP). 2. ,sept. FB.
Frá Tromsö er símað: „Brat-
vaag“ kom kl. 9 í morgun. í
fylgd með skipinu var varðskipið
„Michael Sars“. — Adolf Hoel
annast móttökuna. Lík leiðang-
ursmannanna verða flutt á land í
Tromsö og rannsökuð í rann-
sóknarstofu sjúkrahússins og um-
búin til varðveizlu og flutnings
til Svíþjóðar, þar sem þau verða
jarðsett. Eru þau að eins beina-
grindur, segir dr. Horn. — TaliÖ
er líklegt, að fundur dr. Horns
leiði til þess, að hafist verði
handa um að gera frekari rann-
sóknir á norðlægum stöðum, til
þess að komast að hinu sanna um
afdrif margra norðurfara, sem
létu líf sitt á norðurvegum.
Þjóðernissinnaæsingar
í Póllanði.
Lundúnum (UP). 1. sept. FB.
Frá Varsjá er símað: Pólverjar
halda áfram að 'sýna Þjóðverj-
um andúð víðs vegar í landinu.
Þannig hefir múgurinn á nokkr-
um stöðum mölvað rúður í skrif-
stofum þeirra blaða, sem hafa
ekki tekið þátt í árásunum á
Þjóðverja. í Varsjá söfnuðust
menn saman fyrir utan þýzka
sendiherrabústaðinn og voru þar
óp og ólæti. Lögreglan dreifði
mannfjöldanum.
Zaleski veitti áheyrn nefnd úr
hópi kröfugöngumanna og full-
vifesaöi þá um, að stjórnin myndi
vera á varðbergi, að ekki væri
gengið á hluta Póllands í neihu
né að um neinar landamæra-
breytingar Póllandi í óhag yrði
að ræða.
Aulmpóstur kemur á fimtudag-
inn að austan — frá Kirkjubæj-
arklaustri.
Af síldveidum komu í gær
línuveiðararnir „Ólafur Bjarna-
son“ af Akranesi, „Bjarki" og
„Fáfnir“. Höfðu þeir aflað vel í
sumar.
Nýtt Atlantshafsflng.
Lundúnum (UP). 1. sept. FB.
París: Flugmennirnir Costes og
Bellonte lögðu af stað í Atlants-
hafsflug í dag kl. 10,55 f. h. frá
Le Bourget-flugstöÖinni. Flugvél
þeirra heitir „Quatation mark“.
Þeir hafa meÖferðis 1155 gallon
af bensíni, sem nægir til 32
klst. flugs.
Síðar hefir frézt af þeim. Var
hraði flugvélarinnar þá 100 (ensk-
ar) mílur á kl.stund.
Verðhækkun ámatvælum
Ein afleiðing þurkanna miklu
í sumar er sú, að verð hefir
hækkað í Bandaríkjunum á ýms-
um matvörutegundum. Verð á
kartöflum, eggjum og mjólk hef-
ir hækkað, og nemur hækkunin
alt að 40o/o. Búast menn við, að
verð á þessum afurðum verði
hátt næstu mánuði. Hins vegar er
ekki búist við, að brauðverð
hækki. Landbúnaðarráðuneytið
ætlar, að kornuppskeran verði
690 milj. bushels minni en í fyrra
vegna þurkanna. 1. ágúst var bú-
ist við, að kartöfluuppskeran. yrði