Morgunblaðið - 28.04.1973, Síða 16

Morgunblaðið - 28.04.1973, Síða 16
16 MORÖUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1973 Otgefandi hf. Árvakur, Reykjavtk. Framkvaemdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúl Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjórl Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjóri og afgreiðsla Aðalstræti 6, slmi 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, slmi 22-4-80. Askriftargjald 300,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasðlu 18,00 kr. eintakið. ¥ gær var tekin ákvörðun * um að hækka stofngengi íslenzku krónunnar um sex af hundraði. í desember sl. tók ríkisstjómin ákvörðun um að lækka gengi krónunn- ar um 10,7 af hundraði. Um miðjan febrúar sl. var gengi krónunnar enn fellt um 10 af hundraði vegna gengisfalls Bandaríkj adollars. Nú gerist það hins vegar, aðeins nokkrum dögum eftir áð ríkisstjómin sendir Al- þingi heim, að tekin er ákvörðun um gengishækkun. Sú spurning hlýtur óhjá- kvæmilega að vakna, hvaða aéórfelldu breytingar hafa átt sér stað á þessum skamma tíma, sem liðinn er frá síð- ustu gengisfellingu. Fyrir rúmum tveimur mánuðum var ríkisstjómin gagnrýnd fyrir að fella í annað skipti gengi krónunnar til jafns við Bandaríkjadollar, enda hef- ur gjaldeyrisöflunin að nokkru leýti vérið í öðrum gjaldmiðli. í áætlunum þeim, sem rík- isstjómin studdist við, var þó reiknað með metveiði á loðnuvertíðinni og hækkandi útflutningsverðlagi. Engu að síður var gengið fellt til jafns við dollarann og nú, rúmum tveimur mánuðum síðar, er gengið hækkað með þeim rökstuðningi, að út- flutningsverðlagið hafi hækk að að meðaltali um 10 af hundraði frá því að fiskverð var ákveðið við upphaf vetr- arvertíðar. Þessi síðasta ákvörðun rík- isstjórnarinnar sýnir því einkar vel þá ringulreið, sem nú ríkir við stjórn efnahags- málanna. Ríkisstjórninni hef- ur ekki enn tekizt að ná tök- um á efnahags- og verðlags- málunum. Hver bráðabirgða- ráðstöfunin er gerð á fætur annarri, án þess að nokkur árangur náist. Þvert á móti virðist sá vandi, sem við er að glíma í þessum efnum, stöðugt fara vaxandi. Ljóst er, að hér er um til- raun að ræða, sem miðar að því að hægja á verðbólgu- skrúfunni, sem snúizt hefur með meiri hraða að undan- förnu en fyrr. Eins og nú standa sakir er vitaskuld ógerning r að segia til um, hvort þessi tilraun tekst eða að hve mik - leyti. En víst er, að gengishækkunin mur hafa mjög iítil áhrif til lækk unar á kaupgjaldsvísitöluna, eða aðeins um 2VÉ stig. Tii samanburðar má geta þess, að gert er ráð fyrir, að kaup- gjaldsvísitalan muni hækka um a.m.k. 16 til 17% fyrstu sex mánuði þessa árs. Þegar gengishækkunin var tilkynnt í gærdag sagði Jó- hannes Nordal, bankastjóri Seðlabankans, að hér vær: ekki um að ræða neina end- aíilega lausn á efnahagsvand- anum, þó að hún væri tií bóta á því ástandi, sem verið hefði. Ekki er því ólíklegt, að búast megi við enn frekari bráðabirgðaráðstöfunum á næstunni. Samhliða gengishækkun- inni hefur verið ákveðin 2 tii 3% hækkun sparifjárvaxta og 2% hækkun útlánsvaxta. Útlánsvextir verða því allt að 12%. Þessi ákvörðun er að ýmsu leyti eftirtektarverð með hliðsjón af því, að nú- verandi stjórnarflokkar börð- ust mjög harkalega gegn svipaðri vaxtahæð á fyrstu árum viðreisnarstjórnarinn- ar, Þetta varpar því enn skýr- ara Ijósi á þá staðreynd, að ríkisstjórnin og stjórnar- flokkarnir eru stefnulausir og reikandi varðandi flest aðsteðjandi vandamál. Jóhann Hafstein, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í viðtali við Morgunblaðið í dag: „Ráðstafanir þær í pen- ingamálum, sem nú eru gerð- ar, fela í sér tilraun tií þess að lagfæra lítillega það, sem úrskeiðis hefur farið að und- anförnu. Við sjálfstæðismenn gagnrýndum, að króhan hef- ur tvisvar verið felld í fullu samræmi við gengisfellingu dollaranis. Gjaldeyrisöflunin hefur ekki verið nema 6% í dollurum, en 40% í öðrum gjaldeyri ög innfluttar vörur allt að 75% í öðrum gjaldeyri keyptar en dollurum. Sér- staklega hefði átt að gæta þessa við gengisfellinguna 15. febrúar sl., þegar vöru- verð í innflutningi fór hækk- andi.“ Þá segir Jóhann Hafstein í þessu viðtali: „Ekki er hægt að þakka ríkisstjórninni, þótt aflabrögð, sérstaklega á loðnu, hafi verið með ágæt- um. Heldur ekki hitt, að verð- lag útflutningsafurða sjávar- útvegsins hafi hækkað gífur- lega á erlendum mörkuðum." Sérstaklega er athyglis- vert, að þessar ráðstafanir eru gerðar fáeinum dögum eftir að Alþingi er sent heim. Þegar á það er litið, hversu mikið kapp ríkisstjórnin lagði á að ljúka störfum Alþingis fyrir páska, hljóta að vakna grunsemdir um, að hún hafi viljað losna við þingið til þess að hafa frjálsari hendur til ýmiss konar aðgerða í efnahagsmálunum en hún ella hefði haft vegna innfi sundrungar. Eða ætlast ríkis- stjórnin til, að menn trúi þvi, að gengishækkunin og vaxta- hækkunin sé hugdetta, sem ráðherrarnir hafa fengið jrfir páskana? HUGDETTA UM PASKANA? Ingólfur Jónsson: Sinnuleysi í landhelgismálinu leiðir til vansæmdar og tjóns Landhelgisdeilan er að harðna og veldur það mörg- um ahyggjum. t>að verður að teljast heppni, að ekki hef- ur orðið slys á mönn- um í átökum milli varðskips- manna og lögbrjótanna. Land- helgisgæzlan er að mörgu leyti vanbúin til þess að verja landhelgina gegn þeim yfirgangi, sem nú fer fram á miðunum. Þegar landhelgin var færð út bar brýna nauð- syn til þess að efla gæzluna, auka varðskipaflotann og búa hann nauðsynlegum tækjum. Rikisstjórnin hefur ekki haft nægilegan skilning á málinu. Sjálfstæðismenn hafa flutt frv. og tillögur á Alþingi um eflingu landhelgisgæzlunnar. En ríkisstjórnin hefur ekki sinnt því, eins og skylt var að gera. Varðskípsmenn hafa gert það, sem í þeirra valdi stendur, miðað við aðstæður. Það má vissulega teljast vel af sér vikið, þegar skipshöfn in á Árvakri hrellir lögbrjót- ana með því að klippa á báða togvírana, Árvakur uppfyll- ir ekki þær kröfur, sem gerð- ar eru til varðskipa. Gang- hraði Árvakurs mun ekki vera meiri en á togurunum, og engin fallbyssa er á skip- inu. Lögbrjótamir gerðu sér fulla grein fyrir útbúnaði Árvakurs og ganghraða og gerðu ítrekaðar tilraunir til þess að sigla á skipið, með það í huga að sökkva þvi. Þannig má ekki búa að gæzlumönnunum og setja þá í augljósa ættu við skyldu- störfin. Hinum varðskipunum hefur oftast tekizt að forð- ast ásiglingu lögbrjótanna, vegna þess að þau eru vopn- uð og haía mikinn gang hraða. Landhelgisgæzlan hef ur klippt á togvlrana á mörg um togurum, siðan landhelg- in var færð út 1. september 1972. En útgerðarfélögin fá skaðann bættan af opinberu fé, og hafa þvi engar áhyggjur af fjárhagslegu tjóni. Togaramir hafa með sér veiðarfæri til vara og geta því haldið veiðum áfram eftir stuttan tíma. Eigi að síður ber að halda klipp- ingum á togvíra áfram, þótt áhrifin af þvi séu minni en margir hafa haldið. Marg ir gera og kröfur til þess, að landhelgisbrjótamir verði færðir til hafnar og lög lát- in yfir þá ganga. Þetta eru eðlileg viðhorf, þegar málið er skoðað frá einni hlið. En spumingin er aðeins sú, hvort krafan getur tal- izt raunhæf, þegar aðbúnað- ur og aðstæður varð- skipsmanna eru hafðar 1 huga. Þegar margir togarar eru saman í þeim tilgangi að verja hver annan er erfið- ara en margur hyggur að taka togara og færa hann til hafnar. Til þess að það mætti takast yrði að beita meiri hörku, en hingað til hefur verið leyft að hafa 1 frammi. Þá væri ekki um annað að ræða en að skjóta föst- um skotum og reka í burtu þá togara, sem reyndu að verja lögbrjótana. Ennfremur væri óhjákvæmilegt að fjölga mönnum á hverju varðskipi verulega, þvi búast mætti við átökum milli togaraskipshafn ar og varðskipsmanna við töku togarans. Þessi atriði þarf að hug- leiða og yfirvega vei, áður en svo örlagarík ákvörðun væri fcekin, að beita fyllstu hörku hlífðarlaust. Islendingum gremst, hvem ig sjómenn frá voldug- um grannþjóðum haga sér á heimamiðum Islands. Athuga ber í alvöru, hvað unnt er að gera til þess . að út- færsla landhelginnar sé ann- að og meira en aðeins að nafn inu til. Ríkisstjómin er tómlát og aðgerðalitil. Laragt er síðan bent var á nauðsyn þess að þjálfa aukaáhafnir á varð- skipin, til þess að skip- in þyrftu ekki að vera 1 höfn, þótt skipsmennimir fái eðli- leg frí. En það hefur ekki enn verið gert, eins og brýn þörf er á. Bréf frá 18 togaraskipstjór um um ástandið á fiskimið- unum hefur vakið mikla at- hygli. Þá vekur það einn- ig afhygli, hvernig æstustu stuðningsmenn ríkisstjómar- innar skrifa um ástandið á miðunum og aðgerðir ríkis- stjómarinnar í landhelgis- málinu. Nýlega birtist grein i Þjóðviljanum, þar sem full- yrt var, að útfærsla land- helginnar væri enn sem kom- ið væri, aðeins brezkum og v- þýzkum togurum í hag. Ingólfur Jónsson. Sinnuleysi eða aðgerða- leysi má ekki vera lengur ráðandi í landhelgismál- inu. Málið verður að taka föst um og skynsamlegum tök- um. Reyna verður á það, hvort unnt er að ná bráða- birgðasamkomulagi, sem Is- lendingar þurfa ekki að bera kinnroða fyrir við Breta og V-Þjóðverja. Ef bráðabirgða- samkomulag yrði gert við Breta og V-Þjóðverja yrðu þeir að falla frá málarekstri fyrir Alþjóðadómstólnum. En verði ekkert samkomulag gert, ber ríkisstjórninni að hafa samráð við landhelgis- nefnd og Alþingi, m.a. um sókn og vörn fyrir Alþjóða- dómstólnum um efnisatriði fiskveiðideilunnar. Á það hefu-r verið bent, að með því að hafa málsYÖm í Haag, megi draga dómsupp- kvaðningu fram yfir Hafrétt- arráðstefnuna. Með þvi væri málstaður íslands vel tryggð ur. Um leið og Islendingar ákveða, að senda málflytj- anda til Haag, ber að krefj- ast þess, að Bretar og V- Þjóðverjar virði 50 milna lín una, meðan máiið er fyrir Alþjóðadómstólnum. Oft hef- ur verið vitnað til þjóðarein- ingar í landhelgismálinu. Vissulega er nauðsynlegt, að þjóðin standi samhuga í svo mikilsverðu máli. En eining- in getur ekki til lengdar byggzt eingöngu á þegnskap stjórnarandstöðunnar, hvern ig sem ríkisstjórnin stendur að málinu. Þá kröfu verður að gera til valdhafanna, að Landhelgisgæzlan verði efid eftir því sem nauðsyn- legt þykir. Einnig ber rikis- stjórninni skylda til, að hafa náið samráð um, hvernig bregðast eigi við og hvað gera skuli, til þess að fá skjóta og heppilega iausn í málinu. Ætlast verður til, að sam- komulag megi verða um að senda málsvara til Haag, ef bráðabirgðasamkomulag við Breta og V-Þjóðverja fæst ekki innan skamms. Þjóðar- eining þarf að verða um, að halda uppi sókin og vörn íyr- ir Alþjóðadómstólnum og fylgja fast eftir kröfunni um, að Bretar og V-Þjóðverjar haldi sig utan 50 milna lin- unnar, meðan málið er fyrir dómstólnum, eins og sam- komulagið frá 1961 gerir ráð fyrir. Ef Bretar og V-Þjóð- verjar brytu samkomulag- ið frá 1961 og héidu áfram tilraunum til veiða innan 50 míina linunnar, meðan mál- ið væri fyrir Haag, fengju þeir andúð flestra, einnig þeirra, sem fram að þessu hafa talað þeirra máii. fslend ingar standa þá enn betur að Vígi til sóknar og varnar, til þess að vinna málið með fuilri sæmd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.